Morgunblaðið - 01.07.1989, Síða 41
h
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1989
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL.1C-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/itr •+1 u *-
*á.Uri 'U IT
Brids
Þessir hringdu . .
Guðmundur Ágústsson hringdi:
„Nokkuð skortir á að rétt sé
farið með íslenskt mál í frétt sem
birtist í Morgunblaðinu 29. júní og
bar yfirskriftina „Dýrbítur á Suður-
eyri“. Þar er talað um að hundur
hafi hrakið „ársgamalt lamb“ í sjó-
inn. Ég hef aldrei heyrt talað um
ársgömul lömb því þau voru alltaf
nefnd gemlingar eða gemsi. Um
þetta er til gömul kímnisaga.
í gamla daga fengu fermingar-
börn ekki að fermast nema þau
stæðu sig sæmilega. Drengur sem
þótti tomæmur átti í miklum erfíð-
leikum með að tileinka sér fræðin.
Loks sagði presturinn við hann.
Nú les ég fyrir þig eina ritningar-
grein og ef þú mannst hana að ári
skaltu fá að fermast. Svo les prest-
ur:
„Sjá það Guðs lamb sem burt
ber heimsins synd“.
Nú líður og bíður til næsta vors.
Strákur kemur þá að máli við prest
og spyr þá presturinn:
Manstu enn ritningargreinina
sem ég las fyrir þig í fyrra?
Víst geri ég það, segir strákur,
hún er svona:
„Sjá þann Guðs gemling sem burt
ber heimsins synd“.
Ekki var prestur ánægður með
þetta og segir að það hafi verið
lamb en ekki gemlingur.
Ef það var lamb í fyrra þá er
það gemlingur núna, sagði strákur
og varð prestur að ferma hann.
Eins er ég ósáttur við að notað
sé orðið dýrbítur um hund. Dýrbít-
ur getur aðeins verið refur að mínu
mati.“
Fjallareiðhjól
Grátt Euro star fjallareiðhjól var
skilið eftir við Njálsgötu fyrir
nokkru. Upplýsingar í síma 10189.
Hringir
Tveir hringir töpuðust í Heijólfs-
dal í Vestmannaeyjum á jóns-
messunótt. Finnandi er vinsam-
legst beðinn að hafa samband við
Ástu í síma 74388 eða síma 25522.
Fundarlaun.
Úr
Gullúr merkt með nafninu
Kristín Eggertsdóttir tapaðist fyrir
löngu. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 19271.
Hjól
Lítið BMX hjól var skilið eftir
við verslunina Iris við Smiðjuveg
fyrir nokkru. Upplýsingar í síma
43500.
Góður harðfískur
Auðun hringdi:
„Ég vil lýsa ánægju minni með
góðan harðfisk sem seldur er í
göngugötunni í Austurstræti. Ekki
veiþ ég hvaðan af landinu hann er
en ég hef sjaldan smakkað betri
harðfisk.
Gleraugu
Drengjagleraugu týndust á
þriðjudag á leikjanámskeiði í Selja-
skóla. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í sima 689083.
Kettlingar
Fimm sex vikna gamlir kettling-
ar fást gefins. Upplýsingar í síma
38584.
Til Velvakanda.
Það var um margt fróðlegt að
lesa frásögnina í Morgunblaðinu á
miðvikudaginn var um innrás síla-
máfsins á Reykjavíkur-'Ijömina.
Heldur þótti mér uppgjafartónn í
frásögninni af þessum skæða varg-
fugli. Það yrði líklega ekki rönd við
reist. Hann myndi hreinléga gera
þar með öllu ólíft fyrir aðra fugla
nema þá einna helst kríuna.
Það var sagt frá því án þess að
því væru gerð nánari skil að tekist
hefði að hrekja hrafna í burtu af
varplandi Tjamarsvæðisins. Skyldi
hrafninn ekki hafa verið hrakinn á
flótta með aðstoð skotvopna? Er
nokkuð því til fyrirstöðu að leita til
kunnáttumanna i meðferð skot-
vopna um að hjálpa til við að stugga
við sílamáfum og öðmm vargfugli
í þessari fuglaparadís Reykjavíkur?
Læra ekki traustvekjandi lögreglu-
menn meðferð skotvopna? Liggur
Reiðhjól
Þetta 10 gíra NSU reiðhjól var
tekið við Álagranda aðfaranótt 28.
maí. Þeir sem vita hvar það er nið-
ur komið em vinsamlegast beðnir
að hafa samband í síma 17082.
Til Velvakanda.
Ég get nú ekki stillt mig um að
koma því á framfæri sem hér fer
á eftir. Nýverið var haldið uppá
aldarafmæli Bændaskólans á
Hvanneyri með pompi og prakt og
komu þar saman eldri árgangar,
og þar á meðal nemendur úr skólan-
um sem útskrifuðust fyrir 30 ámm
síðan. Þetta er nú ekkert athuga-
vert við, en þeir máttu ekki hafa
konurnar sínar með þar sem það
gat spillt gleðinni, a.m.k. var það
tekið fram af þeim sem stóðu fyrir
samkomu þessa bekkjar að þeir
skyldu koma konulausir.
Sú spuming hlýtur að vakna
Arnór Ragnarsson
Bikarkeppnin
Bridssambandinu hafa borist tvö
úrslit í Bikarkeppni Eurocard og
Útsýnsar, önnur frá fyrstu umferð
og hin frá annarri. Sveitir Jóns
Baldurssonar og Júlíusar Snorra-
sonar áttust við í Sigtúni miðviku-
dagskvöldið 21. júní, en það var
leikur úr fyrstu umferð. Leikurinn
var æsispennandi og skiptust sveit-
irnar á um að hafa forystu. Þegar
30 spilum af 40 var lokið hafði
sveit Júlíusar 13 impa forystu, en
í síðustu tíu spilunum skoruðu Jón
Baldursson og félagar 15 impum
umfram sveitarmeðlimi Júlíusar.
Jón Baldursson sló því sveit Júlíus-
ar út með tveggja impa mun.
í leik úr annarri umferð bikar-
keppninnar vann Suðumesjasveit
Loga Þormóðssonar sigur á
Reykjavíkursveit Guðmundar Bald-
urssonar með 42 impum. Sveit
Guðmundar Baldurssönar vann
fyrstu lotuna af fjórum, en síðan
vann sveit Loga allar loturnar sem
eftir vom, og leikinn með 42 imp-
um.
Sveit Jóns Baldurssonar á heima-
leik við sveit Baldurs Bjartmarsson-
ar í annarri umferð, en leikjum í
annarri umferð skal verða lokið
fyrir 20. júlí.
Sveitir í Bikarkeppni Eurocard
og Útsýnar em beðnar um að gefa
upp úrslit til Bridssambandsins hið
fyrsta eftir að þau liggja fyrir, svo
hægt sé að birta þau og skipu-
leggja framhaldið.
LÆRIÐ A KYPUR
DIDACTAINTERNATIONAL COLLEGE
★ Flugfreyjunám - með Cyprus Airways
★ Nám í ferðaþjónustu í flugi - sem leiðir til IATA
réttinda
Sendið úrklippuna í umslagi merktu: „K - 8307“
á auglýsingadeild Mbl. Haft verður samband og
nánari upplýsingar gefnar.
Nafn:.................................
Heimilisfang: ........................
Sími:.................................
Því ekki að leita til lögregluskólans?
ekki beinast við að leita til lögreglu-
manna eða Lögregluskólans að
nemendur hans komi hér til hjálp-
ar. í það minnsta er ekki hægt að
horfa upp á það, með hendur í vös-
um, að sílamáfurinn leggi undir sig
Reykjavíkurtjörn.
Til þess verða borgaryfirvöld að
sjá og beita til þess tiltækum ráðum.
Tjamar- og fiiglavinur
Hvers vegna konulausir?
hvort aumingja mennirnir séu svo
kúgaðir af konum sínum að þeir
geti ekki skemmt sér með gömlu
skólafélögunum ef konurnar væru
með. Ef svo er þá er gengið of langt
í jafnrétti kynjanna.
Kona að norðan
Svartur jakki
Svartur jakki í plastpoka tapaðist
í Kolaportinu laugardaginn 24. júní,
eða á veitingastaðnum Horninu,
Hafnarstræti.
Ef einhver veit um jakkann, þá
vinsamlegast hringið í síma 27214.
GRÓÐRARSTÖÐIN
BORG
Þelamörk 54, Hveragerði,
einnig inngangur austan
EDEN, sími 98-34438.
Fallegar
garðplöntur
- og verðið kemur
þægilega á óvart.
Tré og runnar - um 150 tegundir.
Lerki 1 m á 500 kr.
Loðvíðir á 100 kr.
Koparreynir á 425 kr.
Birkikvistur og glansmispill á 90 kr.
Alaskaösp um 2 m á 1.000 kr.
Sumarblóm.
Fjölærar plöntur, um 200 tegundir.
Að sjálfsögðu góð ráð í kaupbæti.
Sólskinskveðjur.
Opið alla daga frá kl. 9 til 22.
RTIÐ
MtmKa-ÐStO&r
í DAG KL. 10—16
Þetta og margt ffleira getur þú fundið í Kolaportinu: Reiðhjói
Slátturvélar GarSáhöld Urval af lelkföngum Gjafavörur ■ Snyrtlvörur - Plaköt
Sólgleraugu Skartgripi Boli Notuö föt Ný föt Stóla og eldhúsáhöld • Antfkmuni
Sportvörur Flotgalla Veiðistengur Vöðlur Orma (ánamaðka) Trjáplöntur
Tómata • Agúrkur • Sveppi • Kartöflur • Rabarbara • Bltafisk • Harðfisk • Hljómplötur
Bækur - Vídeóspólur ■ Gardínuefni • Ruggustóla • Blómaskreytingar ■ Penínga
Kryddblöndur • Pottagaldrasósur ■ Nýbakað brauð • Kökubasar ■ Tombólu ■ Tfvolf
Blöðrur • Kaffi og kökur... o.fl., o.fl., o.fl.
“ Komdu í Kolaportið — þar er líf og f jörH