Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUÉ 27. FEBRÚAR 1990 17 Norræna húsið: Gunnar Kvaran og Dagný Björg- vinsdóttir á Háskólatónleikum GUNNAR Kvaran sellóleikari og Dagný Björgvinsdóttir píanóleikari leika á Háskólatónleikum í Norræna húsinu miðvikudaginn 28. febrú- ar og hefjast tónleikarnir klukkan 12.30. Á efnisskránni er sónata í D-moll fyrir selló og píanó eftir Dmitri Schostakovitsh. Gunnar Kvaran er fæddur í Reykjavík og hóf nám í sellóleik 12 ára gamall. Hann hefur stundað nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, hjá Erling Blöndal- Bengtsson við Konunglega Tónlist- arskólann í Kaupmannahöfn. Hann hefur komið fram sem einleikari og leikið með kammerhljómsveitum víða um lönd, auk þess verið einleik- ari með Sinfóníuhljómsveit íslands, með strengjahljómsveit fiðlusnill- ingsins Alberto Lysi, Camerata Lysy, Tívolíhljómsveitinni í Kaup- mannahöfn,_ Fílharmóníuhljóm- sveitinni í Árósum og með Maribu hátíðarhljómsveitinni í Kaup- mannahöfn. Síðustu tvö árin hefur Gunnar haldið tónleika í Banda- ríkjunum og Kanada og kennt við GunnarKvaran Dagný Björg- vinsdóttir Manchester Music Festival í Verm- ont í Bandaríkjunum. Dagný Björgvinsdóttir er Reyk- víkingur og stundaði nám í Tónlist- arskólanum í Reykjavík, hjá Árna Kristjánssyni píanóleikara og fór síðan til náms í kammermúsík við Guildhall School of Music í London. Dagný starfar nú sem kennari við Tónmenntaskólann í Reykjavík. Fræðslufiindur NLFI: Endurhæfing krabba- meinssjúklinga Dr. Snorri Ingimarsson yfírlækn- ir við Heilsuhæli NLFÍ. Náttúrulækningafélag ís- lands efhir til fræðslufundar að Hótel Loftleiðum í dag, þriðju- dag, klukkan 20. Á fundinum flytur dr. Snorri Ingimarsson, yfirlæknir á heilsu- hæli NLFÍ í Hveragerði, fyrirlestur um aðlögun krabbameinssjúklinga að eðlilegum lífsháttum að lokinni meðferð. Að erindinu loknu munu fara fram umræður og svarað verður fyrirspurnum um stefnu Náttúru- lækningafélagsins. Fundarstjóri verður Eiríkur Ragnarsson, for- stjóri heilsuhælis NLFÍ. Fundurinn er opinn almenningi. Prófkjör Alþýðu- flokks í Hafimrfirði: Bæjarstjór- inn sigraði GUÐMUNDUR Árni Stefánsson bæjarstjóri fékk langflest at- kvæði í prófkjöri Alþýðuflokks- ins í Hafnarfirði fyrir bæjar- sfjórnarkosningar í vor, en kosið var um helgina. Hann hlaut 1.586 atkvæði í 1. sæti og alls 1.851 atkvæði. Alls kusu 2.009, 71 at- kvæði var ógilt og 1.938 atkvæði voru gild. í öðru sæti varð Jóna Ósk Guð- jónsdóttir forseti bæjarstjórnar. Hún hlaut 610 atkvæði í 1. og 2. sæti. Þriðji varð Ingvar Viktorsson með 1.059 atkvæði í 1. til 3. sæti. Fjórða varð Valgerður Guðmunds- dóttir með 679 atkvæði í 1. til 4. sæti og fimmti varð Tryggvi Harð-. arson með 726 atkvæði í 1. til 5. sæti. Þessi fimm efstu eru öll núver- andi bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins í Hafnarfírði. I sjötta til tíunda sæti urðu Árni Hjörleifsson, Ómar Smári Ár- mannsson, Eyjólfur Sæmundsson, Guðjón Sveinsson og Erlingur Kristensson. MUNIÐ 'M merkjasölunM RAUÐI KROSS ÍSLANDSj VIBRATORAR ** SmD steinsteypu. S&r® Léttir ; ÍLa meöfærilegir viðhaldslitlir. S Þ.Þ0RGRfMSS0N&C0 Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 Prófkjör sjálfstæðismanna í Eyjum: Sigurður Jónsson efetur Vestinannaeyj u m. PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum vegna uppstilling- ar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor fór fram um helgina. Nítján frambjóðendur voru í kjöri og tóku 1.439 manns þátt í prófkjör- inu. Sigurður Jónsson lenti í fyrsta sætinu en Sigurður Einarsson, sem nú situr í fyrsta sæti, féll niður í annað. Svokallað útkeyrsluprófkjör var viðhaft, sem fór þannig fram að kjör- seðlum var ekið heim til þátttakenda á laugardag og þeir síðan sóttir aft- ur á sunnudagskvöld. Númerað var við sjö frambjóðendur og að lokinni talningu á sunnudagskvöld var birt hvetjir hefðu lent í sjö efstu sætun- um. í fyrsta sæti varð Sigurður Jóns- son með 366 atkvæði í fyrsta sætið, 1.036 atkvæði alls. Annar Sigurður Einarsson, með 526 atkvæði, 950 atkvæði alls. Þriðji Bragi I. Ólafsson með 660 atkvæði, 1.095 atkvæði alls. Fjórði Georg Þór Kristjánsson með 640 atkvæði, 930 atkvæði alls. Fimmti Sveinn Rúnar Valgeirsson með 557 atkvæði, 816 atkvæði alls. Sjötti Ólafur Lárusson með 593 at- kvæði, 715 atkvæði alls og í sjöunda sæti varð Októvía Andersen með 665 atkvæði alls. Auðir seðlar og ógildir voru 126 þannig að 1.313 gild atkvæði voru í prófkjörinu. Kjörstjórn mun nú gera tillögu, að uppstillingu á lista, sem lögð verð- ur fyrir Fulltrúaráðsfund Sjálfstæð- isfélaganna fljótlega. Grímur Alþýðuflokkurinn: Guðmundur Oddsson sigraði GUÐMUNDUR Oddsson bæjar- fulltrúi sigraði í prófkjöri Al- þýðuflokksins í Kópavogi, sem haldið var um helgina. Sigríður Einarsdóttir bæjarfúlltrúi varð í öðru sæti. Alls kusu 663 í prófkjör- inu og er það 55% aukning þátt- töku frá prófkjöri fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar. Guðmundur hlaut 446 atkvæði í 1. sæti og Sigríður 237 atkvæði í 1. og 2. sæti. í þriðja sæti varð Helga Jónsdóttir með 233 atkvæði í 1. til 3. sæti, fjórði varð Þórður St. Guðmundsson ineð 272 atkvæði í 1. tit 4. sæti, fimmti varð Ólafur Björns- son með 299 atkvæði í 1. til 5. sæti og sjötti varð Gunnar Magnússon með 344 atkvæði. ii m im Hraðlestrarnámskeið Síðasta námskeið vetrarins hefst mánudaginn 5. mars nk. Lestrarhraði nemenda Hraðlestrarskólans undan- farin 10 ár hefur meira en þrefaldast til jafnaðar, hvort heldur er í erfiðu eða léttu lesefni. Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn við lestur alls lesefnis skaltu skrá þig sem fyrst. Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091. Hjá PHILIPS er enginn fyrirferða- mikill snúningsdiskur. Hjá PHILIPS er örbylgunni dreift ofanfrá með sérstöku loftneti. Hjá PHILIPS nýtist aliur ofninn fyrir ílát af alls konar lögun. Hjá PHILIPS er hreinsun mun auðveldari. Hjá PHILIPS er boðið upp á kraft- mikla ofna allt að 750 Wött. i HjáPHILIPSmyndarlokiðplötu framan við ofninn, notadrjúgt og eykur pláss. Philips er einfaldlega betri se(um ^„00 Któna ats' v\b jat ne «21 ao Heimilistæki hf Sætúni 8 SÍMI691515 * Kringlunni SÍMI6915 20 VtöthWKSvetíycuiíleQÍrbí sawutt^jutw séö h^^tre\&a ’ et1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.