Morgunblaðið - 31.10.1989, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
FRJALSAR
Skofar, írar
Wales-búar
og íslendingar
mæfast í jjúlí
í Mosfellsbæ
SAMIÐ hefur verið um landskeppni í frjáls-
íþróttum milli Skota, íra, Wales-búa og ís-
lendinga næsta sumar. Mótið fer fram á
hinum nýja velli í Mosfellsbæ dagana 1. og
2. júlí.
Agúst Ásgeirsson, formaður Fijálsíþróttasam-
bands íslands, sat um helgina ársing Evrópu-
sambands fijálsíþróttamanna í Amsterdam og
skrifaði þá undir samninga um tvö mót á næsta
ári — og munnlegt samkomulag var gert um það
þriðja.
Á mótinu í Mosfellsbæ verður keppt í öllum
greinum karla og kvenna, og verða tveir keppend-
ur frá hverri þjóð í grein. Reikna má með að gestir
á mótinu verðu um 150. Formaður fijálsíþrótta-
sambands Wales hafði að vísu þann fyrirvara að
stjórn sambandsins samþykkti samninginn um
mótið, en talið er fullvíst að svo verði.
Kast- og stökkkeppni
Þá var samið við Breta, Spánveija og Belga um
landskeppni í köstum og stökkum karla og kvenna.
Á því móti, sem fram fer í Grimsby í Englandi
19. ágúst, verða einnig tveir keppendur í grein frá
hverri þjóð.
Að sögn Ágústs var síðan gert munnlegt sam-
komulag um tugþrautakeppni 7. og 8. júlí í Svíþjóð.
Þar verða Svíar, Finnar og Eystlendingar auk ís-
lendinga. „Færi svo að af því móti yrði ekki ámál-
guðum við það við Hollendinga og Belga að kom
inn í þeirra tugþrautarkeppni sem fram fer í lok
júlí,“ sagði Ágúst.
KNATTSPYRNA
Hallsteinn til FH
9
Hallsteinn Amarson, miðvörður Víkingsliðsins í
knattspyrnu, hefur ákveðið að ganga til liðs við
FH fyrir næsta keppnistímabil. Hallsteinn, sem ér tvítug-
ur að aldri, á ættir að rekja til Hafnarfjarðarliðsins —
faðir hans er Örn Hallsteinsson, hinn kunni handknatt-
leiksmaður í félaginu hér á árum áður.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Logi Ólafsson tekur að öllum líkindum við Víkingsíið-
inu í knattspyrnu.
Logimeð
Vfldnga?
LOGI Ólafsson, íþróttakennari,
verður mjög líklega næsti þjálf-
ari 1. deildarliðs Víkings íknatt-
spyrnu.
Uppkast hefur verið gert af
samningi • og' það ræðst á
næstu dögum hvort Logi verður
ráðinn. „Það er sterkur líkur á því
hann þjálfi liðið,“ sagði Gunnar Órn
Kristjánsson, formaður knatt-
spymudeildar Víkings, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Þetta yrði frumraun Loga með
1. deildarlið karla, en síðastliðin
þijú ár hefur hann þjáifað kvenna-
lið Vals, sem hefur verið mjög sigur-
sælt. Logi starfaði fyrir nokkrum
áram sem aðstoðarmaður Inga
Björns Albertssonar, er sá síðar-
nefndi þjálfaði og lék með FH —
en Logi lék með FH á sínum tíma.
HANDKNATTLEIKUR
Stefnt að Evrópukeppní
landsliða veturinn ’91-'92
Samstarfssamningur um Evrópukeppni landsliða í handknattleik,
og fleira, var undirritaður á fundi fulltrúa Evrópuþjóða, sem hald-
inn var á Kýpur um fyrri helgi. Hugmyndir um Evrópukeppni byggjast
á því að leikið verði heima og að heiman í riðlum, og síðan fari fram
úrslitakeppni — sem er sama fyrirkomulag og í knattspyrnunni. Stefnt
er að keppnin fari fyrst fram veturinn 1991-1992.
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Níu leikir á hálfum mánuði
gegn háskólaliðum vestra
LASLO Nemeth, landsliðsþjálf-
ari íkörfuknattleik, hefur valið
landsliðshópinn, sem fer til
Bandaríkjanna á mánudag og
leikur þar níu leiki gegn há-
skólaliðum á 14 dögum. Tveir
nýliðar eru í hópnum; Jón Arnar
Ingvarsson, Haukum, og Lárus
Árnason, KR.
Undirbúningur fyrir ferðina
hófst í byijun ágúst og hafa
æfingar verið nær vikulega síðan.
18 leikmenn vora valdir til æfinga,
en sex þeirra hafa helst úr lestinni
vegna meiðsla og anna. Eftirtaldir
leikmenn fara í ferðina:
Guðjón Skúlason............ÍBK
Magnús Guðfinnsson.........ÍBK
Sigurður Ingimundarson......ÍBK
Teitur Örlygsson...........UMFN
Friðrik R. Ragnarsson......UMFN
Guðmundur Bragason.........UMFG
Pálmar Sigurðsson........Haukum
ívar Ásgrímsson..........Haukum
Jón Arnar Ingvarsson.....Haukum
Matthías Matthíasson........Val
Páll Kolbeinsson.............KR
Láras Árnason.................KR
Liðið leikur æfingaleik gegn er-
lendu leikmönnunum, sem leika
með úrvalsdeildarliðunum, í
Keflavík á föstudag. Dennis Mat-
ika, þjálfari UMFG, mun stjóma
útlendingunum, en bandarískir
dómarar, sem starfa á Keflavíkur-
flugvelli, sjá um dómgæsluna.
UNGMENNAFELAG ISLANDS
Hestaíþróttir, golf og fimleikar
kvenna á Landsmótinu næsta ár
rítugasta og sjötta sam-
bandsþing Ungmennafélags
íslands fór fram í Mosfellsbæ um
síðustu helgi. Þar var ákveðið að
taka þrjár nýjar íþróttagreinar inn
í Landsmót UMFÍ sem fram fer
í Mosfellsbæ næsta sumar. Þar
verður í fyrsta sinn, keppt í hesta-
íþróttum á vegum íþróttahreyf-
ingarinnar. Einnig verður keppt í
sveitakeppni í golfi og fimleikum
kvenna í fyrsta sinn. Þá verður
tekið upp á ný keppni í pönnu-
kökubakstri.
Gert er ráð fyrir að keppendum
á Landsmótinu fjölgi um 300 við
þessar nýju íþróttagreinar og má
búast við að þátttakendur verði
um 3.000. Landmót UFMÍ, sem
verður haldið í 20. sinn næsta
sumar, er lang stærsti einstaki
íþróttaviðburður sem fram fer hér
á landi.
Jón Arnar Ingvarsson úr Haukum
kemur inn í landsliðshópinn ásamt
Lárusi Ámasyni.