Morgunblaðið - 25.07.1989, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.07.1989, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐŒ) ÍHBrt’TmTIB(f (: > H/ h ) u i y IPKUI IIK ÞRŒXJUDAGUR 25. JUU 1989 Mm FOLX ■ STEFANO Tacconi, mark- vörður Juventus, hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum til þess að draga úr ofbeldi meðal ítalskra knattspyrnuáhugamanna. Tacconi hyggst veita 14 þúsund dollurum til þess að verðlauna þann aðdá- endaklúbb ítalskrar knattspyrnu sem hegðar sér best á komandi keppnistímabili. „Það er kominn tími til þess að þessir krakkar, sem eru margir hveijir mjög ungir, geri sér grein fyrir hve mikils virði hinn sanni íþróttaandi er,“ sagði Tac- coni. Sá íþróttaandi ætti að vera alls ráðandi á íþróttavöllum um all- an heim.“ ■ MARADONA skoraði sigur- mark liðs síns í góðgerðaleik sem haldinn var í Argentínu á dögun- um. Carlos Menem, forseti Arg- entínu, var í liði atvinnumannanna og átti að sögn Maradona stóran þátt í markinu. 40 þúsund áhorf- endur sáu leikinn sem var til styrkt- ar fátækum í Argentínu. Menem, sem er mikill íþróttamaður, kom á óvart með góðum leik á miðjunni en þegar hann var spurður að því eftir leikinn hvers vegna hann hefði ekki tekið meiri þátt í sóknarleikn- um svaraði hann: „Ég reyndi, en þeir vildu ekki gefa knöttinn til mín.“ ■ EKKERT grunsamlegt kom í ljós í kjölfar lyfjaprófs í Tour de France hjólreiðakeppninni sem lauk á sunnudag. 87 próf voru tek- in þá 23 daga sem keppnin stóð yfir og reyndust öll vera neikvæð. I fyrra féll sigurvegari keppninnar, Pedro Delgado, féll á lyfjaprófi en hélt titlinum eftir að kunngert var að lyfið sem hann tók væri ekki á bannlista hjólreiðamanna. H GRÓÐINN á keppni V- Þýskalands og Bandaríkjana í undanúrslitum Davis Cup var 180 millj. ísl. kr., en keppnin fór farm í Miinchen um helg- Frá ina. V-Þjóðverjar Einari unnu og mæta S!flýíns.sy.n' .. Svíum í úrslitum. / V-Þyskalandi a ^ áhorf_ endur borguðu 30 þús. á dag í þrjá daga á viðureignina. Þetta þótti hátt verð í Miinchen, en innifalið í miðaverðinu var veislumatur, kampavín og annað góðgæti. Nú er rætt um að úrslitaleikur Davis Cup fari einnig fram í Miinchen. ■ SIG UR VEGARINN í leik Bayern Miinchen og Dortmund í „Super Cup“ fær sex millj. ísl. kr. í sinn hlut. Jiirgen Wegmann mun leika með Dortmund gegn sínum gömlu félögum í Bayern. FRJALSAR / LANGHLAUP Martha Emstdóttir setti % Islandsmet í Belgíu MARTHA Ernstdóttir IRsetti nýtt Íslandsmetí 5.000 metra hlaupi á alþjóðlegu stórmóti í borginni Leopoldsburg í Belgíu á laugardag er hún hljópá 16:23,14 mínútum. artha átti sjálf eldra metið, en það var 16:23,78 mínút- ur, sett á móti í Köln í Vestur- Þýskalandi í fyrrahaust. Bætti hún metið því um rúmlega hálfa sekúndu. Hlaupið i Leopoldsburg var sterkt því Martha varð tíunda. Heimsmeistarinn og heimsmet- hafinn í 3.000 metra hlaupi innan- húss, hollenska stúlkan Elly van Hulst, sigraði á 16:44 mín. Minnstu munaði að Martha næði ekki til hlaupsins því hún missti af flugvél til Þýskalands vegna mistaka. Komst hún þó þangað á endanum eftir króka- leiðum. Skömmu eftir hlaupið fór rafmagn af allri borginni og varð því vinkonna hennar, Hulda Páls- dóttir ÍR, af keppni; greinin henn- ar gat ekki farið fram vegna myrkurs. Áður höfðu þó greinar þeirra Oddnýar Árnadóttur ÍR og Margr- étar Brynjólfsdóttir UMSB farið fram. Oddný varð Ijórða í 400 metra hlaupi á 56,51 sekúndu og Margrét stórbætti árangur sinn í míluhlaupi, hljóp á 6:00,9 mínút- um. Tekín var millitími á henni eftir 1.500 metra og reyndist hann 4:42 mfnútur, sem er þremur sek- úndum betri tfmi en hún á löglega í þeirri grein. Martha Ernstdóttir KNATTSPYRNA / 2. DEILD KVENNA Morgunblaðið/Rúnar Jónatansson Sigurvegarar BÍ 1989 Keppni í 2. deild kvenna í knattspyrnu er lokið. BÍ vann FH 2:0 í báðum leikjum mótsins. Á myndinni eru sigurvegarnir eftir seinni leikinn á ísafirði á laugardag. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Guðmundsson, þjálfari, Ágústa Jónsdóttir, Kol- brún Kristinsdóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Sigurlín Pétursdóttir, Þórunn Pálsdóttir, Ólöf Björnsdóttir, Sigrún Sigurðar- dóttir og Jóna Lind Karlsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Karitas Kristjánsdóttir, Sigríður L. Sigurðardóttir, Þórunn Sigurð- ardóttir, Stella Hjaltadóttir, fyririiði, Ragnheiður O. Agnarsdóttir, Fanney Pálsdóttir, Þórdís Þorleifsdóttir og Sonja Sig- urðardóttir. EYJALEIKARNIR I FÆREYJUM Sigursælir badminton- spilarar Islenska badmintonliðið var sigur- sælt á nýafstöðnum Eyjaleikum í Færeyjum. Þórdís Edwald, Sigríð- ur M. Jónsdóttir, Ármann Þorvalds- son, Frímann Ferdinandsson, Snorri Ingvarsson og Haraldur Kornelíus- son skipuðu íslenska liðið sem sigr- aði í liðakeppni á leikunum og hreppti að auki gullið í þremur greinum í einstaklingskeppninni. í liðakeppninni voru íslendingar í riðli með Wighteyjum, Mön og Álandseyjum og sigruðu 4:1, 4:1 og 5:0.1 útsláttarkeppni milli efstu liðanna sat ísland hjá í fyrstu um- ferð en tryggði sér síðan sæti í úrslitum með 3:2 sigri á Jersey sem var álitið sigurstranglegast á leik- unum. í úrslitum sigruðu íslending- ar Guernsey 3:2. íslensku keppendurnir stóðu sig einnig mjög vel f einstaklingskeppn- inni og komust á verðlaunapall í öllum greinum. Ármann Þorvalds- son hlaut gullið í einliðaleik karla eftir sigur á félaga sínum Snorra Ingvarssyni og Þórdís Edwald sigr- aði í einliðaleik kvenna í tvíliðaleik karla tryggðu Ármann og Snorri sér gullið en Þórdís og Sigríður lentu í 3.-4. sæti í tvíliðaleik kvenna. í tvenndarleik höfnuðu Ármann og Þórdís í öðru sæti. Badmintonlið íslands var sigursælt á Eyjaleikunum. Á myndinni eru Snorri Ingvarsson, Ármann Þorvaídsson, Frímann Ferdinandsson, Þórdís Ed- wald, Haraldur Kornelíusson og Sigríður M. Jónsdóttir. ÍÞfémR FOLK ■ BORIS Becker skrifaði undir tvo nýja samninga um helgina. Hann skrifaði undir auglýsinga- samning við mjólkurfyrirtæki og fær hann 150 millj. ísl. kr. fyrir samninginn, sem var upp á þijú ár. Þá samþykkti hann að fara að nota nýja gerð af tennisspöðum og fékk hann 600 millj. ísl. kr. fyrir fimm ára samning. ■ JUPP Heynckes, þjálfari Bayern Miinchen, hefur fyrirskip- að Júgóslavanum Radomir Miha- ilovic, sem Bayem keypti fyrir stuttu, að létta sig um sex kíló. ■ EIGINKONA Alan Mclnally, sem Bayern Miinchen keypti frá Aston Villa, er komin með heim- þrá. Maður hennar hefur verið á ferð og flugi með Bayern að und- anförnu og hefur hún verið ein í Miinchen. HNEFALEIKAR Tyson fékk 4,5 millj. kr. á sekúndu MIKE Tyson, heimsmeistari í hnefaleikum, átti ekki í erfið- leikum með að verja titil sinn gegn Carl Williams á föstudag. Tyson sló Williams „truth“ í gólfið í fyrstu lotu eftir aðeins 93 sekúndur og stöðvaði dóm- arinn þá leikinn. Tyson fékk 420 millj. ísl. kr. fyrir leikinn, eða 4,5 millj. kr. á sekúndu. Þessi fyrirhugaða 12 lotu keppni hlaut þarmeð snöggan endi og var viðureignin aðeins tveimur sek- úndum lengri en þegar Tyson rot- aði Michael Spinks í júní í fyrra. Dómarinn hafði aðeins talið upp að sex þegar Williams stóð á fætur og vildi halda áfram. Þrátt fyrir það var dómarinn, Randy Neumann, á þeirri skoðun að Williams væri ekki í ástandi til þess að slást. „Það fyrsta sem að hnefaleikari gerir eftir að hafa verið barinn í gólfíð er að reyna að sannfæra dómarann um að hann sé fullfær um að slást áfram,“ sagði Neumann. „Williams gat ekki svarað mér og handleggir hans voru máttlausir." „Ég var sleginn í gólfið en ekki úr leik. Þetta er örugglega óreynd- ur dómari," sagði Williams sem var niðurbrotinn þegar Neumann stöðv- aði leikinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.