Morgunblaðið - 18.11.1989, Side 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
The Myntet Chamberorchestro Anders Lougin
Indversk hrisgrjón
eða smjör með smjöri?
Það er lán ungra tónskálda á Norðurlönd-
'Unum að á hverju hausti skuli vera haldin
sérstök hátíð þeim til heiðurs. Hún ber hei-
tið „Ung Nordisk Musik“ enda er þar nær
eingöngu flutt tónlist eftir norræn tónskáld
yngri en þrítug. Þjóðirnar skiptast á um að
halda hátíðina og að þessu sinni kom það í
hlut Svía að bjóða nágrönnum sínum heim.
Þótt þessi árlegi fundur norrænna tón-
skálda fari ekki hátt í heimspressunni er
hann samt afar þýðingarmikill þeim sem
hann sækja. Tónlistarfólk hvaðanæva frá
Norðurlöndum drífur þangað að og þann
stutta tíma sem hátíðin stendur yfir er hún
sem sjóðandi grautarpottur: ólíkar skoðanir
eru látnar í ljósi, hugmyndir hrannast upp,
ný verk fæðast, vinabönd treystast og ókunn-
ar leiðir opnast.
Merki hótíöarinnar.
s
vJ
ex íslensk tónskáld voru
valin til fararinnar: Hróðm-
. ar Ingi Sigurbjömsson,
I Eiríkur Örn Pálsson, Gunn-
steinn Ólafsson, Haukur
Tómasson, Eyþór Arnaids og Atli
Ingólfsson. í föruneyti þeirra vom
þrír hljóðfæraleikarar, þau Örn
Magnússon, píanóleikari, Hildigunn-
ur Halldórsdóttir, fiðluleikari, og
Bryndís Gylfadóttir, sellóleikari, öll
á aldur við tónskáldin. Auk þeirra
dvaldi Ríkharður H. Friðriksson, for-
maður íslensku undirbúningsnefnd-
arinnar, einnig eystra og sá um að
sínum mönnum yrði ekkert að van-
búnaði.
Hátíðin hefst í brugghúsi
Þeir sem áður hafa sótt hátíðir
' af þessu tagi eiga því að venjast að
fyrstu tónleikarnir séu haldnir með
viðhöfn í einu af merkari tónlistar-
húsum gestgjafanna. Því kom
ákvörðun sænsku undirbúnings-
nefndarinnar nokkuð á óvart þegar
öllu liðinu var stefnt á tónleika i lítilli
skonsu í Múnehenar-brugghúsinu
svonefnda, kvöldið sem hátíðin hófst.
Öm Magnússon flutti þar „Tilbrigði
fyrir píanó“ eftir Hróðmar Inga Sig-
urbjörnsson en hann tók nú í síðasta
skipti þátt í UNM-hátíðinni fyrir
„aldurs sakir“. Tilbrigðin vom
skemmtilega leikin af Emi og Iétu
menn vel af verkinu. Nokkurra von-
brigða gætti hinsvegar með önnur
verk á tónleikunum, t.d. tónsmíð fyr-
ir einleiksfiðlu eftir Finnann Kimmo
Hakola sem hann nefnir „A meme
les échos“. Hann átti frábæran
strengjakvartett á hátíðinnv Árósum
fyrir þremur ámm en nú var sem
hann væri öllum heillum horfinn.
Lánið lék heldur ekki við þá sem
undirbjuggu hátíðina. Sænski tón-
fræðingurinn Bo Waller átti að
stjórna umræðum um verkin á há-
tíðinni en skömmu fyrir komu gest-
anna var hann lagður inn á sjúkra-
hús og sást aldrei meðan á dvöl
þeirra stóð. Ýmislegt annað fór úr
skorðum sökum veikinda og fengu
nokkur tónskáld ekki verk sín flutt
af þeim sökum. Argentínska tón-
skáldið Mariano Aitkin hljóp í skarð-
ið fyrir Bo og sagði undan og ofan
af suður-amerískri tónlist. Þá kynntu
ung tónskáld frá Eistlandi verk eftir
sig sjálf og þótti það skemmtileg
nýlunda að kynnast tónsköpun í
Eystrasaltslöndunum. Eins og við
eftir Gunnstein
Ólnfsson
mátti búast vom verk þeirra Eist-
lendinga heldur hefðbundin en sum
hver samt prýðilega skrifuð. Tón-
skáldin kváðust ekki vilja fylgja
„framúrstefnu" í tónsmíðum sínum
heldur leitast við „að vera heiðarleg
gagnvart sjálfum sér“. Þetta er vit-
anlega gott og blessað svo langt sem
það nær en stílbrögðin má þó trúlega
frekar rekja til einangmnar og
ókunnugleika á sviði nútímatónlistar
en sérstakra heimspekilegra við-
horfa.
Sagtf ró
UNM-hátíðinni
í Stokkhólmi
dagana 23.-28.
október sl.
Emmanuel Nunes
Indjánar í Amazón
Þrátt fyrir að íslendingar hafi
verið iðnir við að semja fyrir kóra
áttu þeir ekkert verk á tónleikum sem
Kammerkór Tónlistarháskólans
gekkst fyrir í skólanum. Kórinn flutti
þar m.a. „La Ceremonie du Kuarup"
eftir Norðmaftninn Peter Tornquist
þar sem hann reynir að vekja tilfinn-
ingu fyrir trúarathöfnum Kuarap-
indjána í frumskógum Amazón.
(Þess má geta að tónskáldið er fætt
í Brasilíu.) Sumir létu í ljós ánægju
með þetta verk en aðrir bentu á að
Norðmenn — og Svíar jafnvel líka —
þyrftu sífellt að leita uppi fjarskyld
fyrirbæri hinum megirí á hnettinum
til þess að koma einni nótu á blað.
Væri serimónía Péturs skólabókar-
dæmi um þessháttar vinnubrögð.
Hljómsveit Tónlistarháskólans lét
heldur ekki sitt eftir liggja á hátíð-
inni og flutti nokkur hljómsveitar-
verk á sérstökum tónleikum á sama
stað í skólanum. Hún lék hljómsveit-
arverkið „Terta“ eftir Eyþór Arnalds
undir stjórn Gary Berkson og gerði
það prýðilega. Þá lék hún athyglis-
verðan „Ástarsöng" (Lovesong) fyrir
selló, gítar og hljómsveit eftir Dan-
ann Sven Hvidtfeld Nielsen, en hann
kvaddi nú UNM-hátíðina eftir
margra ára forystu fyrir hönd dönsku
tónskáldanna. Annað ágætt verk á
tónleikunum var hljómsveitarverk
kennt við gríska guðinn Janus eftir
Norðmanninn Edvin Ostergaard.
Bryndís í beinni útsendingu
Á miðri hátíðinni vom haldnir
tvennir tónleikar í Menningarhöll
Stokkhólms (Kulturhuset) og vom
þrjú íslensk verk fluti á þessum tón-
leikum, tvö á þeim fyrri en. eitt á
þeim síðari. Fyrst í röðinni var
„Triptych for trio“ eftir Eirík Öm
Pálsson. („Triptych" táknar þrískipta
altaristöflu.) Þrjár sænskar stúlkur
sáu um flutninginn og var hann held-
ur daufur. Hildigunnur Halldórsdótt-
ir vann hins vegar hug og hjörtu
áheyrenda með afbragðs frammi-
stöðu þegar hún íék „Chaque pas“
eða „Sérhvert skref“ fyrir einleiks-
fiðlu eftir Gunnstein Olafsson. Þá
var Bryndís Gylfadóttur klappað lof
í lófa þegar hún flutti „Eter“ fyrir
einleiksselló eftir Hauk Tómasson í
beinni útsendingu í sænska útvarp-
inu á síðari tónleikunum. Létu marg-
ir að því liggja að „Ether“ hefði ver-
ið meðal albestu verka á hátíðinni.
Tónlistardögum norrænna tón-
skálda í Stokkhólmi lauk með kamm-
ertónleikum í sænska útvarpinu. Þar
var m.a. flutt Millispil eftir Atla Ing-
ólfsson og sá Myntet-kammersveitin
um flutninginn undir stjóm sænska
slagverksleikarans og stjórnandans
Anders Lougin. Verkinu var mjög
vel fagnað og þótti fjöður í hatt
íslensku þátttakendanna. Einnig ber
að geta tónverksíns „Mortvez" eftir
mjög ungt og efnilegt danskt tón-
skáld, Martin Palsmar. Hann er að-
eins 19 ára en hefur þegar til að
bera óvenju þroskaða sköpunargáfu.
Martin er líklegur til þess að verða
kunnasta tónskáld Norðurlanda þeg-
ar fram líða stundir.
Kvöldverður með
Emmanuel Nunes
Sá háttur hefur jafnan verið hafð-
ur á að bjóða kunnu tónskáldi á UNM
til fyrirlestrahalds og kynningar á
vérkum sínum. Svíar buðu portú-
galska tónskáldinu Emmanuel Nunes
að vera gestur hennar að þessu sinni.
Tónskáldið flutti tvo fyrirlestra um
nútímatónsmíðar sem hvor um sig
þóttu mjög merkilegir. Á lokatónleik-
unum var jafnframt flutt kammer-
verk eftir hann sem ber heitið „Om-
ens 11“ og vakti það verðskuldaða
athygli. Emmanúel er 48 ára, búsett-
ur í Þýskalandi en starfar jafnframt
í París þar sem hann stundaði áður
nám. Islensku þátttakendunum þótti
mikið til meistarans koma og buðu
honum út að borða síðasta kvöld
hátíðarinnar. Þar var haldið áfram
spjalli yfir indverskum hrísgijóna-
réttum um form og flækjur í tónsmíð-
um og ekki tekið annað í mál en að
öll merkustu verk tónskáldsins yrðu
flutt innan tíðar á íslandi.
Þegar á heildina er litið tókst
UNM-hátíðin í Stokkhólmi ágætlega,
a.m.k. gátu íslensku tónskáldin vel
við unað. Þau fengu öll verk sín flutt
og yfirleitt vora þau mjög vel leikin.
Hlutlausir aðilar sem fylgdust með
hátíðinni sögðu reyndar að finnsku
og íslensku verkin hefðu skarað
framúr án þess að hér skuli nokkurt
mat á það lagt. Finnarnir vom óvenju
fáliðaðir á þessari hátíð og sum bestu
tónskálda þeirra af yngri kynslóðinni
eins og Jukka Koskinen og Ari Vakk-
ileinen létu ekki sjá sig. Danir sýndu
góða spretti inn á milli og virðast
vera í sókn. Norðmenn vöktu hins
vegar enga sérstaka athygli í Stokk-
hólmi — svo ekki sé minnst á gest-
gjafana, sem áttu langflest verkin á
hátíðinni og þau langiélegustu. Það
er með ólíkindum hvað Svíar em illa
á vegi staddir í tónsköpun sinni —
eins og einn þeirra lýsir reyndar best
Gary Berkson
sjálfur í efnisskrá: „í verki mínu
fékkst ég við mismunandi stíl innan
ákveðins stíls.“ (This composition is
a study of the personal styles within
a personal style.) Var nema von að
sumir teldu sænska tónlist ekki nema
smjör með smjöri? '
Að ári verður UNM haldið í Hels-
inki og hafa Finnar þegar kynnt
helstu drög að hátíðinni. Síðast þeg-
ar hátíðin kom í þeirra hlut gleymdi
þessi mesta tónlistarþjóð Norður-
landa að halda hana en nú hafa þeir
lofað bót og betmn og stefnir allt í
að næsta UNM-hátíð verði ein hin
veglegasta frá upphafi. íslensk tón-
skáld eru hér með hvött til þess að
láta hendur standa fram úr ermum
og senda inn verk hið fyrsta.' Til
mikils er að vinna.
ELAAC
1989
Stórar samsýningar myndlist-
argallería eru orðinn árlegur
viðburður í fjöldamörgum lönd-
um. Vafalítið eru „Kunstmesse"
í Köln í Þýskalandi og Art Basel
í Sviss þekktustu fyrirbærin af
þessari gerð sýninga, og um leið
fyrirmynd samskonar sýninga
annarra landa.
Kanadamenn eiga einnig
sína „listamessu", sem
hefur verið haldin hér í
Montreal árlega undan-
farin þijú ár, en þó í
mikið smærri mælikvarða en fyrir-
myndin í Köln.
AGACM, sem er heiti á samtök-
um galiería í Montreal sem sýna
samtímalist, stendur fyrir þessari
sýningu og voru eingöngu gallerí
úr borginni sem þátt tóku í sýning-
Verk eftir Jean-Pierre Morin, hjú
galerie d'art Lavalin.
Ljósmynd/S.Harðar
Úr Coup de Coeur, „Body trou-
bles", verk eftir Lyn Carter.
unni ef undan er skilið eitt gallerí
frá borgjnni Quebec. Samtökin voru
stofnuð í janúar 1985, og er mark-
mið þeirra að efla og hvetja sam-
timalist. Meðal verkefna þeirra er
ELAAC-sýningin og ETC Montreal,
sem er tímarit um samtímalist, gef-
ið út af AGACM. Samtökin eru
einnig að koma á fót miðstöð til
að meta listaverk sem bæði almenn-
ingur og stofnanir hafa aðgang að.
Sýning þessi er heilmikið fyrirtæki
og hefði ekki orðið að veruleika ef
ekki hefði komið til ríflegur ríkis-
styrkur.
Galleríeigandinn John Daniel
sem er einn af framkvöðlum þess-
ara samtaka kvað þessa sýningu
mjög mikilyæga fyrir myndlistarlíf
borgarinnar og að forráðamenn
sýningarinnar bindu vonir við að
sýningin ætti eftir að vaxa að um-
svifum á komandi árum og ná til
gallería frá öllu landinu og jafnvel
til erlendra gallería.
Annað markmið AGACM með
þessari samsýningu var að styrkja
stofnun geðveikra með tveimur sér- •
stökum verkefnum. Hið fyrra er
»»* liftltllil Ítt ilU £4iU lit I