Morgunblaðið - 01.07.1989, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
fclk í
fréttum
Sex ungum og efnilegum
íslenzkum kylfingum var í
vor boðið til Englands þar sem
þeir dvöldu í vikutíma við æfingar
á Sundridge Park golfvellinum
skammt frá London.
Það var Jóhann Sigurðsson sem
átti hugmyndina að þessum æf-
ingaferðum íslenzkra unglinga og
Ungir kylfingar í Englandi
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið, að hann stefndi að því, að
ferðir sem þessar gætu orðið ár-
vissar og þriðji hópurinn færi til
Englands næsta vor. Auk Jóhanns
taka Golfsamband íslands og
Flugleiðir þátt í kostnaði við ferð-
ina, en hóparnir hafa búið hjá
enskum fjölskyldum, meðlimum í
Sundridge Park-golfklúbbnum í
Bromley.
Kennari golfklúbbsins, Bob
Cameron, hefur leiðbeint strákun-
um og hafa þeir einnig leikið gegn
enskum jafnöldrum sínum. Vell-
imir á Sundridge Park eru skógi
vaxnir og ólíkir golfvöllum hér-
lendis, en um dvölina þar hafði
einn sexmenninganna, Órn Arn-
arson, unglingalandsliðsmaðurfrá
Akureyri, þetta að segja meðal
annars: „Ég hafði mjög gott af
ferðinni, maður lærði margt og
þetta var skemmtilegt."
Jóhann Sigurðsson sagði að
samskipti íslendinga við golf-
klúbbinn í Sundridge Park færu
stöðugt vaxandi og „koma strá-
kanna er toppurinn á góðum
kynnum," sagði Jóhann Sigurðs-
son. Þess má geta að í haust er
á döfinni ferð eldri kylfinga þang-
að.
GOLF
íslenzku strákarnir sem æfðu á Sundridge Park-golfvellinum í vor með fjölskyldunum sem þeir
bjuggu hjá meðan á dvölinni stóð.
Það var óvænt ánægja íyrir íslenzku piltana að hitta ekki
ómerkari kylfing en Bernard Langer, sem fram á síðasta ár
var í fremstu röð kylfinga í heiminum. Á myndinni eru frá
vinstri: Om Amarson, GA, Jóhann Pálmason, GV, Araar Ást-
þórsson, GK, Langer, Húnbogi Jóhannsson, GG, Húbert Ágústs-
son, GK, og Sigurður Oddur Sigurðsson, GA.
Gæti Whitney Houston ekki
verið rétta manneskjan ?
SLAGUR
Barist um hlutverk
Josephine Baker
Eftir að upp komst að Hugh Hudson hefði í hyggju að kvikmynda ævisögu Josephine Baker
hafa ýmsar þekktar kvikmyndastjömur gefið til kynna að þær væru tilbúnar til að taka að sér
hlutverk Josephine í myndinni. Josephine Baker komst upp á stjömuhimin í París árið 1925 þar sem
hún skemmti með söng og dansi. Josephine vakti sérstaka athygli fyrir djarfan leikbúning sem hún
hún hafði dálæti á, bananapils og perlufesti.
* Ýmsar þekktar kvikmyndastjömur, söngkonur og fyrirsætur þykja koma til greina í hlutverk
■Josephine. Þeirra á meðal em Meryl Streep, Whitney Houston, Diana Ross og Naomi Campbell.
Naomi Campbell hefúr útlitið með sér
en getur hún leikið?
Diana Ross vill taka hlut-
verkið að sér.
Sumir segja að Meryl
Streep geti leikið allt.