Morgunblaðið - 29.08.1989, Blaðsíða 8
T> '
ÍÞROntR
KNATTSPYRNA / ENGLAND
iðamir á toppnum
Jafntefli hjá stórliðunum
Kerry Dixon og félagar
hans í Chelsea hafa gert
það gott sem af er.
EKKI ætlar að blása byrlega
fyrir Sheffield Wednesday á
keppnistímabilinu. Liðið hefur
tapað öllum sínum leikjum til
þessa og ekki skorað eitt ein-
asta mark. Um helgina voru
það nýliðar Chelsea sem tóku
gamla félaga Sigurðar Jóns-
sonar í kennslustund og sigr-
uðu með fjórum mörkum gegn
engu, og trónir Lundúnafélagið
nú í efsta sæti deildarinnar
með 7 stig ásamt Millwall.
Jtr
Ifyrri hálfleik var jarðarförinni
lokið; Chelsea hafði skorað þijú
mörk, og í síðari hálfleik bætti
Kevin McAlister fjórða markinu við.
Millwall sigraði Nottingham For-
>st 1:0, og skoraði Carter markið
9 mínútum fyrir leikslok. Millwall
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
Heimavöllur
Mannheim sló
meistarana út
Stuttgart fékk skell gegn Bochum
FráJoni
Halldóri
Garðarssyni
ÍKöln.
eistaramir frá Munchen
töpuðu óvænt en verðskul-
dað fyrir Waldhof Mannhéim á
laugardaginn. Var þetta fyrsti
leikur Mannheim á
heimavelli sínum í
nokkur ár, en
ástand vallarins
hefur verið með
þeim hætti að liðið hefur orðið
að leika annarsstaðar. Nú var sem
sagt búið að laga völlinn, og á
áhorfendapöllunum var hvert ein-
asta sæti skipað, og virtist það
setja Bayern Múnchen út af lag-
inu því þeir töpuðu sínum fyrsta
leik í deildinni 1:0.
Bæjarar em nú í öðru sæti
deildarinnar, koma rétt á hæla
Eintracht Frankfurt, sem á ævin-
týranlegan hátt bjargaði sér frá
tapi gegn Bayer Uerdingen. Þeg-
ar einungis þijár mínútur vom til
leiksloka var staðan 0:1 fyrir
Uerdingen, og Franz Becken-
bauer, landsliðseinvaldur staðinn
á fætur og á fömm. Var hann
þá gripinn af sjónvarpsfrétta-
manni á vellinum sem spurði hann
um leikinn, og sagði Beckenbauer
að sárt væri að sjá Frankfurt ná
ekki stigi í leiknum, þeir hefðu
verið betri aðilinn. í þeim orðum
töluðum jafnaði Weber leikinn, og
í þann mund sem Beckenbauer
steig upp í bifreið sína skoraði
Lothar Sippel sigurmark Frank-
furt.
Lélegt hjá Stuttgart
Ásgeir Sigurvinsson lék ekki
Beckenbauer sá ekki mörk
Frankfurt.
með Stuttgart um helgina vegna
meiðsla í nára. Það var því fátt
um fína drætti hjá Stuttgart þeg-
ar leikstjórnandinn var fjarri, og
tveggja marka tap gegn Bochum
þótti vel sloppið. Þýsku blöðin
gerðu mikið úr því að Asgeir hefði
vantað í liðið, og gáfu Argentínu-
manninum Basvaldo á miðjunni
lægstu einkunn. Er langt síðan
Stuttgart hefur Ieikið svona illa,
og var vörnin ótrúlega slök. Ein-
ungis frammistaða sóknarmanna
Bochum kom í veg fyrir að tapið
yrði stærra.
I Urslit / B6
Staðan / B6
var mun betri aðilinn á vellinum,
og sigur liðsins því sanngjarn. Nott-
ingham Forest hefur hins vegar
ekki unnið leik það sem af er keppn-
istímabilinu, en gert tvö jafntefli.
Guðni ekki með
Stórliðin Arsenal og Liverpool
riðu ekki feitum hesti frá viðureign-
um helgarinnar. Arsenal gerði
markalaust jafntefli á heimavelli
gegn Wimbledon, og sama varð upp
á teningnum í viðureign Luton og
Liverpool. Þágerði Tottenhamjafn-
tefli gegn Manchester City í Manc-
hester, og var það Paul Gasgoigne
sem jafnaði fyrir Tottenham í fyrri
hálfleik.
Guðni Bergsson lék ekki með
Tottenham á laugardaginn, fremur
en gegn Everton fyrir viku, og hef-
ur Tottenham ekki gengið of vel
án hans að ná í stig.
Everton rúllaði hins vegar Sout-
hampton upp með mörkum Nor-
mans Whiteside, Newell og McCall.
Þá voru leikmenn Derby sannfær-
andi gegn Manchester United, sem
virðist hins vegar ekki ætla að
fylgja eftir glæsilegri byrjun sinni
í deildinni. Þegar á 11. mínútu var
staðan orðin 1:0, og á 78. mínútu
fékk Derby vítaspyrnu sem Saund-
ers skoraði úr. Þá sigraði Coventry
SIGLINGAR
Wk |§§ M
ílHlHf
Norman Whiteside skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Everton gegn Sout-
hampton um helgina.
á útivelli þegar liðið mætti Crystal
Palace, en aðrir leikir í 1. deildinni
fóru jafntefli.
Morgunblaðið/Þorkell
Skýjaborg úr siglingafélaginu Ymi í Kópavogi varð öruggur sigurvegari á
íslandsmótinu um helgina.
Skýjaborg sigraðí
Um helgina lauk íslandsmóti í siglingum á kjölbátum. 14 bátar tóku
þátt í mótinu, en alls voru sigldar 5 umferðir. Keppt var í fyrsta
áfanganum 21. til 23. júlí og var þá siglt frá Reykjavík til Ólafsvíkur.
Um helgina voru sigldar 4 umferðir á þríhyrningsbraut á Kollafirði og í
ytri höfninni í Reykjavík.
Skýjaborg úr siglingafélaginu Ymi í Kópavogi varð öruggur sigurveg-
ari á mótinu. Áhöfn hennar skipa Óttar Hrafnkelsson, Baldvin Björgvins-
son, ísleifur Friðriksson, Bjarki Amórsson og Hinrik Laxdal. í öðru sæti
varð Funi frá siglingaklúbbnum Siglunesi í Reykjavík en áhafnarmeðlim-
ir eru Guðmundur P. Guðmundsson, Guðjón Guðjónsson, Þórður Kolbeins-
son og Jóhann Tómasson. Svala frá siglingaklúbbnum Ými hafnaði í
þriðja sæti. Áhöfn Svölu skipa Jóhann Reynisson, Garðar Jóhannsson,
Ingi Ásmundsson, Ingibjörg Einarsdóttir, Sigurður Ragnarsson og Snorri
Vignisson. Mardöll frá Vogi varð í íjórða sæti og Sigurbjörg frá siglingafé-
laginu Ými lenti í fimmta sæti.
töm
FOLK
■ GRAIG Parry frá Ástralíu
sigraði á opna vestur-þýska golf-
mótinu um helgina. Parry sigraði
Mark James frá Bretlandi i bráða-
bana. Að þessu móti loknu er ljóst
hveijir verða í liðiEvrópu í Ryder-
bikarnum. Lið Evrópu er þannig
skipað: Ronan Rafferty, Mark
James, Jose-Maria Olazabal,
Nick Faldo, Ian Woosnam, Gord-
on Brand, Severaino Ballesteros,
Sam Torrance, Jose-Maria Caniz-
ares, Bernad Langer, Philip
Walton og Christy O’Connor.
Sandy Lyle gaf ekki kost á sér.
■ ALÞJÓÐA ólympíunefndin
hefur ákveðið að þeir íþróttamenn
sem keppa í Suður-Afríku verði
settir í keppnisbann. „Aðskilnaðar-
stefna Suður-Afríku samræmist
ekki ólympíuhugsjóninni og þeir
sem vilja keppa þar verða að sætta
sig við að fá ekki að keppa á
Ólympíuleikunum," sagði Kevin
Gosper, sem sæti á í framkvæmda-
stjórn ólympíunefndarinnar. Þetta
á sérstaklega við um tennis en það
er eina íþróttagreinin sem leyft
hefur keppni í Suður-Afríku.
■ DIEGO Maradona hefur loks-
ins ákveðið að snúa aftur til Ítalíu
og leika með liði sínu Napolí. Hann
er í Argentínu en hefur boðað
komu sína í lok vikunnar. Hann
segir það af og frá aff hann muni
byija að leika strax því hann þurfi
mánuð til að ná af sér aukakílóum
og koma sér í form. ítalskur sjón-
varpsmaður, sem ræddi við Mara-
dona í Buenos Aires, sagði að
kappinn væri kominn með sítt
skegg og væri heldur feitlaginn.
■ MANCHESTER United er
félag sem veit ekki aura sinn tal.
Liðið munaði því ekki mikið um að
snara fram 2,3 milljónir punda fyr-
ir Gary Pallister frá Middles-
brough. Þetta er metupphæð fyrir
leikmann milli félaga í Englandi.
Middlesbrough, sem féll í 2. deild
í vor, hafði áður neitað boði Man-
chester United sem þljóðaði upp á
1,8 milljónir. Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri United, var þó ekki
á því að gefast upp og bætti hálfri
milljón við.
■ TÚNIS eða Kamerún munu
taka þátt í lokakeppni heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu. Liðin
tryggðu sér sigur í C og D riðli í
undankeppninni í Afríku um helg-
ina og munu leika um hvort liðið
kemst áfram. Tvær Afríkuþjóðir
komast áfram og munu Egypta-
land og Alsír leika um hitt sætið
en þjóðirnar sigruðu í A og B riðli.
■ ZOLÁ Budd, berfætta
hlaupakonan, mun líklega ekki
keppa framar á alþjóðlegum móti.
Hún tók þátt í götuhlaupi í heima-
landi sínu, Suður-Afríku, og mun
því ekki fá leyfi til að keppa utan
heimalands síns. Budd keppti fyrir
Bretland en sneri aftur heim til
Suður-Afríku eftir mikla pressu
frá samtökum gegn aðskilnaðar-
stefnu. „Við vorum mjög ánægð
með að sjá hana hér,“ sagði Leon
Botha, skipuleggjandi hlaupsins.
„En það er ljóst að hún mun aldrei
framar frá að keppa í öðrum lönd-
um.“
■ HOLLENDINGARNIR
Marco van Basten og Ruud Gull-
it, sem leika með AC Mílanó, munu
báðir missa af fyrstu vikum keppn-
istímabilsins á Italíu. Gullit verður
frá keppni í sex vikur og Van Bast-
en í þijár. Frank Rijkaard var
eini Hollendingurinn í liði AC
Mílanó er liðið sigraði Cesena 3:0,
í fyrstu umferð ítölsku deildarinnar
um helgina. AC Mílanó hefur því
ekki tapað í síðustu 30 leikjum
sínum. Óvenju fáir útlendingar léku
með ítölsku liðunum um helgina og
ítalskir knattspyrnumenn gerðu 17
af 19 mörkum dagsins, sem er
óvenju hátt hlutfall.
GETRAUNIR: X X 1 211 X X 1 XXX LOTTO: 3 8 11 29 37 + 15