Morgunblaðið - 19.11.1989, Blaðsíða 1
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
n
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1989 BLAÐ JLr
INNIIA UGL ÝSINC 7/\R
Umboðsmaður
óskast á Hellissand til þess að sjá um dreif-
ingu til áskrifenda.
Upplýsingar í síma 93-66840 eða 91-83033.
flltfgtiiifrljiMfe
ÚTFLUTNINGSRAÐ ÍSIANDS ///
EXPORrCOUNCILOF ICEIAND fffffÉ'/SLENSKT
LAGMÚLI5 128REYKJAVÍK S-688777 MmM VEÍTÁ GOTT
Útflutningsráði íslands hefur verið falið að
ráða tvo
markaðsstjóra
fyrir tvö útflutningsfyrirtæki, annað í iðnaði,
hitt í matvælaframleiðslu. Starfssvið mark-
aðsstjóranna felst í að móta stefnu í mark-
aðsmálum fyrirtækjanna og vinna að fram-
gangi hennar, m.a. með gerð markaðsáætl-
ana, skipulegu samstarfi við viðskiptavini og
gerð kynningarefnis.
Hér er um að ræða skemmtileg og krefjandi
störf og fylgja þeim nokkur ferðalög innan-
lands og erlendis. Góð laun eru í boði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun í við-
skiptafræði eða rekstrarhagfræði og reynslu í
markaðsstörfum. Góð kunnátta í ensku og
Norðurlandamálum er nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir sendist Útflutningsráði
fyrir 1. des. nk. Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Höskuldsson í síma 688777.
Útflutningsráð Islands er samtök útflytjenda. Markmið þess er að
kynna ísland og íslenskar vörur erlendis og vinna að vaxandi út-
flutningi landsmanna. Útflytjendum er veitt ráðgjöf og aðstoð við
markaðssetningu og sýningarþátttöku.
„Au pair“ - Svíþjóð
Óska eftir „au pair“ á heimili í Malmö frá
janúar 1990 í 7-8 mánuði. Þarf að gæta
tveggja barna. Má ekki reykja.
Upplýsingar í síma 622294 eftir kl. 19.00.
í starfi hjá öðrum
meðeigin umboð
Fjárhagslega sterk heildverslun, með þekkt
umboð, vill komast í samband við aðila, sem
getur notfært sér þá góðu aðstöðu, sem
fyrirtækið hefur upp á að bjóða og sinna sínu
eigin umboði ásamt því að starfa fyrir fyrir-
tækið sem starfsmaður.
Tilvalið tækifæri fyrir þá, sem eru orðnir
þreyttir á að starfa einir og vilja komast
að hjá góðu og traustu fyrirtæki.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
okkar. Margir möguleikar eru fyrir hendi.
Gijðnt Tónsson
Umboðsmaður
óskast á Kópasker til þess að sjá um dreif-
ingu til áskrifenda.
Upplýsingar í síma 96-52187 eða 91-83033.
fltargnttfybiMfe
Trésmiðir
Vantar nú þegar nokkra trésmiði. Góður
aðbúnaður á vinnustað.
Upplýsingar í símum 84542 og 685583 frá
kl. 9-17 virka daga.
KAÐQÖF fr RAÐN I NGARh)ON USTA
TjARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
VERKTAKI BÍLDSHÖFÐA 16, 112 REYKJAVÍK
SÍMAR: (91 >-674095 & (91 >-685583
Bókavörður á
Sauðárkróki
Starf bókavarðar og forstöðumanns við Hér-
aðsbókasafn Skagfirðinga á Sauðárkróki er
laust til umsóknar. Laun samkvæmt kjara-
samningum Starfsmannafélags Sauðár-
krókskaupstaðar.
Umsækjandi skal hafa menntun í bókasafns-
fræði og skulu skriflegar umsóknir með upp-
lýsingum um nám og fyrri störf berast til
stjórnar Safnahúss Skagfirðinga á Sauðár-
króki fyrir 30. nóvember 1989. Nánari upplýs-
ingar veitir bókavörður í síma 95-35424.
Stjórn Safnahúss Skagfirðinga,
Safnahúsinu,
550 Sauðárkróki.
SVÆÐISSTJORN MALEFNA FATLAÐRA
VESTURLANDI
Forstöðumaður
óskast
Svæðisstjórn Vesturlands óskar að ráða for-
stöðumann við dagvistun fyrirfatlaða á Akra-
nesi. Um er að ræða heila stöðu eða hluta-
starf frá og með áramótum.
Umsækjendur þurfa að hafa menntun á sviði
uppeldismála og reynsla er æskileg.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknarfrestur rennur út 8. des. nk.
Frekari upplýsingar veitir Eyjólfur í síma
93-71780 á skrifstofutíma.
jr
Utvarpsstöð
óskar eftir vönu fólki í auglýsingasölu. -
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
þriðjud. 21. nóv. merkt: „Útvarp - 5797“.
Vélaviðgerðir
Matvælafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir að ráða starfsmann til vélavið-
gerða nú þegar.
Æskilegt er að umsækjendur séu vélvirkjar,
járniðnaðarmenn eða hafi sambærilega
menntun. Reynsla af vélaviðgerðum skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember
nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysmga- og ráðnmgaþjónusta
Lidsauki hf.
Skotavórðustig ta - 707 Reykjavik -Sími 621355
Sjúkraþjálfara vantar
Frá næstu áramótum vantar sjúkraþjálfara á
Endurhæfingastöð þroskahjálpar í Keflavík.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Pálsson,
sjúkraþjálfari, í síma 92-13330 og 92-15036
á kvöldin.
„Au pair“ - London
Óskum eftir „au pair“ plús í janúar til sex
mánaða eða meira. Ekki yngri en 18 ára.
Má ekki reykja. Létt húsverk og gæta 2ja
ára drengs.
Upplýsingar í síma 91-656474 eftir kl. 18.00.
Herbergisþernur
Hótel í borginni vili ráða herbergisþernur til
starfa strax. Eingöngu er um að ræða dag-
vinnu.
Umsóknir, merktar: „H - 7785“, sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir þriðjudagskvöld.
St. Fransiskuspítalinn -
Stykkishólmi
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar til starfa strax.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
93-81128.
Bifvélavirkjar
Bifreiðaumboð óskar eftir að ráða bifvéla-
virkja.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 24.
nóvember merkt: „B-79“.
Öllum tilboðum verður svarað.
Stöðvarstjóri
ísþór hf., fiskeldisstöð
óskar eftir að ráða stöðvarstjóra í seiðastöð.
Reynsla og þekking á seiðaeldi nauðsynleg.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 98-33501.