Morgunblaðið - 01.07.1989, Síða 26
26
MÖRGUNBLAÐIÓ LÁUGARDAGUR i. JÚLÍ 1989
.................................j
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúar Lionsklúbbanna og Lionessuklúbbsins ásamt fúlltrúum Heilsugæslustöðvarinnar við af-
hendingu tveggja hjartalinuritstækja.
Heilsugæslustöðin á Akureyri;
Tvö hjartalínuritstæki að gjöf
FJÓRIR Lionsklúbbar og einn
Lionessuklúbbur á Akureyri og
í Eyjafirði hafa gefið Heilsu-
gæslustöðinni á Akureyri tvö
hjartalínuritstæki, en fé til
kaupanna söfnuðu klúbbarnir á
síðasta starfsári.
Það eru Lionsklúbbur Akur-
eyrar, Lionsklúbburinn Huginn,
Lionsklúbburinn Hængur, Lions-
klúbburinn' Vitaðsgjafi og Lion-
essuklúbburinn Ösp sem gáfu
tækin. Gunnar Oddur Sigurðsson
svæðisstjóri afhenti Ingvari Þór-
oddssyni yfirlækni á Heilsugæslu-
stöðinni tækin með þeirri von að
það ætti eftir að leysa mörg
vandamál.
Annað tækið verður staðsett á
Heilsugæslustöðinni, en hitt í bif-
reið vakthafandi lækna. Við af-
hendinguna kom fram að brýn
þörf hefði verið fyrir þessi tæki
og. sérstaklega væri gott fyrir
vaktlækni að hafa slíkt tæki með
í vitjanir. í máli Magnúsar Ólafs-
sonar Iæknis kom fram að nota-
gildi tækjanna væri mikið, það
væri til mikilla hægðarauka til
að mynda fyrir aldraða að læknar
gætu komið á heimili þess með
hjartalínuritstæki í stað þess að
þurfa að senda fólkið á sjúkrahús.
Hver er
FERTUGUR
íár?
Skólafélagar úr Gagnfræðaskóla Akureyrar,
fæddir 1949!
Höldum sameiginlegt fertugsafmæli í golfskálanum Jaðri laug-
ardaginn 22. júlí kl. 19.00. Rífum okkur upp úr meðalmenns-
kunni og stormum öll að Jaðri með maka okkar og höldum
eftirminnilegt knall.
Þátttaka tilkynnist til einhverra eftirtalinna fyrir 15. júlí:
Gullý Ragars., sími 96-23296, Júlía Björns., 96-22163,
HaddýJúl., sími 96-24778, Júlía Þórs., 96-25103.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐURLANDIEYSTRA
Stórholti 1
600 AKUREYRI
Forstöðumaður
Vegna skipulagsbreytinga óskar Svæðisstjórn
málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra eftir að
ráða þrjá forstöðumenn á sambýli fyrir fatlaða á
Akureyri. Á hverju þessara sambýla eru átta íbú-
ar og eru þeir í vinnu utan heimilis yfir daginn.
Upplýsingar eru veittar á skristofu Svæðisstjórn-
ar á Akureyri, sími 96-26960, kl. 9-16.
Umsóknir, er greini frá menntun og fyrri störfum,
skulu sendartil Svæðisstjórnar málefna fatlaðra,
Stórholti 1, 603 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 7. júlí nk.
Nýr, glæsilegur
sumarmatseðill.
★
Dansleikur
í kvöld, laugardagskvöld.
★
Heimilislegur matseðill.
HótelKEA.
Húsbílar
520 • 550 • 610 A -610 B
Útvegum allt í húsbílinn.
Ýmsar vörur á lager, gas-mið-
stöðvar, ofnar, vatnshitarar, elda-
vélar, vaskar, plasttankar, kranar,
dælur, ódýr ferða WC, léttar inn-
réttingaplötur, læsingar, loftlúgur,
ísskápar o.m.m.fl.
Húsbílar sf.,
Fjölnisgötu 6, Akureyri.
Sími 96-27950 milli kl. 16 og 18.30.
flesta daga. Fax 96-25920.
Ath.: Lokað 19. júlf- 25. ágúst.
Eymar hf. og Eyland sf. í Hrísey:
Nýir mög’uleikar
fyrir ferðalanga
FERÐALANGAR í Hrísey geta á næstunni brugðið sér í sjóferð, en
fyrir skömmu festi Eymar hf. kaup á fjögurra tonna plastbáti sem
ætlaður er til siglinga fyrir ferðamenn. Að Eymari standa eigendur
veitingastaðarins Brekku og nokkrir einstaklingar í eyjunni, en þeir
standa að auki að Eylandi sf., sem á og rekur sumarbústað þar.
Narfi Björgvinsson, einn af að-
standendum Eymars og Eylands,
sagði, lokið hefði verið við smíði sum-
arbústaðarins í fyrravor og hefur
hann síðan verið leigður út. Hann
sagði að viðtökur hefðu verið ein-
staklega góðar, en fullbókað er út
allt sumarið eða til ágústloka. í bú-
staðnum eru uppábúin rúm fyrir fjóra
auk svefnlofts þar sem komast fyrir
allt að átta manns. Narfi sagði fyrir-
hugað að reisa fleiri bústaði í framí-
ðinni, en ekki yrði hafist handa nú
í sumar.
Fyrir skömmu stofnuðu þeir félag-
ar sem standa að Eylandi, ásamt
eigendum Brekku, fyrirtækið Eymar
hf. og festu kaup á plastbát sem
tekur um 10 manns í sæti undir
þaki. Báturinn kemur til Hríseyjar á
næstunni og þá er ætlunin að bjóða
ferðafólki sem það kýs að fara á sjó-
inn. Narfi sagði til að mynda upplagt
að fara kvöldsiglingar kringum eyj-
una þegar lægja tekur. Þá er einnig
meiningin að hafa nokkrar veiði-
stangir um borð og þeir sem áhuga
hafa geta rennt fyrir fisk.
„Þessir möguleikar hafa ekki verið
áður fyrir hendi hér. Það sem fyrir
okkur vakir er að bjóða ferðafólki
sem þegar er komið hingað upp á
eitthvað að gera á meðan það dvelur
í eyjunni," sagði Narfi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hlutafélagið Bláhvammur hefúr tekið við rekstri Fiðlarans frá og
með deginum í dag. Frá vinstri eru: Sigmundur Rafn Einarsson,
Bjarni Ingvarsson, Héðinn Bech, Vignir Már Þormóðsson og Snæ-
björn Kristjánsson, en þeir standa að hlutaféfaginu Bláhvammi hf.
Við erum bjartsýnir
menn á björtum stað
— segja hluthafar í Bláhvammi hf.
sem taka við rekstri Fiðlarans í dag
FIÐLARINN með ferskan blæ,“ eru einkunnarorð fimm ungra mat-
reiðslu- og framreiðslumanna sem stofiiað hafa með sér hlutafélagið
Bláhvamm hf., en hlutafélagið rekur veitingastaðinn Fiðlarann á fimmtu
hæð Alþýðuhússins á Akureyri, auk um 270 manna sals á fjórðu hæð
hússins. Veitingasalurinn verður opnaður í dag, laugardag.
Það eru þeir Sigmundur Rafn Ein-
arsson, Héðinn Bech, Bjarni Ingvars-
son, Vignir Már Þormóðsson og Snæ-
björn Kristjánsson sem eru mennirn-
ir á bak við Bláhvamm. „Við erum
bjartsýnir menn á björtum stað,“
sögðu þeir félagar í gær, þar sem
þeir voru að leggja síðustu hönd á
undirbúninginn vegna opnunarinnar.
Þeir sögðust leggja áherslu á góðan
mat og góða þjónustu og voru bjart-
sýnir á reksturinn.
Sú hugmynd hefur skotið upp
kollinum að byggja yfir svalir norð-
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þið akið.
Drottmn Guó, veit mér
vernd þína, og lát mig
minnast ábyrgðar minnar
er ég ek þessari bifreið.
I Jesú nafni. Anien.
Fæst í Kirkjuhúsinu,
Klapparstíg 27, í verslun-
inni Jötu, Hátúni 2,
Reykjavík og í Hljómveri,
Akureyri.
Verð kr. 100,-
Orð dagsins, Akureyri.
anmegin á húsinu og koma þar upp
bar. Svalirnar eru um eða yfir 100
fermetrar og sögðu félagarnir að
þegar hugmyndin væri komin í fram-
kvæmd yrði um að ræða stað sem
engan ætti sinn líkan, útsýni væri
einkar gott og ekki amalegt að fylgj-
ast með miðnætursólinni úr þessu
háhýsi miðbæjarins.
Á ijórðu hæð hússins er stór salur
sem vel hentar til ráðstefnu- og
fundahalds, auk þess sem leyfi er
veitt fyrir dansleiki og samkomuhald
fyrir félagasamtök. Nýtinguna á
salnum sögðu þeir einkum vera yfir
fyrstu mánuði ársins, frá janúar og
fram í maí, en yfir sumarmánuðina
og fram að áramótum væri daufara
yfir. „Við munum gera eitthvað í
þessum máli svo nýtingin verði betri,
það gengur ekki að halda úti svo
stórum sal nema nýtingin sé viðun-
andi.“
Leiðrétting
I umfjöllun um viðurkenningar
Húsfriðunarsjóðs sem veittar voru
nýlega voru þau Eiður Baldvinsson
og Jónína Jónsdóttir sem viður-
kenningu hlutu fyrir viðhald og
varðveizlu hússins númer 14 við
Aðalstræti sögð vera hjón. Hið rétta
er að Eiður og Jónína eru ekki hjón
og um leið og það er leiðrétt eru
hlutaðeigandi beðin velvirðingar.