Morgunblaðið - 29.08.1989, Blaðsíða 2
k
írfÖRGUtiBLAÐlÐ
ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1989
KNATTSPYRNA/ 1. DEILD KVENNA
—-
Hvarvar
bikarinn?
Það vakti athygli og jafnframt
óánægju að loknum leik Vals
og KA að enginn stjómarmanna
KSÍ var viðstaddur til þess að
krýna íslandsmeistarana. Þar
sem Valsstúlkur leika síðasta
leikinn í deildinni við Þór á
Akureyri þótti við hæfi að af-
henda þeim bikarinn á heima-
velli þegar sýnt var að þær
höfðu tryggt sér titilinn. Haft
var samband við stjóm KSI fyr-
ir leikinn og ákveðið að einhver
myndi mæta frá þeim með Is-
landsmeistarábikarinn og krýna
liðið. Annað kom þó á daginn
og hiýtur þetta að teljast nokk-
uð léleg afgreiðsla af hálfu KSÍ.
Taplausir titilhafar
Valsstúlkur fslandsmeistarar þegar ein umferð er eftir.
Hafa ekki tapað leik í deildinni í sumar
VALSSTÚLKURtryggðu sér fs-
landsmeistaratitilinn með
sannkölluðum glæsibrag er
þær unnu KA á Valsvelli á laug-
ardag. Leikurinn var eign Vals-
liðsins frá upphafi til enda og
þrátt fyrir stórsigur, 4:0, hefði
mörk Vals hæglega getað orðið
mun fleiri. Nýkrýndir bikar-
meistarar ÍA burstuðu Þórs-
stúlkur 6:0 og eiga því góða
möguleika á að ná öðru sætinu
í deildinni. Þórsliðið lék annan
leik f ferðinni suður og gerði
1:1 jafntefli við Breiðablik.
Valsliðið hóf leikinn af miklum
krafti og hver stórsóknin á
•fætur annarri dundi á KA-liðinu
sem varðist vel framan af. Um
^■■■■1 miðjan fyrri hálf-
Katrín leikinn kom fyrsta
Fríðríksen markið eftir eina af
skrifar mörgum hornspym-
um Vals. Kristín
Arnþórsdóttir átti háa fyrirgjöf inn
í markteig KA. Þar stóð Guðrún
Sæmundsdóttir ein og óvölduð og
afgreiddi knöttinn snyrtilega í
markið með góðum skalla.
Leikurinn róaðist aðeins eftir
markið, en fór þó sem fyrr svo til
einungis fram á vallarhelmingi
KA-stúlkna. Síðari hálfleikur var
þó hálfnaður þegar Valsstúlkurnar
fundu aftur leiðina í mark norðan-
stúlkna. Kristín fylgdi þá vel á eft-
ir skoti Bryndísar Valsdóttur og
skoraði örugglega af stuttu færi.
Nokkrum mínútum síðar skoraði
Guðrún sitt annað mark eftir óbeina
aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig
KA. Bryndís Valsdóttir gulltryggði
síðan sigurinn rétt fyrir leikslok
með fallegum skalla.
Markheppinn varnarmaður
Guðrún Sæmundsdótlir markahæst
ÞAÐ er frekar sjaldgæft að aftasti leikmaður í vörn sé jafnframt
markahæsti leikmaður liðs síns. Guðrún Sæmundsdóttir, kjölfestan
í vörn Valsliðsins, hefur verið iðin við að skora mörk í sumar, og nú
er svo komið að hún _er markahæsta stúlkan í 1. deildinni. Ein um-
ferð er þó eftir og á Ásta Benediktsdóttir Skagastúlka mesta mögu-
leika á að ná Guðrúnu að mörkum. Ásta hefur skorað 8 mörk, tveim-
ur færra en Guðrún, en Helena Ólafsdóttir, KR, sem hefur skorað
9 mörk á ekki möguleika þar sem KR hefur lokið leikjum sínum í
deildinni.
Morgunblaðiö/Ari
Bryndís Valsdóttir stekkur hér
manna hæst og skallar boltann örugg-
lega í mark KA eftir eina af horn-
spymun Valsstúlkna sem ijölmenna
inni í vítateig andstæðinganna. Mynd-
in til hliðar sýnir íslandsmeistara Vals
eftir að liðið tryggði sér íslandsmeist-
aratitilinn annað árið í röð með því
að sigra KA 4:0 á Hlíðarenda.
ínémR
FOLK
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
■ PAUL Davis, sem leikur með
Sigurði Jónssyni hjá Arsenal,
mun missa af fyrstu leikjum vetrar-
ins vegna meiðsla. Hann lék lítið
með í fyrra, enda
Frá Bob kinnbeinsbrotnaði
Ftennessy hann í sögulegum
lEnglandi viðskiptum við
Glenn Cockerill,
leikmann Southampton.
■ TOTTENHAM, lið Guðna
Bergssonar, hefur einnig misst
marga leikmenn vegna meiðsla.
Vinnie Samways meiddst illa í leik
gegn Brann í Noregi og Gary
Stevens missir einnig af fyrstu
leikjum vetrarins og Paul Walsh.
Þá er Marokkóbúinn Nayime
meiddur. Einnig er líklegt að Mitc-
hell Thomas fari frá liðinu.
Portsmouth hefur boðið 400.000
pund í Thomas sem leikur sömu
stöðu og Guðni.
H FORRÁÐAMENN Liverpooí
hafa ákveðið að fækka áhorfenda-
stæðum á vellinum um 5.000. Nú
munu aðeins 16.000 áhorfendur
standa á Anfield Road í stað.
21.000 og völlurinn tekur aðeins
39.000 áhorfendur. Everton hefur
gert svipaðar ráðstafanir og fækkað
um 8.000 úr 50.000 í 42.000. Þetta
er gert í kjöifar Hillsborough harm-
leiksins þar sem margir stuðnings-
menn Liverpool létust. Reiknað er
með að þessar breytingar kosti liðin
um 40.milljónir á keppnistímabilinu._
Keflvíkingar troða marvaðann
Botnlaus botnbarátta framundan eftirtap gegn ÍA
Staða Keflvíkinga er orðin frem-
ur ískyggileg eftir tap gegn
IA á Akranesi á laugardag. Um
Skagamenn er það hins vegar að
segja, að með þess-
FráSigþórí um sigri eruþeirenn
Eiríkssyni með í baráttunni um
á Akranesi. í slandsmeistaratitil-
inn; einungis þrem
stigum á eftir toppliðunum. Skaga-
menn voru mun sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og framan af þeim
síðari, en þrátt fyrir mörg ágæt
marktækifæri, tókst þeim bara að
skora einu sinni. Undir lok leiksins
gerðu Keflvíkingar svo harða hríð
að marki Skagamanna en tókst
ekki að klóra í bakkann.
Fyrstu mínútumar var jafnræði
með liðunum, en smám saman náðu
heimamenn undirtökunum, og á 20.
mínútu varð Ingvar Guðmundsson
í vörn ÍBK að taka á honum stóra
sínum, þegar hann varð að nikka
boitanum frá með höfðinu, rétt í
þann mund 'sem Karl Þórðarson bjó
sig undir að skalla í mark.
Fimm mínútum síðar komst
Bjarki Pétursson inn fyrir vörn ÍBK
eftir stungusendingu. Þorsteinn
kom út á móti, en Bjarki Iék á
Aðalsteinn Víglundsson skoraði
sigurmark ÍA.
hann, renndi til baka á Harald Ing-
ólfsson, en skot hans var misheppn-
að og fór framhjá. Bjarki var svo
enn á ferðinni á 28. mínútu er hann
einn inn fyrir , en Þorsteinn bjarg-
aði glæsilega með úthlaupi.
Á 39. mínútu átti Þorsteinn
Bjarnason misheppnað útspark;
sparkaði beint til Aðalsteins, sem
var einn og óvaldaður fyrir utan
vítateig, en viðstöðulaust skot hans
að marki fór yfir.
Þrátt fyrir þessa orrahríð að
marki ÍBK voru það Keflvíkingar
sem fengu besta færi háifleiksins.
Þá átti Kjartan Einarsson þrumu-
skot á 45. mínútu að marki Skaga-
manna, en Ólafur Gottskálksson
varði vægast sagt meistaralega.
Sigurmarkið
Mark Skagamanna kom strax á
þriðju mínútu síðari .hálfleiks.
Bjarki Pétursson átti þá góða fyrir-
gjöf að marki, og þar kom Aðal-
steinn og skallaði laglega yfir Þor-
stein í markinu.
í kjölfarið áttu Skagamenn mörg
góð færi til að bæta við mörkum;
Haraldur tvisvar, og Páll Guð-
mundsson átti hörkuskot í þverslá.
Sáu Keflvíkingar að ekki mátti láta
þetta ganga yfir sig og tóku til við
að sækja. Fengu þeir fljótlega tvö
ágæt færi; þar á meðal skallaði
Ivar Guðmundsson í þverslá af
stuttu færi.
IA—IBK
1 : O
íslandsmótið 1. deild, Akranesvöllur, laugardaginn 26. ágúst 1989.
Mark ÍA: Aðalsteinn Víglundsson (48.).
Gul Spjöld: Kjartan Einarsson, ÍBK.
Dómari: Sveinn Sveinsson átti ekki góðan dag, en það bitnaði ekki á öðru liðinu fremur
en hinu.
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Heimir Guðmundsson, Páll Guðmundsson, Sigurður B.
Jonsson, Júlíus P. Ingólfsson, Karl Þórðarson, Sigursteinn Gíslason, Bjarki Pétursson,
Guðbjörn Tryggvason, Haraldur Ingólfsson, Aðalsteinn Víglundsson (Arnar Gunnlaugs-
son 85.).
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjarnson, Freyr Sverrisson, Valþór Sigþórsson, Ingvar Guðmunds-
son, Gestur Gylfason, Kristján Geirson (ívar Guðmundsson 66.), Arni Vilhjálmsson (Jón
Sveinsson 79.), Óli Þór Magnússon, Kjartan Einarsson, Siguijón Sveinsson, Jóhann B.
Magnússon.