Morgunblaðið - 31.10.1989, Blaðsíða 3
B 3
ítf&mR
FOLX
■ GUÐNI Bergsson og félagar
hjá Tottenham fara til Frakklands
í dag, þar sem liðið leikur gegn
Caen, en um er að ræða ágóðaleik
fyrir Graham Rix, sem leikur með
firanska liðinu.
■ SIGURLÁS Þorleifsson var
endurráðinn þjálfari Vestman-
neyjaliðsins í knattspyrnu um
helgina. Tómas Pálsson verður
áfram aðstoðarmaður hans.
■ HLYNUR Stefánsson var út-
nefndur leikmaður ÍBV í hófi um
helgina og Leifur Geir Hafsteins-
son var valinn efnilegasti leikmað-
urinn.
■ ÓLAFUR Jóhannesson og
Viðar Halldórsson gengu frá
samningi við FH um helgina og
verða þeir áfram þjálfarar liðsins.
■ BJARNI Jóhannesson hefur
verið endurráðinn þjálfari 2. deild-
arliðs Tindastóls.
■ Óskar Ingimundarson verður
áfram þjálfari 2. deildar liðs Víðis,
en eftir á að ganga skriflega frá
samningum. Daníel Einarsson
verður aðstoðarmaður Oskars og
Grétar Einarsson verður áfram
leikmaður Víðis,
■ RAGNAR Margeirsson skor-
aði sitt fyrsta mark fyrir Sturm
Graz f leik gegn Austría Vín.
Ekki dugði það til sigurs, því að
Austría vann, 2:1.
■ SIGURJON Kristjánsson,
Valsmaður, lék sinn fyrsta leik
með belgíska 2. deildarliðinu, Bo-
om, um helgina. Boom lék í bikar-
keppninni gegn Beringen, sem
leikur í 3. deild, og sigraði með einu
marki gegn engu. Siguijón kom
inná í hálfleik og lé$ til loka leiksins.
■ PORT Vale ogStfiddlesbrough
gerðu 1:1 jafntefli í 2. deild ensku
knattspymunnar í gærkvöldi.
■ TOM Kite hefur gert það gott
á golfmótum í Bandaríkjunum á
árinu og unnið sér inn 1,395.278
dollara. Payne Stewart hefur einn-
ig farið yfir milljón dollara múrinn
— fengið 1.201,301 dqllara.
■ EINS' árs bann sem júgóslav-
neski,leikmaðurinn Mehmed Baz-
darevic var settur í með landsliðinu
fyrir að hrækja á og svívirða dóm-
ara í landsleik fyrir skömmu, tekur
einnig til leikja í Evrópukeppni fé-
lagsliða. Talsmaður UEFA, Knatt-
spyrnusambands Evrópu, tilkynnti
'þetta á laugardag. Bazdareyic
leikur með franska liðinu Sochaux.
GETRAUNIR
Aukaseðill
ígangi
Sá fyrsti sinnar tegundar
Idag kl. 18:25 verður lokað fyrir
sölu á aukaseðli 3 hjá íslenskum
getraunum. Aukaseðill sem þessi
er nýung hjá fyrirtækinu og er þetta
í fyrsta sinn, sem knattspymuleikir
í miðri viku eru á sérstökum get-
raunaseðli hérlendis. Á seðlinum
em leikir í 2. umferð Evrópumót-
anna, sem fara fram í kvöld og á
morgun. Fyrsti vinningur verður
greiddur út þó engin tólfa komi
fram. Ef um framlengingu verður
að ræða gilda úrslitin að henni lok-
inni en ekki eftir vítaspymukeppni.
Ikvöld
TVEIR leikir verða í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
kvöld. Tindastóll og Reynir
mætast á Sauðárkróki og ÍR
og Njarðvík í Seljaskóla. Báðir
leikirnir hefjast kl. 20.00. ÍR
og Njarðvík eigast við í 1. deild
kvenna kl. 20.30 í Seljaskóla.
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
HANDKNATTLEIKUR / SPANN
HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Stjarnan skein
skært gegn Víkingi
HEIL umferð fórfram í 1. deild
kvenna um helgina. Stórleikur
umferðarinnar var viðureign
Stjörnunnar og Víkings, en
þegar út í leikinn var komið fór
lítið fyrir spennunni þar sem
Stjarnan vann stórsigur, 19:8,
á slöku liði Víkings. Önnur úrlit
voru frekar eftir bókinni, Fram
vann Gróttu 27:15, Valur sigr-
aði Hauka 31:16 og KR tapaði
fyrirFH 18:26.
Stjaman hóf leikinn af miklum
krafti og virtist baráttan koma
Víkingsliðinu í opna skjöldu. Stjam-
an lék vömina mjög framarlega og
IBBHH áttu svifaseir.ar
Katrín Víkingsstúlkur ekk-
Friðriksen ert svar við því og
skrifar glötuðu boltanum
oft í hendur and-
stæðinganna.
Varnarleikur Víkinga var ekki
skárri en sóknin og mikill leikleiði
virtist einkenna liðið. Það var helst
Heiða Erlingsdóttir sem stóð upp
úr, en hún gerði þó sín mistök líkt
og stöllur hennar. Fjóla Þórisdóttir
varði á köflum vel í Stjörnumark-
inu, þar á meðal 3 víti, og allir leik-
menn liðsins eiga hrós skilið fyrir
varnarleikinn. I sókninni bar mest
á Kristínu Blöndal og Guðný Gunn-
steinsdóttir á línunni, en Kristín var
iðin við að mata hana á góðum
sendingum.
Fram trónir á toppi deildarinnar
með fullt hús stiga en Stjarnan
fylgir fast á eftir, hefur aðeins tap-
að einum leik gegn Val. Næsti leik-
ur deildarinnar er einmitt viðureign
Fram og Stjörnunnar, á fimmtudag
í Laugardalshöll.
■ Úrslit/B6
Kristján Arason stóð sig vel með Teka um helgina.
Krístján og félagar
I Teka á toppnum
Teka, lið Kristjáns Arasonar, og
Barcelona em efst í spænsku
úrvalsdeildinni í handknattleik með
8 stig eftir leiki helgarinnar. Teka
sigráði Pacautord-
Frá era á útivelli, 28:19.
Atla Kristján átti mjög
Hilmarssyni góðan leik og skor-
áSpáni a(3i fimm mörk.
Teka lék án Cabanas sem nefbrotn-
aði á æfíngu í síðustu viku eftir
samstuð við Kristján.
Alfreð Gíslason og félagar hjá
Bidasoa töþuðu á útivelli fyrir Arr-
ate, 28:24; Arrate fékk tvo leik-
menn frá Bidasoa fyrir þetta tíma-
bil Og fóru þeir á kostum í þessum
leik og gerðu 13 af 28 mörkum liðs-
ins. Markahæstur í liði Bidasoa var
Bogdan Wenta með 8/1, Alfreð kom
næstur með 7/3 mörk.
Granollers burstaði- Malaga,
36:19, á heimavelli. Granollers
komst í 8:1 og 13:2 og segir það
allt'uþp gang leiksins. Mjög góð
vörn og hraðaupphlaup gerðu út
um leikinn. Franch og Femandez
voru markahæstir í. liði Granollers
með sjö mörk. Atli Hilmarsson gerði
4 og Geir Sveinsson 2.
Önnur úrslit:
Lagisa—Cuenca.............i....17:18
Valencia—Michelin..............30:19
San Antonio—Pontevedra.........26:22
Barcelona—Caja Madrid..........30:19
(Júgóslavinn Vujovic gerði 14 mörk fyrir-
Barcelona)
Staðan: Teka og Bareelona hafa 8 stig,
Arrate 7, Bidasoa og Atletico Mardrid 6,
Granollers 5, Valencia, Cuenca, Gaja
Madrid, San Antonío og Malaga 4 stig.
Vujovic er markahæstur í deild-
inn rheó 32 mörk. Obucina, San
Antonio, kemur næstur með 31'
mark og Stingá hjá Valencia er í
þriðja sæti með: 30 mörk.
Hans með Qögur mörk ’
Hans Guðmundsson skoraði fjög-
ur mörk fyrir Puerto gegn Ter-
rassa. Terrássa sigraði 19:18 og
var þetta fyrsta tap Puerto sem er
nú í. öðru sæti með sex stig eftir
fjórar umferðir. Óskar Helgason og
félagar í Puerto Sagunto hafa að-
eins unnið einn leik og um helgina
töpuðu þeir fyrir Caja Sur 26:20 á
útivelli.
nar sigursælar
Norðurlandamótið í nútímafim-
leikum var haldið í Laugar-
dalshöll um helgina. Svíþjóð sigraði
í ejnstaklingskeppninni og Noregur
í hópakeppninni. Auk Svíþjóðar og
Noregs tóku Finnland og Danmörk
þátt í mótinu. Þessi grein fimleika
er ekki iðkuð hér á landi og því var
enginn keppandi frá íslandi.
Sofia Hedman, Svíþjóð, sigraði í
einstaklingskeppninni, hlaut sam-
tals 36,10 stig. Terhi Ukkonen frá
Finnlandi varð önnur með 36,05
stig og Victoriá Ystborg, Finnlandi,
þriðja með 35,65 stig. Alls voru 16
keppendur í þessum flokki.
Norsku stúlkurnar sigruðu tvö-
falt í hópakeppninni. í keppni með
borða og gjarðir höfðu þær tölu-
verða yfirburði og hlutu samtals
17,50 stig. Finnland varð í öðru
sæti með 16,75 stig og Svíþjóð í
þriðja með 16,65 stig. í keppni með
bolta og keilur var sama röð. Noreg-
ur hlaut samtals 17,90 stig, Finn-
land 17,05 stig og Svíþjóð í þriðja
með 16,80 stig.
Að sögn Margrétar Björnsdóttur,
formanns Fimleikasambands ís-
lands, fór mótið mjög vel fram í
alla staði. Keppendur voru. mjög
ánægðir með aðstöðuna og áhorf-
endur, sem voru á annað þúsund,
skemmtu sér vel.
Maria Guigova, þrefaldur heimsmeistari í nútímafimléikum frá
Búlgaríu, var yfirdómari á Noi-ðuriandamótinu í nútímafimleik-
um sém fram fór í Laugardalshöll um helgina. Guigova.hefur þríveg-
is orðið heimsmeistari f nútímafimleikum og.hefur enginn önnyr fim-
leikastúlka unnið það afrek eftir henni.
Margrét Bjamadóttir, formaður FSÍ, sagði að starf Guigovu hafðl
verið ömetanlegL „Hún, undirbjó okkur mjög vél fyrir mótið og hélt
meðal annars námskeið fyrir islenska dómara. Guigova hefur ferðast
rrýög víða undanfarin ár á vegum alþjóða Fimleikasambandsins og
kynnt nútímafimleika," sagði Margrét.
NUTIMAFIMLEIKAR / NM
Norsku stúlkur
HANDKNATTLEIKUR / DOMARAHORNIÐ
Menntun, brot og hagnaðarreglan
EKKI verður hjá því komist
að fara nokkrum orðum um
menntun og endurmenntun
dómara áður en farið verður
í einstök atriði varðandi sjálfa
dómgæsluna.
annig er að dómurum er skipt
í tvo hópa, annars vegar hér-
aðsdórrtara og hins vegar lands-
dómara.
Héraðsdómarar verða að vera
orðnir 17 ára gamlir og hafa lok-
ið dómaranámskeiði hjá dómara-
nefnd, sem Iýkur með skriflegu
og verklegu prófi. Landsdómarar
verða að vera orðnir 21 árs gaml-
ir og hafa lokið landsdómaranám-
skeiði hjá dómaranefnd, en því
námskeiði lýkur með skriflegu,
verklegu og líkamlegu prófi. Hér-
aðsdómarar mega dæma leiki til
og með annars aldursflokks, þ.e.
upp að 18 ára aldri, en lands-
dómarar mega dæma alla leiki á
milli innlendra liða, hvar sem er
á landinu.
Allir landsdómarar eru síðan
settir í próf, skrifleg og líkamleg,
á haustin og síðan aftur um ára-
mót. Þeir, sem ekki standast próf-
in, fá ekki að dæma í fyrstu deild
núna í vetur, en ætlunin er að
sama gildi um allar deildir næsta
vetur.
Ljóst er, að allir dómarar verða
að kunna leikreglumar til hlítar.
Þar með er ekki sagt að allir dóm-
ar séu í fullu samræmi við það
sem stendur í bókinni. Það er
m.a. vegna þess að dómarar verða
að meta þá stöðu, sem er í hverju
tilviki, og sá tími sem þeir hafa
til að ákveða hvað á að dæma er
mjög skammur, og sama gildir
þegar taka þarf ákvörðun um „að
flauta ekki“, en það er oft á
tíðum ekki minna mikilvægt.
Það að flauta ekki, þó dómari
sjái að brot sé framið á leikreglun-
um, tengist m.a. því sem nefnt
hefur verið hagnaðarreglan. Þar
er átt við að dómarar eiga ekki
að flauta þó brotið sé á leik-
manni, ef þeir telja að lið hins
brotlega hagnist á brotinu. Hins
vegar ber dómurum að refsa hin-
um brotlega leikmanni eftir að
t.d. upplagt markfæri glatast, og
getur þá verið um að ræða áminn-
ingar, tveggja mín. brottvísanir
eða jafnvel útilokun.
Fyrst búið er að minnast á
upplagt markfæri, er ekki úr vegi
að skýra hvað er skilgreint sem
slíkt, en það á eftir að koma oft
fyrir í næstu greinum.
Upplagt markfæri er þegar
leikmaður hefur boltann undir
sinni stjóm, og enginn er á.milli
hans og marks andstæðingsins,
nema markvörður þeirra.
Ef leikmaður er rændur upp-
lögðu markfæri, skal dæma víta-
kast, og gildir þá einu hvar á
vellinum brotið er framið.
Eg minni enn á að lesendur
geta sent inn fyrirspurnir i dóm-
arahomið, og skulu þær merktar
„Morgunblaðið, íþróttir — dóm-
arahomið".
Kveðja,
Kjartan K. Steinbach
formaður dómaranefndar HSÍ