Morgunblaðið - 27.01.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990
B 7
FEBRUAR
Dario Fo, í King’s Theatre. Sýn-
ingarnar verða 13-17. febrúar og
hefjast klukkan 19.30. Með aðal-
hlutverkið fer einn frægasti gaman-
leikari Skota, Robbie Coltrane. Mis-
munandi miðaverð er á Buffo, eftir
því hvar fólk vill sitja, en miðapant-
anir eru í síma 041-227-5511.
Gregory Nash-dansflokkurinn,
sem er einn frægasti nútímaballett-
flokkur Skotlands, verður með tvær
sýningar í febrúar. Flokkurinn
frumsýnir nýjan ballett, Giants
(Risar), sem er í fullri lengd, en það
mun vera í fyrsta sinn í fjögur ár,
sem þessi dansflokkur sýnir ballett
í fullri lengd. Risarnir verða á fjöl-
unum 27. og 28. febrúar í Tram-
way Theatre og hefjast sýningar
klukkan 19.30. Miðaverð er 3 pund
og 5 pund og miðapantanir eru í
síma 041-22,7-5511 og 041-332-
7521.
í Tron-leikhúsinu verður skoski
leikhópurinn Theatre PFK með
endursýningar á The Brus eftir
George Byatt. Leikritið fjallar um
hetjulega baráttu skosku and-
spyrnuhreyfingarinnar, undir stjórn
Wallace og Bruce. Sýningar verða
27. febrúar til 11. mars og hefjast
klukkan 19.30, öll sýningarkvöld.
Miðaverð er 5 pund og 2’A pund
og miðapantanir eru í síma 041-
227-5511
ítalski leikritahöfundurinn, Luigi
Pirandello, velti mikið fyrir sér
átökum milli fantasíu og veruleika.
Árið 1922 skrifaði hann leikritið
Enrico Four (Hinrik fjórði) þar
sem hann fjallar um persónuleik-
ann, geðveiki og heilbrigði. Sýning-
ar verða í Citizens-leikhúsinu, frá
2. febrúar til 3. mars og hefjast
klukkan 17.30. Miðaverð er 5 pund
og 1 pund og miðapantanir eru í
síma 041-429-0022 og 041-227-
myndlistarmaður Bretlands og hlýt-
jr hvarvetna lof gagnrýnenda. Sýn-
ingin stendur til 3. mars.
Ýmislegt
Hér hefur verið talið upp það
helsta sem er á döfinni í Glasgow
í febrúar. Þó er hér fátt eitt talið.
Smærri myndlistarsýningar, tón-
leikar og leiksýningar verða allan
mánuðinn. Má þar nefna að frá
1-28. febrúar verða sýningar á
Sailmaker eftir Alan Spence, í
Cumbernauld-leikhúsinu. I Cathk-
in Community-leikhúsinu verður
alhliða listadagur fyrir ungt fólk,
2. febrúar. Þar koma fram söngvar-
ar, hljóðfæraleikarar, dansarar, lát-
bragðsleikarar, skáld og rithöfund-
ar af yngri kynslóðinni. Spánski
gítarleikarinn Josep Henriquez
verður með einleikstónleika í tón-
leikasal háskólans í Glasgow, þann
2. febrúar, klukkan 19.30. Frá
3. -28. febrúar verður sýning á
tveimur skissuröðum eftir Picasso,
„The Burial of Count Orgoz“ og
„Le Cocu Magnifique," í Glasgow
Museum and Art Gallery.
Hlómsveit Háskólans í Glasgow
verður með tónleika þann 14. febrú-
ar í háskólanum, klukkan 19.30.
Leikinn verður 3. píanókonsert
Beethovens. For ’A’ That - Ex-
hibition er yfirskrift myndlistar-
sýningar, sem verður í Lillie Art
Gallery dagana 17. febrúar til 10.
mars. Þar verða sýnd verk eftir
nútímalistamenn, svo sem Redfern,
Wyllie, Currie og Hambling, sem
sækja öll myndefni sitt í líf og starf
hins ástsæla skoska skálds, Robert
Burns.
Samantekt/Súsanna Svavars-
dóttir
ROBBIE
COLTRANE
5511.
Myndlist
í Compass-galleríinu, verður
opnuð sýning sem ber heitið Five
Girls from Glasgow, þann 10.
febrúar. Þar verða sýnd verk fimm
kvenna sem útskrifuðust frá Lista-
háskóla Glasgowborgar fyrir fáum
árum og hafa á síðastliðnum fimm
árum vakið töluverða athygli.
Myndlistarkonurnar heita Victoria
Cassidy, Lesley Burr, Shona
Kinloch, Lesley Banks og Ashley
Cook. Myndverk þeirra eru af ýms-
um toga; skúlptúrar, málverk, litó-
grafíur á handunninn pappír og
fleira. Sýningin stendur til 8. mars
og er opin alla daga, nema sunnu-
daga, frá klukkan 10.00 til 17.00.
I miðborg Glasgow er mikið af
fögrum byggingum og í Stiriing
Library er nú verið að undirbúa
sýningu á byggingarlist borgarinn-
ar, þróun hennar og sögu. Til sýnis
verða bæði teikningar og módel.
Sýningin verður opnuð 21. febrúar
og stendur til 31. október - og
verður opin alla daga, nema sunnu-
daga, frá klukkan 9.30 til 20.00.
Drawing in the Eighties er
yfirskrift sýningar sem opnar 10.
febrúar í listaháskólanum í Glasg-
ow. Á sýningunni verða teikningar
eftir myndlistarmenn sem útskrif-
ast hafa frá skólanum síðastliðin
tíu ár, en meðal þeirra eru Stephen
Barclay, Rosemary Beaton, Ken
Currie, Alison Watt og Steven
Campbell, en sá síðastnefndi er um
þessar mundir einhver eftirsóttasti
Evridís eftir Þorkel
Sigurbjörnsson
flutt afÁshildi
Haraldsdóttur
í Mexíkó
Nú er stödd í Mexíkó Áshildur Haraldsdóttir
flautuleikari átónleikaferðalagi með mexíkönsku
hljómsveitinni Filharmnicaó del Bajío, en annar
stjórnandi h(jómsveitarinnar er Örn Óskarsson. Á
efnisskrá tónleikanna eru eingöngu verk eftir norr-
æna tónskáld, þar á meðal flautukonsertinn Evridís
eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Heiðurinn af þessu
framtaki á hljómsveitarstjórinn Örn Óskarsson.
/
g held þetta sé eitt af fyrstu skiptunum sem
íslenskt hljómsveitarverk er flutt á tónleikum
utan Evrópu, ef frá eru talin verk eftir Jón
Nordal, sem flutt hafa verið í New York og
hugsanleg verk Hafliða Hallgrímssonar. Þetta er því
mikill viðburður fyrir íslenskt tónlistarfólk,“ sagði
Áshildur í samtali við Morgunblaðið.
Filharmnicaó del Bajó er fylkishljómsveitin í Gu-
anajuato fylki í Mexíkó, og eru þrír þessarar fimm
tónleika haldnir í samnefndri höfðuðborg fylkisins.
Að'sögn Áshildar eru þeir í aðaltónleikasal borgarinn-
ar, frægu 19. aldar húsi, sem hún sagði að virtist
ekki síður draga að sér áheyrendur en efnisskráin eða
flyjendumir. „Ég hef á tilfinningunni að þó nokkur
hluti áheyrenda séu ferðamenn. Sjálfir eru mexíkan-
amir alveg yndislegir.“
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari.
Viðtöl við Áshildi hafa birt í mexíkönskum blöðum
og fjallað hefur verið um Þorkel Sigurbjömsson og
verkið, að sögn Arnar Óskarssonar.
Áshildur útskrifaðist frá Tónlistarskóla Reykjavíkur
17 ára, fór síðan til Bandaríkjanna til náms í New
England Conservatory í Boston, þaðan sem hún lauk
BA prófi vorið 1986 og tveimur ámm síðar lauk hún
meistarprófi frá Juilliard skólanum í New York. í
haust f luttist hún til Parísar þar sem hún sækir eink-
atíma, en hefur einnig nokkuð að gera við tónleika-
hald. Framundan hjá henni em tónleikar í Svíþjóð og
Bretlandi.
Öm Óskarsson var í þijú ár við nám í hljómsveitar-
stjórn við Tónlistarháskóla Washingtonfylkis í Seattle
í Bandaríkjunum, en hann lauk prófi þaðan vorið 1989.
Örn sá hljómsveitarstjórastöðuna hjá Filharmnicaó del
Bajío auglýsta þegar hann var á ferð í Mexíkó um
svipað leyti, sótti um og fékk stöðuna. Hversu lengi
Örn verður í Mexíkó er óráðið.