Morgunblaðið - 01.07.1989, Page 27
MORGVNIBLAÐIB LAUGARDftGUR 1. JÚLÍ 1989
27
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hástemmdar lýsingar
Flestir þeir sem skrifa um
stjömuspeki, bæði undirritað-
ur og erlendir höfundar, fallá
oft í þá gryfju að birta ýkju-
kenndar lýsingar á stjörnu-
merkjunum. Ljónið er alltaf
opinskátt og hlýtt og sagt vilja
glæsileika. Fiskurinn er
víðsýnn og skilningsríkur
o.s.frv. Þetta er á vissan hátt
eðlilegt en hefur sínar nei-
kvæðu hliðar.
Sterkir drœttir
Ástæðan fyrir því að þetta
gerist er sú að höfundar reyna
að draga fram þann mun sem
er á merkjunum og reyna
jafnframt að benda á það sem
er sláandi fyrir hvert merki.
Fyrir vikið verðariýsingar oft
háfleygar eða ýkjukenndar. i
skriflegri lýsingu er nauðsyn-
legt að draga upp sterka
drætti.
StöÖluð hegöun
Veikleiki ýkjustílsins er sá að
það er oft stór munur á hegð-
un einstaklinga í daglegu lífi
og á stöðluðum eiginleikum
merkjanna. Það stafar af því
að hver maður á sér mörg
stjörnumerki en einnig af því
að daglegur veruleiki allra
gefur ekki kost á að þroska
alla jákvæða hæfileika merk-
isins.
Viö felum okkur
í öðru Iagi felum við persónu-
leika okkar í dagiegu lífi. Flest
okkar sýna einhvers konar
sparihlið í vinnu og á manna-
mótum, en sýna innri mann
einungis þeim sem umgang-
ast þá mikið, s.s. nánum vin-
um, fjölskyldumeðlimum og
ættingjum.
Skýrari sjón
Þessi atriði gera að verkum
að ef við ætlum okkur að bera
saman hástemmda lýsingu á
stjömumerki og hegðun
„venjulegs" manns er hætt
við að eitthvað vanti upp á.
(Hins vegar getum við séð það
í stjömukortinu sem við sjáum
ekki með berum augum. Það
má kannski segja að einmitt
þess vegna sé stjörnuspekin
merkileg. Við sjáum persón-
una sem við annars sjáum
ekki í vinnunni eða í daglegu
lífi. Við getum því kynnst fólki
á nánari og persónulegri hátt
en annars væri mögulegt með
aðstoð stjörnuspeki. Enda
finnst mörgum stjömuspekin
auðga líf sitt. Þetta á við um
þá stjörnuspeki sem tekur mið
af stjörnukortinu sem heild,
út frá fæðingarstund og
-stað.)
AÖ rœkta garöinn
Annar veikleiki a'hinni ýkju-
kenndu lýsingu, t.d. þeirri að
Fiskurinn sé víðsýnn og skiln-
ingsríkur, er sá að þó talað
sé um eiginleika sem vissu-
iega eru til staðar í merkinu,
er ekki víst að allir Fiskar
hafi ræktað hann með sér.
Við þurfum að rækta garð
okkar, en vitum að mörgum
em gefnir hæfieikar sem þeir
láta ónotaða. Lýsing á hinu
dæmigerða merki missir því
stundum marks, ekki vegna
þess að hún eigi ekki við,
heldur vegna þess að sumir
einstaklingar rækta ekki garð
sinn. Stundum eru lýsingar á
merkjunum hins vegar það
háfleygar að þær missa
marks.
Á jörðinni
Þegar upp er staðið þurfa
stjömuspekingar sennilega að
einbeita sér í ríkara mæli að
því hvernig merkin birtast í
daglegu lífi, hvemig þau eru
í raun og veru. Á hinn bóginn
þurfa lesendur stjörnuspeki-
bóka að gera sér grein fyrir
því að einhvers konar ýkju-
stíll er nauðsynlegur þó hann
nái ekki alltaf að gefa raun-
sanna mynd af daglegu lífi
okkar.
GARPUR
S&3ÐU EfJGOM! STUODUAJ £g ;
frEfZOLEVS/SLEGT YF/RBoeÐ /M/'hl
E/MA OÖE//J
STUTTU SE/L/a/A VF/fí. K.0MO/J<3 ,
LEGA LE//CHÚS//JU /B.TECZA//U
,IS1
þAP ER HUSFyLL/£
PABB! GE TU£
l/E/Z/Ð /AfJ/EGÐUfi
HVE MAR.G/R.
U/LTA STyojA
ÞA FÁTÆ/CU/
[ ÞaÐ V/E/SJ BETgfí A&
-------------HÉR
'//// VÆJZ/ HE
A/Ú pUEFOM V/E>
)AÐ EJGA, V/Ð PRESS-
, ONAJSJAÐU.'pfOE-
GAAAArA/Z/JI/Z. EJZÚ
/VlÆTTl/Z MÖ pEGAP.
GRETTIR
NOKKOSí ,
HB/EST FPA
MIKHA/L ?
4 VAFpTVKN/HUM
GAR.HANH VÆF/ T7L
■o/NNSÆn //ejz/Ð
Ti/yiAF
S-EUA
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
Hann sigraði!! Ólafur sigraði!!!
Bróðir þinn vann keppnina um ljót-
asta liundinn!
BRIDS
Einföld ásaspuming ætti að
leysa sagnvanda AV. ítalinn
Franco sá þó ekki ástæðu til að
koma við í 4 gröndum og lenti
fýrir vikið í slemmu þar sem
vörnin átti tvo ása. Hið sama
gerðist á öðru borðinu í leik
Polaris og landsliðsinsr
Suður gefur; AV á hættu."
Vestur
♦ ÁG63
♦ 10643
♦ KD653
Leikur ítala og Bandaríkja-
manna 1979. Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Goldman BelladonnaSolaway Pittala
— — — 1 hjarta
Dobl Pass 2 hjörtu 3 tíglar
Pass Pass 3 spaðar Pass
4 spaðar Pass 4 grönd Pass
5 tíglar Dobl 5 spaðar Pass
Pass Pass
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
DeFalco EisenbergFranco Kantar
— — — 1 hjarta
1 spaði Pass 3 hjörtu Pass ’
4 lauf Pass 6 spaðar Pass
Pass Pass
Fyrsta álitamálið í sögnum
er hvort vestur eigi fyrir dobli
eða ekki. Skiptingin er hentug,
en styrkurinn í lágmarki. Gold-
man valdi að dobla og eftir það
hlaut Solaway að reyna til þraut-
ar við slemmu. Það virðist vera
í lagi að stansa í 5 spöðum, en
Solaway tapaði spilinu eftiríi
tígulás og meiri tígul út. Hann
trompaði, tók spaðakóng og spil-
aði litlu laufi á kóng blinds. Pitt-
ala fékk næst á laufás og spil-
aði áfram tígli. Solaway reyndi
nú að taka þijá slagi á hjarta
frekar en spila upp á laufið 3-3.
Einn niður og engin sveifla!
Á Iandsliðsæfingunni fóru
sagnir eins af stað og í opna
salnum, nema hvað norður lyfti
þremur tíglum í flóra. Austur
hefði samt getað sagt 4 grönd,
en kaus að skjóta á 6 spaða.
En hvað hefði hann getað gert
ef norður hefði stokkið í 5 tígla?
Er það ekki besta sögnin á þess-
um hættum?
SKÁK
Norður
♦ 10842
V32
♦ KG87
+ 942
Austur
♦ KD975
V ÁKD107
♦ 9
+ G8
Suður
♦ -
V G98654
♦ ÁD52
♦ Á107
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Salamanca
á Spáni í vor kom þessi staða upp
í viðureign ungversku stúlkunnar
Júdit Polgar og óþekkts Spán-
verja, M. Gomez, sem hafði svart
og átti leik. Hvítur hafði lagt allt
á eitt spil, fórnað lírók og rnanni
til að fá upp þessa stöðu sem í
fljótu bragði gæti virst stórhættu-
leg fyrir svart. En Júdit hafði orð-
ið á hrottaleg yfirsjón:
28. — Df4! og hvítur gafst upp.
Það er ekki nóg með að svartur
bjargi mátinu, heldur kemst hann
eftir 29. Dxf4 — Bxe5 út í enda-
tafl með hrók yfir. (Síðustu leikir
fyrir stöðumyndina voru: 26.
Bh6xg7? - Hdlxel+, 27. Kgl-h2
- Bf8xg7, 28. h5-h6)
Þessi ósköp höfðu slæm áhrif
á Júdit og hún lenti í neðsta sæti
á mótinu með 3 v. af 11, þrátt
fyrir að hún væri stigahæsti kepp-
andinn.