Morgunblaðið - 09.01.1990, Page 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRHXJUDAGUR 9. JANÚAR 1990
B 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 9. JANÚAR 1990
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ KARLA
Bjargvættimir
ábekknum!
JULIUS Jónasson og Guðmund-
ur Hrafnkelsson, tveir af iítt
reyndari landsliðsmönnunum,
tryggðu íslendingum sigurá
Tékkum, 21:18, íþriðja leik
þjóðanna á sunnudaginn.
Hvorugur þeirra hefur verið
fastur maður f liðinu, og reynd-
ar lengst af setið á varamanna-
bekknum, en á sunnudaginn,
og reyndar í öllum leikjunum,
sýndu þeir að þeir eiga fullt
erindi íliðið og nýttu tækifæri
sín til fullnustu.
Leikurinn var jafn framan af en
um miðjan síðari hálfleik, er
staðan var 7:6, náðu íslendingar
góðum kafla, lokuðu markinu í 16
Logi B.
Eiðsson
skrifar
14:7 og
hálfleik.
mínútur og gerðu
fimm mörk í röð. í
leikhléi var staðan
12:6 en mestur varð
munurinn sjö mörk,
17:10, snemma í síðari
Hinn svokallaði „dauði kafli,“
þegar ekkert gengur upp, lét sig
ekki vanta og á tíu mínútna kafla
gerðu íslendingar aðeins eitt mark
gegn sex mörkum Tékka. Munurinn
var þá aðeins tvö mörk' en góður
endasprettur tryggði íslendingum
nokkuð öruggan sigur, 21:18.
„Þetta var góður sigur, vömin
var sterk og við náðum góðum
hraðaupphlaupum," sagði Júlíus
Jónasson, eftir leikinn. „Við sofnuð-
um á verðinum í síðari hálfleik en
náðum að rífa okkur upp. Það sem
við þurfum að laga fyrir heims-
meistarakeppnina er sóknarleikur-
inn og leikkerfm sem gengu ekki
ngou vel,“ sagði Júlíus.
Vöm íslenska liðsins var ágæt
og greinilegt að Geir Sveinsson
hefur góð áhrif á liðið. Júlíus Jónas-
son átti góðan leik, í vörn sem sókn,
og Kristján Arason átti einnig góð-
an leik. Sigurður Gunnarsson
stjórnaði leik liðsins lengst af og
átti ágætan leik, þrátt fyrir að iila
hafi gengið að eiga við líflega vörn
Tékka. Geir og Þorgils Óttar opn-
uðu vel fyrir félögum sínum og
Alfreð Gíslason reyndi fyrir sér á
línunni með góðum árangri. Horna-
mennimir Guðmundur og Bjarki
fengu úr litlu að moða, enda vörn
Tékka hreyfanleg og sterk. Einar
varði ágætlega og Guðmundur varði
fimm af sex vítum Tékka.
Júlíus fór á kostum
Kristján Arason skoraði 600. markið gegn Tékkum
JULIUS Jónasson fór á kostum
i leiknum gegn Tékkum á laug-
ardaginn er hann skoraði tólf
mörk úr þrettán skottilraunum.
Skotnýting hans var 92,3%,
sem er frábær. Júlfus átti eitt
misheppnað skot, en það small
á þverslánni á marki Tékka.
Júlíus varð fimmtándi landsliðs-
maður íslands sem hefur skorað
yfir tíu mörk í landsleik, eða frá
því að Hermann Gunnarsson skor-
aði sautján mörk í
landsleik gegn
Bandaríkjamönnum
á sjöundu hæð í há-
hýsi í New York
1966, þar sem íslandingar unnu,
41:19.
Kristján Arason er sá leikmaður
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
Morgunblaðið/RAX
Kristján Arason
sem hefur oftast skorað tíu mörk
eða fleiri í landsleik, eða níu sinn-
um. Hann hefur náð þeim árangri
á hverju ári síðan 1982.
Skotnýting Júlíusar var hreint
frábær í leikjunum þremur gegn
Tékkum. Hann skoraði 22 mörk úr
25 skottilraunum, sem er 88% nýt-
ing. Júlíus sýndi það í leikjunum
að hann er mjög yfirveguð víta-
skytta, en í leiknum á laugardaginn
skoraði hann níu mörk í jafn mörk-
um vítakaöstum. Hann tók fjögur
vítaköst á sunnudaginn og skoraði
úr þeim öllum.
Júlíus hefur tekið miklum fram-
förum síðan hann hóf að leika í
Frakklandi. Hann hefur þroskaðst
og sjálfstraust hans er orðið meira.
Kristján Arason náði _ þeim
áfanga að skora 600. mark íslands
í landsleik gegn Tékkum þegar
hann skoraði þriðja mark íslands í
landsleiknum á sunnudaginn.
Morgunblaðiö/RAX
Júlíus Jónason stóð sig best íslensku strákanna í leikjnunum þremur gegn Tékkum. Skotnýting hans var hreint frábær í leikjunum
þremur. Hann skoraði 22 mörk úr 25 skottilraunum, sem er 88% nýting.
Bogdan Kowalc-
zyk, þjálfari, er
ekki ánægður
með undirbúning
islenska liðsins
fyrir HM.
„Árangur án æfinga
er íslensk hugmynd"
- segir Bogdan sem eróhress með undirbúning liðsins
BOGDAN Kowalczyk, þjálfari
íslenska landsliðsins íhand-
knattleik, segir að mikið vanti
upp á að undirbúningur
íslenska landsliðsins fyrir
heimsmeistarakeppninni í
Tékkóslóvakiu, sé viðunandi.
Leikir séu of fáir, of fáar æf-
ingar með öllum landsliðs-
hópnum og ekkert hafi verið
gert í allt sumar. Landsliðið
kemur ekki allt saman fyrr en
eftir tæpan mánuð og segir
Bogdan að það sé of lítill tími
til undirbúnings.
Við eigum eftir að leika níu
landsleiki fyrir heimsmeist-
arakeppnina og ég geri ekki ráð
fyrir nema átta til níu eðlilegum
æfingum fyrir keppni. Það er of
lítið og við erum langt að baki
öðrum þjóðum hvað það snertir,"
sagði Bogdan. Gagnrýni um of
mikið álag, einkum fyrir Ólympíu-
leikana í Seoul svarar Bogdan
með því að til þess að ná árangri
þurfi æfingar.
„Árangur án æfinga er íslensk
hugmynd sem margir virðast trúa,
en á sér enga stoð í raunveruleik-
anum. Við þurfum ekki annað en
að líta til Sovétríkjanna, Austur-
Þýskalands og Spánar til að sjá
það. Þetta eru þjóðir sem æfa
miklu meira en við og eru alltaf
í fremstu röð. Islendingar byijuðu
að leika handknattleik fyrir 60
árum en það eru ekki nema sjö
ár síðan þeir fóru að ná árangri
á heimsmælikvarða, og það var
eingöngu vegna æfinga.
Tengslin milli áhugamennsku
og atvinnumennsku eru að sumu
leiti óskýr. En í handbolta eru þau
greinileg. Áhugamennirnir eru í
C-riðli og verða alltaf í C-riðli.
Til þess að halda okkur í fremstu
röð verðum við að æfa eins og
atvinnumenn.
Við æfðum vel fyrir Ieikina
gegn Tékkum og það meiddist
enginn í þremur leikjum. Ef við
hefðum ekki æft fyrir þessa leiki
hefðum við líklega þurft eink-
aspítala," segir Bogdan.
Frammistaða Guðmundur
Hrafnkelssonar í síðasta leiknum
vakti athygli. Hann varði fimm
vítaköst en fékk þó ekkert að
spila. „í heimsmeistarakeppni
þurfum við tvo markverði og Ein-
ar hefur verið markvörður númer
eitt hjá okkur. Hann er að ná sér
eftir erfið meiðsli og þarf að fá
leikæfingu. Eg tel það afar mikil-
vægt að hjálpa honum af stað til
þess að við getum stillt upp tveim-
ur sterkum markvörðum í Tékkó-
slóvaíu," sagði Bogdan.
Bogdan segir að úrslitin úr
leikjunum þremur við Tékka hafi
verið viðundandi. „Það var gott
að fá þessa leiki og þetta er í
fyrsta sinn í tæpt ár sem landslið-
ið kemur saman. En það er mikil
vinna framudan og margt sem
þarf að laga.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði skoraði
samtals þrjú mörk í leikjunum gegn Tékkum.
Þorgils Óttar:
Þurfum að
laga ýmislegt
Það er ágætt að vinna Tékka tvisvar f
þremur leikjum en okkur vantar samæf-
ingu í sóknina og hún var of tilviljunarkennd
í þessum leik. Það jákvæða við leikinn var
frammistaða Júlíusar og Guðmundar," sagði
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði íslenska
landsliðsins. „Við þurfum að laga ýmislegt
og verðum að nýta vel þann stutta tíma sem
við höfum fram að heimsmeistarakeppninni,"
sagði Þorgils.
Púðurskot
dugðuekki
gegn Tékkum
Stórskyttur íslands brugðust
þegarTékkarnáðuvinna, 20:22
EINHÆFUR sóknarleikur og
slakur varnarleikur varð
íslenska landsliðinu að falli
þegar Tékkar lögðu íslendinga
að velli, 22:20, í Laugardals-
höllinni á laugardaginn. „Það
er greinilegt að það þarf ýmis-
legt að lagfæra. Það er mikil
vinna framundan," sagði Júlíus
Jónasson, sem skoraði tólf
mörk fyrir íslenska liðið. „Þó
svo að leikmenn hafi leikið
saman í mörg ár, er liðið ekki
í nægilegri leikæf ingu um
þessar mundir. Menn eru ekki
tilbúnir að Ijúka sóknum á rétt-
um augnarblikum."
Það var sóknarleikurinn sem var
í molum í leiknum. Leikstjórn-
andinn Sigurður Gunnarsson var
lítið sem ekkert notaður og voru
gerðar ýmsar til-
SigmundurÓ. raunir í leikstjórn.
Steinarsson Sóknarieikurinn var
skrifar afar fálmkenndur
og einkenndist hann
af því að leikmenn reyndu að troð-
ast inn á miðjunna er þeir áttu
ekki svar við varnarleik Tékka, sem
léku með „Indjána“ til að trufla
sóknaraðgerðir íslendinga.
Langskytturnar brugðust
Langskytturnar brugðust. Bæði
var skorað fá mörk með langskotum
og þá áttu skytturnar aðeins tvær
línusendingar í leiknum. Þá fyrstu
eftir 45. mín., er Kristján Arason
sendi knöttinn inn á Þorgils Óttar
Mathiesen, sem fiskaði vítakast.
Þorgils Óttar fiskaði einnig vítakast
er Alfreð Gíslason átti sendingu á
hann á 52. mín. Hornamenn fengu
litla aðstoð frá skyttunum og voru
ekki með á nótunum. Þrisvar var
reynt skot úr horni og aðeins eitt
þeirrá heppnaðist. Bjarki Sigurðs-
son skoraði úr homi, en Guðmundur
Guðmundsson lét veija frá sér og
Valdimar Grímsson skaut fram hjá
marki.
Nýting langskyttnanna í leiknum
var aðeins 41,6%. Fimm mörk voru
skoruð úr tólf Iangskotum.
■Héðinn Gilson skoraði úr tveimur
langskotum, en skaut einu sinni
framhjá.
■Júlíus Jónasson skoraði úr einu
langskoti, en eitt skot hans fór í
þverslá.
■Sigurður Gunnarsson skoraði úr
einu langskoti, en eitt var varið og
annað fór framhjá.
■Kristján Arason skoraði úr einu
langskoti í fyrri hálfleik, en tvö
skot hans voru varin á lokamínútum
leiksins.
■Alfreð Gsilason reyndi eitt lang-
skot í byijun leiksins, en það var
varið.
Eins og sést á þessu þá náðu
skytturnar okkar sér ekki á strik í
leiknum. Ekki þýðir að bjóða upp á
púðurskot þegar út á vígvöllinn er
komið.
ISLAND - TÉKKÓSLÓVAKÍA 21:18
Nafn Skot Mörk Knetti náð Knetti glatað Feng. vrti Línus. Skot- nýting
Guðmundur Hrafnkelsson 5/5
EinarÞorvarðarson 13
Héðinn Gilsson 2 1 0°/o
Alfreð Gíslason 3 3 1 100%
JúlíusJónasson 9/4 7/4 1 1 1 1 77%
Guðmundur Guðmundsson 2 1 1 0%
Þorgils Óttar Mathiesen 2 0%
Bjarki Sigurðsson 2 2 3 2 100%
Sigurður Gunnarsson 2 2 2 100%
GeirSveinsson 1 1 2 100%
Kristján Arason 9/2 6/2 2 2 0 0 66%
i ÍSLAND - TÉKKÓSLÓVAKÍA 20:22 I
Nafn Skot Mörk Knetti náð Knetti glatað Feng. víti Línus. Skot- nýting
Guðmundur Hrafnkelsson 5
Einar Þorvarðarson 5
Héðinn Gilsson 3 2 1 1 50%
Alfreð Gíslason 2 1 3 2 1 50%
Júlíus Jónasson 13/9 12/9 1 85,7%
Guðmundur Gúðmundsson 1 1 0%
Þorgils Óttar Mathiesen 1 3 100%
Bjarki Sigurðsson 3 2 1 50%
Sigurður Gunnarsson 3 1 1 25%
ValdimarGrímsson 2 2 0%
Kristján Arason 4 2 1 3 2 28,5%
HANDKNATTLEIKUR / KONUR
Morgunblaðið/Bjarni
Inga Lára Þórisdóttir fær hér óblíðar viðtökur hjá finnsku stúlkunum
en lét þær þó ekki stöðva sig og skömmu síðar lá boltinn í netinu hjá Finnum.
Bambir sátt-
ur við úrslitin
SIGUR og jafntefli voru upp-
skera íslenska A- og B-lands-
liðsins eftir leiki við Finna um
helgina. A-landsliðið sigraði
Finna 17:14 á laugardag og á
sunnudag lauk viðureign B-
liðsins og þeirra finnsku með
jafntefli 14:14. Þrátt fyrirað
ýmislegt hafi farið miður hjá
íslensku stúlkunum í leikjun-
um voru margir Ijósir punktar
og Slavko Bambir, landsliðs-
þjálfari, var sáttur við úrslitin.
Finnska liðið hefur æft stíft
undanfarið eitt og hálft ár og
stef nir hátt í næstu C-heims-
meistarakeppni þarsem ís-
land verður einnig meðal
keppenda.
Það var allt í járnum framan
af í leik A-liðsins og Finna
og leikmönnum gekk erfiðlega að
finna leiðina í markið. íslensku
stúlkurnar sigu
fram úr rétt fyrir
leikhlé og leiddu
þá 8:5. 1 byijun
síðari hálfleiks
kom góður leikkafli hjá íslenska
liðinu og allt virtist stefna í stóran
sigur, en munurinn var orðinn 7
mörk þegar allt hrökk í baklás í
sóknarleiknum. Finnska liðið
gekk á lagið en það var of seint
og öruggur sigur íslands var í
höfn.
Katrin
Friðriksen
skrifar
Varnarieikur íslenska liðsins
var mjög góður og Fjóla Þóris-
dóttir varði vel á köflum. Sóknar-
léikurinn var hins vegar slakur
og þar virðist skortur á samæf-
ingu há liðinu, en Slavko Bambir,
landsliðsþjálfari, er með ungt og
óreynt lið í höndunum og engin
ástæða til annars en bjartsýni.
Inga Lára Þórisdóttir og Ragn-
heiður Stephensen voru atkvæða-
mestar með 4 mörk hvor. Guðný
Gunnsteinsdóttir og Ósk Víðis-
dóttir skoruðu 2, og Arna Steins
en, Svava Baldvinsdóttir og
Kátrín Friðriksen gerðu hver eitt
mark. í finnska liðinu þær Pasan-
en og Ekebon bestar.
Þær ungu náðu jaf ntefli
Unglingalandslið íslands lék B
landsleik við Finnana og stóðu
stúlkurnar vel fyrir sínu. Leikur-
inn fór rólega af stað en smám
. saman náðu Finnar yfirhöndinni
á vellinum. Þar munaði mest um
lélega nýtingu íslensku stúlkn-
anna, en þær voru iðnar við að
láta finnska markvörðinn verja frá
sér í dauðafærum. Finnsku stúlk-
urnar höfðu fjögurra marka for-
skot í leikhléi, 5:9, en náðu ekki
að fylgja því eftir og baráttuglað-
ar heimastúlkur jöfnuðu metin
rétt fyrir leikslok.
Halla Helgadóttir var marka-
hæst íslensku stúlknanna með 5
mörk, en hún var mjög örugg
vítaskotunum. Heiða Erlingsdótt-
ir skoraði 3, Elísabet Þorgeirs
dóttir og Þórunn Garðardóttir
gerðu tvö mörk hvor og Sigríður
Snorradóttir og Herdís Sigur-
bergsdóttir sitt markið hvor. Eke
bon og Pasanen skoruðu 4 mörk
hvor fyrir finnska liðið.
L-