Morgunblaðið - 19.11.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1989
D 3
ATVIN N 1MA UGL YSINGAR
ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Hafnarbúðir
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á 60%
næturvaktir. Deildarstjóralaun. Einnig vantar
okkur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á aðr-
ar vaktir.
Nánari upplýsingar gefur deildarstjóri í síma
14182.
Ferskfiskseljendur
Við erum fyrirtæki í örum vexti á norðaustur-
horni Englands og verslum með ferskan fisk.
Við viljum gjarnan stofna til reglubundinna
viðskipta við aðila sem selja ferskan fisk á
Englandsmarkað.
Æskilegar fisktegundir: Þorskur, ýsa, koli,
sólflúra (Lemon Sole) og þorskhrogn. Einnig
höfum við áhuga fyrir heilfrystum þorski,
ýsu, steinbít o.fl. úr frystitogurum.
Hafið samband við okkur í síma 9044-91-
2590762 eða á faxi 9044-91-2970327.
Mr. G. McCall - Mr. E.O. Jepsen.
Sölumaður
Hress og kraftmikill sölumaður óskast til
starfa í tölvuverslun. Einhver þekking á tölv-
um æskileg en góðir sölueiginleikar vega
meira. Þarf að geta hafið störf strax.
Umsóknum skal skila á auglýsingadeild Mbl.
eigi síðar en þriðjudaginn 21. nóvember
merktum: „Sölumaður - 9924“.
Lögmannsstofa
óskar að ráða starfsmann til vinnu við al-
menn skrifstofustörf. Leitað er að verslunar-
menntuðum starfsmanni með starfsreynslu
á því sviði, sem getur unnið sjálfstætt og
er með góð tök á einu Norðurlandamálanna,
ensku og þýsku.
Umsóknum með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf skal skilað inn á aug-
lýsingadeild Mþl. fyrir 24. nóvemþer nk.
merktum: „L - 7158“.
Starfskraftur óskast
til skrifstofustarfa
hjá meðalstóru iðnfyrirtæki á Reykjavíkur-
svæðinu. í starfinu felast öll almenn störf á
skrifstofunni. Bókhaldsþekking nauðsynleg.
Enskukunnátta æskileg. Umsækjandi þarf
að geta unnið sjálfstætt.
Áhugasamir vinsamlega leggi nöfn sín inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 24. þm. merkt:
„Vesturbær - 6201“.
Flokksstjóri
Búvörudeild Sambandsins óskar að ráða í
starf flokksstjóra í Kjötiðnaðarstöð.
Flokksstjórinn annast daglega stjórnun í sölt-
unar- og suðudeild.
Umsækjandi verður að vera lærður kjötiðn-
aðarmaður, vanur verkstjórn og hafa kunn-
áttu til að leiðbeina öðrum.
Væntanlegir umsækjendur eru beðnir að
snúa sértil starfsmannaþjónustu Sambands-
ins, 5. hæð í Sambandshúsinu, Kirkjusandi.
$ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
STARFSMANNAÞJÓNUSTA
Sunnuhlíð
Barnaheimili
Starfsstúlkur vantar á barnaheimti Sunnuhlíðar.
Þetta er lítið og notalegt barnaheimili, aðeins
ein deild. Um er að ræða 60% starf eftir
hádegi, einnig í afleysingar.
Upplýsingar gefur Valborg í síma 604166.
Fóstrur-
forstaða dagheimilis
Njarðvíkurbær auglýsir eftir fóstru í starf
forstöðumanns á dagheimilið Holt.
Upplýsingar veitir undirritaður í síma
92-16200.
Félagsmálastjórinn í Njarðvík.
íþróttafélag-
framkvæmdastjóri
íþróttafélag á Stór-Reykjavíkursvæðinu
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra sem
fyrst.
Framkvæmdastjórinn er ábyrgur fyrir dagleg-
um rekstri félagsins, hefur yfirumsjón með
skipulagningu fjáröflunar og tekur þátt í félags-
legri uppbyggingu.
Skriflegar umsóknir ertilgreini aldur, mennt-
un og starfsreynslu, leggist inn á auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 30. nóvember merktar: „í-
1909“.
Rafeindavirkjar -
siglingatækjamenn
Okkur vantar mann á radíóverkstæði okkar.
Verksvið er almennar tækjaviðgerðir og við-
gerðirá skrifstofuvélum, Ijósritunarvélaro.fl.
Einnig vantar okkur traustan mann til við-
gerða á siglingatækjum og öðrum skyldum
búnaði í skipum.
Greiddur verður flutningskostnaður búslóðar
og aðstoðað við útvegun á húsnæði, ef þörf
er á.
Upplýsingar gefur Guðjón Bjarnason, deild-
arstjóri, ívs. 94-3092, hs. 94-3703 eða Óskar
Eggertsson, framkvæmdastjóri, í vs.
94-3092, hs. 94-3082.
Póllinn hf., Aðalstræti 9-11,
400 ísafirði, sími 94-3092.
Forstöðumaður
leikskóla
Staða forstöðumanns við leikskólann Kópa-
stein við Hábraut er laus til umsóknar frá
1. janúar nk. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember nk.
Upplýsingar um starfið veitir dagvistarfulltrúi
í síma 45700.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á félagsmálastofn-
un Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Auglýsing
um lausar stöður heilsugæslulæknis
og sjúkrahússlæknis í Stykkishólmi
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
auglýsir lausa stöðu heilsugæslulæknis í
Stykkishólmi og St. Franciskusspítali í Stykk-
ishólmi auglýsir lausa stöðu sjúkrahússlækn-
is.
Laus er til umsóknar önnur staða læknis við
heilsugæslustöðina í Stykkishólmi frá og
með 1. febrúar 1990. Umsóknir ásamt ítar-
legum upplýsingum um læknismenntun og
læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir 15.
desember 1989 á sérstökum eyðublöðum,
sem þar fást og hjá landlækni. í umsókn
skal koma fram hvenær umsækjandi getur
hafið störf. Æskilegt er að umsækjendur
hafi sérfræðileyfi í heimilislækningum og
reynslu í svæfingum.
Laus er til umsóknar frá og með 1. janúar
1990 staða sjúkrahússlæknis við St. Fran-
ciskusspítla í Stykkishólmi. Umsóknir ásamt
ítarlegum upplýsingum um læknismenntun
og læknisstörf sendist stjórn spítalans fyrir
15. desember nk. Umsækjendur skulu hafa
sérfræðileyfi í skurðlækningum eða í kven-
lækningum.
í báðum tilvikum er húsnæði til staðar.
Nánari upplýsingar um stöðu heilsugæslu-
læknis veita ráðuneytið og landlæknir og um
stöðu sjúkrahússlæknis, framkvæmdastjóri
St. Franciskusspítala, Stykkishólmi.
14. nóvember 1989.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Stjórn St. Franciskusspítala, Stykkishólmi.
Afgreiðsla -
viðgerðir
Vantar laghentan og vandvirkan mann í af-
greiðslu, viðgerðir o.fl.
Áhugasamir leggi inn umsóknir á sérstökum
eyðublöðum, sem liggja frammi í verslun-
inni, fyrir miðvikudaginn 22. nóvember nk.
Reyklaus i/innustaður.
Smyrill hf, varahlutaverslun,
Bíldshöfða 18,
112 Reykjavík.
Endurskoðendur
Óskum að ráða löggiltan endurskoðanda í
stöðu fjármálastjóra hjá virtu og öflugu fyrir-
tæki á fjármagnsmarkaðnum.
Starfssvið fjármálastjóra: Dagleg fjár-
magnsstýring. Gerð langtíma- og
skammtímaáætlana varðandi fjárfestingar,
rekstur, lánveitingar o.fl. Samningagerð við
erlend og inniend fjármálafyrirtæki. Rekstrar-
yfirlit og innri endurskoðun. Yfirumsjón og
stjórnun bókhaldsvinnslu. Ábyrgð á ársupp-
gjöri og gerð ársreiknings. Úrvinnsla ýmissa
upplýsinga úr bókhaldi og skýrslugerð. Fjár-
málastjóri er ábyrgur gagnvart yfirmanni fyr-
irtækisins.
Við leitum að endurskoðanda, sem hefur
nokkra reynslu, frumkvæði og lifandi áhuga
á fyrirtækjarekstri.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Endurskoðandi 3990“ eigi síðar
en 1. desember nk.
Hagva nffurhf
Grensósvegi 13 Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir