Morgunblaðið - 31.10.1989, Síða 2
5§
2 1? :; ? ' ■ .
‘ifefel AfttíííTíúíOí.r^í SUÐA'OUUiWW1 'Þt-JT'T itíiitJfiVFJöííOií
ll.'HMIMIHMM'tMMÓfettWlMlMÉ) ÍÞRÓTTIR ^ftföJÚtWtMlWSUCSfídBÍRWSÍMlMHMMl)
Fyrir 4 - suóutími 8 mín.
Heildsölubirgðir:
KARL K. KARLSSON.vCO.
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 62 32 32
Njarðvík-
ingarenn á
sigurbraut
- unnu öruggan sigur á íslandsmeisturum
Keflvíkinga í „Ljónagryfjunni"
góðum árangri, sérstaklega í síðari
hálfleik þegar þeir náðu að bijóta
mótspyrnu Keflvíkinga á bak aftur.
„Við höfum æft vel að undanförnu
og þetta er besti leikur liðsins til
þessa undir minni stjórn,“ sagði
Patrick Releford þjálfari og leikmað-
ur Njarðvíkinga, eftir leikinn. „Það
eru ýmis atriði sem við höfum náð
að laga og þar má nefna hraðaupp-
hlaupin sem tókust vel hjá okkur í
dag. Vörnin var einnig mjög góð og
við náðum að stöðva Guðjón Skúla-
son í síðari hálflejk og við það riðiað-
ist leikurinn hjá ÍBK. Þetta var góð-
ur sigur og ég er mjög ánægður með
þróun mála hjá okkur,“ sagði Reie-
ford ennfremur.
Auðveldursigur
Þórs í Sandgerði
Þór frá Akureyri vann auðveldan
sigur á Reyni í Sandgerði á
sunnudagskvöidið 98:67, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 46:35
fyrir Akureyringana.
Björn Bandaríkjamaðurinn
Blöndal David Grissom, sem
skrífar þjálfar Sandgerð-
inga, lék ekki með
þar sem hann hafði ekki fengið til-
skilin leyfi og það verður að segjast
eins og er að án hans er Reynisliðið
'hvorki fugl né fiskur. Sandgerðingar
reyndu allt hvað þeir gátu til að
ganga frá málum Grissom fyrir helgi,
en vegna mistaka í banka komust
greiðslur ekki til skila og því ekkert
leyfi veitt.
Leikurinn var ekki rismikill. Akur-
eyringar náðu fljótt afgerandi for-
ystu sem þeir juku jafnt og þétt allt
til loka. Undir iokin var eina kapps-
mál Þórsara að ijúfa 100 stiga múr-
inn, en tókst ekki - mest vegna eigin
klaufaskapar.
Sandgerðingar ollu vonbrigðum
eftir góða frammistöðu gegn
Njarðvíkingum í síðasta heimaleik,
en þeir söknuðu greinilega þjálfara
síns sem hefur verið potturinn og
pannan í leik liðsins - og sem dæmi
um vandræðagang Reynismanna
voru dæmd skref 11 sinnum á liðið
í leiknum.
Fimmta tap ÍR
IR tapaði sínum fimmta leik í röð
í úryalsdeildinni er liðið beið lægri
hlut fyrir Haukum í Hafnarfirði
85:78 á sunnudagskvöld. Staða ÍR-
inga, sem höfðu 12
Hörður stiga forskot í hálf-
Magnússon leik, er að verða held-
skrifar ur erfið.
Það var fátt í upp-
hafi sem benti til þess að ÍR veitti
Morgunblaðiö/Einar Falur
Bandaríkjamennirnir Patrick Releford, Njarðvík, og Dandy Anderson, Keflavík, berjast. Releford átti stórleik með
Njarðvíkurliðinu.
Haukum keppni því þeir síðarnefndu
komust í 18:11. Síðan skoruðu ÍR-
ingar 19 stig í röð, þar af gerði
Karl Guðlaugsson þijár þriggja stiga
körfur. Á þessum leikkafla og það
sem eftir lifði af fyrri hálfleiks hélst
þessi munur og staðan 32:44 í leik-
hléi.
Það var eins og annað Haukalið
hafi leikið síðari hálfleikinn því það
tók aðeins fimm mínútur hjá liðinu
að komast yfir aftur. Það var aðal-
lega fyrir stórleik Jóns Arnars Ing-
varssonar. Eftir það var ekki snúið
og Haukar unnu örugglega, 85:78.
Vömin var slök hjá Haukum í
þessum leik. Liðið þarf að gera betur
í næstu leikjum ætli það sér að veit
efstu liðinum keppni. Bestu menn
Hauka voru ívar, Jón Arnar og Jon-
athan Bow.
Karl var bestur í liði ÍR-inga, skor-
aði 23 stig þar af fimm þriggja stiga
körfur. Lítil breidd ÍR-inga var þeim
að falli í þessum leik. Tommy Lee
náði sér ekki á strik í þessum leik
og munar um minna.
KR hafði betur
KR-ingar lögðu Valsmenn að velii
í úrvalsdeildinni á sunnudaginn
er þeir skoruðu 76 stig gegn 70 stig-
um Hlíðarendastrákanna.
■■■■■■I Það voru
Skúli Unnar Vestubæingarnir
Sveinsson sem höfðu undirtökin
skrifar a]]an leikinn en
helyptu Valsmönn-
um hættulega nærri sér í lokin, svo
nærri að stuðningsmenn KR höfðu á
orði eftir leikinn að þeir hefðu varla
þolað spennuna.
KR-ingar léku einstaklega vel í
fyrri hálfleik, svo vel að Anatolíj fékk
að hvíia sig síðustu mínúturnar, sem
er ekki algengt. KR hafði 18 stiga
forystu í leikhléi. Anatolíj, Gauti og
Páll voru þar fremstir í flokki og
Axel átti einnig ágætan dag.
í síðari hálfleik þéttu Valsmenn
vörnina til muna og söxuðu hægt
og bítandi á forskot KR og er þijár
mínútur voru til leiksloka var staðan
orðin 64:61 og allt gat gerst.
Valsmenn fóru illa að ráði sínu á
lokamínútunum, reyndu þrívegis
skot í ómögulegu færi og KR-ingar
nýttu sér það til fullnustu og unnu
nokkuð sanngjarnt.
Hjá Vai var Chris bestur og reynd-
ar sá eini sem lék af eðlilegri getu
í fyrri hálfleik. Svali og Einar komu
síðan sterkir tii leiks í þeim síðari.
Grindavíkursigurí
spennandi leik
Grindvíkingar unnu mikilvægan
sigur á liði Tindastóls í leik lið-
anna í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í GrindaVík síðastliðinn sunnu-
dag. Leikurinn var í
Frímann járnum allan tímann
Ólafsson og gat farið á hvorn
skrifar veginn sem var en
Grindvíkingar voru
sterkari á lokasprettinum og stóðu
uppi sem sigurvegarar í leikslok,
skoruðu 82 stig gegn 78 stigum
gestanna.
Á ýmsu gekk í fyrri hálfleik. og
var Tindastóll í hálfleik 52:49. Bo
Heiden og Valur Ingimundarson
skoruðu samtals 36 stig í hálfleikn-
um og héldu Tindastólsliðinu á floti.
Bo lék að auki mjög vel í vöminni.
Guðmundur lék . mjög vel fyrir
Grindvíkinga eins og fyrr segir ásamt
Jeff Nuli. Einnig átti Steinþór Helga-
son góða spretti.
Mikill hraði var í seinni hálfleik og
stefndi í sigur Tindastóis þegar þijár
mín vora til leiksloka. Staðan var
þá 78:71 fyrir Tindastól. Þá var eins
og allur vindur væri úr leikmönnum
liðsins. Jeff Null jafnaði fyrir
Grindvíkinga 78:78 og kom þeim
yfir 80:78 þegar ein mínúta var til
leiksloka. Stólarnir misstu boltann í
næstu sókn og Guðmundur Bragason
innsiglaði sigur Grindvíkinga 82:78
þegar klukka tímavarðar gall við.
Guðmundur Bragason átti mjög
góðan leik fyrir Grindvíkinga og
sannaði að hann er orðinn einn alb-
esti körfuknattleiksmaður okkar.
Jeff Null var góður í fyrri hálfleik
og dijúgur í lokin. Rúnar Árnason
og Hjálmar Hallgrímsson áttu einnig
góðan leik.
Bo Heiden ber Tindastólsliðið uppi
ásamt Vali Ingimundarsyni og þeir
léku allan leikinn án hvíldar enda
var mjög af þeim dregið í seinni
hálfleik.
IMJARÐVÍKIIMGAR unnu örugg-
an sigur á islandsmeisturum
Keflvíkinga í bráðskemmtileg-
um leik í Njarðvík á sunnudag-
inn, 103:88 og eru þvíenn eina
liðið sem ekki hefur tapað leik
í úrvalsdeiidinni. Bæði liðin
sýndu geysimikla baráttu,
Keflvíkingar höfðu oftast frum-
kvæðið ífyrri hálfleik, en í þeim
síðari réðu Njarðvíkingar ferð-
inni og náðu þá að tryggja sér
enn einn sigurinn á nágrönnum
sinum sem hingað til hafa átt
ákaflega erfitt uppdráttar í
„Ljónagryfjunni" í Njarðvík.
Keflvíkingar mættu tii leiks með
nýjan bandarískan leikmann,
Sandy Anderson og stóð hann sig
mjög vei í fyrri hálfleik. Honum tókst
ekki eins vel upp í
þeim síðari, en þá var
hann í strangri gæslu
Teits Örlygssonar
sem var allt annað
en árennilegur og gætti Bandaríkja-
mannsins mjög vel. Njarðvíkingar
beittu mikið hraðaupphlaupum með
Björn
Blöndal
skrifar
Löng hrísgjrón með ristuðu
heilvheitiklíði, núðlumog
bragðgóðu grænmeti. Ljúf-
fengur fjölskylduréttur.
TÖLVVSKÖU GÍSLA J. JOMMSEN
Útbreiddasta og öflugasta
CAD-teiknikerfið f
heiminum fyrir
PC/PS Tími og staður:
tölvur. Byrjendanámskeið:
30. okt.-3. nóv.
| Ws' kl. 13.00-17.00
Framhaldsnámskeið:
6.-10. nóv. kl. 13.00-17.00
í Ánanaustum 15, Reykjavík.
Leiðbeinandi: Kristján Helgason
frá Hugbúnaði hf.
SKRÁNING I SÍMUM 621066 og 641222.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD