Morgunblaðið - 01.07.1989, Síða 24
24
MOftGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
ÍS AL gefur Lífíræði-
stofhun smásjár
ISLENSKA álfélagið hf. hefur
fært Líflfræðistofhun Háskóla
Islands tvær smásjár að gjöf,
sem notaðar verða í Rannsókna-
stöðinni við Mývatn.
í fréttatilkynningu frá Líffræði-
stofnun Háskólans segir að smá-
sjárnar muni auðvelda rannsóknir
á lífríki Mývatns. Þær bæti úr til-
finnanlegum tælqaskorti og komi
í veg fyrir flutning tækja milli
Reykjavíkur og Mývatns og spari
þannig fé, tíma og fyrirhöfn, en
gjöfin sé liður í þeirri yfirlýstu
stefnu ÍSAL að leita eftir sam-
starfi við Háskóla íslands og stofn-
anir hans.
Búðardalur:
Gróðursett í Dölum
Búðardal.
Skógræktarfélag Dalasýslu
gekkst fyrir gróðursetningu
trjáplantna 17. júní. Gróðursett-
ar voru 5.500 tijáplöntur af
ýmsum tegundum víða um sýsl-
una.
Hér í Búðardal var mjög mikil
þátttaka fólks við gróðursetning-
una milli 30 og 40 manns þegar
flest var í vinnu.
í Búðardal hefur vaknað mikill
áhugi fyrir fegrun umhverfis hér
á auðum svæðum og eins í kring-
um híbýli manna og er þetta lang-
stærsta átak í skógræktarm’alum
fram að þessu. Formaður skóg-
ræktarfélags Dalasýslu er Vilborg
Eggertsdóttir.
- Kristjana
* +
Iþróttakennaraskóli Islands:
Tuttugu nýir íþrótta-
kennarar brautskráðir
St. Jósefsspítali:
Bergþórusystur gáfii augnskoðunartæki
Rebekkustúkan nr. 1, „Bergþóra" IOOF, heim-
sótti St. Jósefsspítala og færði honum gjöf í til-
efhi 60 ára stofhafmælis stúkunnar. Þetta er
hljóðbylgjutæki, sérhannað til augnskoðunar og
er m.a. notað til greiningar á sjúkdómum inni í
auganu. Myndin var tekin við afhendingu gjáfar-
innar.
Tónleikar í Húsavíkurkirkju
TUTTUGU íþróttakennarar voru brautskráðir frá íþróttakennara-
skóla íslands er skólanum var slitið 2. júní sl. í vetur stunduðu 53
nemendur nám í skólanum í tveimur ársdeildum. Viðurkenningu
fyrir góðan námsárangur hlutu Matthías Bjarki Guðmundsson frá
Flúðum og Jónína Guðrún Kristinsdóttir frá Laugarvatni og Guð-
björg Finnsdóttir fyrir störf að félagsmálum nemenda.
íþróttakennarar sem brautskráð- kvæmdastjóri. Ávörp og kveðjur
ust fyrir 40 árum heimsóttu skólann
á útskriftardaginn og færðu honum
peningagjöf, sem veija á til fegrun-
ar við hús skólans. Orð fyrir þeim
hafði Hjörtur Þórarinsson fram-
fluttu Reynir G. Karlsson íþrótta-
fulltrúi ríkisins, Hafsteinn Þor-
valdsson framkvæmdastjóri er flutti
kveðju og viðurkenningu Ung-
mennafélags íslands til nemenda
GUNNAR Guðbjörnsson og
Jónas Ingimundarson halda
tónleika í Húsavíkurkirkju
sunnudaginn 2. júlí kl. 21.00.
Gunnar Guðbjömsson hefur
komið víða fram sem einsöngvari
á síðustu ámm en sl. vetur stund-
aði hann nám í Berlín. Gunnar
söng hlutverk Don Ottavíos í upp-
færslu íslensku Ópemnnar á Don
Giovanni árið 1988 og sama ár
söng hann hlutverk Clotarcosar í
ópem Haydns Armída, á cperu-
hátíðinni í Buxton. Gunnar mun
halda einsöngstónleika á þessari
sömu hátíð síðar í júlí á sama tíma
og söngvaramir Margarethe Price
og Thomas Allen.
Gunnar mun stunda nám í Lon-
don næsta vetur en honum hefur
boðist að syngja hlutverk Ferran-
dos i ópem Mozarts „Cosí fan
tutte“ hjá velsku Þjóðarópemnni
í Cardiff að ári.
Jónas Ingimundarson þarf vart
að kynna. Píanóleikur hans er
löngu kunnur hvort sem um er
að ræða einleik eða samleik. Hann
fyrir félagsstörf, Ingibjörg ívars-
dóttir formaður íþróttakennarafé-
lags íslands veitt viðurkenningu
fyrir námsámgur og Jón Hildur
Bjamadóttir fulltrúi nemenda þakk-
aði fyrir þeirra hönd og kvaddi
skólann.
í ræðu kma Guðmundssonar
skólastjóra IKI kom fram að aðsókn
að skólanum væri mikil og langtum
meiri en hægt yrði að sinna. Einnig
að lög um skólann væm í endur-
skoðun og að lagt yrði til að skólinn
yrði lengdur og starfaði á háskóla-
stigi í tengslum við aðrar kennara-
menntunarstofnanir. Fram kom
einr.ig hjá skólastjóra að vandræði
hefðu skapast vegna ófullnægjandi
aðstöðu til sundiðkana á Laugar-
vatni. Brýn þörf væri á sksjótum
úrbótum með byggingu nýrrar
sundlaugar. Einnig þyrfti að endur-
bæta íþróttavelli skólans hið bráð-
asta.
hefur leikið með öllum okkar
bestu söngvurum en einnig með
erlendum listamönnum sem sótt
hafa okkur heim, síðast með stór-
söngvaranum Jorma Hynnanen á
tónleikum norðanlands í fyrra.
Jónas er nýkominn úr tónleikaför
um Norðurlönd ásamt Kristni Sig-
mundssyni en báðum var þeim
lofsamlega tekið.
Gunnar og Jónas munu flytja
lög úr ýmsum áttum, eftir íslenska
og skandinavíska höfunda, en
þeir flytja einnig ljóð eftir Schu-
bert og óperuaríur.
(Fréttatilkynning)
Að loknum tónleikunum í Akraneskirkju 9. maí síðastliðinn.
Tónleikar í Borgar-
flarðarprófastsdæmi
í KIRKJUNUM í Saurbæ, Staf-
holti, Borgarnesi, á Akranesi og
Hvanneyri hafa undanfarið verið
haldnir tónleikar á vegum nefnd-
ar sem skipuð var á héraðsfúndi
BorgarQarðarprófastsdæmis í
haust til að skipuleggja tónlistar-
fllutning í prófastsdæminu.
í fréttatilkynningu um tónleik-
ana ségir, meðal annars: Lögð hef-
ur verið áhersla á tónlist frá bar-
okktímanum og á tónleikunum hafa
eftirtaldir komið fram: Söngvararn-
ir Erla Gígja Garðarsdóttir, Guðrún
Ellertsdóttir, Helga Aðalsteinsdótt-
ir, Laufey H. Geirsdóttir, Ragna
Kristmundsdóttir, Unnur Amar-
dóttir og Sigurður Pétur Bragason,
píanóleikarinn Timothy Knappett,
óbóleikarinn Ólafur Flosason, orgel-
leikaramir Jón Þ. Bjömsson, Jón
Ólafur Sigurðsson, Bjami Guðráðs-
son, Kristjana Höskuldsdóttir og
Sigurður Guðmundsson. Kór Staf-
holtskirkju söng í Stafholtskirkju.
Gunnar Guðbjörnsson
Jonas Ingimundarson
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 30. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verö verö verö (lestir) verð (kr.)
Þorskur 51,00 37,00 46,95 32,675 1.534.314
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 2,000 40.000
Ýsa 80,00 15,00 30,93 1,730 53.511
Karfi 31,50 22,00 24,62 71,011 1.748.843
Ufsi 25,00 15,00 21,12 17,082 360.780
Ufsi(smár) 7,00 7,00 7,00 4,050 28.350
Steinbítur 43,00 37,00 38,75 1,414 54,802
Langa 30,00 17,00 33,48 0,997 23.410
Lúða 150,00 85,00 126,90 0,327 41.495
Koli 30,00 30,00 30,00 0,052 1.560
Skötuselur 102,00 90,00 98,15 0,156 15.312
Samtals 29,69 131,431 3.902.377
Selt var meðal annars úr Otri HF og Óskari Halldórssyni RE. Á
mánudag verða m.a. seld 40 tonn af karfa, 6 tonn af ufsa og
óákveðið magn af öðrum tegundum úr Otri HF, svo og 40 tonn
af þorski, ýsu, ufsa, lúðu, skötusel og fleiri tegundum úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 57,00 34,00 44,65 31,431 1.403.525
Þorskur(smár) 27,00 27,00 27,00 0,541 14.607
Ýsa 69,00 22,50 56,43 5,759 325.010
Karfi 24,50 19,00 23,24 65,513 1.522.334
Ufsi 21,00 7,00 20,01 87,525 1.751.814
Ufsi(smár) 7,00 7,00 7,00 1,599 11.193
Steinbítur 22,00 22,00 22,00 1,276 28.072
Langa 15,00 15,00 15,00 0,065 975
Blálanga 24,00 24,00 24,00 0,120 2.880
Lúða 175,00 105,00 153,35 0,342 52.445
Skarkoli 64,00 61,00 62,21 0,508 31.604
Skötuselur 120,00 115,00 116,39 0,115 13.385
Samtals 26,48 194,846 5.159.120
Selt var m.a. úr Ottó N. Þorlákssyni RE, Ásbirni RE, Valdimari
Sveinssyni VE og Jóni Vídalín ÁR. Á mánudag verður m.a. seld-
ur þorskur, ýsa og fleiri tegundir úr Skógey SF og fleiri bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 57,50 30,00 49,83 ■21,592 1.076,020
Þorskur(umál) 21,00 21,00 21,00 0,021 441
Ýsa 68,00 21,00 39,63 3,982 157.799
Karfi 29,00 21,50 22,96 47,433 1.089.188
Ufsi 32,00 14,50 20,18 17,665 356.508
Steinbítur 35,50 15,00 25,15 1,035 26.030
Langa 28,50 15,00 21,59 3,368 72.702
Blálanga 15,00 15,00 15,00 1,120 16.800
Lúða 215,00 145,00 177,17 0,334 59.085
Skarkoli 50,00 50,00 50,00 0,178 8.900
Keila 6,00 6,00 6,00 0,166 996
Skötuselur 375,00 112,00 204,71 0,433 88.640
Samtals 30,36 97,419 2.957.758
Selt var úr Hörpu GK, Hrungni GK, Búrfelli KE og færabátum.
Á mánudag verða seld um 40 tonn af þorski, ýsu, ufsa, steinbít
óg fleiri tegundum úr Eldeyjar-Boða GK. Selt úr færabátum.