Morgunblaðið - 27.02.1990, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUÉ 27. FEBRÚAR 1990
17
Norræna húsið:
Gunnar Kvaran og Dagný Björg-
vinsdóttir á Háskólatónleikum
GUNNAR Kvaran sellóleikari og Dagný Björgvinsdóttir píanóleikari
leika á Háskólatónleikum í Norræna húsinu miðvikudaginn 28. febrú-
ar og hefjast tónleikarnir klukkan 12.30. Á efnisskránni er sónata
í D-moll fyrir selló og píanó eftir Dmitri Schostakovitsh.
Gunnar Kvaran er fæddur í
Reykjavík og hóf nám í sellóleik
12 ára gamall. Hann hefur stundað
nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík, hjá Erling Blöndal-
Bengtsson við Konunglega Tónlist-
arskólann í Kaupmannahöfn. Hann
hefur komið fram sem einleikari og
leikið með kammerhljómsveitum
víða um lönd, auk þess verið einleik-
ari með Sinfóníuhljómsveit íslands,
með strengjahljómsveit fiðlusnill-
ingsins Alberto Lysi, Camerata
Lysy, Tívolíhljómsveitinni í Kaup-
mannahöfn,_ Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í Árósum og með Maribu
hátíðarhljómsveitinni í Kaup-
mannahöfn. Síðustu tvö árin hefur
Gunnar haldið tónleika í Banda-
ríkjunum og Kanada og kennt við
GunnarKvaran Dagný Björg-
vinsdóttir
Manchester Music Festival í Verm-
ont í Bandaríkjunum.
Dagný Björgvinsdóttir er Reyk-
víkingur og stundaði nám í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík, hjá Árna
Kristjánssyni píanóleikara og fór
síðan til náms í kammermúsík við
Guildhall School of Music í London.
Dagný starfar nú sem kennari við
Tónmenntaskólann í Reykjavík.
Fræðslufiindur NLFI:
Endurhæfing krabba-
meinssjúklinga
Dr. Snorri Ingimarsson yfírlækn-
ir við Heilsuhæli NLFÍ.
Náttúrulækningafélag ís-
lands efhir til fræðslufundar að
Hótel Loftleiðum í dag, þriðju-
dag, klukkan 20.
Á fundinum flytur dr. Snorri
Ingimarsson, yfirlæknir á heilsu-
hæli NLFÍ í Hveragerði, fyrirlestur
um aðlögun krabbameinssjúklinga
að eðlilegum lífsháttum að lokinni
meðferð.
Að erindinu loknu munu fara
fram umræður og svarað verður
fyrirspurnum um stefnu Náttúru-
lækningafélagsins. Fundarstjóri
verður Eiríkur Ragnarsson, for-
stjóri heilsuhælis NLFÍ. Fundurinn
er opinn almenningi.
Prófkjör Alþýðu-
flokks í Hafimrfirði:
Bæjarstjór-
inn sigraði
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson
bæjarstjóri fékk langflest at-
kvæði í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins í Hafnarfirði fyrir bæjar-
sfjórnarkosningar í vor, en kosið
var um helgina. Hann hlaut 1.586
atkvæði í 1. sæti og alls 1.851
atkvæði. Alls kusu 2.009, 71 at-
kvæði var ógilt og 1.938 atkvæði
voru gild.
í öðru sæti varð Jóna Ósk Guð-
jónsdóttir forseti bæjarstjórnar.
Hún hlaut 610 atkvæði í 1. og 2.
sæti. Þriðji varð Ingvar Viktorsson
með 1.059 atkvæði í 1. til 3. sæti.
Fjórða varð Valgerður Guðmunds-
dóttir með 679 atkvæði í 1. til 4.
sæti og fimmti varð Tryggvi Harð-.
arson með 726 atkvæði í 1. til 5.
sæti. Þessi fimm efstu eru öll núver-
andi bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins
í Hafnarfírði.
I sjötta til tíunda sæti urðu Árni
Hjörleifsson, Ómar Smári Ár-
mannsson, Eyjólfur Sæmundsson,
Guðjón Sveinsson og Erlingur
Kristensson.
MUNIÐ 'M
merkjasölunM
RAUÐI KROSS ÍSLANDSj
VIBRATORAR **
SmD
steinsteypu.
S&r® Léttir
; ÍLa meöfærilegir
viðhaldslitlir.
S
Þ.Þ0RGRfMSS0N&C0
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640
Prófkjör sjálfstæðismanna í Eyjum:
Sigurður Jónsson efetur
Vestinannaeyj u m.
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum vegna uppstilling-
ar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor fór fram um helgina.
Nítján frambjóðendur voru í kjöri og tóku 1.439 manns þátt í prófkjör-
inu. Sigurður Jónsson lenti í fyrsta sætinu en Sigurður Einarsson, sem
nú situr í fyrsta sæti, féll niður í annað.
Svokallað útkeyrsluprófkjör var
viðhaft, sem fór þannig fram að kjör-
seðlum var ekið heim til þátttakenda
á laugardag og þeir síðan sóttir aft-
ur á sunnudagskvöld. Númerað var
við sjö frambjóðendur og að lokinni
talningu á sunnudagskvöld var birt
hvetjir hefðu lent í sjö efstu sætun-
um.
í fyrsta sæti varð Sigurður Jóns-
son með 366 atkvæði í fyrsta sætið,
1.036 atkvæði alls. Annar Sigurður
Einarsson, með 526 atkvæði, 950
atkvæði alls. Þriðji Bragi I. Ólafsson
með 660 atkvæði, 1.095 atkvæði
alls. Fjórði Georg Þór Kristjánsson
með 640 atkvæði, 930 atkvæði alls.
Fimmti Sveinn Rúnar Valgeirsson
með 557 atkvæði, 816 atkvæði alls.
Sjötti Ólafur Lárusson með 593 at-
kvæði, 715 atkvæði alls og í sjöunda
sæti varð Októvía Andersen með 665
atkvæði alls.
Auðir seðlar og ógildir voru 126
þannig að 1.313 gild atkvæði voru
í prófkjörinu.
Kjörstjórn mun nú gera tillögu,
að uppstillingu á lista, sem lögð verð-
ur fyrir Fulltrúaráðsfund Sjálfstæð-
isfélaganna fljótlega.
Grímur
Alþýðuflokkurinn:
Guðmundur
Oddsson sigraði
GUÐMUNDUR Oddsson bæjar-
fulltrúi sigraði í prófkjöri Al-
þýðuflokksins í Kópavogi, sem
haldið var um helgina. Sigríður
Einarsdóttir bæjarfúlltrúi varð í
öðru sæti. Alls kusu 663 í prófkjör-
inu og er það 55% aukning þátt-
töku frá prófkjöri fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar.
Guðmundur hlaut 446 atkvæði í
1. sæti og Sigríður 237 atkvæði í
1. og 2. sæti. í þriðja sæti varð
Helga Jónsdóttir með 233 atkvæði í
1. til 3. sæti, fjórði varð Þórður St.
Guðmundsson ineð 272 atkvæði í 1.
tit 4. sæti, fimmti varð Ólafur Björns-
son með 299 atkvæði í 1. til 5. sæti
og sjötti varð Gunnar Magnússon
með 344 atkvæði.
ii m im
Hraðlestrarnámskeið
Síðasta námskeið vetrarins hefst mánudaginn 5.
mars nk.
Lestrarhraði nemenda Hraðlestrarskólans undan-
farin 10 ár hefur meira en þrefaldast til jafnaðar,
hvort heldur er í erfiðu eða léttu lesefni.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn við lestur
alls lesefnis skaltu skrá þig sem fyrst.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091.
Hjá PHILIPS er enginn fyrirferða-
mikill snúningsdiskur.
Hjá PHILIPS er örbylgunni dreift
ofanfrá með sérstöku loftneti.
Hjá PHILIPS nýtist aliur ofninn fyrir
ílát af alls konar lögun.
Hjá PHILIPS er hreinsun mun
auðveldari.
Hjá PHILIPS er boðið upp á kraft-
mikla ofna allt að 750 Wött.
i HjáPHILIPSmyndarlokiðplötu
framan við ofninn, notadrjúgt og
eykur pláss.
Philips er
einfaldlega betri
se(um ^„00
Któna
ats'
v\b
jat
ne
«21
ao
Heimilistæki hf
Sætúni 8 SÍMI691515 * Kringlunni SÍMI6915 20
VtöthWKSvetíycuiíleQÍrbí sawutt^jutw
séö h^^tre\&a ’
et1