Morgunblaðið - 01.07.1989, Síða 40
MORGUN'BLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 19'89
4Ö
nmnmn
„ SCjndU mér bcxra. þcé> Ód^mSta_
£&m til er í búSinn'i 09 'exg Staal
netjba mig til ab L’itost veL a. þdb-"
ASTER...
5--J/
... að losa sig við deilumál-
irt.
TM Reg U S Pat Off —all nghts reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkafftnu
Allt í lagi vinur.
HÖGNI HREKKVISI
HANJN F/EP2IR /VláR alltaf PÓSTIHH . "
m ^
...0(3 OPHAie HANN VFII? ©OFU."
Var áróðurinn bara
mannleg mistök?
- eftirþankar um
grein Úlfars
Þormóðssonar
Til Velvakanda.
Það er ekki á hveijum degi sem
andstæðingar sem fjandskapast
hafa um áratuga skeið verða allt í
einu og fyrirvaralaust sammála.
Slíkt þyrfti þó ekki að æra óstöðug-
an væri um einhvers konar mála-
miðlun að ræða. En nú hefur það
gerst að kommamir hafa viður-
kennt að Morgunblaðið hafði alltaf
rétt fyrir sér um Lenín, Stalín og
alla þessa fauta hvort sem er í Kína
eða á Kúpu eða Póllandi. Þetta
kemur fram í gagnmerkri grein
eftir Úlfar Þormóðsson er birtist í
Morgunblaðinu 28. júní, bls. 17, og
er hún einkar skemmtileg aflestrar.
Það er sem sagt allt lýgi sem
I love you — Ég elska þig.
Allir geta sagt I love you, en
þegar þú kemur að kjarna
málsins er íslenskan best.
Þjóðviljinn var að predika öll árin
og ég var nógu vitlaus til að trúa.
þegar ég var í menntaskóla. Veit
ég um marga sem líkt var farið um
en síðan hafa vitkast og eru sárir
út af þessu. En það er auðvitað
gott hjá þeim að viðurkenna mistök-
in þó seint sé, ef til vill eru þetta
bara svokölluð mannleg mistök!
Guðmundur Ólafsson, stúdent, gerir
þessa játningu við mikil fagnaðar-
læti á þingi þar sem flestir yfir-
kommarnir virðast hafa verið sam-
an komnir, allt frá Össuri niður í
Skara, og hér vitna ég beint í grein
Úlfars:
„Hvað um það. Stúdentinn sagði
að Stalín hefði verið fífl, Lenín enn-
þá meira fífl og að öllum líkindum
hefði Marx verið það líka. Þeir
hefðu komið á ofvitasósíalisma, sem
nú ríkti í Kína, Sovét og Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík. Þá til-
kynnti Guðmundur Óiafsson, stúd-
ent, að pólskir kommar væru fífl,
og að kínverskir kommar væru að
drepa fólk á torgum. Fundarmenn
skyldu átta sig á þessu, og því jafn-
framt að þeir, fundarmenn, væru
nákvæmlega sama fólkið og Kína-
kommarnir væru að drepa og Pól-
akkarnir að kvelja fyrir þátttöku í
Samstöðu . . .
Og þessi efnilegi stúdent heldur
áfram og segir, að Mogginn hefði
sko alltaf sagt satt um illvirki
Leníns, Stalíns og þessara ofvita
allra á árum áður. Ef eitthvað væri
hefði hann, Mogginn, sagt of lítið
satt og of mildilega frá illvirkjum
þessara drjóla. Mogginn væri fínt
blað og léti þá illu heyra það og
þar fengju þeir það sko óþvegið!
(tilvitnun lýkur).
Þarna er hvergi dregið úr og vil
ég meina að brotið hafi verið blað
í stjórnmálasögunni. Þegar ég bar
þessa grein undir lögmann minn'
sagði ég hikandi:
Það er nú ekki talað vel um lög-
menn í þessari grein. Þetta er eigin-
lega verra en bölva mönnum í sand
og ösku, að líkja þeim við Lenín
og Stalín og þessa stórkommúnista.
Ef til vill ætti ég ekkert að vera
að vekja svona athygli á henni?
Mér er alveg sama, sagði lögmað-
ur minn. Auðvitað eru sumir lög-
menn ekki til mikillar fyrirmyndar.
En mundu bara að um 90 prósent
alþingismanna hafa jafnan verið
lögmenn og það eru mikil meðmæli
með þeim er stunda þessa starfs-
grein, eða geturðu borið á móti því?
Þessu gat ég ekki borið á móti.
Því læt ég slag standa og sendi
þennan pistil. Vonandi fer hann
ekki fyrir bijóstvitið á neinum.
Þakka Úlfari fyrir skemmtilega
skrifaða og líflega grein og vona
að hann þrífist.
Fyrrum kommi
Sýnið þætti
með U2
Til Velvakanda.
Mig langar til að taka undir með
U2 aðdáendum sem skrifuðu fyrir
nokkru og báðu um U2 tónleika í
sjónvarpi. Fyrir nokkuð iöngu síðan
var þáttur í tveimur hlutum um
U2. Hverig væri nú að endursýna
þessa þætti og taka svo upp þráðinn
þar sem frá var horfið? Einnig
mætti bæta við eldra efni þar sem
ekki nærri öll lögin þeirra voru sýnd
í þessum þáttum. Með fyrirfram
þökkum fyrir hönd allra U2 aðdá-
enda.
H.S.
Víkverji skrifar
Fyrir nokkru sagði Víkverji frá
kunningja sínum og viðskiptum
hans við Flugleiðir. Þar kom fram
að starfsfólk Flugleiða í New York
gerði mistök við farskráningu sem
ekki reyndist hægt að leiðrétta og
komst því vinur Víkveija og sex
ára gömul dóttir hans ekki heim frá
Bandaríkjunum fyrr en nokkrum
dögum síðar en áætlað var. í bréfi
sem Flugleiðir rituðu viðkomandi
fyrir skömmu er beðist afsökunar
á umræddum mistökum og sendu
Flugleiðir dótturinni armbandsúr,
sem þegið var með þökkum.
í bréfi Flugleiða kemur fram að
Flugleiðamenn telja sig ekki hafa
einokun á flugi milli Bandaríkjanna
og íslands, þar sem hvaða
bandaríákt flugfélag sem er hafi
leyfi til að fljúga til íslands, auk
þess sem SAS hafi heimild íslenskra
stjórnvalda til að fljúga milli
Reykjavíkur og New York. Þá seg-
ir einnig að Flugleiðir kappkosti að
veita farþegum sem besta þjónustu,
hvort sem félagið flýgur eitt
ákveðna flugleið eða er i samkeppni
við aðra.
Víkveiji ætlar svo sem ekkert að
skattyrðast við Flugleiðir. Það er
rétt að félagið .hefur ekki einokun
á flugi milli íslands og Banda-
ríkjanna. En félagið er i einokunar-
aðstöðu, þar sem ekkert annað fé-
lag flýgur á þessari leið. Fyrir
Vikveija og aðra viðskiptavini Flug-
leiða er útkoman sú sama.
að er hreint með ólíkindum,
hvers konar vitleysu sumir
menn setja saman og ætla blöðun-
um að birta. Víkveiji hefur áður
gert slíkar sendingar að umtalsefni
og getur ekki stillt sig um að segja
eina sögu í viðbót.
Fyrir nokkru barst fréttatilkynn-
ing um þátttöku íslendings í Evr-
ópumeistaramóti. Og þar stóð:
„Einn þátttakandi var frá íslandi í
Evrópumeistaramótinu...
(Víkveiji sleppir nöfnum viðkom-
andi og keppnisgreininni.) Hann
stóð sig með ágætum og sem dæmi
hefði hann náð bronsinu, ef þetta
hefði verið Norðurlandamót.“!
Skyldi maðurinn ekki hafa náð
gullinu í Grímsey?
xxx
Víkveiji dagsins er satt að segja
alveg öskureiður út í ríkisút-
varpið. Það ná engin orð yfir stirð-
busaháttinn þar á bæ. Nú inn-
heimtir ríkissjónvarpið afnotagjöld-
in mánaðarlega sjálfu sér til hags-
bóta. En þegar notandi vill sjálfum
sér til hagsbóta losna við að greiða
afnotagjald á meðan hann bregður
sér af bæ, þá er engin leið að gera
það öðru vísi en að innsigla tæki
hans og það er ekki gert fyrir minna
en þijá mánuði.
Og vilji menn losna við að greiða
fyrir ríkisfjölmiðilinn engu að síður,
þá verða þeir sjálfir að borga fyrii
innsiglið og rof þess. Aðrir ijöl-
miðlar bera sjálfir kostnaðinn ai
því, þegar notandi hættir áskrifl
um stundarsakir. En auðvitað ekk
ríkisútvarpið!
Víkveiji sá útvarpsstjóra og fjár
málastjóra hans hrökkva við vegm
ummæla fjármálaráðherra un
rekstur útvarpsins. Báðir bentu 1
að nú skili reksturinn hagnaði. Þ:
spyr Víkveiji: Að hve miklu leyi
er sá hagnaður fenginn með þein
rangsleitni að þvinga menn til a
greiða afnotagjald fyrir enga notk
un?
Og svo skýla útvarpsmenn sér
bak við reglugerð, þegar neytanc
inn sækir á um sjálfsagða þjónusti
Það tók starfsfólk Hagvirkis hádeg
ið að framkalla sinnaskipti hjá fjái
málaráðherra varðandi Hagvirki 0
söluskattsmál. Og ráðherrann gen
meira en breyta reglugerðinni, þef
ar hann sá mátt fólksins og mum
eftir Reykjaneskjördæmi. Hann gi
út tvær nýjar, sem kúventu öllu fi
því sem var fyrir hádegið. Æ1
menntamálaráðherra yrði ekki jafl
handfljótur við að breyta útvarp
reglugerðinni, ef neytendur tæk
sig saman til aðgerða líkt og starf
menn Hagvirkis? Víkveiji trúir þi
að ráðherrann myndi þá ráma
Reykjavík.