Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 43 Vetrarmót íþróttadeildar Fáks: Signrbjörn Bárðarson sigraði í skeiði og- tölti ÍÞRÓTTADEILD hestamannafélagsins Fáks hélt mót á Rauðavatni á laugardaginn, þar sem keppt var í 150 metra skeiði og tölti í flokk- um fullorðinna og barna og unglinga. Sigurbjörn Bárðarson varð í fyrsta sæti í skeiði og tölti í flokki fullorðinna, og Elín Rós Sveins- dóttir varð í fyrsta sæti í tölti í barna- og unglingaflokki. Keppendur í 150 metra skeiði voru 21, og í fímm efstu sætunum urðu: 1. Sigurbjörn Bárðarson á Fönn, á 16.2 sek. 2. Helgi Úlfarsson á Hruggni, á 16,6 sek. 3. Sveinbjöm Ragnarsson á Rauð, á 16,8 sek. 4. Sævar Haraldsson á Jóni Hauk, á 17,0 sek. 5. Hörður Haraldsson á Mána, á 17.3 sek. Keppendur í tölti í fullorðins- flokki voru 31, og í fímm efstu sætunum urðu: 1. Sigurbjörn Bárðarson á Biskup 2. Gunnar Arnarsson á Kulda 3. Hafliði Halldórsson á Flpsa 4. Sigurður Benediktsson á Árvakri 5. Sveinn Ragnarsson á Örvari Keppendur í tölti í barna- og unglingaflokki voru 22, og í fímm efstu sætunum urðu: 1. Elín Rós Sveinsdóttir á Rispu 2. Sigurður Matthíasson á Jarli 3. Edda Rún Ragnarsdóttir á Sörla 4. Daníel Jónsson á Geisla 5. Gísli Geir Gylfason á Prins. Isafjörður: Askjan veður- teppt 1 sólarhring ísafirði. STRANDFERÐASKIPIÐ Askja tepptist hér vegna veðurs frá sunnudegi til mánudags. Skipið var á suðurleið og átti að hafa næstu viðkomu á Flateyri. Veður fór að versna á sunnudag og síðdegis, þegar skipið átti að láta úr höfii, var kominn versti bylur með skafrenningi. Askjan var með háfermi, þar á meðal með 15 til 20 tonna bát á þilfari og var það að sögn hafn- sögumanns aðalástæða þess, að skipstjóri ákvað að bíða af sér versta veðrið. Skipið lagði síðan úr höfn um kaffileytið í gær. Miklar fannir eru hér og spilltist færð í bænum þegar leið á sunnu- dagskvöldið. Undir miðnætti mátti heita alófært um bæinn. Snjóflóð féll á sunnudag á veginn til Bol- ungarvíkur, en í gær hafði vegur- inn verið ruddur ásamt helstu leið- um innanbæjar. Veður hafði skán- að nokkuð síðdegis í gær, en var þó tvísýnt. úlfar Stúlkurnar sem tóku þátt í keppninni Ungfrú Hollywood. Elín Reynisdóttir var kosin ungfrú Holly- wood, Biyndís Ólafsdóttir, ljósmyndafyrirsæta Samúels og Lísa Björk Davíðsdóttir sólarstúlka Útsýnar-Urvals. Elín Reynisdóttir kos- in Ungfrú Hollywood TUTTUGU og tveggja ára Reykjavíkurmær, Elín Reynisdóttir, var kosin Ungfrú Hollywood á sunnudagskvöld, fyrir fullu húsi gesta á Hótel íslandi. Krýningarhátíðin var haldin af tímaritinu Samúel, skemmtistaðnum Hollywood og útvarpsstöðinm Stjörn- unni. Lísa Björk Davíðsdóttir var valin sólarstúlka Útsýnar- Úrvals og Bryndís Ólafsdóttir ljósmyndafyrirsæta Samúels. Mörg ferðalög bíða stúlknanna Hollywood í Bandaríkjunum auk þriggja, Elín Reynisdóttir verður fulltrúi ungu kynslóðarinnar í keppninni Miss Wonderland í Malasíu í sumar, en mun einnig heimsækja kvikmyndaborgina fleiri staða þar í landi. Lísa Björk mun ferðast víða á vegum Útsýn- Urval, meðal annars fara í tvær sólarlandaferðir, sem hún hlaut í verðlaun. Bryndís Ólafsdóttir var hlutskörpust í vali um ljósmynda- fyrirsætu Samúels og verður mynduð af umboðsskrifstofunni Premier í London, en hún hefur mikinn áhuga á fyrirsætustörfum. Níu stúlkur tóku þátt í keppninni og verða þær allar staddar á sér- stöku skemmtikvöldi í Hollywood næstkomandi föstudagskvöld, þar sem þær verða hylltar að nýju á breyttum skemmtistað. Eftir að veiða um 225 þús- und tonn af loðnukvótanum Rúmlega 10.000 tonn hafa farið í frystingu BRÆLA var á loðnumiðunum við Reykjanes í gær, mánudag, og Iítil veiði. Síðdegis í gær voru íslensk skip búin að tilkynna um veiðar á um 535 þúsund tonnum af loðnu á haust- og vetrarvertíðinni og áttu því eftir að veiða um 225 þúsund tonn af loðnukvóta sínum. A miðnætti aðfaranótt mánudags höfðu íslensku skipin tilkynnt um veiðar á 10.354 tonnum af loðnu til frystingar en þá höfðu þau frá áramótum farið með um 25 þús- und tonn af loðnu til bræðslu er- lendis, þar af 8.347 tonn til Skot- lands, 7.443 til Færeyja, 5.908 til Noregs og 3.376 til Danmerkur. Á miðnætti aðfaranótt mánudags Þráinn Bertelsson um Svavar Gestsson: Hefur staðið verr að kvik- myndamálum en forveramir var frá áramótum búið að tilkynna um 56.554 tonn af loðnu til Síldar- verksmiðja ríkisins á Siglufirði, 54.625 til SR á Seyðisfirði, 51.575 til Eskifjarðar, 44.524 til Síldar- vinnslunnar á Neskaupstað, 30.689 til FIVE, 30.625 til Raufarhafnar, 25.533 til Reyðarfjarðar, 24.063 til FES, 23.780 til Hafsíldar á Seyðis- firði, 23.769 til Þórshafnar, 16.699 til SFA, 13.437 til Grindavíkur, 11.612 til Hafnar í Homafírði, 10.385 til Bolungarvíkur, 9.140 til Reykjavíkur, 5.910 til Vopnafjarðar, 4.230 til Olafsfjarðar, 3.281 tií Njarðar hf., 2.374 til Hafnarfjarðar og 1.634 til Valfóðurs hf. Síðdegis í gær hafði Helga II til- kynnt um 500 tonn til Reykjavíkur en á sunnudag tilkynntu þessi skip um loðnuafla: Guðmundur Ólafur 140 tonn til ýmissa aðila, Súlan 780 óákveðið hvert og Höfrungur 250 Rauðsey 250 til ýmissa aðila, Gígja 350 til FES, Grindvíkingur 900 til Hafsíldar og Bjami Ólafsson 850 til Neskaupstaðar. Síðdegis á föstudag tilkynntu þessi skip um loðnuafla: Hilmir 1.300 til Siglufjarðar, ísleifur 740 til SR á Seyðisfirði, Sunnuberg 630 til Vopnafjarðar og Beitir 1.230 til Neskaupstaðar. ’90 Honda Civic Shuttle 4WD 116 hestöfl Hann veit sjálfur að þetta er misskilningur, segir ráðherra ÞRÁINN Bertelsson, kvikmynda- gerðarmaður, segir í viðtali við DV um helgina, að hann sé óánægður með hvernig staðið sé að yfirstjórn kvikmyndamála. ■ ÆSKULÝÐSRÁÐ Hafnar- fjarðar og Lionessuklúbburinn Kaldá halda grímuball fyrir börn í íþróttahúsinu við Víðistaðaskóla á öskudag. Skemmtunin stendur fra klukkan 13-15. Kötturinn verður sleginn úr tunnunni. ■ ÖSKUDAGSHÁTÍÐ fyrir börn verður haldin í göngugötunni í Mjódd klukkan 10.30 á öskudag. Kaupstaður í Mjódd og Skátafé- lagið Segull standa fyrir samko- munni, þar sem meðal annars verð- ur sleginn kötturinn úr tunnunni og veitt verðlaun fyrir bestu bún- ingana. í fréttatilkynningu um hát- íðina eru börn hvött til að mæta í Aðalábyrgðin á því sé hjá mennta- málaráðherra, Svavari Gestssyni, sem staðið hafi verr að þessum málum en nokkur forvera hans. Morgunblaðið hafði samband við Svavar Gestsson, menntamálaráð- herra, og bar þessi umrnæli Þrá- ins undir hann. „Mér heyrist að Þráinn vinur minn sé að reyna að reita mig til reiði,“ sagði Svav- ar. „Hann veit sjálfur að þetta er misskilningur eins og koma mun i þ'ós áður en þetta ár er liðið.“ Eftir að hafa rætt almennt um ástand kvikmyndamála á íslandi segir Þráinn Bertelsson orðrétt í við- talinu við DV: „Ég er óánægður með þetta ástand og hvemig staðið er að yfirstjórn kvikmyndamála núna. Aðalábyrgðin er hjá Svavari Gests- syni, menntamálaráðherra, sem hef- ur staðið verr að þessum málum en nokkur annár ménrttamálaráðherra frá því að kvikmyndavorið byrjaði. niður kvikmyndagerðina á þessum áratug. Ég átti von á öðru frá hans hálfu. Kvikmyndalög voru samin og skilað inn í ráðuneyti Svavars fyrir 1. mars. fyrir ári en ekkert bólar á þeim.“ til SFA. Á laugardag tilkynntu eftirtalin skip um loðnuafla: Dagfari 300 til Njarðar hf., Svanur 690 til Siglu- fjarðar, Harpa 620 til Reyðarfjarð- ar, Vikingur 1.000 til Danmerkur, Björg Jónsdóttir 540 til Neskaup- staðar, Erling 580 til Eskifjarðar, Sighvatur Bjamason 550 til FIVE, Verð fró 1180 þúsund. GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIRALLA. Rhonda VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., S(Ml'&89900 ' J : ö. lll U 1: 7 Kristileg útvarpsstöð Kristnir söfnuðir og samfélög á höfuðborgar- svæðinu gangast fyrir hlutafjársöfnun til stofnun- ar útvarpsstöðvar. Þeir aðilar, sem hafa áhuga, hafi samband í síma 73742 frá kl. 10-12, og í síma 641735 frá kl. 13-17 næstu daga. Undirbúningsnefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.