Morgunblaðið - 31.10.1989, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐ.JUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
B 5
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Eyjamenn sýndu
ÍR-ingum klæmar
„ÞETTA var erfitt. Ég er
ánægður með að ná jafntefli
gegn ÍR-ingum á heimavelii
þeirra," sagði Hilmar Sig-
urgíslason, þjálfari Eyjamanna,
eftir jafnteflisleik þeirra, 26:26,
gegn ÍR. Mikil spenna var á
lokamínútum leiksins - Eyja-
menn náðu að vinna upp fjög-
urra marka forskot ÍR ojg kom-
ast yfir, 25:26. Jóhann Asgeirs-
son skoraði jöfnunarmark ÍR
þegar sextán sek. voru til leiks-
loka.
Leikmenn ÍR höfðu frumkvæðið
lengstum í ieiknum, Eyjamenn
komust aðeins tvisvar yfir. 13:14 í
byijun seinni hálfleiksins og svo,
25:26. Þegar þrettán
SigmundurÓ. min. voru til leiks-
Steinarsson loka var ÍR yfir,
skrifar 23:19, og svo 24:21
þegar 7,30 mín. voru
til leiksloka. ÍR-ingar höfðu tekið
Sigurð Gunnarsson úr umferð. Eyja-
menn gáfust ekki upp. Þeir fóru að
taka tvo leikmenn IR_ úr umferð -
Róbert Rafnsson og Ólaf Gylfason.
Við það riðlaðist leikur ÍR-liðsins og
Eyjamenn náðu að jafna, 24:24.
Spennandi lokaþáttur
Allt var á suðupunkti undir lok
leiksins:
■25:24...Orrí Bollason skoraði mark
ÍR úr vítakasti, sem Jóhann Ásgeirs-
son fiskaði. 3,51 mín. til Ieiksloka.
■25:25...Hilmar Sigurgíslason jafn-
aði með marki af línu, eftir sendingu
frá Sigurði Gunnarssyni. 1,24 mín.
til leiksloka.
■ Viðar Einarsson...varamarkvörð-
ur ÍBV kom inná til að veija
vítkakast frá Orra Bollasyni. 58 sek.
til leiksloka.
■25:26...Björgvin Rúnarsson skorar
fyrir Eyjamenn með gagnumbroti.
30 sek. til leiksloka.
■26:26...Jóhann Ásgeirsson jafnat
fyrir ÍR með marki úr horni. 16 sek.
til leiksloka.
Þannig lauk leiknum. Bæði liðin
geta sætt sig við jafntefli. ÍR-ingar
geta sjálfum sér um kennt að hirða
ekki bæði stigin.
„Erum jarðbundnir"
Við höfum undirbúið okkur vel
og reynum að sýna í leikjum,
það sem við erum að æfa. Annað-
hvort gengur það upp eða ekki og
nú gekk nær allt
Steinþór upp,“ sagði Gunnar
Guðbjartsson Einarsson, þjálfari
skrifar bikarmeistara
Stjörnunnar við
Morgunblaðið eftir 10 marka sigur,
28:18, gegn Víkingi í Ásgarði á laug-
ardag.
Stjarnan komst í 4:0 á fyrstu sex
mínútunum og þá var ljóst hvert
stefndi. Sigur heimamanna var
aldreií hættu — aðeins spurning hve
munurinn yrði mikill. Stjörnumenn
höfðu mikla yfirburði á öllum sviðum
nema í hornunum; Brynjar Kvaran
var öiyggið uppmálað í markinu,
varnarveggurinn var þéttur nema
helst í hornunum, sóknarleikurinn
var fjölbreyttur og markviss. Þeir,
léku eins og þeir, sem valdið hafa.
„Við erum með góða liðsheild, en
það er ekki síst að þakka öflugu
starfi utan vallar. Ég er ánægður
með sigurinn og stöðuna, en við erum
jarðbundnir, því það getur brugðið
til beggja vona samanber leikina við
Drott í Evrópukeppninni," sagði
Gunnar, þjálfari Stjörnunnar.
Brynjar var maður leiksins og
Bogdan landsliðsþjálfari, sem var á
meðal áhorfenda, hlýtur að íhuga að
gefa honum tækifæri á ný með lands-
Iiðinu. „Brynjar á geysilega mikinn
þátt í góðum varnarleik okkar. Hann
hefur atorku til að leiðrétta mistök
og er í mun betri aðstöðu til þess
innan vallar en ég á bekknum. En
ég vil sérstaklega hrósa honum fyrir
umframorkuna,“ sagði Gunnar.
Víkingar hittu fyrir oíjarla sína.
Hrafn fann sig ekki í markinu, vörn-
in var ráðþrota og í sókninni áttu
gestirnir í erfiðleikum með sterka
vörn auk þess sem óheppnin var
þeirra fylgifiskur.
„Það er samt ekki 10 marka mun-
ur á þessum liðum," sagði Gunnar.
„Víkingur er með marga landsliðs-
menn, hæfan þjálfara og liðið hefur
verið þekkt fyrir skemmtilegan sókn-
arleik. Ég þekki ekki undirbúning
þess fyrir þennan leik, en það á eft-
ir að sigra í mörgum leikjum í vetur.“
Leikurinn var prúðmannlega leik-
inn, en engu að síður voru leikmenn
samtals í 18 mínútur utan vallar og
einn fékk rauða spjaldið fyrir þtjár
brottvísanir, þar af tvær vegna mót-
mæla.
„Menn hafa komist upp með mót-
mæli, en ég styð dómarana 100% í
þessu. Menn eiga ekki að vera með
þessi mótmæli, heldur einbeita sér
að því að spila handbolta og vera
jákvæðir," sagði Gunnar.
„Vonandi á
réttri braut"
Þetta var besti Ieikur okkar varn-
arlega séð á tímabilinu og von-
andi er þetta á réttri braut," sagði
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, eftir
að lið hans hafði rúll-
ValurB. að yfir Gróttu á
Jónatansson heimavelli þeirra
skrifar síðarnefndu, 28:18, á
laugardaginn.
Valur sýndi það í þessum leik að
liðið er á réttri leið og ef svo heldur
áfram sem horfir verður það sterk-
lega inní myndinni sem íslandsmeist-
ari í vor. Liðið lék sem ein heild, en
hingað til hefur það verið einstakl-
ingsframtak Biynjars Harðarsonar
sem hefur fengið að njóta sín.
„Brynjar spilaði með iiði í Svíþjóð
þar sem hann var vanur að vera
aðalmaðurinn og gerði alla hluti
sjálfur. Hann gerir sér nú grein fyr-
ir þvi að hann er nú í liði með fimm
til sex leikmönnum sem allir geta
skorað og þarf því ekki að gera allt
sjálfur," sagði Þorbjörn aðspurður
um frammistöðu Biynjars.
Brynjar lék mög vel í þessum leik
mataði samheija sína á gullfallegum
sendingum auk þess að skora mikil-
væg mörk sjálfur. Hann lék einnig
mjög vel í vörninni. Að mínu mati
er hann einn skemmtilegasti hand-
knattleiksmaðurinn í 1. deild í dag.
Hann gerði 10 mörk í þessum leik
og er markahæstur í deildinni með
43 mörk eftir aðeins fjóra leiki, eða
10,9 mörk að meðaltali í leik!
Valsmenn gerðu nánast út um
leikinn á fyrstu 10 mínútunum er
þeir komust í 6:1. Grótta skoraði sitt
annað mark eftir 12 mínútur. Þessi
munur hélst fram í leikhlé og staðan
þá, 13:9. Halldór Ingólfsson klúðraði
tveimur vítaköstum fyrir Gróttu í
fyrri hálfleik, Einar varði fyrra sko-
tið en það síðara fór í stöng.
í síðari hálfleik var aldrei spurning
hvoru megin sigurinn mundi lenda.
Valsmenn höfðu algjöra yfirburði á
öllum sviðum, bæði í vörn og sókn.
Valdimar Grimsson átti mjög góð-
an leik fyrir Val, skoraði mörk af
línu, horninu og úr íjórum hraðaupp-
hlaupum - hans besti leikur í vetur.
Brynjar lék einnig vel og Einar lék
eins og hann á að sér í markinu,
Jakob komst einnig vel frá sínu og
eins Finnur Jóhannsson.
Miðað við frammistöðu Gróttu í
Magnús Ólafsson skorar eitt af fimm mörkum sínum fyrir ÍR gegn Eyja-
mönnum.
Öruggt hjá FH
FH vann góðan sigur á KA, 28:19,
er liðin mættust á Akureyri um
helgina. FH tók forystu strax í upp-
hafi og hélt henni allt til leiksloka
°S var sigur þeirra
Reynir sanngjarn. KA-menn
Eiriksson töpuðu þar með
skrifar sínum fjórða leik í
röð og hafa enn ekki
hlotið stig í deildinni.
FH hóf fyrri hálfleik af miklum
krafti og náði starx þriggja marka
forskoti og gáfu þannig tóninn af
því sem koma skyldi. KA-menn náðu
að minnka muninn niður í eitt mark,
en FH-ingar náðu síðan að auka for-
skot sitt á ný og leiddu 12:8 í hálfleik.
Hafnfirðingar hófu síðari hálfleik
af sama krafti og þann fyrri og náðu
sex marka forystu. KA-menn voru
ekki á því að gefast upp og skoruðu
næstu íjögur mörk, en þá var sem
allur vindur væri úr þeim og FH-
ingar juku forskot sitt jafnt og þétt
til leiksloka, 28:19.
Leikur liðanna var ekki til að hrópa
húrra fyrir, hann var fálmkenndur
og mikið um vitleysur á báða bóga.
Bestur heimamanna var Axel
Stefánsson, markvörður, sem varði
20 skot, þar af íjögur víti. Hjá FH
átti Guðmundur Hrafnkelsson, mark-
vörður, mjög góðan leik, varði alls
19 skot. Einnig átti Oskar Ármanns-
son ágætan leik. FH lék að þessu
sinni án Héðins Gilssonar sem var í
leikbanni.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6
Morgunblaðið/Júlíus
Brynjar Harðarson hefur brotist inn úr horni og sendir knöttinn fram hjá Sigtryggi
Albertssyni, markverði Gróttu.
þessum leik á liðið eftir að verða í
strögli í vetur. Það vantar tilfinnan-
lega skyttur í liðið og gegn 6-0-vörn
eins og Valsmenn spiluðu gekk sókn-
arleikur þeirra einfaldlega ekki upp.
Stefán Arnarson var bestur í liði
Gróttu og sá eini sem stóð upp úr
meðalmennskunni.
Leifur markvörður
lagði grunninn
Leifur markvörður Dagfinnsson
lagði grunninn að sigri KR-inga
í Laugardalshöll á sunnudag, er þeir
unnu HK 25:20. Leifur stöðvaði hvað
eftir annað sóknir
Steinþór gestanna, sem gerðu
Guöbjartsson aðeins eitt mark fyrir
skrifar utan. Mikill hraði var
í leiknum og reyiidar
svo mikili á stundum að leikmenn
réðu hreinlega ekki við hann.
KR-ingar höfðu undirtökin allan
tímann. Fyrir hlé náðu þeir tvisvar
fimm marka forystu, en staðan í
hálfleik var 11:8. Þegar átta mínútur
voru til leiksloka var munurinn sjö
mörk, 23:16, en hýliðunum tókst að
klóra í bakkann undir lokin.
Markvarslan var aðall KR og vörn-
in stóð sig ágætlega, þegar hún var
til staðar, en sóknarleikurinn var
ekki góður — skytturnar gerðu of
mörg mistök.
Skyttur sáust ekki hjá HK og
munar um minna. Vörnin var götótt,
en hraðaupphlaupin tókust vel sem
og vítaköstin — tvö af átta fóru í
súginn.
„Ég er engin skytta“
- segir markahæsti leikmaður 1. deildar
Brynjar Harðarson, sem gekk til liðs við Valsmenn fyrir þetta keppnistíma-
bil, hefur heldur betur slegið í gegn. Hann er lang markahæsti leikmað-
ur 1_. deildar, hefur skorað 43 mörk í fjórum leikjum.
„Eg er engin skytta," sagði Brynjar. „í Svíþjóð þar sem ég spilaði í fyrra
lék ég sem miðjumaður og leikstjórnandi. Ég skora ekki mikið af mörkum
fyrir utan, heldur mest með gegnumbrotum. Það hefur opnast fyrir mig
vegna þess að mótheijarnir gæta Jakobs í vinstra horninu svo vel.“
Brynjar sagði að leikurinn gegn Gróttu væri besti leikur Vals á tímabil-
inu. „Við höfum verið að beijast við það að laga vörnina og ég held að það
hafi.tekist í þessum leik.“ En stefnir Brynjar að markakónstitlinum?
„Ég stefni fyrst og fremst að því að verða íslandsmeistari með Val, en
tek hitt gjarnan í leiðinni."
mámw í SEÐIL,
HLUSTAÐU,
og mmw pát?
LEIKURINN VINNING ARNIR
Fullt hús er spurnitigaleikur á vegum
Bylgjumiar og SJÓVÁ-
ALMENNRA. Hann stendur yftrfrá
mánudeginum 30. október til fóstudagsins
10. nóvember. Auk SJÓVÁ-
ALMENNRA gefur Jjöldi fyrirtœkja
vinninga í Fullt hús. Til einhversþeirra
má sækja númeraðan svarseðil. Á meðan
á leiktufín stendur sendum við út eina
létta spurningu daglega, sem þú skráir
svar við á svarseðilinn, en jafnframt
drögutn við út nútner. Þeim heppna
hlustanda sem á það tiúmer á svarseðli
sínutn gefur SJÓVÁ-ALMENNAR
tryggingu í heilt ár. Eigandi seðilsins
verður að hafa samband við Bylgjuna
fyrir kl. 17:00 sama dag.
Að keppni lokinni skila þátttakendur
síðan inn svarseðlutn sínutn til einhvers af
fyrirtækjunum sem gefa vittning eða
SJÓVÁ-ALMENNRA og
umboðsmanna þeirra.og Bylgjan
safnar þeim saman.
Þriðjudaginn 14. nóvember verður
dregið úr réttum svörutn, t beinni
útsendingu frá nýjum húsakynnum
SJÓ VÁ-ALMENNRA
að Kringlunni 5, nafn hitis Ijónheppha
hlustanda. Hlustandans sem hlýtur, Fullt
hús: Húsgögn, innréttingar, málnittgu,
gólfefni ogfeira til híbýlaprýði að
verðmœti á aðra milljón króna.
i'. ■®>
... U---;
If/. J. :
■■ m&jss ' V,
. ;&:■ £
1
■'
s
ELDHÚSINNRÉTTING
Fit hf., Bœjarhrauni 8, Hafnarftrði.
VATNSRÚM
Vatnsrúm hf, Skeifunni 11.
GÓLFEFNI / DÚKAR
Metró í Mjódd.
MÁLNING
Málarinn, Grensásvegi.
BAÐHERBERGISINNRÉTTING
J. Þorláksson & Norðmann,
Suðurlandsbraut 20.
BLÓMASKREYTING
Borgarblómið, Skipholti 35.
GÓLFFLÍSAR
Parma Bæjarhrauni 16, Hafnarftrði.
í BARNAHERBERGIÐ
Axis, Smiðjuvegi 9, Kópavogi.
LÝSING
Rafkaup, Ármúla 24.
STOFUHÚSGÖGN
Línan, Suðurlandsbraut 22.
TRYGGINGAR
SJÓ VÁ-ALMENNAR tryggingarhf.
SVARSEÐLANA FÆRÐU HJÁ
ÖLLUM ÞEIM FYRIRTÆKJUM
SEM GEFA VINNINGA í
KEPPNINA OG
SJÓVÁ-AJLMENNUM EÐA
UMBOGSMÖNNUM PEIRRA
SEMERUÁ
HLUSTUNARSVÆÐI
BYLGJUNNAR.
m
Vatnsrum hf
Lu&Sm,
METRÓ
BORGARBLÖWlÐ
/IbNORMANN
SJOVAnDALMENNAR
—Unon-ht-
o
AXIS
Æfrma
Rafkaup