Morgunblaðið - 18.11.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.11.1989, Blaðsíða 7
ííSfíI H38MMVCrfl..8I HUOAQHAOUAI GIGAU8VIU0H0M H í) MORGUNBLAÐÍÐ LAUGARDAGUR 18'.'nÓVÉMBER 1989 ......................... ~" B 7 Fyrstu tónleikar Elsu Waage á íslandi ISUNSKA ÓPERAN Elsa Waage kontralt söngkona heldur tónleika í íslensku óper- unni í dag, laugardaginn 18. nóvember. Þetta eru fyrstu tónleik- ar Elsu hér á landi, en hún hefúr komið fram á fjölmörgum tón- leikum í tengslum við nám sitt í Bandaríkjunum síðustu fimm árin. Núna er ég er í eink- atímum í New York hjá þekktum kennara sem heitir Michael Trimble,“ sagði Elsa þegar blaðamaður hafði samband við hana fyrir tónleikana. „Ég er búin að vera hjá honum í eitt og hálft ár, en þar áður var ég við nám við háskólann í Washington. I almennri tónlistarfræði, með rödd sem aðalhljóðfæri.“ Elsa heldur aftur út í janúar þar sem hún hyggst halda áfram söngnáminu í að minnsta kosti hálft ár enn. En hvers vegna kem- ur hún heim núna til að halda tónleika? „Mér fannst kominn tími til að ég kynnti mig hér heima. Á með- an ég var í háskólanum hélt ég tvo einsöngstónleika auk þess sem ég kom fram á tónleikum með kórum og ég er einnig búin að koma fram á mörgum tónleikum í New York.“ Hjá Trimble segist Elsa vera að læra söngtækni og óperuhlut- verk. „Trimble er söngstjóri fyrir fólk eins og mig,“ segir hún. „Hann setur upp óperur á þriggja mánaða fresti, í konsertformi, þar sem nemendur koma fram. Það hjálpar manni mikið, því það er allt annað að koma fram en syngja í tímum.“ Síðastliðið vor kom Elsa Waage fram á tónleikum hjá félaginu American-Scandinavian og í kjöl- farið hlaut hún. styrk frá félaginu. Hún hefur einnig fengið viður- kenningu fyrir söng á verkum Sibeliusar, sem veitt er af forseta American Sinfony Orchestra. Aðspurð hvað tæki við í fram- tíðinni, sagðist Elsa stefna að því að syngja óperur. „Ég er með djúpa og stóra rödd, en það er sagt að þær verði betri eftir því sem þær eldast. Það eru því nokk- ur ár þangað til ég get farið að njóta mín í stærri óperuhlutverk- um. Þangað til ætla ég að syngja það sem ég er tæknilega fær um, eins og ljóðasöng og kannski smærri óperuhlutverk.“ Umboðsmaður Kristjáns Jó- hannssonar hefur fylgst með Elsu og hefur áhuga á að fá hana til að syngja fyrir sig. Elsa segir að það verði bara að ráðast hvort eitthvað komi út úr því, en ann- ars sé hún að hugsa um að færa sig um set,. til Þýskalands eða Italíu og syngja fyrir þarlenda umboðsmenn, þegar hún hættir í einkatímunum á vori komanda. Á tónleikunum í íslensku óper- unni í dag ætlar Elsa Waage að syngja verk eftir Bach, Brahms, Strauss, Bowles, Bizet, Sibelius og Grieg ásamt íslenskum söngv- um. Undirleikarar Elsu eru John Walter á píanó og Malgorzata Kiziemska Slawek á selló. Tón- leikarnir hefjast klukkan 16. MEO Fró galleríi Michel Tetreault art contemporain. Verk eftir Jean-Pierre Morin, hjó galerie d'art Lavalin. nota Yves St-Laurent snyrtivörur sem miðil. Verk þessi eru einskonar happdrættisvinningar, og kostar miðinn í happdrættinu 1000 dala framlag í styrktarsjóðinn. Mark- miðið með þessu framtaki er að standa undir byggingarkostnaði við miðstöð fyrir rannsóknir á geð- veiki, og á sú miðstöð að bera heit- ið „Centre de recherche Fernand- Seguin“. Seinna verkefnið nefnist „Art Brut“, — Hrá list. Þessi annar hluti leggur áherslu á list í sinni frum- stæðu mynd. í þessum hópi eru sextíu verk gerð sérstaklega fyrir þetta tækifæri af sjúklingum Louis H. Lafontaine sjúkrahússins. Þessi samantekt var gerð í samvinnu við sýningarnefnd ELAAC og Guido Molinari sem vann náið með sjúkl- ingunum á meðan á vinnu þeirra stóð. Þess má geta að Guido Molin- ari er einn af þekktari myndlistar- mönnum Montrealborgar af eldri kynslóðinni. Það var lítið um stórstjömur úr Sigrún Harðar skrifar f rú Montreal kallað ,-,Á l’ombre du génie“, — í skugga snillingsins, og felur það í sér málverk, skúlptúra, ljósmyndir og verk unnin með blandaðri tækni eftir hóp myndlistarmanna sem alþjóðlega myndlistarheiminum á myndlistarmannaskrám gallerí- anna, enda flögguðu þau flest sínu fólki, sem er í allflestum tilfellum myndlistarmenn búsettir hér í Qu- Úr Coup de Couer, „ón titils", verk eftir Denise Dumas. ebec fylki. Gallerí Esperanza, gall- erí John A. Schweitzer og gallerí Waddington og Gorce voru undan- tekningar að þessu leyti og var á þeirra listum að finna nokkur heimsfræg nöfn s.s. Nam June Pa- ik, Georg Baselitz, Frank Stella, Roy Lichtenstein, Karel Appel, Richard Serra og Christo án þess þó að gera þeim nánari skil á sýn- ingunni, ef undan er skilin ein teikn- ing eftir Christo. Það þykir góður siður á svona sýningu að hafa einskonar sjálf- stæða sýningu samtíðarlistar, óháða galleríum með í floti og hér bar sá hluti þessarar listamessu heitið „Coup de coeur“, — Að grípa andann á lofti. Sýningu þessa setti saman Michel Groleau, listráðu- nautur og fyrrverandi galleríeig- andi, heiðursmeðlimur AGACM. Hann segir í sýningarskrá, að til- gangurinn með þessu vali sínu væri að kynna lítt þekkta myndlistar- menn, sem ekki væru kynntir á vegum gallería og hverrra verk hefðu hrifið sig. Þessir listamenn væru harla ólíkir og því ekki ein ákveðin lína í þessari sýningu enda teldi hann styrk í því að sýna eins- konar þverskurð af því sem væri að gerast meðal ungra listamanna. Það sem vakti athygli undirrit- aðrar við þetta val var, að hlutfall kynjanna hafði snúist við frá því sem við eigum að venjast á samsýn- ingum samtíðarinnar og var þarna að finna verk eftir átta konur og aðeins tvo karlmenn. Það sem gerir þessa Montreal listamessu frábrugðna þeim lista-. messum evrópskum sem undirrituð hefur sótt er sú einlægni sem ein- kenndi framsetningu sýningarinn- ar. Að efla sjóð til líknarmála var mikilvægur hluti sýningarinnar. Harla undarlegt er að slík styrktar- starfsemi fari fram undir sama þaki og listamessa gallería sem hafa sölumennsku að markmiði, en um leið ákaflega heillandi einlægni sem sýnir kannski best að þessi borg á þó nokkra sérstöðu á mark- aði listanna því mannlega þættinum hefur ekki verið kastað út fyrir peningavélina. Einnig að í stað þess að sýna verk þekktustu listamanna borgarinnar saman í sérstöku vali þá voru grafnir upp lítt þekktir myndlistarmenn og er það töluvert framtak sem þarf til þess að setja saman slíka sýningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.