Morgunblaðið - 01.07.1989, Page 42
42
MORŒUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LAUGÁáDAÍGUR
1. JUU 1989
4
HANDBOLTI
til Islands
Aformað er að tíu dönsk hand-
knattleikslið komi hingað til
lands um mánaðarmótin ágúst-
september og verði hér í viku við
æfingar og keppni. Undanfarin ár
hafa dönsk lið farið suður á boginn
í æfingaferðir á haustin en nú er
ætlunin að halda til íslands.
Að sögn Guðrjóns Guðmundsson-
ar, starfsmanns HSÍ, er enn ekki
ljóst hvaða lið kæmu, en það eru
1. og 2. deildarlið.
Um helgina Knattspyrna 1. deild Laugardagur:
ÍA-FH Akranesv. kl. 14
Sunnudagur: ...KR-velli kl. 20
3. deild Laugardagur: ....kl. 14
,...kl. 14
BÍ-Leiknir ....kl. 14
....kl. 14
....kl. 14
....kl. 14
....kl. 14
4. deild Laugardagur: Efling-HSÞ-b ....kl. 14
SM-Hvöt ,...kl. 14
Sindri-KSH ...,kl. 14
Sunnudagur: ....kl. 14
Mánudagur: UMSE b-Æskan ....kl. 20
Neisti-TBA ,...kl. 20
2. deild kvenna Laugardagur:
FH-BÍ ....kl. 16
Sund
Sundmeistaramót íslands hófst í
sundlauginni í Laugardal í gærkvöldi.
Keppnin heldur síðan áfram í dag frá
kl. 15-17 og á morgun, sunnudag, frá
kl. 14-16. Allt besta sundfólk landsins
tekur þátt í mótinu.
Skotfimi
íslandsmótið í haglabyssuskotfimi
fer fram um helgina. Keppnin fer fram
á skotsvæði Skotfélags Hafnarfjarðar,
Óbrimishólum, í dag og á svæði Skot-
félags Reykjavíkur, Leirdal, á morgun
og hefst keppni báða dagana kl. 09.00.
Alls eru 16 keppendur skráðir til leiks
frá fimm félögum.
Golf
Opna GR-mótið, fyrir 16 ára og
eldri, fer fram í Grafarholti um helg-
ina. Leikin verður puunktakeppni,
Stableford, með 7/8 forgjöf.
■ Opið mót „Arctic Open“ verður
hjá Golfklúbbi Akureyrar um helgina.
Leiknar verða 36 holur með og án for-
gjafar.
■ Opið mót „Ljónsbikarinn44 á veg-
um Golfkúbbs ísafjarðar fer fram í
Tungudal um helgina. Leiknar verða
36 holur með og án forgjafar.
I Hið árlega háforgjafamót Golf-
klúbbs Hellu fer fram á Strandarvelli
í dag, laugardag. Leiknar verða 18
holur með og án forgjafar.
■ Opið kvennamót ferður hjá GK í
Mosfellsbæ í dag.
Íþróttahátíð HSK
á Hvolsvelli
Íþróttahátíð HSK fer fram á Hvol-
svelli um helgina og hefst keppni kl.
10 í dag, en keppendur eru um 550.
Átta lið keppa í knattspymu (10 ára
og yngri), um 400 keppa í fijálsíþrótt-
um í öllum flokkum og auk þess tekur
fjÖldi manns þátt í starfsíþróttum og
sundmóti.
TENNIS /WIMBLEDON
Ólympíu-
meistarinn
er úr leik
OLYMPIUMEISTARINN
Miloslav Mecirfrá Tékkósló-
vakíu er úr leik á Wimbledon-
mótinu ítennis. Wimbledon-
meistarinn frá þvf í fyrra Stefan
Edberg frá Svíþjóð og þeir
Boris Becker og Ivan Lendl
unnu allir sína ieiki nokkuð ör-
ugglega í gær. í kvennakeppn-
inni voru úrslit samkvæmt bók-
inni.
Stefan Edberg sigraði hinn 18
ára gamla Todd Woodbridge
frá Ástralíu, 6:4, 6:4, 1:6 og 7:6.
Edberg og Woodbridge hafa æft
saman að undanförnu og hefur sá
síðamefndi náð að læra inná Ed-
berg því leikurinn var jafn og
spennandi.
Vestur-Þjóðveijinn Boris Becker,
sem tvívegis hefur unnið Wimble-
don-mótið, sigraði Svíann Jan
Gunnarsson 3:0. Rigning setti mark
sitt á leikinn og varð að stöðva
hann tvívegis í annarri lotu.
Lendl, sem unnið hefur öll stór-
mótin fyrir utan Wimbledon, vann
Tomas Carbonell frá Spáni. Carbon-
ell hafði yfir 4:3 í fyrstu lotu er
stöðva varð leikinn vegna regns.
Hann náði ekki að fylgja þessu eft-
ir er stytti upp og Lendl vann örugg-
lega, 7:6, 6:3, 6:1.
Ólympíumeistarinn Miloslav
Mecir tapaði óvænt fyrir Júgósla-
vanum, Slobodan Zivojinovic. Hinn
kraftmikli Júgóslavi náði yfirhönd-
inni eftir að hafa tapað fyrstu lo-
tunni, 6:7. Það tók hann aðeins 23
mínútur að vinna aðra lotnuna og
eftir það var engin spuming. Kevin
Curren, sem lék til úrslita gegn
Becker 1985, tapaði einnig óvænt
fyrir Leif Shiras frá Bandaríkjun-
um.
Arantxa Sanchez frá Spáni, sem
sigraði á opna franska meistara-
mótinu, tryggði sér sæti í 4. um-
ferð ásamt Steffi Graf og Helenu
Sukovu frá Tékkóslóvakíu. En þess-
ar þijár eru taldar sigurstrangleg-
astar ásamt Martinu Navratilovu.
Nýju skórnir dugðu
ekki gegn Navratilovu
Navratilova, sem reynir nú að
vinna Wimbledon-mótið í níunda
sinn, er kominn í 3. umferð eftir
sigur á Rristine Radford frá Ástr-
alíu. Til gaman má geta þess að
Radford mætti Navratilovu fyrir
tveimur vikum og þá gaf Navra-
tilova henni þrenn pör af tenniss-
kóm því henni ofbauð skófatnaður
áströlsku stúlkunnar og sagði að
ef hún ætlaði sér að verða meistari
yrði hún að klæðast eins og meist-
ara sæmir. Radford mætti í nýju
skónum í gær og vann fyrstu lotuna
6:3 og komst í 3:1 í þeirri næstu,
en það dugði ekki til því Navrat-
ilova tók síðan leikinn í sínar hend-
ur og sigraði örugglega.
Wimbledon
Úrslit uröu þessi á Wimbledon tenniskeppninni í gær.
KARLAR
2. umferð:
Michiel Schapers (Holland) - Andres Gomez (Ekvador).........2-6 7-6 (7-5) 7-5 3-6 6-3
Christo van Rensburg (S-Áfríka) - Martin Laurendeau (Kanada)...3-6 7-6 (7-3) 6-2 6-2
ScottDavis (Bandaríkin) - Carl-Uwe Steeb (V-Þýskaland)...........7-5 4-6 4-6 6-2 6-4
David Pate (Bandaríkin) - Tom Nijssen (Hollandi)..........6-4 2-6 1-6 7-6 (9-7) 15-13
2- Stefan Edberg (Svíþjóð) - Todd Woodbridge (Ástralía)........6-4 6-4 1-6 7-6 (7-5)
Jonas Svensson (Svíþjóð) - Carl Limberger (Bandaríkin).............6-4 6-3 7-6 (7-1)
9-Michael Chang (Bandaríkin) - Ronald Agenor (Haiti)................4-6 6-2 6-1 7-5
John Fitzgerald (Astralía) - Glenn Layendecker (Bandaríkin)......4-6 6-3 3-6 6-3 6-4
Jason Stoltenberg (Ástralía) - Omar Camporese (Ítalía)......7-5 6-7 (4-7) 6-2 1-6 6-3
3. umferð:
Peter Lundgren (Svíþjóð) - Ken Flach (Bandaríkin)..............6-3 6-2 6-7 (3-7) 6-3
13-Aaron Krickstein (Bandaríkin) - Patrick Kuehnen (V-Þýskaland)....4-6 6-3 6-3 6-2
Paul Chamberlin (Bandaríkin) - Nick Fulwood (England)...........3-6 7-6 (7-2) 6-4 6-2
Dan Goldie (Bandaríkin) - Wally Masur (Ástralía)........7-6 (7-3) 7-6 (7-1) 3-6 7-6 (7-5)
1-Ivan Lendl (Tékkóslóvakía) - Tomas Carbonell (Spánn).............7-6 (7-2) 6-3 6-1
Leif 'Shiras (Bandaríkin) - 12-Kevin Curren (Bandaríkin) 4-6 6-3 5-7 7-6 (8-6) 6-3
Slobodan Zivojinovic (Júgóslavía) - 7-Miloslav Mecir (Tékkóslóvakía) ..6-7 (2-7) 6-1 7-5 6-3
3- Boris Becker (V-Þýskaland) - Jan Gunnarsson (Svíþjóð)...........7-5 7-6 (7-1) 6-3
KONUR
2. umferð:
2-Martina Navratilova (Bandaríkin) - Kristine Radford (Ástralía).......3-6 6-3 6-3
3. umferð:
11-Monica Seles (Júgóslavía) - Eva Sviglerova (Tékkóslóvakía).............6-4 6-3
7-Arantxa Sanchez (Spánn) - Raffaella Reggi (Italía)...................4-6 6-3 7-5
1-Steffi Graf (V-Þýskaland) - Anne Minter (Astralía)......................6-1 6-3
Ros Fairbank (S-Afríka) - Elizabeth Smylie (Ástralía).....................6-3 6-3
6-Helena Sukova (Tékkóslóvakía) - Claudia Kohde-Kilsch (V-Þýskaland)..4-6 6-3 6-3
Catarina Lindqvist (Svíþjóð) - 9-Natalia Zvereva (Sovétrikin).....7-6 (7-5) 4-6 6-4
15-Lori McNeil (Bandaríkin) - Judith Wiesner (Austurríki)..............5-7 6-2 6-4
GOLF/EM LANDSLIÐA
Naumt tap fyrir ítölum
| slenska Iandsliðið, sem tekur þátt
Evrópumóti landsliða áhuga-
manna í golfi í Wales, tapaði naum-
lega iyrir ítölum, 3:4, á fyrsta degi
holukeppninnar í gær.
Fyrir hádegi var leikið „Fors-
some“ þar sem tveir leika saman
og slá til skiptis. Úlfar Jónsson og
Guðmundur Sveinbjörnsson töpuðu
5:6 og Hannes Eyvindsson og
Ragnar Ólafsson töpuðu 1:2.
Eftir hádegi var einliðaleikur og
þá vann ísland 3:2. Siguijón Arn-
arssön vann 5:4, Sigurður Sigurðs-
son vann 2:1 og Ragnar Ólafsson
vann 3:1. Hannes tapaði 4:5 og þá
var staðan jöfn 3:3. Ölafar Jónsson
lék þá bráðabana og tapaði 0:1.
„Við erum ekki ánægðir með
daginn. Keppnin var þó spennandi
og úrslit réðust ekki fyrr en í síðasta
leik,“ sagði Guðmundur Siguijóns-
son sem sat hjá í einliðaleiknum.
íslenska liðið mætir annað hvort
Dönum eða Portúgölum í dag.
KNATT^PYRNUFÉLAGIÐ
ÞROTTUR
40 ÁRA
Vígslu- og afmœlishátíd
fer fram á hinum nýja velli félagsins við Savidarsund laugardaginn l.júlí. Vígsluathöfn-
in hefst kl. 12.45 og aó henni lokinni hefst leikur Þróttar og Hveragerdis í 3. deild.
Abgangur ókeypis og allir velkomnir. Öll bóm fá pylsur og pepsí á vellinum, en eldri
Þróttarar og velunnarar eru boðnir til kaffisamscetis í Glcestbce kl. 15.30.
Stjómin.
SPANN
Tvöfalt hjá
Real Madrid
Leo Beenhakker, þjálfari Real
Madrid, var kvaddur sérstak-
lega í gærkvöldi - þegar leikmenn
hans unnu Valladolid, 1:0, í úrslita-
leik spönsku bikarkeppninnar og
unnu því tvöfalt á Spáni. Been-
hakker, sem er á förum til Ajax,
hefur verið þjálfari Real í þijú ár.
Undir stjórn hans hefur félagið allt-
af orðið meistari, en nú varð Real
Madrid bikarmeistari í fyrsta skipti
síðan 1982. Rafael Gordillo skoraði
sigurmarkið á sjöttu mín.
Reuter
Stefan Edberg lagði Ástralann
Todd Woodbridge í annari umferð.
íuém
FOLX
■ ROGER Kingdom náði besta
tíma ársins í 110 m grindahlaupi -
þegar hann hljóp á 13,10 sek. á
alþjóðlegu móti í Vigo á Spáni í
gærkvöldi. Heimsmethafinn Ren-
aldo Nehemiah, sem setti met sitt,
12,93 - 1981, tók þátt í hlaupinu
og varð ijórði á 13,23 sek. Þess
má geta að hann er byijaður að
keppa aftur eftir að hafa gerst leik-
maður í amerískri knattspyrnu.
I RAY Stewnrt frá Jamaíku
náði besta tímanum í ár í 100 m
hlaupi í Vigo. Hann hljóp á 9,90
sek., en áður átti Bandaríkjamað-
urinn Leroy Burrell besta tímann
- 9,94 ^sek.
■ LÖGREGLAN í Perugia varð
að skerast í leikinn þegar Fior-
entína og Róma mættust í gær-
kvöldi - í leik um UEFA-sæti.
Stuðningsmenn Róma' ruddust inn
á leikvölldinn og varð að stöðva
hann í fimm mín. Firoentína vann,
1:0, með skallamarki Roberto
Pruzzo, fyrrum leikmanns Róma.
Rómverjar misstu einn leikmann
af velli - Giuseppe Giannini fékk
að sjá rauða spjaldið. Fiorentína,
Juventus, Sampdoria, Napolí og
Atalanta taka þátt í UEFA næsta
keppnistímabil - fyrir hönd ítala.
■ ÞÆR fréttir bárust úr her-
búðum Celtic í gærkvöldi, að félag-
ið væri hætt við að kaupa „Mo“
Johnston frá franska félaginu
Nantes. Eins og hefur komið fram
- þá stóðu félögin í stappi vegna
kaupverð hans.
■ NAPÓLÍ þarf að greiða
UEFA 3,2 milljónir íslenskar krón-
ur vegna óláta áhorfenda á fyrri
úrslitaleik Napólí og Suttgart í
UEFA-keppninni í Napólí 3. maí.
En þá var reyksprengjum kastað
inn á völlinn með þeim afleiðingum
að leikurinn gat ekki hafist á tilsett-
um tíma. Þetta var í þriðja sinn sem
Napólí er sektað af UEFA vegna
skrílsláta áhangenda liðsins á tíma-
bilinu.
I
í
i