Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 2
2‘ É'
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR sUNNUDAGUR 7: JANÚAR 1990'
Af hverjn húsbréf?
Nú er fjöldi fólks sem spyr
sjálft sig þessarar spurningar og
ekki að ástæðulausu. Saman-
burður á þessum tveimur val-
kostum hefur hlotið alltof Iitla
umfjöllun og fræðslu frá hendi
þeirra sem skuldbundið hafa sig
til að veita hana.
Lítum fyrst á eðli fasteignavið-
skiptanna, hvernig þau breytast
með tiikomu húsbréfa. Fram til
15. maí 1990 hafa einungis þeir
sem eru í viðskiptum með notað-
ar íbúðir rétt á að notfæra sér
húsbréfakerfið.
Istað 75% vaxtalausrar greiðslu á
einu ári sem kölluð er útborgun
og afborgunar á fjórum árum er
nú möguleiki á að greiða 65% með
húsbréfum eða fasteignaveðbréfi
■■Ham sem skipt er út
fyrir húsbréf og
hin eiginlega út-
borgun 35% sem
greidd yrði á einu
ári svipað og 75%
útborgunin sam-
kvæmt gamla
kerfinu. Með þessu
nýja fyrirkomulagi
fá seljendur eignanna töluvert
hærra núvirði fyrir sínar eignir en
þeir hefðu fengið með óbreyttu fyr-
irkomulagi. Þetta er skýrt með eft-
irfarandi dæmi.
eftír Agnar
Koefoed Hansen
llúslriúiin
SAMKVÆMT nýjum þjóðminja-
lögum, sem gengu í gildi um ára-
mótin, skulu öll hús, sem reist eru
fyrir 1850, vera friðuð svo og allar
kirkjur reistar fyrir 1918. Tilgang-
urinn er sá, að tryggja verðveizlu
elztu húsa landsins. Þá er og eig-
endum húsá, sem reist eru fyrir
1900, gert skylt að tilkynna með
góðum fyrirvara, ef þeir hyggjast
breyta húsi sínu, flytja það eða rífa.
Dæmi:
Seld er eign á 10,0 m.kr. þar sem
engin lán eru áhvílandi. Kaupandi
greiðir með^veðskuldabréfi að upp-
hæð 6,5 m.kr. sem seljandi skiptir
út fyrir húsbréf sem seld eru á verð-
bréfamarkaðnum á genginu 0,9324
og fær þannig staðgreitt að núvirði
6.060.441,- kr. Afganginn fær
hann greiddan með jöfnum óverð-
tryggðum og vaxtalausum greiðsl-
um annan hvern mánuð í eitt ár,
merkt útborgun I, en 1.500.000,-
kr. við undirskrift. Sölulaun eru
greidd við sölu á húsbréfinu, 0,5%
af núvirði.
Með eldra fyrirkomulagi væri
sama eign seld með 6,5 m.kr. út-
borgun sem greiðist með 1,0 m.kr.
annan hvern mánuð, merkt út-
borgun II, og við undírskrift væri
greitt 1,5 m.kr. Afgangurinn yrði
greiddur með fjögurra ára skulda-
bréfi, merkt skuldabréf II, sem yrði
óverðtryggt með meðalvöxtum
samkvæmt útreikningi Seðlabanka
íslands. Þau bréf taka hins vegar
ekki afföll fyrr en ávöxtunarkrafan
er hærri en 30%.
Til þess að geta gert raunhæfan
samanburð á þessum tveimur
greiðslum þarf að meta greiðslurnar
til núvirðis. Núvirðið segir okkur
hversu mikils virði greiðslumar eru
miðað við þá vaxtakröfu sem við
gerum. Hér á eftir eru greiðslurnar
bornar saman miðað við sex mis-
munandi vaxtakröfur, 20%, 25%,
30%, 35%, 40% og 45% sem gefur
samsvarandi raunávöxtunarkröfu,
0%, 4,2%, 8,3%, 12,5%, 16,7% og
20,8% ef verðbólgan er 20% á árs-
grundvelli.
Höfimdur er deildarstjóri verð-
bréfadeildar Kaupþings.
Núvirði miðað við mismunandi ávöxtunarkröfu:
Vaxtakrafa --> 20% 25% 30%
Vaxtakrafa við sölu 6,6%.
Húsbréf 6.060.441 6.060.441 6.060.441
Sölulaun 0,5% 30.302 30.302 30.302
Staðgreitt 1.500.000 1.500.000 1.500.000
Útborgun 1. 1.800.635 1.759.441 1.720.970
Núvirði I 9.330.774 9.289.580 9.251.109
Hefðbundið fyrirkomulag við fasteignakaup:
Vaxtakrafa —> 20% 25% 30%
Útborgun II 5.401.904 5.278.324 5.162.910
Skuldabréf II 2.500.000 2.500.000 2.500.000
Staðgreitt 1.500.000 1.500.000 1.500.000
Núvirði II 9.401.904 9.278.324 9.162.910
Mismunur þessara núvirðisgreiðslna er húsbréfakerfinu í hag þegar
náð er 25% ávöxtunarkröfu.
Núvirði I-II -71.130 11.256 84.458
Lítum nú á hvað gerist með enn hærri ávöxtunarkröfu sem er frekar
í samræmi við hinn almenna verðbréfamarkað í dag.
Húsbréfafyrirkomulag:
Núvirði miðað við mismunandi ávöxtunarkröfu:
Vaxtakrafa —> 20% 25% 30%
Vaxtakrafa við sölu 6,6%.
Húsbréf 5.986.500 5.986.500 5.986.500
Sölulaun 0,5% -29.933 -29.933 -29.933
Staðgreitt 1.500.000 1.500.000 1.500.000
Útborgun I. 1.684.887 1.651.020 1.619.315
Núvirði I 9.141.454 9.107.587 9.075.882
Hefðbundið fyrirkomulag við fasteignakaup:
Vaxtakrafa —> 35% 40% 45%
Útborgun II Skuldabréf 11 Staðgreitt 5.054.829 2.378.386 1.500.000 4.953.358 2.217.711 1.500.000 4.857.870 2.075.576 1.500.000
Núvirði II 8.933.215 8.671.069 8.433.446
Mismunur þessara núvirðisgreiðslna er vaxandi eftir hakkandi ávöxtunarkröfu. húsbréfakerfinu í hag og
Núvirði I-II 208.239 436.518 642.436
Smiðjan
PeiiNlar. iTillur, málxilng
Fácin góð ráó
LESANDI góður, kannast þú við
óþægilega tilfinningu þegar þú ætl-
ar nú að vera reglulega duglegur
og mála eitt herbergi heima hjá
þér, dregur fram málningaráhöld,
pensla, rúllu og bakka, en finnur
að penslarnir eru harðir og rúllan
hefur líka verið illa þvegin, þegar
gengið var frá henni síðast eftir
notkun.
ú verður hálf aulalegur þar sem
þú stendur með áhöldin, sem
þú hélst að þú hefðir þvegið svo
vel. Hver hefur eiginlega notað þau
eftir að þú gekkst frá þeim? ■
Með hvaða efn-
um er hægt að þvo
penslana nógu vel?
Þegar notuð er
vatnsmálning er
best að nota yl-
volgt vatn og
sápu. Gæta verður
að því að draga
ekki of lengi að
þvo áhöldin, málningin þornar fljótt.
Ef maður vill forða ofþornun í
áhöldum meðan hvílst er eða borð-
að, er gott ráð að setja áhöldin í
plastpoka og loka honum, svo að
loft leiki ekki um þau á meðan.
Við þurfum að undirbúa málning-
arvinnuna:
1. Flytja húsgögn frá veggjum
og taka niður myndir.
2. Hreinsa burt lausa málningu
og veggfóður ef þörf krefur.
3. Spartla yfir sprungur og aðrar
ójöfnur.
4. Ef ætlunin er að mála yfir
pappír, veggfóður eða striga, þá er
best að bera lím yfir allan flötinn
fyrst. Það má vera útþynnt trélím
eða veggfóðurlím.
Leiðbeiningar um þetta eru yfir-
leitt prentaðar á dósirnar og sama
er að segja um grunnmeðferð nýrra
veggja.
Þegar búið er að velja liti og
kaupa málningu er hægt að hefjast
handa og byrja þá á að mála loftið.
Nauðsynlegt er að breiða blöð eða
plastdúk á gólfið og taka niður
lampa, eða a.m.k. að losa lampafæt-
ur þannig að mála megi á bak við
þá.
Ef rúllan er nýþvegin þegar mál-
að er yfir loftið, getur verið mjög
óþægilegt að mála með henni upp
fyrir sig. Það er af því að allmikið
vatn situr í rúllunni eftir þvottinn
og veldur það miklum leka bæði
niður handfangið og á gólfið.
Til að mála út í hom og kverkar
verður auðvitað að nota pensil t.d.
flatan pensil 2 til 2 ’/■<“ breiðan.
Eftir þvott á rúllu eða pensli er
nauðsynlegt að vera óspar á skol-
vatn til að skola vel úr niðurfallsrör-
inu líka. Vatn sígur best úr rúllunni
ef hólkurinn hefur verið tekinn af
henni og reistur upp á endann þar,
sem vatnið getur runnið frá honum.
Pensilinn er best að hengja upp á
skaftinu eft.ir þvottinn, þá geta
hárin verið bein og hann heldur
góðri og jafnri lögun.
Málningarlímband er nauðsyn-
legt að eiga. Það kemur sér vel
þegar málað er t.d. meðfram dyra-
karmi, gólflistum eða gluggum og
annars staðar þar sem litaskipti
eiga að vera.
Þegar sami liturinn er notaður á
veggi og loft er hægt að halda rak-
leitt áfram við að mála veggina
þegar lokið hefur verið við að mála
loftið, Sé hinsvegar verulegur lita-
munur og þú treystir þér ekki til
að strika með pensli þar sem ioft-
og veggmálning kemur saman en
ætlar þér þess í stað að nota
límband til að marka skil litanna,
þá er rétt að láta loftmálninguna
þorna í tvær stundir áður en
límbandið er sett upp.
Olíumálning —
akrýlmálning
Ef við ætlum að mála hurðir,
dyrakarma, glugga eða aðra tré-
hluti svo sem húsgögn ýmiss kon-
ar, ræð ég eindregið til þess að
nota olíumálningu. Olíumálning á
best við efniviðinn. Sé um að ræða
hráan, þ.e. omálaðan við, þá er rétt
að þynna hæfilegan hluta af máln-
ingunni fyrir fyrstu umferð. Olíu-
málning þynnist með svolítilli
hreinsaðri terpentínu. Venjulega
þarf að spartla yfir grunnmálning-
una, þ.e. þegar hún er þurr orðin.
Þegar spartlið hefur þornað vel er
pússað yfir með fínum sandpappír.
Sé flöturinn ekki nógu sléttur eftir
eina spartlumferð þarf að mála yfír
spartlið og spartla og pússa á nýjan
leik, þegar málningin er þurr. Best-
ur árangur næst ef málað er tvisv-
ar yfir seinni spartlumferð og síðan
málað yfir með lakkmálningu
síðast.
Ef við ætlum að mála yfir hús-
muni sem hafa verið olíubornir, þá
er þörf á að pússa olíuna dálítið
yfir áður en grunnmálað er.
Hreinsum áhöldin
Að lokinni notkun, megu...
ekki gleyma að þvo áhöldin vel,
hvort sem um er að ræða pensla,
rúllur, bakka eða önnur áhöld. Þessi
áhöld eru dýr og auk þess eru hrein-
ir notaðir penslar t.d. betri til notk-
unar við oliumaiun neiuur en nýir
ónotaðir penslar.
Penslar sem notaðir hafa verið í
olíumálningu verður að þvo úr terp-
entínu fyrst og síðan með góðri
sápu svo sem grænsápu eða sól-
skinssápu og vatni á eftir.
Gangi ykkur vel.