Morgunblaðið - 29.08.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.08.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐŒ). IÞROH ÍIR ÞKlfJJUDAGUR 29. ÁGÚST B 3 KNATTSPYRNA / 1. DEILD Morgunblaöið/RAX Vadið yfir Valsara! Baldur Bjarnason, Fylki, átti stórleik í gærkvöldi og lék Valsvörnina grátt hvað eftir annað. Hér smeygir hann sér framhjá nafna sínum Bragasyni, Val, sem gerir örvæntingarfulla tilraun til að stöðva hann. A minni myndinni fagna Fylkismenn marki Finns Kolbeinssonar. Ungu strákarnir í Fylki tóku stjömur Vals í kennslustund Mm FOLX ■ TVEIR leikmenn Fylkis léku fyrstu leiki sína í 1. deild í gær. Það voru þeir Þórhallur Jóhanns-. son og Kristinn Tómasson. Þeir og Finnur Kolbeinsson eru á yngsta ári í 2. flokki. Allir þrír stóðu sig mjög vel í ieiknum. I LOFTUR Ólafsson, Fylki, íurfti að fara af leikvelli í hálfleik í gær vegna meiðsla í baki. Meiðsl- in eru þó ekki alvarlegs eðlis. H HALLDÓR Áskelsson, Val, fór af leikvelli um miðjan fyrri hálf- leik í gær. Hann hafði áður fengið slæmt högg á bijóstkassann á æf- ingu og þegar í leikinn var komið fann hann fljótt, að hann væri ekki orðinn nógu góður af meiðslunum til að geta beitt sér sem skyldi. H VALSMENN hafa. ekki fengið á sig jafnmörg mörk í leik í sumar og í gær gegn Fylki. ■ ERLINGUR Jóhannsson náði besta árangri sínum í 800 metra hlaupi í ár á móti í Osló um helgina. Hann hljóp á 1:52.16 mín. Hann á sjálfur íslandsmetið, 1:48.80 mín., og var það sett 1987. Steinn Jóhannsson á besta tíma íslendings í ár, 1:51.8 mín. ■ SÍMON Gunnarsson, kylfing- ur úr GA, átti ekki beint drauma- högg á 6. braut Ekkjufellsvallar á Egilsstöðum um helgina. Sló hann bæði hátt og langt; svo langt að kúlan íenti ofan í kerrupoka keppanda á 5. braut. Varð sá frek- ar hissa, og segir ekki frekar af kylfingum fyrir austan. H SOVÉSKI kúluvarparinn Alexander Bagach hefur verið dæmdur í tveggja ára keppnisbann vegna lyfjanotkunar. Hann féll á lyijaprófi á Evrópumótinu í fijálsum íþróttum í Englandi fyrir skömmu og það kostaði Sovétmenn sæti sitt á heimsmeistaramótinu. H ÓVÍST er hvort Glenn Hoddle leiki með liði sínu Mónakó í næsta mánuði þegar Evrópubik- arkeppnin hefst. Hoddle hefur átt við hnémeiðsli að stríða og í gær var hann skorinn upp. Hann hefur ekkert getað leikið með liðinu síðan í vetur sem leið. H EVERTON hefur verið að sanka að sér nýjum leikmönnum í sumar, og er nú svo komið að liðið veit ekkert hvað á að gera við þá alla. Þó var brugðið á það ráð að lána Paul Bracewell til Sunder- land um stundarsakir. NÚ virðist vera komið í tízku, að leikir fari 3;1 og að ö!l mörk- in séu gerð í fyrri hálfleik. Þetta átti sér stað í bikarúrslitaleik Fram og KR ífyrradag og síðan aftur á Arbæjarvelli í gærkvöldi þegar Fylkismenn tóku Vals- menn íbakaríið. Marteinn Geirsson, þjálfari Fylkis, ákvað að gera róttækar breytingar á liði sínu og lét þrjá pilta á yngsta ári í 2. flokki byrja inn á. Þetta herbragð heppnaðist fullkomlega og með mikilli bar- áttu og leikgleði varð uppsker- an sanngjarn sigur. Með tapinu eru Valsmenn hins vegar end- anlega úr leik í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn. Fylkismenn vissu í upphafi leiks- ins, að þeir væru að beijast fyrir lífi sínu í 1. deild og báru enga virðingu fyrir mótheijunum. ^■■■■1 Þeir höfðu trú á Guðmundur sjálfum sér og var Jóhannsson allt annað að sjá til skrifar þeirra en í síðustu leikjum. Þrátt fyrir baráttugleði Fylkismanna strax í upphafi, voru það Valsmenn, sem skoruðu fyrsta markið. Dæmd var vítaspyrna vegna brots á nýliðanum Þórði Birgi Bogasyni inni í vítateig. Sævar Jónsson skoraði úr henni af öryggi. Fylkir—Valur 3 : 1 Árbæjarvöllur, íslandsmótið 1. deild, mánudaginn 28. ágúst 1989. Mörk Fylkis: Baldur Bjamason (24.), Öm Valdimarsson (27., víti), Finnur Kolbeinsson (40.). Mark Vals: Sævar Jónsson (11., víti). Gult spjald: Pétur Óskarsson, Baldur Bjamason, Fylki. Einar Páll Tómasson, Sævar Jónsson, Val. Dómari: Guðmundur Stefán Marías- son. Áhorfendur: 600. Lið Fylkis: Guðmundur Baldursson, Pétur Óskarsson, Gísli Hjálfntýsson, Loftur Ólafsson (Gústaf Vífilsson vm. á 46. mín.), Þórhallur Jóhannsson, Anton Jakobsson, Hilmar Sighvatsson, Finnur Kolbeinsson, Baldur Bjamason, Öm Valdimarsson, Kristinn Tómasson (Guðmundur Magnússon vm. á 84. mín.). ° Lið Vals: Bjarni Sigurðsson, Þorgrím- ur Þráinsson, Sigurjón Kristjánsson, Magni Blöndal Pétursson, Einar Páll Tómasson, Sævar Jónsson, Halldór Áskelsson (Steinar Adólfsson vm. á 23. mín.), Gunnlaugur Einarsson (Láms Guðmundsson vm. á 46. mín.), Þórður Birgir Bogason, Ingvar Guðmundsson, Baldur Bragason. En gleði Valsmanna var skamm- vinn. A aðeins sextán mínútna kafla breyttu Fylkismenn stöðunni í 3:1. Fyrst var Baldur Bjarnason á ferð- inni. Hann fékk boltann inni í víta- teig, sneri á varnarmenn Vals og sendi boltann í markið yfir Bjarna Sigurðsson með þrumuskoti rétt undir slá. Glæsilegt mark. Annað marki Fylkis kom úr víta- spyrnu, sem dæmd var á Þorgrím Þráinsson fyrir brot á Kristni Tóm- assyni. Ur henni skoraði Orn Valdi- marsson, 2:1. Þriðja mark Fylkis- manna kom síðan eftir skemmtilegt spil í gegnum Valsvömina. Finnur Kolbeinsson batt endahnútinn á sóknina með góðu skoti neðst í blá- hornið, 3:1. Markalaus seinni hátfieikur Síðari hálfleikur var markalaus en bæði lið fengu sín færi til að skora. Valsmenn reyndu að pressa síðustu mínúturnar en Fylkismenn vörðust vel og sigur þeirra var ekki í hættu. Það sem gerði gæfumuninn í þessum leik var að Fylkismenn nýttu dauðafæri sín betur en and- stæðingarnir, þveröfugt við það sem venjan hefur verið í sumar. Fylkisliðið á hrós skilið fyrir bar- áttuna í leiknum. Ungu leikmenn- irnir hleyptu nýju blóði í liðið og gáfu sig alla í leikinn. Enginn Iék þó eins vel og Baldur Bjarnason, sem nú var í fremstu víglínu og lék Valsvörnina upp úr skónum hvað eftir annað. Valsliðið á hins vegar afar erfitt uppdráttar þessar vikurnar. Liðið hefur aðeins hlotið fimm stig í síðustu átta leikjum í 1. deildinni! „Tók áhættu“ Marteinn Geirsson, þjálfari Fylk- is, var að vonum ánægður með sig- urinn. „Ég ákyað að gera breyting- ar á liðinu og leyfa 2. flokksstrák- unum að spila. Þar með tók ég vissa áhættu en það kom í ljós að strák- arnir höfðu enga minnimáttar- kennd. Við eigum erfiða leiki fram- undan, sá næsti er gegn KA- mönnum fyrir norðan. Það verður erfitt, því að þeir eru í toppbarát- tunni. Þessi sigur mun hins vegar efla okkur og við mætum með blóð- bragð I munninum í næstu leiki. Ætli við þurfum ekki svona sex stig í viðbót til að halda okkur uppi,“ sagði Marteinn. H BELGÍSKA liðið Club Brugge hefur fengið til sín ung- verskan landsliðsmann, Laszlo Disztl að nafni. Disztl er varnar- maður og hefur skrifað undir tveggja ára samning við liðið. I kvöld VÍKINGUR og KA leika í 1. deild karla á Víkingsvelli í kvöld. HEinheiji og Stjarnan leika í 2. deild á Vopnafirði. Hí 1. deild kvenna verða þrír leikir. ÍA og Stjarnan leika á Akranesi, KA og UBK á KA- velli og Þór og Valur á Þórs- velli. Allirleikirnirheíjastkl. 19.00. Baldur Bjarnason, Fylki. Finnur Kolbeinsson, Hilmar Sighvatsson, Fyiki. Bjarki Pétursson,_Ólafur Gottskálksson, Páll Guðmundsson, Sigur- steinn Gíslason, ÍA. Þorsteinn Bjarnason, Valþór Sigþórsson, Oli Þór Magnússon, ÍBK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.