Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 2
2 B MOEGUNBLAÐlV IÞRO í IIR ÞRJBJUÐAGUR 18. JÚLÍ 1989 ■ MARSEILLE safnar nú að sér snjöllum knattspyrnumönnum, en miljónarmæringurinn Bernard Tapie, eigandi félagsins, er ákveð- inn að gera Marseille að stórveldi í Evrópu. Jean Tigana, miðvallar- spilarinn knái, skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær, en hann var leikmaður með Bordeaux. Aður hafði Marseille keypt enska landsliðsmanninn Chris Waddle frá Tottenham og Brasiliumanninn Carlos Mozer, sem er varnarleikmaður. Einnig íranska landsliðsmanninn Alain Roche frá Bordeaux. ■ MARSEILLE hefur lánað franska landsliðsmanninn Car- melo Micciche til Metz í eitt ár. ■ BRASILÍUMENN eru að eignast mjög skemmtilegt landslið - og lék það geysilega vel í S- Ameríkumeistarakeppninni, eftir að það fór að leika 3-5-2. Azeglio Vicini, landsliðsþjálfari ítaliu, sá Brasiliumenn leika og sagði hann vonast til að Chile myndi slá Bras- ilíu út úr heimsmeistarakeppninni. Astæðan? „Ég vil vera laus við að mæta Brasilíumönnum á Italíu næsta ár.“ ■ BRASILÍA leikur í riðli með Chile og Venezuela í heimsmeist- arakeppninni og kemst sigurvegari riðilsins til Ítalíu'. Brasilíumenn hafa alltaf verið með í lokakeppni HM. ■ FORRÁÐAMENN Ham- burger eru ákveðnir að efla stemmninguna á heimaleikjum liðs- ins. Þeir eru með margar hugmynd- ir í sambandi við að gera ýmislegt fyrir áhorfendur - til að fá þá til að fjölmenna á völlinn. FRJALSIÞROTTIR / SPJOTKAST Iris Grönfeldt úrleik Keppirekki ísumarvegna meiðsla. Methennaríhættu „ÁLAGIÐ á öxlina hefur verið of mikið. Ég hvíldi eftir Ólympíuieikana í Seoul til ára- móta, en æfði síðan mjög vel fram að Smáþjóðaleikunum í maí, en þartóku meiðslin sig upp aftur. Örvefur hefur mynd- ast í vöðva og nú er bara að bíða eftir hvað læknarnir vilja gera,“ sagði íris Grönfeldt, Is- landsmeistari kvenna í spjót- kasti, við Morgunblaðið. Islandsmet írisar er 62.04 m. Hún reif vöðva fyrir ári og meiðslin tóku sig upp í Seoul. „Eg er mun verri í öxlinni nú en áður og hef verið að kasta um 50 metra á æfing- um. Það gengur ekki og því hef ég ákveðið að keppa ekki meira í ár, heldur leggja áherslu á að ná mér af meiðslunum. En ég er ekki hætt — meðan löngunin er fyrir hendi held ég áfram,“ sagði íris. Metin í hættu íris þjálfar hjá UMSB og kennir m.a. 40 til 50 krökkum 10 ára og eldri spjótkast. í hópnum er 11 ára stúlka úr Borgarfirði, Halldóra Jón- asdóttir, sem keppti á sínu fyrsta móti fyrir skömmu og setti íslands- met í stelpnaflokki — kastaði kvennaspjótinu 29,54 m og 400 gr spjóti 31,00 m. íris á met í öllum flokkum, en keppti ekki í telpna- flokki, þar sem hún byijaði ekki að æfa spjótkast fyrr en 13 ára. „Hún er náttúrubarn og mikið efnilegri en ég var,“ sagði Iris, „og ég er viss um að hún bætir metið í telpnaflokki á næsta ári,“ bætti hún við, en met írisar þar er 36,86 m. KORFUKNATTLEIKUR Lakers í vandræðum Pétur í stað Júgóslavans Los Angeles Lakers á í mestu vandræðum þessa dagana. Liðið valdi Vlade Divac, miðheija júgóslavneska landsliðinu, í ár- legu vali NBA-liðanna fyrir skömmu. Nú hafa þær fréttir bor- ist frá Júgóslavíu að hann fái ekki að fara því Júgóslavar ætli sér ekki að láta frá sér alla lands- liðsmenn sína. Boston Celtics valdi einnig Júgóslava en ólíklegt er að hann leiki með liðinu næsta vetur. Lakers vantar því enn miðheija og svo gæti farið að Pétur Guð- mundsson fari aftur til Lakers því hávaxnir miðheijar eru ekki á hveiju strái. Forráðamenn Lakers hafa rsétt við Pétur og boðið hon- um að leika með liðinu í sumar- móti í Los Angeles. Að því loknu munu forráðamenn Lakers ræða við Pétur. íris Grönfeidt mun ekki kasta spjótinu meira í sumar. ÚTlJISPORT Verslunarhúsinu, Gerðubergi 1, sími 72277. Breiðholtsbúar ath! Hm vörur daglega gjggg íþróttagallar, töskur, íþróttaskór, fótboltaskór Nýkomnir meiriháttar krumpugallar S TíGtk gJKf^ Hinir vinsælu NIKE íþróttaskór, margar gerðir, töskur, bolir o.fí. Mikið úrval af sundfatnaði, bæði á börn og fullorðna, m.a. 11 litir af krumpusundbolum. Einnig golfkylfur, golfpokar, golfkerrur og margt fleira fyrir kylfinga, t.d. byrjendasett, þ.e. 4 járn, 2 tré + pútt- er, á kr. 11.200,- Ath.: Hjá okkur er besta verð í bænum! Sendum í póstkröfu KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA KR náði stigi af meist- urum Vals Breiðablik mætti ekki til leiks VALSSTÚLKURtöpuðu sínu fyrstu stigum í 1. deild er þær gerðu markalaust jafntefli við KR í gærkvöldi. Liðið hefur samt sem áður örugga forystu í deildinni en Skagastúlkurnar eru í 2. sæti. Valsliðið byijaði mun betur en þegar á leið komst KR meira inn í leikinn. Liðin skiptu færunum bróðurlega á milli sín en hvorugu tókst að skora. Síðari hálfleikur var tíðindalítill framan af. Bæði liðin höfðu tæki- færi til þess að gera út um leikinn en færin nýttust ekki. Undir lokin gerðu Valsstúlkur harða hríð að marki KR án þess þó að skora og markalaust jafntefli því staðreynd þegar upp var staðið. Jafnt í Garðabænum Stjarnan og KA skildu jöfn í Garða- bænum á Iaugardag, en hvort lið skoraði eitt mark. Guðný Guðna- dóttir kom Stjömunni yfir eftir 15 mínútna leik en KA-stúlkur jöfnuðu með sjálfsmarki Stjörnunnar. Breiðablik mætti ekki til leiks Þórsstúlkur nældu í sín fyrstu stig í 1. deild þegar þeim var dæmdur sigur f fyrirhuguðum leik við Breiðablik á sunnudag. Samkvæmt mótabók átti leikurinn að fara fram á mánudag en því var breytt og svo virðist sem einhver miskilningur hafi síðan orðið þess valdandi að Breiðabliksliðið mætti ekki til leiks. Dómarinn beið eftir liðinu tilskilinn tíma en flautaði síðan leikinh af. ■ Staðan / B6 UfÚOK FOLK ■ ÍSLENSKA drengjalandslið- ið í golfi hafnaði í 17. og næst síðasta sæti á Evrópumótinu, sem fór fram í Svíþjóð og lauk um helg- ina. íslendingarnir unnu Portú- gali 5-2 í keppni um 17. sætið. Mótið verður á Islandi á næsta ári. ■ HANS Guðmundsson, sem er 11 ára og keppir fyrir Reyni, Hell- issandi, sigraði í spjótkasti á hér- aðsmóti HSH um helgina. Hann kastaði 400 gr spjótinu 36.59 m og bætti héraðsmet Atla Sigur- þórssonar, Snæfelli, sem var 31,94 m og sett í fyrra, en íslands- met Gunnars Gunnarssonar, UDN, er 39.02 m. Gunnar Smith, FH, á metin með 600 gr spjóti (33,66 m) og 800 gr spjóti (24,80 m). ■ VALUR og Akranes leika saman í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. í hinum leiknum mætast Akureyrarliðin KA og Þór. ■ SIGRÚN i Jóliannsdóttir, KR, setti meyjamet í sjöþraut á innanfélagsmóti KR um helghm - fékk 4.035 stig. Bryndís Hólm, IR, átti fyrra metið; 3.963 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.