Morgunblaðið - 01.07.1989, Qupperneq 21
21
MORGUNBLABIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
Áhrifamenn í stjórnarflokknum í Japan:
Sosuke Uno segi af sér
vegna kynlífshneykslis
Tókíó. Reuter.
ÞRÍR atkvæðamiklir félagar í
Frjálslynda lýðræðisflokknum í
Japan hafa hvatt Sosuke Uno,
forsætisráðherra landsins, til að
segja af sér sem fyrst vegna
frásagna japanskra fjölmiðla af
kvennafari ráðherrans. Kemur
þetta fram í frétt Kyodo-frétta-
stofunnar. Japanska slúð-
urtímaritið Focus birti í gær
grein um kynni forsætisráð-
herrans af ungri og upprenn-
andi geishu eða lagsmey.
Fregnir af því að slík frásögn
væri væntanleg ollu því að sögn
ónafiigreindra heimildarmanna
að Uno lagðist í rúmið af
áhyggjum og vildi segja af sér.
Japanskir embættismenn reyna
nú allt hvað þeir geta til að
draga fram bjartar hliðar á Uno
fyrir leiðtogafúnd sjö helstu
iðnríkja heims sem hefst í París
14. júlí.
ffyodo-fréttastofan segir frá því
að Takeo Fukuda, fyrrum forsæt-
isráðherra, Susumo Nikaido, fyrr-
um varaformaður Fijálslynda lýð-
ræðisflokksins, og Raizo Matsuno,
fyrrum ráðherra flokksins, telji að
Uno hafi beðið svo mikinn álits-
hnekki undanfarið að honum væri
ekki vært öllu lengur í embætti.
Sagt er að fyrrgreindir áhrifamenn
í flokknum hafi rætt þá leið út
úr ógöngunum að valinn yrði eftir-
maður Unos úr hópi annarra ráð-
herra flokksins.
Tímaritið Focus segir frá því
Reuter
Eldsvoði íháhýsi
Eldur varð laus í háhýsi í borginni Atlanta í Bandaríkjunum í gær með þeim afleiðingum að Qórir
fórust og yfir 30 manns slösuðust. Á myndinni sést hvar maður nokkur hefúr dregið eitt fórnar-
lamba eldsvoðans að brotnum glugga á sjöttu hæð háhýsisins. Það var um seinan en hins vegar
tókst slökkviðliðsmönnum að ná þeim er björgunina reyndi úr byggingunni.
Sosuko Uno Reuter
að forsætisráðherrann hafi átt í
ástarsambandi við lagsmeyjarlærl-
ing undir lögaldri. Einnig segir frá
því að náinn ráðgjafi Unos sé fé-
lagi í vændisklúbbi. Haft er eftir
öðrum aðstoðarmanni forsetans
að Uno hafi sagt þegar ásakanim-
ar vom bomar undir hann að „þær
væra út í hött, til að mynda hefði
hann ekki haft ráð á holdlegu sam-
bandi við geishu.“
í umijöllun blaðsins segir frá
því hvemig ungar, verðandi geis-
hur era sviptar meydómi með mik-
illi viðhöfn og í samræmi við gamla
hefð. Látið er að því liggja að Uno
hafi tekið þátt í slíku athæfi.
Félagar í Fijálslynda lýðræðis-
flokknum, sljórnarflokknum í Jap-
an, segja að Uno hafi verið svo
bragðið þegar fréttist um fyrir-
hugaða frásögn Focus að hann
hafi viljað segja af sér. Öldungar
í flokknum eiga þó að hafa af-
stýrt afsögn Unos með því að leiða
honum fyrir sjónir að of lítill tími
væri til að skipta um forsætisráð-
herra fyrir leiðtogafundinn í París.
Ráðgjafar Unos reyna nú allt
hvað af tekur að bæta ímynd ráð-
herrans. Að sögn ónafngreindra
embættismanna er eina leiðin fyr-
ir Uno til að rétta úr kútnum að
búa sig sem best undir leiðtoga-
fundinn. „Og til að forðast vand-
ræði og skömm á fundinum verður
hann að sýna óvænt heimspekileg
tilþrif sem rista svo djúpt að fólk
á borð við Margaret Thatcher og
Francois Mitterrand láti hrífast,“
eins og einn embættismannanna
komst að orði.
Júgóslavía:
Serbar og
Króatar
deila
Belgrað. Reuter.
Þjóðernisátök halda áfram
í Júgóslavíu og á föstudag
sökuðu Serbar forsætisráð-
herra Júgóslavíu, Ante
Markovic sem er Króati, um
að hafa beitt þá misrétti. Serb-
neska dagblaðið Politika Eks-
pres sagði að forsætisráðherr-
ann héldi niðri verði á raforku,
en Serbar era helstu raforku-
framleiðendur landsins. Hins
vegar sæi forsætisráðherrann
til þess að verð á afurðum
Króata væri hátt. Sjónvarpið
í Zagreb í Króatíu átaldi
Slóbódan Milosevic, leiðtoga
Serba, fyrir að segja í ræðu
fyrr í vikunni, að Serbar gætu
þurft að grípa til vopna til að
varðveita sérstöðu sína. Sam-
band Serba við nágranna sína
Króata og Slóvena hefur
versnað mikið síðasta ár og
hafa margir áhyggjur af því
að Júgóslavía sé að liðast í
sundur.
Argentína:
Fá snilling í
efnahagsmál-
um
Buenos Aires. Reuter.
Bandarískur efnahagssér-
fræðingur, Jeffrey Sachs, hef-
ur verið fenginn til að aðstoða
Argentínumenn í baráttunni
við verðbólguna. Hann mun
vinna með Carlos Menem sem
tekur við embætti forseta Arg-
entínu af Raúl Alfonsín 8. júlí
nk. Búist var við að Alfonsín
segði formlega af sér embætti
í gærkvöldi. Sachs hefur áður
komið Bólivíumönnum til
hjálpar en efnahagsáætlun
sem hann gerði kom verð-
bólgunni í Bólivíu úr 8.170%
árið 1985 niður í 11% árið
1987. Sachs er 34 ára og lauk
prófi úr Harvard-háskólanum
í Bandaríkjunum.
í dag og á morgun
sýnum við nýjuslu bílana,
BMW Touring og RenauH 19.
Hefuröu reiknaö meö hagstæöa skiptitilboöinu okkar, sem auðveldar þér aö eignast nýjan bíl á góöum kjörum?
Verið velkomin í reynsluakstur um helgina. Opið í dag og á morgun frá kl. 13 til 17.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, sími 686633, Reykjavík.
RENAULT