Morgunblaðið - 19.11.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.11.1989, Blaðsíða 4
4 D MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1989 ATVINNU\AUGL YSINGAR LANDSPITALINN Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar athugið! Nú vantar hjúkrunarfræðinga á lyflækningadeild 11-A og taugalækningadeild 32-A. I boði er fullt starf eða hlutastarf. Starfsþjálfunarnámskeið fyrir nýráðna hjúkrunarfræðinga hefst í lok janúar. Deildirnar bjóða upp á mjög áhuga- samt og fjölbreytt hjúkrunarstarf. Einstak- lingsbundin aðlögun í boði. Sjúkraliðar óskast á lyflækningadeild 11-A og tauga- lækningadeild 32-A á allar vaktir eða nætur- vaktir eingöngu. Aðlögunartími með reynd- um starfsmanni. Mjög fjölbreytt og áhuga- vert starf. Stærðir deilda mismunandi. Upplýsingar um ofangreind störf gefur Laufey Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 601290 eða 601300, eða hjúkrunardeildarstjórar á viðkomandi deild, 11-As. 601232, 32-A s. 601653. Reykjavík, 19. nóvember 1989. Lausar eru til umsóknar tvær stöður aðstoð- arhjúkrunardeildarstjóra. Á Kristnesspítala fara nú fram miklar endur- bætur og uppbygging endurhæfingadeildar. Kristnesspítali er aðeins í 10 km fjarlægð suður af Akureyri í sérlega fögru umhverfi. Þeim starfsmönnum, sem búsettir eru á Akureyri, er séð fyrir akstri í og úr vinnu. íbúðarhúsnæði og barnaheimili til staðar. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-31100. Kristnesspítali. Vantar þig vanan stjórnanda í stuttan tíma? Eru vandamál í rekstri fyrirtækisins þíns á sviði skipulagninar, fjármála eða markaðs- mála? Þarfnast þú aðstoðar reynds stjórn- anda í stuttan tíma eða hluta úr degi við lausn þessara vandamála? Við útvegum þér reyndan stjórnanda, sem veitir þér tíma- bundna aðstoð með aðsetri í fyrirtækinu. Þráinn Þorvaldsson, ráðgjafaþjónusta, Suðurlandsbraut 22, Reykjavík, sími 68-50-28. 721 Afgreiðslufulltrúi Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir að ráða afgreiðslufulltrúa. Starfið felst einkum í móttöku viðskiptavina og símavörslu. Umsóknarfrestur er til 1. des. nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi á félags- málastofnun, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 45700 á milli kl. 11.00 og 12.00. Félagsmálastjóri. !|| BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Staða deildarstjóra á göngudeild HNE, Borgarspftala, er laus til umsóknar. Hæfniskröfur: Víðtæk, fagleg þekking ásamt reynslu og/eða menntun í stjórnun. Staðan veitist frá og með 1. janúar 1990, eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 10. desember 1989. Nánari upplýsingar gefur Margrét Björns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696354. Atvinna Óskum að ráða nú þegar: A. Starfsfólk á bræðsluvélar, Skúlagötu 51. B. Starfsfólk í gúmmívettlingaframleiðslu, Súðavogi 44-48. Örugg atvinna - bónuskerfi, sem gefur góða tekjumöguleika - starfsþjálfun fyrir nýja og óvana starfsmenn. Hafið samband við verkstjóra okkar, Skúla- götu 51. 6ÓPN SEXTÍU OG SEX NORDUR Sjóklæðagerðin hf., ^ Skúlagötu 51, - v/Skúlatorg, ReykjavJk. Sími 11520. Lögfræðingar Við erum að leita eftir lögfræðingi sem vill hefja sjálfstæðan rekstur í bæjarfélagi á landsbyggðinni, jafnt við almenn lögfræði- störf sem fasteignasölu. Hafir þú áhuga á málinu biðjum við þig að senda uppl. til auglýsingadeildar Mþl. merkt- ar: „D - 4116“, fyrir 24.- þ.m. Farið verður með allar uppl. sem trúnaðarmál. Sölumenn athugið Óskum eftir að ráða duglegt og gott sölu- fólk til starfa í tímabundið verkefni. Mjög seljanleg vara - góð sölulaun. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl. merkt: „T - 1110“ sem fyrst. Frá gagnfræðaskól- anum á Sauðárkróki LANDSPÍTALINN Aðstoðarlæknir Ein staða 2. aðstoðarlæknis við Barnaspítala Hringsins er laus frá 1. febrúar 1990. Staðan veitist í 6 mánuði. Verksvið: Almenn störf aðstoðarlæknis, þátttaka í vöktum sam- kvæmt fyrirfram gerðri áætlun. Bundnar vaktir. Upplýsingar gefur Víkingur H. Arnórsson í síma 601050. Umsóknir á umsóknareyðu- þlöðum sendist forstöðulækni, Víkingi H. Arnórssyni, fyrir 15. desember nk. Aðstoðarlæknir Ein staða aðstoðarlæknis við kvennadeild er laus frá 1. janúar 1990. Staðan veitist í 6 mánuði, möguleiki er á framlengingu. Upplýsingar veitir Jón Þ. Hallgrímsson í síma 601183. Umsóknirsendist Jóni Hallgrímssyni fyrir 10. desember nk. Meinatæknir óskast nú þegar á hjartarannsóknadeild. Um er að ræða afleysingastöðu í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Náms- staða kemur einnig til greina. Vinnutími er frá kl. 8.00 til 16.00. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Bjarnadótt- ir, deildarmeinatæknir, í síma 601271. Reykjavík, 19. nóvember 1989. RÍKISSPÍTALAR Aðstoðarmenn óskast til starfa við endurhæfingadeild Kópavogshælis eftir áramót. Æskilegt að umsækjandi hafi einhverja menntun eða reynslu í umönnun fólks á sjúkrastofnun, þó ekki skilyrði. Um dagvinnu er að ræða. Nánari upplýsingar veitir Guðný Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálfari, í síma 602725 eða 602700 milli kl. 10.00 og 15.00 virka daga. Aðstoðarmaður við líndreifingu Starf starfsmanns við líndreifingu á Land- spítala er laus frá 1. desember nk. Um er að ræða 75% starf og felst í frágangi á líni á sjúkradeildum. Upplýsingar veitir Anna Stefánsdóttir, hjúkr- unarframkvæmdastjóri, í síma 601366 og 601300. Aðstoðarmenn Frá næstu áramótum vantar kennara í al- menna kennslu í 6. bekk og enskukennslu í 9. bekk. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 95-35382 eða hs. 95-36622 og yfirkennari í síma 95-35385 eða hs. 9535745. Skólastjóri. Leiklistarskóli íslands auglýsir eftir tæknimanni Gott tækifæri fyrir leikhúsáhugamann. Starf- ið felst m.a. í smíðum og ýmiss konar leik- hússtæknivinnu. Laun samkvæmt launa- flokki opinberra starfsmanna. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „L-2140" fyrir miðvikudaginn 22. nóvember. Röntgendeild Landspítala óskar að ráða starfsmenn til að flytja sjúklinga milli rönt- gendeildar og sjúkradeilda. Störfin verða veitt frá 1. janúar ’90. Boðið er upp á aðlög- un ítværvikur. Laun samkvæmt launakjörum opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar veitir Nanna Friðgeirs- dóttir, hjúkrunarstjóri, í síma 601080. Reykjavík, 19. nóvember 1989. Ritari Lögmannsstofa óskar að ráða ritara sem fyrst hálfan eða allan daginn. Góð íslensku- og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Nokkur reynsla við tölvur æskileg. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 24. nóvember nk. merkt: „Areiðanleg - 14112“. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.