Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.07.1989, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓ l I/H'ÞRŒMUDAGUR 18. JÚLÍ 1989 B 3 KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI Hvað Eg átti von á að við Kefivík- ingar myndum lenda í basli með Þrótt í þessum leik; það er alltaf erfitt að spila gegn liðum i neðri deildunum," sagði Ástr- áður Gunnarsson, þjálfari ÍBK, eftir sigurinn í gærkveldi sem ekki var í höfn fyrr en flautað var af. „Við gáfum svolítið eftir í leiknum, þegar við höfðum náð tveggja marka forystu, og við það komust þeir vel inn i leikinn og náðu að jafna. Ég er hins vegar ánægður með sigurinn og það að við skulum komast svona langt í bikarkeppninni, en það er samt fyrsta deildin sem er númer eitt og þrjú hjá okkur." Enginn sýnilegur munur. „Það eru alltaf vonbrigði að tapa leik, sérstaklega þegar sig- urinn hefði getað ient hvoru megin sem var,“ sagði Magnús Jónatansson, þjálfari Þróttar, eftir ieikinn. „Strákarnir spiluðu þennan leik vet, sérstaklega fyrri hálf- leikinn, en við reyndum að leika „taktískt“ og gefa þeim eftir viss svæði á vellinum, og gekk það ágætlega. Það var enginn sýnilegur munur á þessum lið um, þrátt fyrir að ailt. Liðið hefur hins vegar verið að ieika þijá leiki á viku að undanförnu og það sagði auðvitað til sín,“ sagði Magnús að lokum. FRJALSAR Cram tapaði fyrir Sang í Belfast Kenýamaðurinn Lucas Sang vann Steve Cram í 800 m hlaupi á alþjóðlegu móti í Belfast í Norður-írlandi í gærkvöldi - hann kom í mark á 1.46,21 mín., en Cram fékk tímann 1.46,74 mín. Bretinn Colin Jackson náði ekki að bæta Evrópumet sitt í 110 m grindahlaupi - hann kom fyrstur í mark á 13,16 sek., en hann jafnaði met (13,11) sitt sl. föstudag, þegar hann vann Roger Kingdom í Lon- don. Tony Jarrett var annar í gær- kvöldi - 13,31 sek. Keflvíkingar voru sterkari í lokin Lögðu Þróttara, 3:2, í opnum og fjörugum leik á heimavelli Þróttar KristinnJens Sigurþórsson skrifar KEFLVIKINGAR máttu hafa sig alla við til að komast með sigur af hólmi gegn ágætlega frískum Þrótturum í átta liða úrslitum bikarkeppninnar á hinum nýja grasvelli Reykjavík- urliðsins. Eftirtæplega 25 mfnútur var staðan reyndar orðin 2:0 fyrir ÍBK en þá tóku Þrottarar vel við sér og fyrir leikhlé höfðu þeir jafnað með tveimur gullfallegum mörkum. Það dugði hins vegar ekki til og ÍBK bætti einu marki við í síðari hálfleik. Leikurinn var mjög opinn og fjörugur til að byija með og skiptust liðin á um að sækja. Á 11. mínútu fékk Kjartan Einarsson knöttinn einn og óvaldaður úti í teig, og sendi hann með góðu skoti í hægra hornið framhjá Guð- jóni Daníelssyni, sem ekki var vel staðsettur. Þróttarar héldu samt áfram að gefa „stungur“ á Sigurð Hallvarðs- son, sem oftar en ekki var gripinn rangstæður. Keflvíkingar bættu svo sínu öðru marki við á 24. mínútu þegar Óli Þór Magnússon vippaði laglega yfir Guðjón, sem hafði hætt sér of langt út úr markinu. Þar með virtust úrslitin vera ráð- •in og einungis um það að ræða að bíða og sjá hvernig 1. deildarliðið ,jarðaði“ 3. deildarliðið. Þróttur stóð hins vegar undir nafni, og á 27. mín fékk Óskar Óskarsson dauðafæri, en missti marks. Það virtist því ekkert vanta annað en herslumuninn hjá Þrótti og hann kom fimm mínútum síðar þegar Sigurður Hallvarðsson afgreiddi fyrirgjöf efst í bláhornið. Þar með voru þeir rauðröndóttu komnir inn í leikinn. Tvíefldust þeir við markið og á 40. mínútu vann Sverrir Pét- ursson knöttinn af mótheija og spændi í gegnum .alla vörnina og jafnaði metin. Staðan í hálfleik því 2:2. Fyrirliðinn útaf. Síðari hálfleikur var alls ekki eins ijörugur og opinn og sá fyrri. Keflvíkingar sóttu mun meira, en það var ekki fyrr en á 75. mínútu sem þeir sköpuðu sér umtalsvert marktækifæri. Þá komst Óli Þór einn í gegn, en lét Guðjón veija frá sér. Mínútu síðar komst Gestur Gylfason í ágætt færi en skaut framhjá. Á 78. mínútu var fyrirliði Keflvíkinga, Freyr Sverrisson, rek Morgunblaðið/Einar Falur Freyr Sverrisson, sem sést hér vippa knettinum framhjá Guðjóni Daníelssyni, markverði Þróttar, kom mikið við sögu í gærkvöldi; Freyr fékk að sjá reisupassan í leiknum. inn útaf fyrir óíþróttamannslega framkomu eftir að hafa fengið gula spjaldið. Þeir létu það hins vegar ekkert á sig fá og héldu áfram að sækja. Sigurmarkið kom svo á 82. mínútu eftir stórskemmtilegt sam- spil Óla Þórs og Kjartans, sem skaut úr góðu færi, en af mark- FRJALSIÞROTTIR / LYFJAMAL Evrópukeppnin ítugþraut: Olögleg lyf fundust MARGT bendirtil að einhverjir íþróttamenn, sem tóku þátt í Evrópukeppninni ítugþraut í Tonsberg í Noregi um helgina, hafi neytt ólöglegra lyfja. Eng- ínn hefur verið sekur fundinn, en ólögleg efni fundust á íþróttavellinum. Rolf Nordberg, íþróttafrétta- maður hjá norska blaðinu Verdens Gang, fann hylki, þar sem langstökkið fór fram, og innihélt það leifar af ólöglegu efni. Frekari leit fór fram og í ruslafötum í bún- ingsherbergi íþróttamanna fundust fleiri hylki og sprautur. „MlkiA áf all“ „Þetta er mikið áfall," sagði Rune Andersen hjá lyfjanefnd norska sambandsins. „Það virðist njög sennilegt að einhver notaði þessi efni, en við getum ekkert sannað ennþá,“ bætti hann við. Rannsóknin getur tekið nokkrar vikur. Sjö karlar og þijár konur gengust undir lyfjapróf að keppni lokinni og er áætlað að niðurstöður liggi fyrir eftir viku. Austur-Þjóðveijar unnu til gull- verðlauna í karla- og kvennaflokki, en á meðal þátttakenda voru marg- ir þekktir íþróttamenn frá 12 þjóð- um; ólympíumeistarinn Christian Schenk frá Austur-Þýskalandi, Christian Plaziat frá Frakklandi og Bretinn Daley Thompson svo nokkrir séu nefndir. manninum hrökk boltinn til Jóns Sveinssonar sem rak endahnútinn á sóknina. Munurinn á liðunum kom ekki í ljós fyrr en í síðari hálfleik, en þá höfðu Keflvíkingar nokkra yfirburði á meðan Þróttarar skópu sér engin færi. KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI Pétur ekki með KRgegnVal „NU er mánudagskvöld og ég get ekki gengið eðlilega. Því held ég að það sé útilokað að ég verði með í bikarleikn- um gegn Val á miðvikudag," sagði Pétur Pétursson, mið- herji KR, við Morgunblaðið í gærkvöldi. Q étur meiddist í deildarleikn- ■ um gegn Val á föstudags- kvöld og var jafnvel talið að þræð- ir í lærvöðva hefðu slitnað. „Ég var í meðferð og góðu fréttirnar eru að sennilega er aðeins um tognun að ræða. En hún er slæm og ég get ekki annað gert en séð til með framhaldið," sagði marka- hæsti leikmaður 1. deildar. „Það er synd að missa af leik eins og bikarleiknum, en ég yrði mjög ánægður, ef ég næði deildarleikn- um á Skaganum á laugardag," bætti hann við. Sömu sögu er að segja af Ein- ari Páli Tórnassyni. varnarmanni Vals, sem meiddist einnig á lær- vöðva í umræddum leik. Hæpið er að hann leiki bikarleikinn ann- að kvöld og Atli Eðvaldsson er enn á sjúkralista.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.