Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.02.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990 KOSNINGARNAR I NICARAGUA Violeta Chamorro, nýkjörinn forseti Nicaragua: Minntist jafiian eiginmanns síns í kosningabaráttunni VIOLETA Barrioas de Chamorro, sigurvegari forsetakosningannai Nicaragua, ber frægasta nafh landsins. Meira að segja er til stjórn- málaflokkur sem kennir sig við ætt hennar, Chamorroistarnir. Allt frá árinu 1821 þegar Nicaragua fékk sjálfstæði frá Spáni hefiir einhver af Chamorro-ættinni verið í forystu stjórnarandstöð- unnar eða í forsæti landsstjórnarinnar. Snemma á fjórða áratugnum komst önnur þekkt ætt til valda í Nicaragua, Somoza-ættin. Lengst af voru það einkum ' hægrimenn sem veittu andspymu og var Pedro Joaquin Chamorro, ritstjóri La Prensa og eiginmaður Violetu, þar framarlega í flokki. 10. janúar árið 1978 var hann myrtur í bíl sínum. Þessi atburður varð til þess að hrinda af stað borgarastyijöld sem lauk með því að Anastasio Somoza hershöfðingja var steypt 18 mán- uðum síðar. Eftir valdatöku sandínista gengu margir úr Chamorro-fjöl- skyldunni til liðs við þá. Til dæmis varð sonur Violetu Chamorro, rit- sjóri La Barricada, helsta mál- gagns sandínista. Hún snerist hins vegar fljótlega gegn sandínistum eftir að hafa unnið með þeim í fyrstu og ritstýrði blaði fjölskyld- unnar, La Prensa. Pjórum sinnum hafa sandínistar bannað útgáfu blaðsins. í september síðastliðnum ákvað sameinuð stjórnarandstaða Nicaragua, UNO, að gera Violetu Chamorro að forsetaframbjóðanda sínum. Það réði valinu að hún er vinsæl og vel þekkt í landinu. Violeta Chamorro þykir vera í svipaðri aðstöðu og Corazon Aqui- Tékkóslóvakía: Sovéther ábrott ummitt næsta ár Moskvu. Reuter. SOVÉSKA herliðið í Tékkó- slóvakíu verður allt á brott fyrir 1. júlí á næsta ári. Vac- Iav Havel, forseti Tékkósló- vakíu, skýrði frá þessu í gær en hann er nú í Moskvu til viðræðna við ráðamenn þar. Havel upplýsti þetta á blaða- mannafundi og sagði, að ut- anríkisráðherrar ríkjanna, Edú- ard Shevardnadze og Jiri Di- enstbier, hefðu undirritað sam- komulag um brottflutninginn. Sovéska herliðið var sent til Tékkóslóvakíu til að bæla niður Vorið í Prag árið 1968 og eru þar nú 73.500 manns. Mikið var látið með Havel við komuna til Moskvu þótt ekki sé nema ár síðan hann var kallaður vandræðamaður og óvinur sósíalismans í sumum fjölmiðlum. Gekk hann fram hjá heiðursverði hermanna og lagði krans að minnismerki um óþekkta hermanninn en þó var eins og hann kynni ekki al- mennilega við sig í sínu nýja hlutverki. Var til þess tekið, að hann hagræddi ekki kransin- um eftir að hann hafði lagt hann frá sér eins og þó mun vera siður. ono forseti Filippseyja. Báðar eru þær ekkjur stjórnarandstöðuleið- toga sem féllu fyrir morðingja- hendi. Violeta Chamorro er sextug að aldri, gráhærð og virðist fremur veikburða. í kosningabaráttunni, sem þótti ekki takast vel, voru mest áberandi kröfur um lýðræði, markaðshagkerfi og afnám her- skyldu. Hún lagði áherslu á að kaþólsk trú yrði í heiðri höfð og einnig var til þess tekið að hún minntist eiginmanns síns í hverri ræðu. Það háði Violetu í kosninga- baráttunni að hún slasaðist um áramótin og hefur síðan verið bundin við hjólastól. Heimild: The Spectator og Reuter Reuter Violeta Chamorro fagnar sigri með varaforsetaefni sínu, Virgilio Godoy. Eftirlit á 4.300 kjörstöðum Managua. The Daily Telegraph. KOSNINGARNAR sem fram fóru í Nicaragua á sunnudag vóru þríþættar. Kosið var til þings og sveitarstjórna auk þess sem for- seti landsins var kjörinn. Rúmlega 2.000 erlendir eftirlitsmenn fylgd- ust með framgangi kosninganna og að í öllu væri farið eftir settum reglum en auk þeirra komu um 1.500 erlendir fréttamenn til landsins. Um 1,7 milljón manna var á kjör- skrá og héldu erlendu fulltrúamir uppi eftirliti á öllum kjörstöðum landsins sem voru um 4.300. Fréttir bárust ekki af kosningasvikum en stjórn sandinista lagði á það ríka áherslu að kosningarnar yrðu öld- ungis fijálsar og að úrslit þeirra yrðu virt. Miguel Obando y Bravo, kardínáli katólsku kirkjunnar í Nic- aragua, kvaðst telja yfirlýsingar stjómar sandinista fyrir kosningarn- ar gefa til kynna að þeir hefðu end- urskoðað stefnu sína eftir hrun kommúnismans í Austur-Evrópu. „Fall Berlínarmúrsins hefur gert það að verkum að þeir óttast nú einangr- un á alþjóðavettvangi". Bent hefur verið á að Kúbanir, Austur-Þjóðveij- ar og Sovétmenn hafí dregið úr efna- hagsaðstoð við Nicaragua. Efnahag- ur landsins sé í rúst og nú treysti sandinistar á að Bandaríkjamenn komi landsmönnum til hjálpar. A hinn bóginn nýttu sandinistar sér ríkisrekna fjölmiðla til fullnustu og þannig sýndi sjónvarpið þátt um „Leðurblökumanninn" sívinsæla einn morgunin á sama tíma, og stjómarandstæðingar höfðu boðað til fjöldafundar í höfuðborginni Managua. Þá sáu fulltrúar bresku ríkisstjórnarinnar ástæðu til að gera athugasemd við mynd sem synd var í sjónvarpinu þar sem frú Violeta Chamarro, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar og sigurvegari kosninganna, var bendluð við nas- isma og skæruliðastarfsemi. ■ LONDON - Sextán manns að minnsta kosti biðu bana af völdum óveðurs í norðvestanverðri Evrópu í gær, aðeins þremur dögum eftir að íbúar þessa svæðis sleiktu sól- skin og nutu óvenjulega mikilla hlý- inda. Veðrið varð hvað verst á sunn- anverðu Englandi þar sem níu menn biðu bana. I Belgíu biðu tveir menn bana, tveir í París og einn á Irl- andi. Óveðrið náði frá þýsku Rínar- héruðunum í austri og vestur fyrir Bretlandseyjar. Veðurhæðin mæld- ist allt að 160 km/klst. Gífurleg úrkoma fylgdi veðrinu. ■ LINARES - Garrí Kasparov heimsmeistari í skák jók enn for- ystu sína á stórmótinu í Linares á Spáni á sunnudag. í sjöundu um- ferðinni sem þá var tefld lagði hann landa sinn Vassilíj Ivantsjúk í 43 leikjum. Kasparov er nú efstur með 6 vinninga af 7 mögulegum. Næst- ur kemur Boris Gelfand með 5 vinn- inga og þá Nigel Short með 4 ‘L og biðskák. ■ ÓSLÓ - Tveir norskir bankar, Den Norske Creditbank og Bergen Bank sem ganga í eina sæng í apríl- mánuði næstkomandi undir nafninu Den Norske Bank, lýstu því yfir í gær að fækkað yrði í sameiginlegu starfsliði þeirra um 1100-1200 manns til að draga úr rekstrar- kostnaði. Den Norske Bank sem verður stærsti banki í Noregi eftir sameininguna ætlar að fækka hjá sér um 700 manns í Noregi og 4-500 erlendis og ná þannig fram milli 500 og 700 milljóna norskra króna (4,6-6,5 milljarða ísl. kr.) sparnaði. ■ LONDON - í skoðanakönnun sem birtist í breska vikuritinu Sunday Times síðastliðinn sunnu- dag hlaut Verkamannaflokkurinn bestu útkomu sem hann hefur feng- ið í þau ellefu ár sem Margaret Thatcher forsætisráðherra hefur haldið um stjórnartaumana í Bret- landi - eða 51% á móti 34% íhalds- flokksins. Það mundi nægja flokkn- um til að fá 120 sæta þingmeiri- hluta í almennum kosningum. „Þessi aukna forysta sýnir ekki ein- göngu vaxandi andstöðu við Ihalds- flokkinn," sagði talsmaður Verka- mannaflokksins, „heldur endur- speglar hún einnig vaxandi trú al- mennings á getu flokks okkar til að mynda ríkisstjórn." Thatcher sagði í tilefni af könnuninni að efna- hagslífíð ætti eftir að breytast mik- ið til hins betra áður en til þess kæmi að hún boðaði til kosninga árið 1992. Hundruð þúsund sovéskra umbótasinna á útifundum: Segja umbætur of hæffar off krefj- ast afeagna kommúnistaleiðtoga Moskvu. Reuter. Daily Telegraph. HUNDRUÐ þúsunda umbótasinna höfðu viðvaranir sovéskra yfir- valda að engu og kröfðust hraðari lýðræðisumbóta og afsagnar leið- toga kommúnistaflokksins á fjöl- mennum útifundum víðs vegar um Sovétríkin á sunnudag. Þvert á spádóma yfirvalda fóru aðgerðirn- ar friðsamlega fram. Að sögn jReuters-fréttastofunar tóku um eitt hundrað þúsund manns þátt í útifundi á sunnudag í Moskvu. Aðrar heimildir hermdu að allt að 300.000 manns hefðu tekið þátt í fundinum en skipuleggjendur mót- mælanna höfðu búist við þátttöku allt að hálfrar milljónar umbóta- sinna. Talið er að viðvaranir mið- stjórnar kommúnistaflokksins og ýmissa umbótasinnaðra mennta- mannahópa til fólks um að halda sig heima, þar sem talið væri að óeirða- seggir kynnu að reyna að hvetja til uppþota á fundunum, hefðu dregið úr þátttöku. A fundinum var fram- gangur umbótastefnu Míkhaíls Gor- batsjovs Sovétforseta harðlega gagn- rýndur og árangur af henni sagður enginn. Kröfðust fundarmenn af- sagnar stjórnmálaráðs Kommúnista- flokks Sovétríkjanna. Einnig bar á mótmælaborðum þar sem Gorbatsjov og Jegor Lígatsjov, sem fer með land- búnaðarmál í stjómmálaráðinu, voru hvattir til að segja af sér. Fjölmennt lögreglulið sem var í viðbragðsstöðu í 'Moskvu hélt að sér höndum þegar ljóst varð að fundarmenn hygðust ekki fara að Kreml. Mótmæli utan Moskvu Til fjölmennra mótmæla kom í tugum borga víðs vegar um Sovétrík- in. Hvarvetna var skorað á leiðtoga kommúnista að segja af sér. í höfuð- borg Georgíu, Tíflis, komu tugþús- undir manna saman við aðsetur stjórnar lýðveldisins og kröfðust sjálfstæðis, en á sunnudag voru liðin nákvæmlega 69 ár frá því Rauði herinn réðst inn í Georgíu. Að minnsta kosti 100.000 tóku þátt í fundi umbótasinna í Mínsk, höfuðborgar Hvíta-Rússlands og 50.000 í Kíev í Úkraínu. Hins vegar komu aðeins um 10.000 manns til fundar í Leníngrad. Álíka margir voru á útifundi í Sverdlovsk í Úral- fjöllum þar sem umbótasinninn Boris Jeltsín flutti ræðu. Fregnir fóru af fjölmennum fundum í Jaroslavl og Gorkíj og ýmsum borgum Síberíu. Reuter Lögregla og hersveitir KGB og sovéska innanríkisráðuneytisins höfðu mikinn viðbúnað vegna mótmæla umbótasinna í Moskvu í fyrradag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.