Morgunblaðið - 25.07.1989, Page 1

Morgunblaðið - 25.07.1989, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA FRJALSAR / SPJOTKAST Sigurdur tapaði fyrir Finnunum Ráty og Korjus Sigurður Einarsson spjótkastari varð fjórði á alþjóðlegu spjótkastsmóti í bænum Toh- majárvi í Finnlandi á laugardag. Kastaði hann 75,38 metra og varð að lúta í lægra haldi fyrir þremur Finnum. Finninn Seppo Raty sigraði í spjótkastinu, kast- aði 80,36 metra, en mótið fór fram í heimabæ hans. Ráty varð heimsmeistari í spjótkasti á HM í Róm 1987. Ólympíumeistarinn frá í Seoul, Tapio Koijus, varð annar með 79,64 og þriðji varð Yki Laine með 76,62. Fimmti maður, Mikko Anttonen, kastaði 72,82. HANDKNATTLEIKUR GOLF HANDKNATTLEIKUR / V-ÞYSKALAND Bjami í lidi ársins Bjami Guðmundsson, fyrrum landsliðsmaður í handknatt- leik, var valinn í lið ársins í 2. deild norður í v-þýska handknatt- leiksblaðinu Handball. I liðinu eru leikmenn sem hafa oftast verið í liði mánaðarins hjá blaðinu. Bjarni leikur með Wanne- Eicken, sem vann sér rétt til að leika í Bundesligunni í vetur. Hann hefur verið ein.i besti leik- maður liðsins og er talinn einn besti Vinstri homarmaður í V-Þýskalandi. Bjarni skoraði flest mörk fyrir Wanne-Eicken, eða 93/32 og var hann sjötti marka- hæsti leikmaðurinn í 2. deildar- keppninni norður. Bjarni er eini íslenski leikmai urinn sem leikur í Bundesligun í vetur, en aftur á móti leika þe Sigurður Sveinsson og Aðalsteir Jónsson í 2. deild. Sigurður m< Dortmund og Aðalsteinn rm Shutterwald. Kristján Arason fimiriti besti leik- maður heims - og valinn í heimsliðið ásamt valinkunnum köppum Morgunblaðið/Einar Falur Fékk bíl fyrir að fara holu í höggi Arnar Baldursson, kylfingur frá ísafirði, vann það afrek á opnu móti hjá Golfklúbbi Keilis að fara holu í höggi og tryggja sér bifreið. Arnar, sem fór holu í höggi á sautjándu braut - notaði sjöjárn, tryggði sér Peugerot 206 JR 1989, sem Jöfur hf gaf. Hér á myndin'ni sést Börk- ur Ingvarsson, sölustjóri hjá Jöfri, afhenta Arnari lyklana að bifreiðinni. 1989 ■ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ IKristján Ara- son, landsliös- maður í hand- knattleik, sem leikur meö spænska fé- laginu Teka, er I hópi bestu handknatt- leiksmanna heims. KRISTJÁN Arason, landsliðsmaður í hand- knattleik, sem leikur með spænska liðinu Teka, varð ífimmta sæti á listanum íkjöri besta handknattleiksmanns heims. Kristján fékk 162 stig í kjörinu, sem Alþjóðlegu samtök íþróttafréttamanna sáu um f sam- vinnu við Adidas. Jae-Wong Kang frá S-Kóreu var útnefndur besti handknattleiks- maður heims - hann fékk 348 stig. Tólf stigahæstu leikmennimir voru útnefndir sem leikmenn í heimsliðið 1988-1989. Tveir Norðurlandabúar eru í liðinu. Kristján og Svíinn Magnús Wislander, sem var í fjórða sæti í kjörinu, með 183 stig. Þetta er annað skipti sem kjörið fer fram. íslendingar áttu einnig leikmann í heimsliðinu þegar kjörið fór fyrst fram. Það var Sigurður Gunnarsson, sem var þá í tíunda sæti. Þess má geta til gamans að tveir leikmenn Teka eru í heimsliðinu. Kristján og félagi hans Melo. Bestu leikmenn heims Þeir tólf leikmenn, sem eru taldir bestu hand- knattleiksmenn og skipa heimsliðið, eru: 1. Jae-Wong Kang, Surður-Kóreu........348 2. Wjacheslav Atavin, Sovétríkjunum....330 3. Zlatko Portner, Júgóslavíu..........211 4. Magnús Wislander, Svíþjóð...........183 5. KRISTJÁN ARASON................... 162 6. Jochen Fraatz, V-Þýskalandi.........147 7. Frank Michael Wahl, A-Þýskalandi...141 8. Peter Kovacs, Ungveijalandi.........115 9. Aleksandr Karshakevich, Sovétríkjunum.102 10. Juan Mole Munoz, Spáni............... 87 11. MichalBarda, Tékkóslóvakíu........... 84 12. Wieland Schmidt, A-Þýskalandi..,.... 48 ✓

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.