Morgunblaðið - 23.01.1990, Blaðsíða 1
('((■ {íaOwvl ís suo/(rjt.Gir<; uí<jj. ji<lt;)3íh
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
<$•
1990
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR
BLAD
SUND / BANDARIKIN
Ragnheiður valin
í skólalið Auburn
Ragnheiður Runólfsdóttir sigraði í þremur
greinum á móti í háskólanum í Auburn um
helgina. Ragnheiður sigraði í 100 stiku [yard]
bringusundi á 1:05,30 mín., 200 stiku bringusundi
á 2:22,01 mín og í 200 stiku fjórsundi á 2:10,09
mín. Þess má geta að ein stika er 0,914 metrar.
Guðmundur Árnason, hjá Sundsambandi ís-
lands, sagði að þessir tímar væru nálægt íslands-
metum en það væri alltaf erfitt að bera saman
stikur og metra.
Ragnheiður hefur nú verið valin í skólalið Au-
burn, sem keppir á meistaramóti háskólanna í
mars. Þar keppir eingöngu besta sundfólk banda-
rísku háskólanna.
KNATTSPYRNA
Knattspymuforustan
á skólabekk hjá Regis
Tony Stephens og Cyrille Regis koma til Reykjavíkur til að kenna íslendingum
hvernig hægt er að selja knattspyrnu
TONY Stephens, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Wembley-leik-
vangsins í London, og enski
ieikmaðurinn Cyrille Regis hjá
Coventry, koma hingað á veg-
um KSÍ um næstu helgi og
halda hér ráðstefnu um mark-
aðsetningu knattspyrnunnar.
Tony Stephens starfrækir nú
ráðgjafafyrirtæki í London þar
sem hann sérhæfir sig í markað-
setningu knattspyrnunnar. Hann
starfaði fyrir enska 1. deildarliðið,
Aston Villa, áður en hann gerðist
framkvæmdastjóri á Wembley-leik-
vanginum. Þar starfaði hann í þijú
ár, en hefur nú snúið sér að sjálf-
stæðum atvinnurekstri.
Enski landsliðsmaðurinn Cyrille
Regis kemur hingað með Stephens
og mun hann fjalla um þátt leik-
manna í markaðsetningu og hvern-
ig hægt er að nota þá. Jafnframt
fjallar hann um reynslu sína í þessu
sambandi. Regis leikur nú með
Coventry, en var áður hjá WBA.
Hann er mikill markaskorari, gerði
82 mörk í 237 leikjum fyrir WBA
og 39 mörk í 170 leikjum fyrir
Coventi-y. Regis hefur áður komið
hingað. Hann lék landsleik ísland
- England á Laugardalsvellinum
1982, 1:1.
„Eg vona að þessi ráðstefna geti
orðið okkur hjá KSÍ og aðildarfélög-
unum að miklu gagni. Þetta er það
sem hefur vantað hér hjá okkur,“
sagði Eggert Magnússon, formaður
KSÍ.
Ráðstefnan verður í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal á sunnudag,
stendur frá kl. 11:00 til 15:00 og
er opin öllum aðildarfélögum KSI.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tony Stephens.
Cyrille Regis á ferðinni í leik með Coventry
KORFUKNATTLEIKUR
Pétur Guðmundsson
til Sioux Falls
PÉTUR Guðmundsson hefur
gert samning við bandaríska
körfuknattleiksliðið Sioux Falls
Skyforce í Suður-Dakota, sem
leikur í CBA-deildinni. Liðinu
hefur gengið illa að undanförnu
og vantar hávaxinn miðherja
og bauð Pétri samning.
Eg reikna með að fara eftir
nokkra daga og ætla að nota
þetta tækifæri. Ég hef ekkert getað
leikið og þarf að sýna mig ef ég
ætla að komast á samning hjá stóru
líðunum,“ sagði Pétur.
CBA-deildin er nokkurskonar
smækkuð útgáfa af NBA-deildinni
og eins og gefur að skilja, heldur
lakari. „Maður, er á hálfgerðum
„sóknartaxta" samanborið við
NBA-deildina. En tilgangurinn er
fyrst og fremst að spila, enda hef
ég ekki gert mikið af því uppá
síðkastið," sagði Pétur.
Fjórir riðlar eru í CBA-deildinni,
fjögur lið í hveijum og er keppnis-
fyrirkomuleg svipað og í NBA-
deildinni. Sioux Falls hefur gengið
illa það sem af er vetrar, aðeins
sigrað í 8 af 30 leikjum sínum.
Pétur hefur leikið með þremur
liðum í NBA-deildinni. Fyrst með
Poi-tland Trail Blazers 1981-82, Los
Angeles Lakers 1985-86 og San
Antonio Spurs 1987-89. Síðan Pét-
ur hætti hjá San Antonio, í byijun
síðasta árs, hefur hann ekkert leik-
ið með félagsliði en hinsvegar leikið
nokkra leiki með íslenska landslið-
inu.
Pétur gerði þó skammtíma samn-
ing við Minnesota Timberwolves en
var ekki valinn í leikmannahópinn
fyrir veturinn. Sérstakar reglur
gilda um samninga í NBA-deildinni
og vegna þess að Sioux Falls er á
sama svæði og Minnesota, hefur
liðið forgangsrétt á að gera samn-
ing við Pétur.
\
/ *
Pétur Guð-
mundsson
hefur gert
samning við
bandaríska
körfuknatt-
ieiksliðið Sio-
ux Falls Sky-
force i Suður-
Dakota, sem
leikur í CBA-
deildinni.
KNATTSPYRNA: TVEIR JUGOSLAVAR A SELFOSS OG EINN TIL EYJA/B 8