Morgunblaðið - 01.07.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
31
Afturhlerinn opnast vel og gleypir farangursrýraið allmikið dót.
ðkumaður ósjálfrátt með vinstri
hendinni eftir handfanginu en
grípur í tómt og man þá eftir raf-
magninu. Þá er bíllinn með raf-
drifnum hurðalæsingum og nýjung
sem fáir bílar státa af sem er fjar-
stýring á hurðalæsingum. Er sem
sagt hægt að opna með þvi einu
að þrýsta á lykilinn þegar ökumað-
ur nálgast bílinn og setjast síðan
rakleiðis inn. Finnst manni þetta
meira til gamans 'gert en að það
sé bráðnauðsynlegt.
Sprækur
Renault 19 er sprækur og
skemmtilegur í borgarumferðinni.
Stýrið er frekar svert og verklegt
í höndum ökumanns en of þungt
og hér sakna ég vökvastýris. Það
kemur ekki að sök við venjulegan
akstur en allt skak eins og mikið
er um í borgarumferð verður of
stirt án vökvastýris. Þá eru hemlar
góðir. Ástigið er ekki of létt, þeir
taka við sér jafnt og þétt og þarf
að hemla nokkrum sinnum til að
reyna þá en hér er um ABS kerfi
að ræða. Þótt bíllinn vegi yfir 900
kg virðist 80 hestafla vélin gefa
bílnum nægan kraft því vinnslan
er góð. Gírskiptingin er einkar
skemmtileg, stöngin er stutt og lip-
ur og gripið á henni sérlega þægi-
legt. Þá er sjálf skiptingin auðveld,
stöngin rennur vel milli gíra. Bíllinn
er fimm gíra og er sá fimmti lítið
notaður í borgarumferð en fjórði
er duglegur og ekki alltaf þörf að
skipta niður í þriðja þótt auka þurfi
hraðann snögglega. Hámarkshraði
er uppgefinn 173 km á klukkustund
og er hann 12,2 sekúndur frá kyrr-
stöðu í hundraðið.
Fjöðrun er góð í Renault 19 og
þótt ekki væri tækifæri til að aka
að ráði á malarvegum má fullyrða
að bíllinn er mjúkur. Hann liggur
vel á malbikinu og er hægt að bjóða
honum talsverðan hraða í beygjum
- mun meiri en nokkur maður ætti
að þurfa og meira en leyfilegt er.
Þá er bíllinn þokkalega hljóðlátur
en ekkert meira en það.
Áður er getið um góð framsæti
og er bíllinn reyndár allur rúmgóður
og farangursrýmið meðtalið. Stilla
má hæð á festingu öryggisbelta til
hliðar og almennt má segja að öku-
maður sem farþegar geti fundið sig
vel heima í þessum bíl. Hér er eng-
inn íburðúr á ferðinni, allt er frekar
látlaust hið ytra sem innra.
Betri með vökvastýri
Renault 19 hefur verið smíðaður
til að ná til ákveðins kaupenda-
hóps, þeirra sem vilja ekki stóra
bíla og ekki alltof dýra en vilja
hafa þá sæmilega vel búna. Það
hefur tekist allvel því hér er í boði
rúmgóður bíll og viðbragðsgóður,
hann er mjúkur og góður í með-
förum og hefur trúlega aðeins einn
aðalgalla: Hann er of þungur i
stýri. Fyrstu bílarnir koma án
vökvastýris en það verður hins veg-
ar fáanlegt í dýrari útfærslu og
skal kaupendum eindregið ráðlagt
að athuga þann kost þegar þar að
kemur en ekki er enn vitað ná-
kvæmt verð á þeirri gerð. Bíllinn
fær plús fyrir góða aksturseigin-
leika og það er margt í boði í þess-
um bíl fyrir um 840 þúsund krónur.
olíumælar eru beint fyrir framan
ökumann, stefnuljósa- og þurrku-
rofar svo og ökuhraðastilling eru á
stöng vinstra megin og í mælaborði
vinstra megin er aðalljósarofi en
bíllinn er búinn dagljósabúnaði.
Hægra megin við ökumann eru mið-
stöðvarstillingar og gluggi sem gefur
ýmis skilaboð um ástand vélar og
vekur á sér athygli séu hurðir ekki
lokaðar. Hraðamælir gefur upp bæði
mílu og kílómetrahraða en ekin vega-
lengd er hins vegar aðeins sýnd í
mílum. Stafar það af því að hér er
á ferðinni Ameríkugerð bílsins en
ekki Evrópugerð. Jöfur mun hins
vegar taka Evrópugerðina fremur
verði hún fáanleg á svipuðu verði.
Þetta skiptir kannski ekki miklu
máli en þó er eðlilegra á íslandi að
telja kílómetra en ekki mílur.
Lipur og mjúkur
Við aksturinn situr ökumaður
mjög vel og getur sem fyrr segir
stillt sætið eins og hann kýs best og
stýrið einnig. í bæjarakstri er Acc-
laim lipur eins og fyrr er sagt og
ekki þarf að kvarta yfir viðbragðinu.
Stundum finnst manni þó að orkan
mætti vera meiri - við vissar aðstæð-
ur þegar aka þarf framúr. Gripið á
stýrishjólinu er gott og fyrr er nefnd-
ur ágætur stuðningur af armpúðan-
um hægra megin ef menn vilja.
Grunar mig samt að ökukennurum
þætti það ekki góð latína.
Gott er að koma bílnum fyrir í
stæði og meðhöndla hann á allan
hátt þrátt fyrir stærðina. Góðir spegl-
ar eiga sinn þátt í því og svo virðist
sem ökumaður geti fljótt tileinkað
sér nokkuð nákvæmlega stærð
bílsins. Er það mikill kostur að öku-
menn séu fljótir að venjast þeim.
Acclaim er ekki síðri á malarveg-
um. Mjúk gormafjöðrun tekur vel
allar holur og ekki er fyrir að fara
hávaða af vegi eða frá vél. Vélarlok-
ið er vel einangrað og teppi á gólfum
og aukamottur draga úr öllum há-
vaða. Bíllinn liggur vel á vegi og
virðist lítil hætta á hliðarköstum í
beygjum og þótt ekki hafi verið ek-
inn langur kafli á malarvegi var
hann nógu langur til þess að sann-
reyna það.
Fyrir kröfuharða
Plymouth Acclaim er óefað vand-
aður bíll í alla staði. Fyrir utan hve
hann er vel búinn má telja frágang
vandaðan, hann kemur á óvart hvað
varðar rými fyrir farþega og farang-
ur og hann svarar vel miklum kröfum
sem gera verður til ökutækis sem
kostar nærri 1.500 þúsund krónur.
Chrysler hefur í yfirlýsingum sínum
að undanfömu sagst fara eftir óskum
viðskiptavinanna og þess vegna sé
hér kominn bíll sem svari kröfum
þeirra. Undir það má hiklaust taka
og benda þeim sem á hugsa sér að
kaupa bíl í þessum verðflokki að
þeir ættu ekki að ganga framhjá
Plymouth Acclaim í athugun sinni.
jt
Molar:
Góð frammistaða Mitsubishi
Mitsubishi Colt og Lancer hafa mælst með lægsta bilanatíðni
þriðja árið í röð í athugun sem fram fer á vegum vestur-þýska
bíleigendafélagsins. Colt og Lancer ganga undir samheitinu
Mirage í Vestur-Þýskalandi en athugaðir voru bílar af árgerðun-
um 1986, 1987 og 1988 og skyldu ekki fáerri en 10 þúsund vera
skráðir af hverri árgerð. Bílunum er skipt í flokka eftir stærð;
smábíla, minni gerð meðalstórra bíla, meðalstóra, stóra bíla og
jeppa svo nokkrir flokkar séu nefndir. Athugunin stóð allt árið
1988 og í niðurstöðum kom fram að næst minnsta bilanatíðni
hafði Honda Civic, þá Mazda 323, Toyota Corolla og Nissan Sunny
var í fímmta sæti.
Oft er sagt að allt sé stærst í
Ameríku en frá Japan geta líka
komið stórar tölur. Þar í landi
seldust nærri 5 milljónir bíla á
síðasta ári. Alls voru seldir
2.120.194 bílar frá Toyota, Niss-
an seldi 1.160.260, Honda
389.946, Mazda 372.972 og frá
Mitsubishi seldust 350.134 bílar.
Volvo fær verðlaun
Volvo 440 hinn nýi hefur feng-
ið sérstök verðlaun í Svíþjóð í
árlegum dómi sænska bílablaðsins
Motor. Verðlaunin eru veitt fyrir
góða handbók bílsins og hljóta
Volvo verksmiðjurnar þessa viður-
kenningu í fimmta sinn á 19 árum.
Handbókinni er hælt fyrir góða
kynningu á þessum nýja bíl, vand-
aðar myndir sem sýni vel t.d. hina
einstöku vélarhluta sem til um-
fjöllunar eru og fyrir góða atriðis-
orðaskrá þar sem sé nánast útilok-
að að láta framhjá sér fara það
sem notendur bílsins kunna að
leita eftir.
Bílasímar - ekkert
vandamál?
Bflasímar eru í mikilli notkun
hérlendis eins og vegfarendur
hafa tekið eftir. Oft má sjá öku-
menn hálf gleyma sér við akstur-
inn því það er verið að ræða svo
áríðandi mál í símann (hvað er í
matinn?) og þar fram eftir götun-
um. Stundum er líka erfitt að
þurfa að skipta um gír í miðri
setningu og verst að þurfa að
hafa hina hendina svona upptekna
á stýrinu. (Það eru nefnilega ekki
allir sem hafa efni á bílasíma og
sjálfskiptingu í senn!) En geta
tæknimenn ekki leyst þetta hvim-
leiða vandamál með því að útbúa
heyrnartól á höfuðið? Og það
verður að gæta þess að það nái
aðeins yfir annað eyrað - hitt verð-
ur að vera opið fyrir öllum út-
varpsstöðvunum.
jt
jfleösíur
á morgutt
Guðspjall dagsins:
Matt. 5.: Réttlæti
Faríseanna.
ÁRBÆJAR- og Grafarvogssókn:
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju
sunnudag kl. 11 árdegis. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Guðný Hallgrímsdóttir stud. the-
ol. predikar. Sr. Árni Bergur Sig-
urþjörnsson.
BORGARSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Altarisganga.
Organisti Sigríður Jónsdóttir. Sr.
Gísli Jónsson.
menn guðsþjónusta kl. 11.
Síðasta messa fyrir sumarfrí.
Organisti Jónas Þórir. Þórsteinn
Ragnarsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum þá kl. 14. Á laugardögum
er ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30. Ragnar
Henriksson talar og off./laut.
Guðfinna Jóhannesdóttir stjórn-
ar.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ólafur Jens Sig-
urðsson messar. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Sóknarnefnd-
in„
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Dóm-
kórinn syngur. Sr. Hjalti Guð-
mundsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson. Organisti
Kjartan Ólafsson.
FELLA- og Hólakirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organ-
isti Guðný Margrét Magnúsdótt-
ir. Sóknarprestar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14. Orgelleikari
Kristín Jónsdóttir. Sr. Cecil Har-
NÝJA postulakirkjan: Messa á
Háaleitisþraut 58-60 kl. 11.
BESSAST AÐ AKIRKJ A: Guðs-
þjónusta kl. 11. Álftaneskórinn
syngur undir stjórn J. Speight.
Organisti Þorvaldur Björnsson.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Kristín Jó-
hannesdóttir. KórVíðistaðasókn-
ar syngur. Sr. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Morgunsöngur kl. 11. Sr. Gunn-
þór Ingason.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
aldsson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Altarisganga. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðju-
dagur: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju á vegum
Kársnessafnaðar fellur niður nk.
sunnudag vegna safnaðarferðar
að Ökrum á Mýrum þar sem
messað verður kl. 14. Sr. Árni
Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Þórhallur Heimis-
son.
LAUGARNESKIRKJA:- Minni á
guðsþjónustur í Áskirkju. Sókn-
arprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Miðvikudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Elín Ósk Óskarsdóttir sópr-
ansöngkona syngur einsöng.
Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Sighvat-
ur Jónasson. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
KIRKJA óháða safnaðarins: Al-
kl. 8.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Frank
Herlufsen. Sr. Bragi Friðriksson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 9.30. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Organ-
isti Örn Falkner. Ath. breyttan
messutíma. Sr. Ólafur Oddur
Jónsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Organisti Örn
Falkner. Sóknarprestur.
KAPELLAN Hafnarg. 70,
Keflavík: Messa kl. 16 á sunnu-
dögum.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa
kl. 11. Að henni lokinni verður
ekið inn á Strandárheiði og geng-
ið þaðan í Staðarborg. Þar mun
göngufólk hitta safnaðarfólk úr
Kálfatjarnarsókn. Bænasamkom-
ur alla þriðjudaga kl. 20.30. Sr.
Örn Bárður Jónsson.
HVERAGERÐISPRESTAKALL:
Messa í Hveragerðiskirkju kl.
10.30. I Þorlákshöfn: Helgistund
við vígslu íbúða eldra fólks kl.
14. Sr. Tómas Guðmundsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Einar Sig-
urðsson. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: [ dag, laugar-
dag, messa kl. 14.30 á dvalar-
heimilinu Höfða. Sunnudag,
messa í kirkjunni kl. 10.30. Fyrir-
bænaguðsþjónusta á mánudög-
um kl. 18.30. Síðustu guðsþjón-
ustur fyrir sumarleyfi kirkju-
starfsfólks. Sr. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 11. Messa í
Akrakirkju kl. 14. Sóknarprestur.
Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða býður lægst
TIU tilboð hafa borizt í efnis-
vinnslu á níu kílómetra vegarkafla
milli Víðivalla og Uppsala á Norð-
urlandsvegi. Lægsta tilboð átti
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða, 29.787.500 kr., sem er 85%
af rúmlega 35 milljóna kostnað-
aráætlun Vegagerðar rikisins.
Önnur tilboð bárust frá Jarðverki
í Nesi, 31.447.200 kr.. Jóhann
Bjamason á Hellu bauð 32.960.510
kr., Ytan hf. á Akureyri bauð
31.497.600 kr., Hvítserkur hf.
30.719.590 kr., Kráksverk hf.
30.419.835 kr., Klæðning hf.
39.793.500 kr., Árvélar sf. á Sel-
fossi 34.428.850 kr., Hagtala hf. í
Hafnarfirði 37.345.300 kr. og Ellert
Skúlason hf. 39.605.440 kr.