Morgunblaðið - 09.01.1990, Page 3
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞEŒUUDAGUR 9. JANÚAR 1990
B 3
HANDKNATTLEIKUR / SVÍÞJÓÐ
„ÞAÐ var sannarlega gaman
að vinna sænskan titil og ekki
skemmdi fyrir að mér gekk
mjög vel í úrslitaleiknum,"
sagði Þorbergur Aðalsteinsson
við Morgunblaðið, en hann
varð bikarmeistari með Saab í
handknattleik á laugardag, er
liðið vann Lugi 19:18 í æsi-
spennandi úrslitaleik, sem
fram fór á heimavelli Lugi í
Lundi.
orbergur gerði sjö mörk og var
óspart hrósað í sænskum íjöl-
miðlum — sigurinn sagður vera
fyrst og fremst honum að þakka.
Saab er frá Linköping og í Corre-
spondenten, útbreiddasta blaðinu
þar, er heilsíðu grein um Þorberg
og í forystugrein blaðsins er sagt
að hann sé einn af vitringunum
þremur, sem hafi komið Saab á
efsta stall.
„í guðatölu"
„Það átti enginn von á okkar
sigri og maður er nánast í guða-
tölu,“ sagði Þorbergur og bætti við
að í veðbönkunum hefði sigur Lugi
gefið 1,10 skr. fyrir hverja krónu,
en 2,50 skr. fyrir sigur Saab. Dreg-
ið var um leikstað og voru allir
áhorfendur í þéttskipaðri höll í
Lundi á bandi heimamanna.
Jafnræði var með liðunum til að
byija með, en Saab var yfir í hálf-
leik, 12:10. Lugi komst í 15:13, ,en
Saab náði aftur undirtökunum, var
yfir 17:16, 18:17 og 19:17.
„Þeir skoruðu 18. markið, er
tæpar þrjár mínútur voru til leiks-
loka og allt var á suðupunkti. Okk-
ur tókst að halda boltanum lengst
af, en mörkin urðu ekki fleiri,“ sagði
Þorbergur, sem nú leikur sitt
fimmta tímabil með Saab og hefur
átt stóran þátt í að breyta Saab
úr miðlungsliði í 1. deild í topplið
í úrvalsdeildinni.
„Toppurinn"
„Þetta er toppurinn hjá mér hér
í Svíþjóð og minnir óneitanlega á
byijun velgengnisáranna með
Víkingi fyrir 10 árum,“ sagði Þor-
bergur, en hann var í fyrsta Islands-
meistaraliði Víkings 1975 og einn
af burðarásum liðsins áður en hann
hélt til Svíþjóðar, þar sem hann
ráðgerir að ljúka háskólaprófi í við-
skiptafræði og stjórnmálum um
næstu áramót.
Saab er í 3. sæti í úrvalsdeild-
inni, en þar á eftir að leika 10
umferðir, þar af átta á næstu íjór-
um vikum. „Við stefnum á að kom-
ast í fjögurra liða úrslitakeppnina
og ef það tekst, getur allt gerst,“
sagði landsliðsmaðurinn fyrrver-
andi, sem varð síðast bikarmeistari
1984 — með Víkingi.
BADMINTON / SKOTLAND
Broddi í undanúrslit
Broddi Kristjánsson komst í undanúrslit í einliðaleik á alþjóðlegu
boðsmóti í Glasgow um helgina, en tapaði fyrir Chris Bruil frá
Hollandi, þar sem oddatölu þurfti til að skera úr um úrslit. Bruil vann
svo landa sinn, Dalm, auðveldlega í úrslitum.
Guðmundur Adolfsson keppti einnig, en tapaði fyrir Kevin Scott frá
Skotlandi í 16 manna úrslitum. í tvíliðaleik töpuðu Broddi og Guðmund-
ur fyrir skosku pari í 16 liða úrslitum.
Minnir á bytjun velgengn-
isáranna með Víkingi
- sagði ÞorbergurAðalsteinsson,
sem tryggði Saab sænska bikar-
meistaratitilinn í handknattleik
Morgunblaðið/Peter Menzel
Þorbergur Aðalsteinsson var maðurinn á bak við sigur Saab í bikarkeppninni, gerði sjö mörk í úrslitaleiknum og
er hælt á hvert reipi í sænskum fjölmiðlum.
BLAK / ÍSLANDSMÓTIÐ || HANDKNATTLEIKUR
Sigurganga meistara
Víkings stöðvuð
Islandsmeistarar Víkings í
kvennaflokki léku tvo leiki úti á
landsbyggðinni um helgina, töpuðu
fyrir KA á Akureyri og Þrótti í
Neskaupstað, en eru
Guðmundur enn í efsta sæti
Þorsteinsson kvennadeildarinnar
skritar með 12 stig eins og
KA. Víkingur hefur
unnið 22 hrinur og tapað 10, en
KA hefur unnið 20 hrinur og tapað
10.
Víkingsstúlkurnar, sem nýverið
hafa misst landsliðskonuna Bimu
Þórhallsdóttur, sem farin er utan
til náms, mættu með þunnskipað
lið í leiki helgarinnar. Lið KA, sem
hefur verið í mikilli sókn í vetur,
vann verðskuldað 3-2 (16-14, 9-15,
15-13, 10-15, 15-8) með Særúnu
Jóhannsdóttur fremsta í flokki.
Sömu úrslit urðu gegn Þrótti, þar
sem heimastúlkur unnu í köflóttum
leik (15-17, 6-15, 15-10, 11-15,
17-16).
KA átti ekki í erfiðleikum með
HK og vann 3-0 (15-6, 15*12,
15-3).
Öruggt hjá KA í karlaflokki
íslandsmeistarar KA í karla-
flokki sýndu þó nokkra yfirburði
gegn piltunum úr Kópavogi um
helgina og sigmðu HK örugglega
3-0 (15-3, 15-5, 15-11). Geir Hlöð-
versson, uppspilari, lék með HK á
ný eftir nokkurt hlé og á örugglega
eftir að styrkja liðið í komandi leikj-
um. HK er með sex stig, en KA
14 að loknum átta leikjum.
HSK gerði góða ferð til Neskaup-
staðar og vann 3-2 (15-7, 13-15,
9-15, 15-7, 15-13) í miklum bar-
áttuleik. í úrslitahrinunni komust
Þróttarar, sem söknuðu tilfinnan-
lega ívars Sæmundssonar, er á við
meiðsli að stríða, í 13-11, en tókst
ekki að ljúka dæminu og Laugvetn-
ingar fóru með sigur af hólmi.
Þeirra bestir voru Sigfinnur Vig-
gósson og Bjarki Guðmundsson.
Leik Fram og ÍS var frestað vegn
þess að láðst hafði að boða dóm-
araparið!
Sovétmenn ósigrandi?
Alexandr Tutsjkín var markahæst-
ur í úrslitaleiknum.
í kvöld
Fjórir leikir verða. í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
kvöld og hefjast allir kl. 20.
Hlíðarendi.......Valur-ÍBK
Njarðvík...........UMFN-KR
Sauðárkrókur .UMFT-Haukar
Seljaskóli.........ÍR-UMFG
Sovétmenn sigruðu á fjögurra
landa handknattleiksmóti sem
fram fór á Spáni um helgina. Liðið
vann alla sína leiki nokkuð auðveld-
lega og skoraði yfir
30 mörk í hveijum
leik. Sovéska liðið
sigraði Spánveija í
úrslitaleik mótsins,
34:31. Sviss varð í þriðja sæti og
Pólland í fjórða.
Það er samdóma álit allra hand-
knattleiksmanna hér á Spáni að
Sovétmenn eru með lang besta
handknattleikslið heims um þessar
mundir og nánast ósigrandi. Liðið
leikur eins og vel smurð vél bæði
í vörn og sókn. Hraðaupphlaup
þeirra eru sérstaklega vel útfærð
og það er ótrúlegt að sjá þessa
tveggja metra leikmenn ráða yfir
svo_ mikla hraða.
Úrslit leikjanna í móti voru sem
hér segir:
Spánn — Sviss............18:17
Sovétríkin — Pólland.....33:22
Spánn — Pólland..........24:19
Sovétríkin — Sviss..........33:22
Pólland — Sviss.............22:22
Spánn — Sovétríkin..........31:34
Úrslitaleikurinn var vel spilaður
og héldu heimamenn f við „sovéska
björninn" fram í byijun síðari hálf-
leiks. Staðan í leikhléi var 18:15
fyrir Sovétríkin sem komust síðan
í 22:15 og þá voru úrslitin ráðin.
Alexandr Tutsjkín var markahæst-
ur í úrslitaleiknum með 8/5 mörk
þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð
allan leikinn. Atavin og línumaður-
inn, Jurí Nesterof, komu næstir
með 7 mörk. Serrano var marka-
hæstur Spánveija með 8/6 mörk
og Cabanas og línumaðurinn ungi,
Luison, komu næstir með 5 mörk.
Sovétmenn voru án Alexandr
Karstsjakevítsj, sem var með
flensu.
Pólski leikmaðurinn Bogdan
Wenta var markahæsti leikmaður
mótsins og Rico, markvörður Spán-
veija, var kjörinn besti markvörður
mótsins.
FráAtla
Hilamarssyni
á Spáni