Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 1990
33
tr
Svava Þorsteinsdóttir
kennari - Minning
Fædd 12. nóvember 1901
Dáin 18. febrúar 1990
í dag verður gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík útför Svövu Þor-
steinsdóttur, kennara, en hún fædd-
ist 12. nóvember 1901 á Bíldudal,
elst barna hjónanna Kristínar Tóm-
asdóttur (f. 14. apríl 1874, d. 2.
febrúar 1965), sjómanns og hrepp-
stjóra Erlendssonar Sigurðssonar
og Kristrúnar Hallgrímsdóttur
Högnasonar, kennd við Bjarg á
Akranesi og Þorsteins Júlíusar
Sveinssonar, skipstjóra (f. 18. júlí
1873, d. 12. nóvember 1918,)
Magnússonar skipasmiðs Ólafsson-
ar á Grund og Eyvarar Snorradótt-
ur Sæmundssonar prests á Desja-
mýri, en foreldrar Svövu bjuggu
lengst af í Garðhúsum við Bakka-
stíg í Reykjavíkk og fæddust fjögur
systkini Svövu þar, en þau eru:
Viggó Kristinn, verslunarmaður (f.
2. júní 1903, d. 10. september
1941), hann var kvæntur Margréti
Halldórsdóttur Sigurðssonar úr-
smiðs og Guðrúnar Eymundsdóttur,
en Margrét lést 1939. Eyvör Ingi-
björg (f. 2. október 1907), ekkja
Odds Jónssonar, framkvæmda-
stjóra Mjólkurfélags Reykjavíkur.
Kristrún (f. 9. mars 1914), ekkja
Gunnars J. Cortes, læknis og yngst-
ur Þorsteinn Halldór (f. 25. desem-
ber 1918), fulltrúi, kvæntur
Kristínu Sigurbjörnsdóttur.
Svava lauk prófi frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík og hóf störf sem
bankaritari við Landsbanka íslands
þar til hún fór til framhaldsnáms í
Danmörku um eins árs skeið við
Soro-hússtjórnarskólann. Fljótlega
eftir heimkomuna hóf hún ævistarf
sitt og sameinaði þar hugsjónir og
afkomu. Svava stofnsetti einka-
skóla í Reykjavík fyrir börn á aldrin-
um 6 til 10 ára, þar sem hún annað-
ist uppfræðslu af mikilli natni og
fyrirhyggju. Vegna breyttrar skóla-
löggjafar varð þetta síðar skóli fyr-
ir 6 ára börn til undirbúnings
skyldunáms. Kappkostaði hún ætíð
að fylgjast með bestu framförum í
fagi sínu og í þeim tilgangi sótti
hún m.a. námskeið í Englandi og
víðar. Var skóli Svövu Þorsteins-
dóttur í miklum hávegum og þau
böm sem hennar handleiðslu nutu
sýndu henni það með hlýju og þakk-
læti ætíð síðar, enda missti hún
aldrei sjónar af nemendum sínum
og bast þeim ævilöngum vináttu-
böndum.
Árið 1939 missir Viggó Kristinn,
bróðir Svövu, eiginkonu sína Mar-
gréti Halldórsdóttur. Eftir lát konu
sinnar flytur hann heim í Garðhús
til móður sinnar með börnin sín
þijú á ungum aldri. Hafði hann þá
tekið sjúkdóm þann, sem varð hans
banamein rúmu ári síðar. Dvöldust
börnin þá í skjóli ömmu sinnar í
Garðhúsum um árabil þar til Svava
hafði aðstæður til að taka börnin á
sitt heimili og gekk þeim í foreldra-
stað og urðu þau hennar fjölskylda
og gáfu henni barnabörn og barna-
barnaböm, launuðu henni uppeldið
með kærleika og umhyggju. Fóstur-
böm Svövu eru; Anna Emilía, tann-
smiður í Reykjavík, ekkja Valdi-
mars Guðlaugssonar, leigubifreiða-
stjóra, en börn þeirra eru; Gunnar,
bílasmiður, Viggó, bókbindari, Páll,
framreiðslumaður, Hörður, verslun-
armaður, Haukur, matreiðslumaður
og Margrét, nemi í fatahönnun og
em barnabörnin þijú. Birna, hús-
móðir í Garðabæ, gift Siguijóni
Viðari Alfreðs Guðlaugssyni, flug-
umsjónarmanni, börn þeirra eru;
Alfreð Viggó, nemi í prenttækni,
Bára, húsmóðir, Svavar Páll, prent-
ari og Margrét, nemi í fjölbrauta-
skóla og eru barnabörnin átta. Þor-
steinn Júlíus, stórkappmaður,
kvæntur Sonju Johansen og börn
þeirra eru: Margrét, lyfjafræðingur
og Svava Björg, hjúkmnarnemi og
barnabarn eitt. Setti Svava metnað
sinn í að börnin nytu alls þess besta
af lærdómi og umhyggju og lét hún
einskis ófreistað til að tryggja þeim
menningarlegt uppeldi. Svava var
víðlesin og hafði næman smekk
fýrir bókmenntum og listum. Á fal-
legu heimili hennar var tónlistin í
hávegum höfð eins og veMð hafði
í Garðhúsum á æskuheimili Svövu.
Af nærfærni og listfengi lék hún á
píanó og hljómuðu þar iðulega lög
frænda hennar Inga T. Lámssonar,
tónskálds og síðar móðurbróður
barnanna, Sigfúsar Halldórssonar.
Hún var alla tíð styrktarfélagi í
Tónlistarfélagi Reykjavíkur og
lagði ríka áherslu á, að börnin
sæktu með henni tónleika, sem aðra
menningarviðburði og listsýningar.
Einnig var Svava mjög næm fyrir
hljómfalli íslenskrar tungu og Iagði
í uppeldi sínu og kennslu ríka
áherslu á málrækt. Hún lét og
umhverfismál mjög til sín taka og
sýndi skógræktarmálum og land-
græðslu mikinn áhuga. Var til þess
tekið hversu smekkvísi gætti ávallt
í hennar fari og gjörðum. Þar var
hinn hreini tónn.
Þorsteinn, faðir Svövu, var einn
af fmmkvöðlum slysavarna hér á
landi og sinnti Svava ýmsum verk-
efnum á þeim vettvangi og var jafn-
framt einn af stofnendum Kvenfé-
lagsins Hringsins í Reykjavík. Hún
lét mannúðar- og líknarmál til sín
taka, þó ekki fæm góðverk hennar
hátt, þá minnast hennar margir
með þakklæti. Hún var skemmtileg
kona með einarðar og ákveðnar
skoðanir og hreinskiptin í öllu við-
móti. Á yngri ámm var tiltekið hve
glæsileg hún var og útlit hennar
bar innrætinu vitni. Hún valdi ef
til vill að sleppa að margra áliti
glæstum tækifæmm eigin frama
fyrir fómfýsi og skyldurækni og
svipar hennar lífsmót á margan
hátt til frænku hennar og jafn-
öldru, Sesselju Sigmundsdóttur, er
stofnsetti og rak hið merka heimili
að Sólheimum í Grímsnesi, en þær
voru bræðradætur. Vegna alvarlegs
heilsubrests varð Svava að hætta
með skóla sinn 1952, þá tóku sig
t
Móðir okkar,
ARNDÍS JÓNSDÓTTIR,
fyrrum húsfrú,
Hjalla i Ölfusi,
Háteigsvegi 40,
andaðist 25. febrúar.
Börnin.
t
Ástkaer eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON,
Bakkaseli 26,
lést í Landspítalanum að morgni 25. febrúar.
Dagmar Sigurðardóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Björn Bogason.
upp gömul veikindi, er hún hafði
orðið fyrir á unglingsárum af völd-
um spönsku veikinnar 1918. Sem
fyrr barðist hún hart við sjúkdóm-
inn og náði það góðum bata að hún
hóf störf að nýju á öðmm vett-
vangi, síðast á dvalarheimili aldr-
aðra á Hrafnistu í Reykjavík og var
hún kjörin fyrsti heiðursfélagi
starfsmannafélags þeirrar göfugu
stofnunar.
Eftir að Svava hafði lokið upp-
fóstri bræðrabarna sinna þriggja
varð hún þeirrar gæfu aðnjótandi
að vera þess megnug að taka móð-
ur sína Kristínu á heimili sitt og
annast hana á hennar ævikvöldi.
Síðustu árin naut Svava einstakr-
ar umhyggju og hjúkrunar hins
ágæta starfsfólks Hrafnistu í
Reykjavík og þakkaði hún hvern
dag þá hlýju, er hún varð þar að-
njótandi. Hún mat og mikils sam-
heldni fjölskyldu sinnar og alls
stuðnings er hún naut. Hún hélt til
hinstu stundar reisn sinni og hug-
arró. Hún átti óskerta sína hreinu
barnatrú og þakkaði Guði hvert
gengið spor og lokaði augum sínum
í hinsta sinn í þakklæti fyrir að fá
að skila því lífsstarfi, er hún taldi
sér ætlað.
Eg vil þakka Svövu móðursystur
minni öll góðu heilræðin sem hún
gaf okkur börnunum í fjölskyldunni
og hennar fallegu lífssýn.
„í hveiju blómi sefur sál,
hvert sandkom á sér leyndarmál.“
(Davíð Stefánsson)
Blessuð sé minning Svövu Þor-
steinsdóttur.
Jón Oddsson
Svava Þorsteinsdóttir, frænka
mín og fóstra, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í dag kl. 15.00. Hún
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík
18. febrúar sl.
Svava var stórkostleg kona sem
ég og systur mínar eigum mikið
að þakka. Við eruin þijú systkinin
sem misstum foreldra okkar á unga
aldri. Móðir okkar Margrét Hall-
dórsdóttir lést árið 1939 og faðir
okkar yiggó Þorsteinsson lést árið
1941. Á þeim árum geisaði heims-
styijöld að undangenginni kreppu
sem leiddi af sér bág kjör og skórt
á nauðsynjum hér sem annarstað-
ar. Það þótti því eina lausnin að
senda okkur sitt í hvora áttina þar
sem ekkert eitt heimili gat tekið
að sér þijú börn á aldrinum 5-10
ára. Þá kom til kasta Svövu föður-
systur minnar, hún ákvað að taka
okkur öll inn á heimili sitt og ömmu
minnar Kristínar Tómasdóttur á
Garðhúsum við Bakkastíg.
Árið 1943 festu þær mæðgur
kaup á íbúðum sem Reykjavíkur-
borg byggði við Hringbraut. Amma
flutti í tveggja herbergja íbúð á
Hringbraut 39, en Svava í þriggja
herbergja íbúð í stigahúsi nr. 37,
sem var mitt heimii þar til ég
kvæntist Sonju Johansen árið 1962.
Með mikilli elju, dugnaði og fóm-
fýsi ól hún okkur upp á fallegu og
góðu heimili og skapaði okkur ör-
uggt athvarf.
Hún framfleytti heimilinu með
því að stunda tímakennslu fyrir
börn, áður en þau hófu lögboðna
skólagöngu, en á sumrin vann hún
ýmis störf. Einnig leigði hún út
herbergi frá íbúðinni. Svava átti
löngum við veikindi að stríða fyrst
sem ung stúlka er hún veiktist af
„spönsku veikinni“ 1918. Sennilega
náði hún aldrei fullri heilsu eftir
það. Samt sem áður stundaði hún
sína vinnu með ótrúlegum krafti
og dugnaði allt til ársins 1980.
Svava endaði starfsferil sinn í
eldhúsi Hrafnistu í Reykjavík 78
ára gömul.
Vegna vinnu sinnar var frænka
oft ekki viðlátin heima og var þá
gott að eiga ömmu í nágrenninu.
Þegar Svava kom heim að lokinni
vinnu tóku við heimilisstörfin og
að sinna okkur systkinunum sem
hún gerði af mikilli alúð og um-
hyggju. Einn af eiginleikum Svövu
var að geta gert mikið úr litlu og
reyndar er það óskiljanlegt með
hvílíkri reisn hún rak heimilið.
Æskuvinir mínir komu oft við á
Hringbrautinni og þáðu góðgjörðir
svo sem heitar kleinur eða ijóma-
pönnukökur og höfðu þeir stundum
að orði að ég væri ofdekraður og
má það til sanns vegar færa.
Eftir Svövu fannst ritað eftirfar-
andi sem lýsir henni afar vel: „Þeg-
ar ég kveð ættingja og vini er lof-
gjörð, fyrirbænir og þakklæti fyrir
allar dásemdir sem ég hef eignast
f lífinu mér efst í huga.“
Ég þakka frænku minni fyrir þá
umhyggju og ástúð sem hún ávallt
sýndi mér og bið góðan Guð að
blessa minningu hennar.
Þorsteinn Júlíus Viggósson
Núna er hún elsku amma okkar
dáin.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Br.)
Við viljum þakka elsku ömmu
okkar fyrir allt. Við vitum að henni
iíður vel hjá Guði.
Barnabörn og barnabarnabörn
ALLAR GERÐIR
STIMPLA
PENNASTIMPLAR
Skapaöu þér ímynd með okkar
sjálfblekandi stimpilpenna, það
gæti gert gæfumuninn
að hafa stimpil með
nafni þínu, fyrirtæki
eða góðu slagorði alltaf
við hendina.
STIMPLAGERÐ
KæssdiKS
KRÓKHÁLSI 6 SlMI 67 1900
Varanlegar vestur-Mskar gæðavðrur
frá BOSCH
o
JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF.
43 Sundaborg 13 -104 Reykjavik - Sími 688 588