Morgunblaðið - 01.07.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR L JÚLÍ 1989
29
Hótel Saga átti ekki annarra kosta völ
eftirKonráð
Guðmundsson
Að gefnu tilefni vill Bændahöll-
in/Hótel Saga láta eftirfarandi
koma fram um afskipti hótelsins
af innheimtuaðgerðum tollstjóra-
embættisins á vangoldnum sölu-
skatti Gildis hf., sem nú er gjald-
þrota.
Á árinu 1982 var tekin upp sú
nýbreytni í rekstri Hótel Sögu, að
hótelið samdi við þá nýstofnað fyrir-
tæki, Gildi hf., sem hótelið hvorki
átti né á neina aðild að, um það
að taka að sér veitingarekstur á
hótelinu og þjónustu við hótelgesti.
Rekstur hótelsins var eftir sem áður
í höndum Bændahallarinnar/Hótel
Sögu, en Gildi hf. tók á leigu hús-
næði í hótelinu til þess að geta sinnt
veitingarekstrinum. Rekstur hótels-
ins annarsvegar og Gildis hf. hins
vegar var algjörlega aðskilinn og
greiddi hvor aðili að sjálfsögðu öll
opinber gjöld af sínum rekstri. í
samningi hótelsins við Gildi hf. var
öryggisákvæði þess efnis, að van-
efndi Gildi hf. skyldur sínar um
fullnægjandi þjónustu við hótelgesti
gæti Hótel Saga fyrirvaralaust
gripið inn í til að bæta úr því.
Þetta fyrirkomulag gafst vel þar
til á síðasta ári þegar vanskil urðu
á leigugreiðslum Gildismanna til
hótelsins. Að þeirra beiðni sam-
þykkti hótelið m.a. að fresta inn-
heimtu leigugreiðslna fyrir allt árið
1988. Var vonast til þess, að sá
greiðslufrestur ásamt ýmsum öðr-
um aðgerðum, sem Gildismenn
sögðust vera að reyna, gæti fleytt
þeim yfir hina erfiðu greiðslufjár-
stöðu, sem þeir vonuðust til að
væri tímabundin.
Það var svo um kl. 15.00, föstm
daginn 17. mars, sem fram-
kvæmdastjóri Gildis hf. tilkynnti
hótelstjóra Hótel Sögu að lögreglu-
maður væri mættur á hótelinu í
þeim erindagerðum að innsigla/loka
(hótelinu) vegna ógreidds sölu-
skatts Gildis hf. Beiðni lögmanns
Gildis hf. um frestun aðgerða þess-
ara var algjörlega hafnað af hálfu
þeirra, sem stjórnuðu aðgerðum
þessum.
Á sama tíma og þetta fór fram
voru allir salir hótelsins í fullri notk-
un og hótelið var svo til fullbókað
fyrir hótelgesti. Iðnaðarbanki ís-
lands hélt aðalfund sinn og þar
voru um 300 manns,. aðalfundur
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn-
is var í öðrum sal og þar voru um
100 manns, 200 manna afmælis-
veisla var haldin í veislusölum hót-
elsins og fleira. Um kvöldið átti
síðan að halda árshátíðir, m.a.
Verkfræðingafélags íslands og
fleiri, samtals eitthvað á fimmta
hundrað manns. Daginn eftir, laug-
ardag, voru álíka viðskipti bókuð í
veitingasölunum.
Þegar lögreglumaðurinn hafði
rætt við framkvæmdastjóra Gildis
hf., talaði hótelsljóri og lögmaður
Hótel Sögu við hann. Var honum
gerð grein fyrir því hvernig rekstur
Gildis hf. og Hótel Sögu tengist
vegna samnýtingar rýma þó hinn
fjárhagslegi rekstur væri að fullu
aðskilinn. Lögreglumaðurinn reyndi
þá að ná sambandi við yfirboðara
sína til að ráðgast við þá um hvar
og hvernig ætti að standa að lokun
og stöðvun Gildis hf. án þess að sú
aðgerð kæmi niður á Hótel Sögu,
hvort vísa ætti öllum gestum úr
veitingasölum hótelsins eða loka þá
inni. Lögreglumaðurinn náði ekki
sambandi við yfirboðara sína
sím'eiðis og fór hann því til að nálg-
ast nánari fyrirmæli. Var öll hans
framkoma til fyrirmyndar.
Stjórnarmenn Gildis hf. voru nú
allir til staðar og sögðu þeir hótel-
stjóra að fyrirsjáanlegt væri að
þeir gætu ekki staðið við gerðan
samning um þjónustu við hótelgesti
Hótel Sögu vegna erfiðrar
greiðslufjárstöðu og báðu þeir Hót-
el Sögu um að leysa Gildi hf. undan
samningnum þá þegar. Að athug-
uðu máli var fallist á þessa beiðni
og rammasamningur dreginn upp.
Efni hins riýja samnings var ein-
faldlega það, að hinum upphaflega
þjónustu- og leigusamningi var
samstundis sagt upp þar eð Gildi
hf. gæti fyrirsjáanlega ekki efnt
hann. Sérstök ákvæði voru um yfir-
töku birgða og uppgjör í því sam-
bandi og var reynt að hafa efni
samningsins þannig, að ekki væri
gengið á rétt nokkurs aðila. Engar
peningagreiðslur fóru fram á þessu
stigi, enda var reiknað með því t.d.
að ríkissjóður kynni að vilja tryggja
söluskattskröfu sína í t.d. birgða-
kaupakröfu Gildis hf. á Hótel Sögu.
Samningagerð þessari lauk um kl.
17.30 sama dag.
Rétt í þann mund sem samninga-
Konráð Guðmundsson
„Það er von forstöðu-
manna Hótel Sögu, að
þessi stutta samantekt
sýni skýrt aðalatriði
máls þessa og þar með
linni hinum alröngu og
mjög svo ómaklegu
aðdróttunum í garð
bændasamtakanna og
hótelsins.“
gerð þessari lauk kom fulltrúi toll-
stjóra á Hótel Sögu ásamt aðstoðar-
mönnum sínum. Var honum tjáð
að Gildismenn hefðu hreinlega gef-
ist upp við áframhaldandi rekstur
og hefði Hótel Saga ekki átt ann-
arra kosta völ en taka við rekstrin-
um til þess að koma í veg fyrir al-
gjört neyðarástand í rekstri hótels-
ins og veitingastarfsemi þess. Var
fulltrúanum afhent eintak af
rammasamningnum ásamt ljósriti
af upphaflegum leigu- og þjónustu-
samningi. Var ekki annað að sjá
en að hann skildi aðgerðir Hótel
Sögu.
Gildi hf. var tekið til gjaldþrota-
skipta nokkrum dögum eftir þessa
atburði.
Af því sem nú hefir verið rakið
mega hverjum manni vera ljósar
eftirfarandi staðreyndir:
1. Innheimtuaðgerð tollstjóraemb-
ættisins beindist að söluskatts-
skuld Gildis hf.
2. Hótel Saga ber ekki ábyrgð á
söluskattsskuld Gildis hf. hvorki
á siðferðilegum né lagalegum
grundvelli.
3. Hótel Saga hvorki var né er í
vanskilum með þann söluskatt,
sem hótelinu ber að greiða af
rekstri sínum.
4. Hótel Saga hindraði á engan
hátt innheimtuaðgerðir toll-
stjóraembættisins gagnvart .
Gildi hf. þó að lokun hótelsins
vegna skulda Gildis hf. væri
mótmælt.
Það er von forstöðumanna Hótel
Sögu, að þessi stutta samantekt
sýni skýrt aðalatriði máls þessa og -
þar með linni hinum alröngu og
mjög svo ómaklegu aðdróttunum í
garð bændasamtakanna og hótels-
ins.
Höfimdur er hótelsijóri Hótel
Sögu.
Gönguferð í
Staðarborg
SÓKNARPRESTAR í Grindavík-
ur- og Kálfatjarnarsóknum efiia
til gönguferðar á morgun,
sunnudaginn 2. júlí, í Staðarborg
á Vatnsleysuströnd að loknum
messum á báðum stöðum klukk-
an 11.
Þátttakendur úr Grindavík munu
fara akandi frá kirkjunni að messu
lokinni og inn á Strandarheiði.
Þaðan verður gengið í Staðarborg
sem er u.þ.b. hálf tímá gangur.
Kálftimingar munu ganga frá sinni
kirkju og hitta Grindvíkinga í Stað-
arborg.
Staðarborg er hringlaga fjárborg
með háum veggjum, fagurlega
hlaðin. Á dögum séra Stefáns Thor-
arensen, sálmaskálds og prests á
Kálfatjöm, hafði hann fyrir sið að
greiða töðugjöld í Staðarborg þar
sem fólk safnaðist saman, drakk
heitt súkkulaði og gerði sér glaðan
dag.
Það er von sóknarprestanna,
séra Braga Friðrikssonar, prófasts
og séra Arnar Bárðar Jónssonar,
að safnaðarfólk og aðrir sem áhuga
hafa á útivist sögu og minjum,
komi til messu þennan dag og taki
þátt í göngunni. Göngufólk hafi
með sér nesti. Gönguleiðin á að
vera auðfarin og við flestra hæfi.
Yiking Band á
ferðalagi um
landið
FÆREYSKA hljómsveitin Vik-
ing Band er á ferðalagi um
landið um þessar mundir.
Hefur hljómsveitin látið til sín
taka á Húsavík þar sem hún spil-
aði á þjóðhátíðinni. Einnig austur
á Egilsstöðum. Færeyingarnir hafa
einnig skemmt í Þórskaffí í
Reykjavík.
Þeir ætla að skemmta á Selfossi
í kvöld, laugardagskvöld og á
morgun sunnudag milli klukkan
17 og 18 skemmta þeir í Norræna
húsinu. Þeir hafa lagt sig eftir að
gera færeyska texta við ýmis
íslensk dægurlög. Þeir eru fimm
og foringi hópsins er Georg Eyst-
aná.
Það mun vera afráðið að Viking
Band leggi sitt af mörkum á þjóð-
hátíðinni í Vestmannaeyjum. Kom-
in er út hljómplata með hljómsveit-
inni og önnur er í vændum.
Plöntukynning
í samvinnu við ýmsa aðila
stendur Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands fyrir kynningu á
íslenskum plöntum í dag, laugar-
daginn 1. júlí.
I Náttúrufræðistofu Kópavogs,
Digranesvegi 12 verða byijendum
gefin góð ráð við að þekkja islensk-
ar plöntur, m.a. með aðstoð nýs
tölvuforrits.
Þá verður fólki gefinn kostur á
að spreyta sig á að þekkja íslensk-
ar plöntur, bæði landplöntur og
botnþörunga.
Náttúrufræðistofan verður opin
frá klukkan 13.30-16.30.
Sigríður Elfa Sigurðardóttir
opnar sýningu á málverkum í
vinnustofii sinni í Heimahvammi,
í dag laugardag.
Myndlistarsýn-
ing í Heima-
hvammi
Sigríður Elfa Sigurðardóttir
opnar sýningu á málverkum í
vinnustofu sinni í Heimahvammi
í EUiðaárdal, í dag laugardaginn
1. júlí.
Á sýningunni eru verk unnin
með blandaðri tækni, öll frá þessu
ári.
Sigríður Elfa nam myndlist í tvö
ár í Barcelona og önnur tvö ár í
Cartagena í Kólombíu og lauk þar
prófi í desember á síðasta ári.
Hún hefur tekið þátt í samsýn-
ingum í Barcelona, Cartagena og
hérá landi auk einkasýninga í
Cartagena og á íslandi.
Sýningin verður opin virka daga
klukkan 20-22 og um helgar klukk-
an 14-20 fram til sunnudagsins 9.
júlí.
Helga Bachman og Helgi Skúla-
son í hlutverkum sínum í Iðnó.
Góð aðsókn að
Virginiu Woolf
Virginiu leikhópurinn, sem gerir
nú tilraun með sumarleikhús í
Reykjavík, sýnir sem kunnugt
er „Hver er hræddur við Virgi-
niu Woolf,“ eftir Edward Albee,
í Iðnó.
Morgunblaðið hafði samband við
Arnór Benónýsson, leikstjóra og
spurði hvernig þessi tilraun gengi.
Arnór kvað aðsókn hafa verið
prýðilega, eftir sex sýningar hafi
um 1.100 manns séð þessa upp-
færslu hópsins í Iðnó. Hann sagð-
ist túlka þessa aðsókn á þann veg
að hér væri raunverulegur grund-
völlur fyrir leikhússtarfsemi að
sumri til og líklega myndi sú þróun
halda áfram. Aðspurður hversu
lengi hópurinn áætlaði að sýna
„Hver er hræddur við Virginiu
Woolf,“ sagði Arnór að það færi
eftir áframhaldandi aðsókn, eins
og hjá öðrum leikhópum.
Næsta sýning á Virginiu Woolf
er i kvöld og í næstu viku verða
sýningar á miðvikudag, föstudag
og laugardag.
Morgunganga í
Heiðmörk
Náttúruvemdarfélag Suðvest-
urlands fer gönguferð á morgun
sunnudag 2. júlí um Heiðmörk.
Farið verður klukkan 10 frá
gatnamótum Hraunslóðar og Heið-
arvegar og gengið um skógargöt-
urnar.
Komið verður til baka að gatna-
mótunum um klukkan 12. Á stuttri
göngu um Heiðmörk 29. júní fannst
41 tegund plantna í blóma, en þar
eru margar fleiri plöntur s.s. grös,
starir og blómplöntur sem ekki
blómstra á þessum tíma auk byrkn-
inga og lágplantnanna, mosa, þör-
unga, flétta og sveppa segir í frétt.
Embættispróf í læknis-
fræði:
Nafii misritaðist
ÞAU mistök urðu við birtingu
Morgunblaðsins á lista yfir þá,
sem útskrifiiðust á vormisseri í
Háskóla íslands, að eitt nafii-
anna misritaðist.
Nafn Guðbjargar Jónsdóttur
varð að „Guðbjöm Jónsson". Morg-
unblaðið leiðréttir hér með þessa
misritun og biðs um leið velvirðing-
ar á henni.
Danssýning á
Hótel Islandi
UM síðustu helgi var frumsýnd
á Hótel íslandi danssýningin
„Sumarkarnival". Yfir 20 dans-
arar koma fram í sýningunni
og sýna þeir suður-ameríska
dansa.
Samhliða danssýningunni
verðu boðið upp á suður-amerísk-
an matseðil með grilluðu grísa-
og nautakjöti.
„Sumarkarnival" verður sýnt á
föstudags- og laugardagskvöldum
í sumar. Uppsetning og stjórn
sýningarinnar er i höndum Auðar
Haralds.
Ellen í
Heita pottinum
ELLEN Kristjánsdóttir söng-
kona heldur tónleika i Heita
pottinum, DUUS-húsi við Fisc-
herssund, sunnudagskvöldið 2.
júlí klukkan 22.
Undirleikarar verða Eyþór
Gunnarsson, hljómborðsleikari,
Friðrik Karlsson gítarleikari,
Gunnlaugur Briem, trommuleikari,
Jóhann Ásmundsson bassaleikari
og Stefán S. Stefánsson, saxófóns- |
leikari.
Flutt verður djass- og blústónlist
úr ýmsum áttum.
Athugasemd
MEÐ frétt Morgunblaðsins
þriðjudaginn 27. júní, þar sem
greint var frá sameiginlegum
fúndi Öi yrkjabandalags íslands
og Landssamtakanna Þroska-
hjálpar, birtist mynd, en nafn
mannsins á myndinni vantaði.
Myndin var tekin af Bárði Bárð-
arsyni, þar sem hann ræddi um
rétt þroskaheftra til að hafa áhrif
á eigið líf. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessum mistökum.
't
NýEvrópu-
frímerki Pósts
og síma
ÚT eru komin 25. og 26. Evr-
ópufrímerkin, en þau komu
fyrst út árið 1960. Tema þeirra
að þessu sinni eru leikir barna
og hefúr Friðrika Geirsdóttir
kennari og teiknari hannað
frimerkin að þessu sinni.
Frímerkin tvö og öll Evrópufrí-
merkin til þessa eru nú til sýn-
is í anddyri Pósts og síma í
Reykjavík.
Friðrika sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hún hefði unnið
að hönnun frímerkjanna f vetur
sem leið, það hefði hjálpað til við
að stytta sérstaklega erfiðan vet-
ur. Hún sagði að þetta væri í
sjötta sinn sem hún hannaði Evr-
ópufrímerki fyrir Póst og síma og
væri þetta skemmtilegt viðfangs-
efni.