Morgunblaðið - 01.07.1989, Side 30
30
MGRGUNBLAÐIÐ IíAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
Renault 19
Alitlegur kostur 1 harðri samkeppni
__________BÍLAR_______________
Jóhannes Tómasson
Renault 19 hefur undanfama
verið kynntur fyrir lándsmönn-
um i auglýsingum frá Bílaumboð-
inu hf. í Reykjavík. Renault 19
er það nýjasta frá hinum frönsku
verksmiðjum - kom á markað í
Frakklandi í fyrra - og hefur
hann verið að þróast frá hug-
mynd í fullgerðan bíl tilbúinn til
fjöldafiramleiðslu á síðustu fimm
ámm. Honum er ætlað að keppa
við bíla í svipuðum stærðarflokki
eða Golf, Ford Escort og Fiat
Tipo og má hiklaust telja hann
fullfæran í þann slag. Verðið er
milli 820 og 845 þúsund krónur
fyrir bíl kominn á götuna. Re-
nault 19 er í raun ætlað að koma
í stað Renault 9 og 11. Eftir sem
áður er Renault 5 fáanlegur, þ.e.
minnsti bíllinn, sem kostar milli
650 og 700 þúsund krónur og
Renault 21 og 25 en þeir kosta
báðir vel yfir milljón. Við Ijöllum
hins vegar um Renault 19 hér í
dag en það er gerðin GTS, 5 gíra,
fimm dyra og með 1400 rúms-
entimetra og 80 hestafla vél.
Þegar hönnuðir Renault fóru af
stað var þeim uppálagt að teikna
bíl sem væri kringum fjögurra
metra langur, tæki fimm farþega,
byggi yfír góðum aksturseiginieik-
um, hefði gott rými og sæmilega
kraftmikla vél. Það tók þá rúmlega
þrjú ár að koma þessu heim og
Framsætin eru allgóð og allt
virðist fremur traustvekjandi
þegar sest er undir stýri.
saman og var vélarsmíðin ekki auð-
veldasta verkefnið. Hefur þar verið
leitast við að svara ströngustu kröf-
um um mengunarvamir bæði aust-
an hafs og vestan. Útkoma hönnuð-
anna var straumlínulagaður Re-
nault 19 og var reynt til hins ítrasta
að ná niður vindmótstöðunni þar
sem öryggi og ending kröfðust þess
að bíllinn yrði nokkuð þungur. Re-
nault 19 er þokkalega fallegur bíll
og eru allar línur vel rúnnaðar og
hvergi skörp horn eða kantar. Ætti
þetta að gera bílinn þægilegan í
þvotti og umhirðu.
Renault 19 er allt að því sportlegur bíll með mjúkum línum. Morgunbiaðið/Sverrir
Renauit 19 GTS vegur 940 kg
og hann er knuinn íjögurra strokka
1390 rúmsentimetra 80 hestafla
vél. Vélin er kölluð “Energy“ eða
orka og er hún með tveggja hólfa
blöndungi. Síðar verður bíllinn boð-
inn með 1800 vélum, 92 eða 140
hestafla og dísilvél verður einnig
fáanleg. Mælt er með blýlausu 95
oktana bensíni eða 98 oktana súper-
bensíni. Vélin er þverstæð og hún
hallar nokkuð en með því má lækka
eða halla framendanum nokkuð nið-
ur. Auk þess að draga úr loftmót-
stöðu veitir það betra útsýni.
Þægilegur
Renault 19 er fimm dyra eða
þrennra dyra og er þægilegt að
umgangast bílinn. Hlerinn að aftan
opnast sérlega vel og er farangurs-
rýmið rúmgott. Varahjóli er komið
fyrir undir farangursrýminu. Betri
staðsetning er inni í farangursrými
eða í vélarhúsi eins og á sumum
bílum. Bíllinn er rúmgóður að innan
og má hæla honum fyrir góð sæti.
Einkum eru framstólarnir góðir og
styðja vel við bakið og til hliðanna.
Speglar eru stillanlegir innanfrá en
ekki rafdrifnir. Útsýni er allgott úr
bílnum en þó síst á ská aftur fyrir
bílinn til beggja hliða. Getur það
stundum reynst hvimleitt þegar
bakka þarf út úr stæðum.
í mælaborði framan við ökumann
era hraða- og bensínmælar mest
áberandi, einnig hitamælir, en þar
er líka að finna hin venjulegu aðvö-
runarljós vegna olíuþrýstings,
handbremsu og fleira og til hliðar
við ökumann eru rofar fyrir miðstöð
og skilar hún hlutverki sínu vel.
Að vísu reynir ekki á hitagjöfina á
sumardegi en blásturinn er góður
og stillanlegur til hliðar, aftur eftir
bílnum í miðju og að sjálfsögðu upp
á rúður eða niður á fætur.
Rúðuupphalarar er ekki fyrir
hliðarrúður við framsæti heldur eru
þær rafdrifnar. Staðsetning rofans
er í mælaborðinu ofan við miðstöðv-
arrofana og hefði fremur mátt hafa
þá í hurðunum sjálfum. Fálmar
Plymouth Acclaim
Jöfúr í Kópavogi hefúr umboð fyr-
ir bíla frá Chrysler í Bandaríkjun-
um en frá þeim er ýmislegt í boði.
Dodge Aries er kannski þeirra
þekktastur enda sá ódýrasti. I dag
er hann boðinn á um það bil eina
milljón króna. Shadow ES turbó
kostar liðlega 1.400 þúsund krón-
ur kominn á götuna, enda vel bú-
inn með 2,5 lítra 150 hestafla vél
og rafdrifnum rúðum, speglum og
læsingum. Þá er kominn til sög-
unnar Plymouth Acclaim sem Jöf-
ur hefúr til þessa lítið haldið fram
enda ekki fengið nema fáeina bíla
af 1989 árgerðinni. Verður árgerð
1990 fáanleg með haustinu. Acc-
laim verður til skoðunar hér í dag
og er óhætt að segja að ökumaður
sem sest undir stýri hans verður
ekki fyrir vonbrigðum. Hér er á
ferðinni stór, vandaður og vel
búinn bíll sem kostar 1.484 þúsund
krónur kominn á götuna og getur
verðið reyndar hækkað um 80
þúsund krónur sé hann tekinn með
miklum rafbúnaði.
Plymouth Acclaim er boðinn hér
á landi með sjálfskiptingu og er um
tvær mismunandi útfærslur að ræða
á bíl sem er að öðru leyti eins. Acc-
laim er að mínu viti fallegur vagn
með mjúkum og rennilegum útlínum
en er jafnframt háreistur og sterk-
legur. Framljós og stuðarar eru
þannig felld inn í útlínur bílsins og
hið sama má segja um afturendann
nema hvað stuðarinn er verklegri
þar.
Acclaim er rúmgóður fimm manna
bíll, 4,60 m langur, 1,73 m breiður
og lengd milli hjóla er 2,62 metrar.
Hann vegur kringum 1.480 kg.
Stór að innan
Framstólamir tveir eru góðir og
hægt er að fella niður armpúða milli
þeirra sem er til þæginda hvort sem
er fyrir ökumann eða farþega hans.
Aftursætin eru einnig góð og sér-
staklega er eftirtektarvert hversu
gott rými er þar fyrir fætur manna.
Farangursrýmið er allgott og kostur er hve langt niður það opnast. Mælaborðið er í hefðbundnum stíl en það er vel útbúið.
Sætin eru með tauáklæði. Hægt er
að leggja niður allt bak aftursæta
eða hluta þess og þar með fram-
lengja farangursrýmið sem þó er
allgott. Ættu fjórir sem ferðast í
Acclaim ekki að vera í vandræðum
með að koma dóti sínu fyrir þar.
Allar rúður eru stórar og útsýni er
gott úr fram- og aftursætum enda
er setið fremur hátt ’og sætin eru
með hefðbundum stillingarmöguleik-
um.
Acelaim er með 2,5 1, fjögurra
strokka og 100 hestafla þverstæða
vél sem stendur vel fyrir sínu. Hún
er með rafstýrðri innspýtingu. Hing-
að kemur Acclaim með vökvastýri
og sjálfskiptingu enda finnst senni-
lega flestum eðlilegra að aka bíl sem
þessum með sjálfskiptingu. Bein-
skipti bíllinn er hins vegar 60 þúsund
krónum ódýrari. Þó Acclaim teljist
til flokks stórra bíla er hann lipur
og auðveldur í akstri. Gott útsýni,
góðfr speglar, létt stýri, sjálfskipting,
gott viðbragð og góðar upplýsingar
og aflestur mæla gera það að verkum
að aksturinn verður til ánægju.
Mælaborð er í raun mjög hefð-
bundið. Hraðamælir, snúningshraða-
mælir, hita-, bensín-, rafmagns- og Plymouth Acclaim er allra eigulegasti vagn. Morgunblaðið/Svemr