Morgunblaðið - 28.07.1989, Blaðsíða 5
DB 25
MOKGÚNKLABÍf) ^ÖSflÍDAGIÍft 28.' .ÍÚÍÍÍ 1080
Fendi Casa framleiðir þennan brúna og svarta sófa sem ber heitið Farnese Club,
en hann er hannaður hjá Studio Metropolis.
-v
vintýraleg
aó lögun & lit
og til hefur húsgagnahönnun birst hér á síðum Daglegs
ífs og við getum ekki stillt okkur um að leita enn á ný
j ítalskra húsgagnahönnuða. Sjáum hér nokkur dæmi
ivernig helsta stofustássið — sófinn — kemur ævintýraleg
lögun og lit úr þeirra höndum.
Edra framleiðir þennan sérstæða sófa sem nefnist Projection Sofa
hannaður af Zaha Hadid.
■mm
Þessi blái er framleiddur hjá LEV og LEV, hannaður af Antonio Occhiuto og ber heitið Daphne.
Dido heitir hann,
framleiddur hjá
Altana og hannað-
ur af Guido Galet.
Víkingaslóðir og
Ungverjaland
Þegar víkingar lögðu út á Atl-
antshaf á vit ævintýranna er talið
að þeir hafi varið andlitshúðina
fyrir særoki og geislum sólarinnar
með því að sletta á sig vænum
gusum af lýsi og fitu úr síld, þorski
og laxi. Enn þann dag í dag er lýsi
notað í fegrunarlyf en í því er mik-
ið af E-fjörefni sem talið er vinna
gegn hrukkumyndun.
Ungverskar konur eru annálaðar
fyrir fagra húð og margar hverjar
eru þær lausar við hrukkur allt fram
á sjötugs- og áttræðisaldur. Skýr-
ingin? Kannski er hún fólgin í stilk-
um sólblómanna. Ungverskar kon-
ur kunna líka skil á notagildi safa
úr fagurfífli, kamillu og lofnarblóm-
um. Margar búa þærtil fegrunarlyf
úr þessum safa, rétt eins og þær
'búa til aldinmauk handa fjölskyld-
unni. j Ungverjalandi er líka nokkuð
um það að safi úr jurtum sé eimað-
ur og síðan hafður til að styrkja
húðina. Loks er ein" mikilvæg
ástæða fyrir því hve konur í þessu
landi halda húð sinni lengi ung-
legri: Þaer kunna að meta þessa
gersemi og fara aldrei í sólbað.
Ítalía
Á Ítalíu eru frægar heilsulindir
þar sem vatnið er sagt hafa yngj-
andi áhrif. Ein slík er í Terme di
Montecatini, skammt norður af
Flórens. Mikil ásókn er í leir-
bakstra sem þar eru blandaðir og
seldir vítt og breitt. Uppskriftin er
ævagömul. I bakstrana eru notuð
steinefni og ýmis lífræn efni og
eftir að þeir hafa verið lagðir við
húðina er hún rök og silkimjúk. í
daglegu fæði ítala er mikið af ólífu-
olíu sem talin er eiga sinn þátt í
að halda húðinni mjúkri og blóm-
legri. í olíunni er lítið af kóleste-
róli en mikið af E-fjörefni sem
margir telja að örvi myndun húð-
fitu, hindri það að húðin þorni og
viðhaldi teygjanleika hennar.
Frakkland og England
Helsta fegrunarráð franskra
kvenna er að nota aldrei sópu þar
sem hú,n þurrkar húðina. Til að
mýkja húðina og styrkja nota
margar franskar konur blómasafa
áður en þær bera á sig rakakrem.
Handan Ermarsunds býr enska
rósin víðfræga en frá ómunatíð
hafa enskar konur verið rómaðar
fyrir fagra húð. Gráminn og sólar-
leysið sem hefur viljað loða við
Bretlandseyjar á e.t.v. sinn þátt í
þessu. Loftið er rakt og það hefur
auðvitað sín áhrif á húð fólksins
eins og annað í umhverfinu. Þá
er þess að gæta að í Bretlandi er
ekki venja að kappkynda og þar
við bætist að notkun rakagjafa inn-
anhúss er algengari þar í landi en
víðast hvar annars staðar.
Víst eru mikil hlunnindi fólgin í
hveravatninu en þau geta verið
tvíeggjuð. Þessi ódýri hitagjafi á
eflaust sinn þátt í því að mikill hiti
er hér að jafnaði í híbýlum. Notkun
rakagjafa er sjaldgæf og af þessu
leiðir að víða er loftið innanhúss
mjög þurrt. Þar að auki eru sumir
sem halda því fram að kísillinn í
hveravatni þurrki húðina. Úr öllu
þessu má auðveldlega bæta án
þess að skerða hlunnindin. Raka-
gjafi þarf ekki að vera neitt merki-
legri en skál með vatni sem látin
er standa ofan á miðstöðvarofni.
Kranavatnið þarf ekki heldur að
þurrka húðina.sé kalda vatnið not-
að til skolunar að loknum þvotti
og húðin loks þurrkuð með grófu
handklæði.
i