Morgunblaðið - 27.01.1990, Page 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990
M.enningarborg Evrópu
GLASGQ
Glasgow, er þetta árið, menningarborg Evrópu, eins og þegar
hefur verið greinf frá hér í Morgunblaðinu. Það vakti mikla
furðu þegar borgin var útnefnd, því hún hefur haft orð á sér fyrir
annað en ást og sinnu á listum. A 8. áratugnum var hún kölluó
Chicago Evrópu og hún var skítug og draslaraleg. En Skotar voru
ákveðnir í að þvo af sér slyðruorðið, sóttu óhræddir um sess meðal
menningarborga - höfðu þá enda þvegið borgina hátt og lágt um
nokkurra ára skeið og hafinn var undirbúningur fyrir mikla \
menningarveislu. Og víst er, að Glasgow hefur vinninginn, ef meta á magn og
gæði menningarársins, meðal þeirra borga sem heiðurinn hafa hlotið. Skotar
hófu hátíðina 1. janúar og hún stendur óslitið til 31. desember 1990. Við höfum
þegar kynnt það helsta sem verða mun í boði á árinu, en ætlum nú að fylgja því
eftir upplýsingum um næstu vikur, til glöggvunar þeim sem eru á leiðinni
í styttri eða lengri heimsóknir til Glasgow.
RISINN.
GREGORY NASH
DANSFLOKKUR-
INN
ú þegar hafa
nokkrar
myndlistar
sýningar
verið opnað-
ar og standa
þær eitthvað
áfram. Má
þar nefna The British Art Show
1990, sem South Bank Centre í
London hefur skipulagt fyrir
MeLellan galleríið. Á sýningunni
eru verk eftir um 40 nútímalista-
menn á þrítugs- og fertugsaldri og
spannar sýningin nánast öll form
myndlistar, allt frá teikningum og
málverkum, til myndbandalistar og
gjörninga. Sýning stendur til 11.
mars, er opin alla daga og aðgang-
ur er 1 'A pund, sem er um hundrað
og fimmtíu krónur.
í Glasgow Print Studio stendur
yfir sýning á mónótýpum eftir
skoska listamenn, meðal þeirra Pet-
er Howson, Barbara Rae, Ian
McCulloch, Ádrian Wiszniewski og
Peter Wilson. Sýningin er opin
mánudaga til laugardaga, klukkan
10.00 til 17.30 og stendur til 15.
febrúar. í Collins-galleríinu er
* verið að sýna tréskúlptúra frá Aust-
ur-Afríku og nefnist sýningin Mak-
onde. Á sýningunni er verk eftir
Makonde-þjóðflokkinn, sem á sér
rætur á Maconde-sléttunum í norð-
urhluta Mósambik. Verkin byggja á
helgidönsum - og siðum þjóð-
flokksins - sem höfðu mikil áhrif
á trúboða á 5. og 6. áratugnurp. Á
sýningunni er reynt að skoða hvaða
áhrif þessi list hefur haft á vest-
ræna menningu. Sýningin er opin
alla daga, nema sunnudaga, og
stendur til 17. febrúar.
Communicado er einhver þekkt-
asti leikhópur Skota, hefur nýlega
frumsýnt nýtt verk, sem er sam-
vinnuverkefni rithöfundarins Liz
Lochhead, leikstjórans Gerard
Mulgrew og leikmynda- og bún-
ingahönnuðarins Keith Mclntyre,
auk 25 leikara og söngvara. Sýn-
ingin sem er í Tramway’s leik-
húsinu fjallar um'Burn’s Supper,
árlega hátíð sem Skotar efna til,
til að minnast þjóðskáldsins góða
Robert Burns. Efnistök leikhópsins
eru með eindæmum og hefur verið
lýst sem ósvífnum. Leikritið sem
heitir Jock Tamson’s Bairn, verður
á fjölunum til 24. febrúar. Hægt
er að fá miða á 7 pund og 3 '/■■
pund og er miðasala í síma 041-
227-5511, ef fólk hefur áhuga á
að tryggja sér miða áður en haldið
er _af stað.
í Listasafni Glasgow (Glasgow
Musemum of Art) stendur-yfir sýn-
ing á hestum. Þó ekki lifandi, held-
ur er hér um að ræða Seton Murray
Thomson-safnið, sem hefur að
geyma hundruð líkana af hestum;
forn og ný, algeng og þekkt likön,
einnig mjög óvenjuleg, nákvæmlega
skorin í tré, hesta í útsaumi, mál-
verkum, teikningum. Sýningin, sem
er haldin kínverska nýárinu til heið-
urs, er opin alla daga og stendur
til 1. april.
Third Eye Centre, er merkiieg
listamiðstöð, sem er vel þess virði
að heimsækja. Þar verður stöðug
dagskrá allt árið, en áherslan er
einkum á myndlist og dans. Til 10.
febrúar ve'rða Lloyd Newson og
Nigel Charnock frá DV8 dans-
hópnum en sá hópur var, var
með sýninguna „Dead Dreams
of Monochrom Men,“ sem vakti
mikla athygli árið 1988. Ef les-
endur vilja fá nánari upplýsingar
er símanúmerið í Third Eye
Centre 041-332-7521.
I Burrell-safninu er sýning sem
enginn, sem leið á til Glasgow,
ætti að láta fram hjá sér fara, en
það er sýning á verkum um konur
eftir Edgar Degas. Sem kunnugt
er fjölluðu V-i hlutar verka Degasar
um konur og á sýningunni eru
myndir af hefðarkonum, ballerín-
um, söngkonum, gleðikonum,
þvottakonum og svo framvegis.
Burrell-safnið er opið alla daga og
sýningin stendur til 25. febrúar.
Skoska óperan kemur til með að
hafa nóg að gera þetta árið, því
alls mun hún setja upp fimm sýn-
ingar fyrir hátíðina. Sú fyrsta var
frumsýnd í gærkvöldi og er Duke
Bluebeard’s Castle,“ eftir Bela
Bartok. Leikstjóri og hönnuður sýn-
ingarinnar er Stefanos Lazaridis.
Hann sló í gegn með „Oedipus Rex“
á síðastliðnu ári og sú sýning verð-
ur sýnd samhliða „Duke Blue-
beard’s Castle" í Glasgow núna.
Næstu sýningar á Kastala Blá-
skeggs verða 14. febrúar og 1.
mars. Hægt er að fá miða frá 5
pundum til 25 punda og miðapant-
anir eru í síma 041-331-1234, eða
041-332-9000, í Glasgow.
/
FEBRÚAR
Tónlist
Sex stórar hljómsveitir frá Glasg-
ow verða með 14 tónleika í febrú-
ar. Scottish Chamber Orchestra
verður með tónleika 2. febrúar og
á efnisskránni eru verk eftir Dvor-
ák, Britten og Prokofiev. Næstu
tónleikar sveitarinnar verða 7. febr-
úar og á efnisskránni verða verk
eftir Schumann, Prokofiev og
Brahms. Þriðju tónleikar sveitar-
innar verða 16.febrúar og verða
flutt verk eftir Wagner, Mozart,
Schubert og Haydn. Síðustu tón-
leikar sveitarinnar verða 28. febrú-
ar. Allir tónleikarnir eru í City
Ilall, og hefjast klukkan 19.30.
Scottish National Orchestra
verður einnig með ferna tónleika í
febrúar. Þeir fyrstu verða 3. febrú-
ar og leikin verða verk eftir Borod-
in, Rachmaninov og Dvorák. Næstu
tónleikar verða 10. febrúar. Á efnis-
skránni verða verk eftir Mozart og
Dvorák. Þriðju tónleikarnir verða
15. febrúar - og endurteknir 17.
febrúar. Leikin verða verk éftir
Berlioz, Prokoviev og Tchaikovsky.
Fjórðu tónleikarnir verða 24. febrú-
ar, en á þeim verða flutt verk eftir
Liadov, Mussorgsky, Elgar og Ra-
vel. Allir tónleikarnir verða í City
Hall og hefjast klukkan 19.30.
Hollenski sellóleikarinn Anner
Bylsma, leikur á .tónleikum með
„Scottish Early Music Consort,"
sem sérhæfir sig í tímabilum tón-
listarsögunnar. Á tónleikum, sem
haldnir verða 16. febrúar mun Ann-
er Bylsma leika, ásamt 18. aldar
hljómsveit SEMC, hinn víðfræga
sellókonsert í D-dúr eftir Haydn.
Miðaverð er 5’A pund og 3 pund
og miðapantanir eru í síma 041-
332-5057 og 041-227-5511, í
Glasgow.
Söngkonan Christine Cairns,
messósópran og píanóleikarinn
Graeme McNaught, verða með
tónleika í „Westbourne Church,"
þann 18. febrúar, klukkan 15.00.
Efnisskrá þeirra er fjölbréytt, með-
al annars sönglög eftir Sehubert
og Schumann og verk eftir Berg,
Duparc og breska tónskáldið Quilt-
er.
Ópera
Annað verkefni Skosku óperunn-
ar verður La Forza del Destino,"
eltir Verdi. Leikstjóri er Elijah
Moshinsky og hljómsveitarstjóri
John Mauceri. Aðalhlutverkin
syngja: Andrea Gruber, Della
Jones, Stefano Algieri, Vladimir
Chernov og Alexander Morosov.
Sýningar verða 13, 17, 20, 22,
febrúar og 3. mars, í Theatre
Royal," og hefjast klukkan 19.15.
Miðapantanir eru í síma 041-331-
1234 og 041-227-5511.
Leiklist og dans
í „Third Eye Centre" hefst, þann
22. febrúar, kynning á ungum og
efnilegum danshöfundum. 22, 23
og 24. febrúar gefur þar að líta
Nomads-dansflokkinn, Mike May-
hew og Becky Edmunds. Allar sýn-
ingar hefjast klukkan 2Ó.00 og
miðaverð er 2 ’/z pund og 3 ‘A pund.
Miðapantanir eru í síma 041-332-
7521 og 041-227-5511.
Borderline-leikhópurinn verður
með sýningar á hinum vinsæla
gamanleik Mistero Buffo, eftir