Morgunblaðið - 27.02.1990, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1990
KOSNINGARNAR I NICARAGUA
Violeta Chamorro, nýkjörinn forseti Nicaragua:
Minntist jafiian eiginmanns
síns í kosningabaráttunni
VIOLETA Barrioas de Chamorro, sigurvegari forsetakosningannai
Nicaragua, ber frægasta nafh landsins. Meira að segja er til stjórn-
málaflokkur sem kennir sig við ætt hennar, Chamorroistarnir.
Allt frá árinu 1821 þegar Nicaragua fékk sjálfstæði frá Spáni
hefiir einhver af Chamorro-ættinni verið í forystu stjórnarandstöð-
unnar eða í forsæti landsstjórnarinnar.
Snemma á fjórða áratugnum
komst önnur þekkt ætt til valda í
Nicaragua, Somoza-ættin. Lengst
af voru það einkum ' hægrimenn
sem veittu andspymu og var Pedro
Joaquin Chamorro, ritstjóri La
Prensa og eiginmaður Violetu, þar
framarlega í flokki. 10. janúar árið
1978 var hann myrtur í bíl sínum.
Þessi atburður varð til þess að
hrinda af stað borgarastyijöld sem
lauk með því að Anastasio Somoza
hershöfðingja var steypt 18 mán-
uðum síðar.
Eftir valdatöku sandínista
gengu margir úr Chamorro-fjöl-
skyldunni til liðs við þá. Til dæmis
varð sonur Violetu Chamorro, rit-
sjóri La Barricada, helsta mál-
gagns sandínista. Hún snerist hins
vegar fljótlega gegn sandínistum
eftir að hafa unnið með þeim í
fyrstu og ritstýrði blaði fjölskyld-
unnar, La Prensa. Pjórum sinnum
hafa sandínistar bannað útgáfu
blaðsins. í september síðastliðnum
ákvað sameinuð stjórnarandstaða
Nicaragua, UNO, að gera Violetu
Chamorro að forsetaframbjóðanda
sínum. Það réði valinu að hún er
vinsæl og vel þekkt í landinu.
Violeta Chamorro þykir vera í
svipaðri aðstöðu og Corazon Aqui-
Tékkóslóvakía:
Sovéther
ábrott
ummitt
næsta ár
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA herliðið í Tékkó-
slóvakíu verður allt á brott
fyrir 1. júlí á næsta ári. Vac-
Iav Havel, forseti Tékkósló-
vakíu, skýrði frá þessu í gær
en hann er nú í Moskvu til
viðræðna við ráðamenn þar.
Havel upplýsti þetta á blaða-
mannafundi og sagði, að ut-
anríkisráðherrar ríkjanna, Edú-
ard Shevardnadze og Jiri Di-
enstbier, hefðu undirritað sam-
komulag um brottflutninginn.
Sovéska herliðið var sent til
Tékkóslóvakíu til að bæla niður
Vorið í Prag árið 1968 og eru
þar nú 73.500 manns.
Mikið var látið með Havel
við komuna til Moskvu þótt
ekki sé nema ár síðan hann var
kallaður vandræðamaður og
óvinur sósíalismans í sumum
fjölmiðlum. Gekk hann fram
hjá heiðursverði hermanna og
lagði krans að minnismerki um
óþekkta hermanninn en þó var
eins og hann kynni ekki al-
mennilega við sig í sínu nýja
hlutverki. Var til þess tekið,
að hann hagræddi ekki kransin-
um eftir að hann hafði lagt
hann frá sér eins og þó mun
vera siður.
ono forseti Filippseyja. Báðar eru
þær ekkjur stjórnarandstöðuleið-
toga sem féllu fyrir morðingja-
hendi. Violeta Chamorro er sextug
að aldri, gráhærð og virðist fremur
veikburða. í kosningabaráttunni,
sem þótti ekki takast vel, voru
mest áberandi kröfur um lýðræði,
markaðshagkerfi og afnám her-
skyldu. Hún lagði áherslu á að
kaþólsk trú yrði í heiðri höfð og
einnig var til þess tekið að hún
minntist eiginmanns síns í hverri
ræðu. Það háði Violetu í kosninga-
baráttunni að hún slasaðist um
áramótin og hefur síðan verið
bundin við hjólastól.
Heimild: The Spectator og
Reuter
Reuter
Violeta Chamorro fagnar sigri með varaforsetaefni sínu, Virgilio
Godoy.
Eftirlit á 4.300 kjörstöðum
Managua. The Daily Telegraph.
KOSNINGARNAR sem fram fóru
í Nicaragua á sunnudag vóru
þríþættar. Kosið var til þings og
sveitarstjórna auk þess sem for-
seti landsins var kjörinn. Rúmlega
2.000 erlendir eftirlitsmenn fylgd-
ust með framgangi kosninganna
og að í öllu væri farið eftir settum
reglum en auk þeirra komu um
1.500 erlendir fréttamenn til
landsins.
Um 1,7 milljón manna var á kjör-
skrá og héldu erlendu fulltrúamir
uppi eftirliti á öllum kjörstöðum
landsins sem voru um 4.300. Fréttir
bárust ekki af kosningasvikum en
stjórn sandinista lagði á það ríka
áherslu að kosningarnar yrðu öld-
ungis fijálsar og að úrslit þeirra
yrðu virt. Miguel Obando y Bravo,
kardínáli katólsku kirkjunnar í Nic-
aragua, kvaðst telja yfirlýsingar
stjómar sandinista fyrir kosningarn-
ar gefa til kynna að þeir hefðu end-
urskoðað stefnu sína eftir hrun
kommúnismans í Austur-Evrópu.
„Fall Berlínarmúrsins hefur gert það
að verkum að þeir óttast nú einangr-
un á alþjóðavettvangi". Bent hefur
verið á að Kúbanir, Austur-Þjóðveij-
ar og Sovétmenn hafí dregið úr efna-
hagsaðstoð við Nicaragua. Efnahag-
ur landsins sé í rúst og nú treysti
sandinistar á að Bandaríkjamenn
komi landsmönnum til hjálpar.
A hinn bóginn nýttu sandinistar
sér ríkisrekna fjölmiðla til fullnustu
og þannig sýndi sjónvarpið þátt um
„Leðurblökumanninn" sívinsæla
einn morgunin á sama tíma, og
stjómarandstæðingar höfðu boðað
til fjöldafundar í höfuðborginni
Managua. Þá sáu fulltrúar bresku
ríkisstjórnarinnar ástæðu til að gera
athugasemd við mynd sem synd var
í sjónvarpinu þar sem frú Violeta
Chamarro, forsetaframbjóðandi
stjórnarandstöðunnar og sigurvegari
kosninganna, var bendluð við nas-
isma og skæruliðastarfsemi.
■ LONDON - Sextán manns að
minnsta kosti biðu bana af völdum
óveðurs í norðvestanverðri Evrópu
í gær, aðeins þremur dögum eftir
að íbúar þessa svæðis sleiktu sól-
skin og nutu óvenjulega mikilla hlý-
inda. Veðrið varð hvað verst á sunn-
anverðu Englandi þar sem níu menn
biðu bana. I Belgíu biðu tveir menn
bana, tveir í París og einn á Irl-
andi. Óveðrið náði frá þýsku Rínar-
héruðunum í austri og vestur fyrir
Bretlandseyjar. Veðurhæðin mæld-
ist allt að 160 km/klst. Gífurleg
úrkoma fylgdi veðrinu.
■ LINARES - Garrí Kasparov
heimsmeistari í skák jók enn for-
ystu sína á stórmótinu í Linares á
Spáni á sunnudag. í sjöundu um-
ferðinni sem þá var tefld lagði hann
landa sinn Vassilíj Ivantsjúk í 43
leikjum. Kasparov er nú efstur með
6 vinninga af 7 mögulegum. Næst-
ur kemur Boris Gelfand með 5 vinn-
inga og þá Nigel Short með 4 ‘L
og biðskák.
■ ÓSLÓ - Tveir norskir bankar,
Den Norske Creditbank og Bergen
Bank sem ganga í eina sæng í apríl-
mánuði næstkomandi undir nafninu
Den Norske Bank, lýstu því yfir
í gær að fækkað yrði í sameiginlegu
starfsliði þeirra um 1100-1200
manns til að draga úr rekstrar-
kostnaði. Den Norske Bank sem
verður stærsti banki í Noregi eftir
sameininguna ætlar að fækka hjá
sér um 700 manns í Noregi og
4-500 erlendis og ná þannig fram
milli 500 og 700 milljóna norskra
króna (4,6-6,5 milljarða ísl. kr.)
sparnaði.
■ LONDON - í skoðanakönnun
sem birtist í breska vikuritinu
Sunday Times síðastliðinn sunnu-
dag hlaut Verkamannaflokkurinn
bestu útkomu sem hann hefur feng-
ið í þau ellefu ár sem Margaret
Thatcher forsætisráðherra hefur
haldið um stjórnartaumana í Bret-
landi - eða 51% á móti 34% íhalds-
flokksins. Það mundi nægja flokkn-
um til að fá 120 sæta þingmeiri-
hluta í almennum kosningum.
„Þessi aukna forysta sýnir ekki ein-
göngu vaxandi andstöðu við Ihalds-
flokkinn," sagði talsmaður Verka-
mannaflokksins, „heldur endur-
speglar hún einnig vaxandi trú al-
mennings á getu flokks okkar til
að mynda ríkisstjórn." Thatcher
sagði í tilefni af könnuninni að efna-
hagslífíð ætti eftir að breytast mik-
ið til hins betra áður en til þess
kæmi að hún boðaði til kosninga
árið 1992.
Hundruð þúsund sovéskra umbótasinna á útifundum:
Segja umbætur of hæffar off krefj-
ast afeagna kommúnistaleiðtoga
Moskvu. Reuter. Daily Telegraph.
HUNDRUÐ þúsunda umbótasinna
höfðu viðvaranir sovéskra yfir-
valda að engu og kröfðust hraðari
lýðræðisumbóta og afsagnar leið-
toga kommúnistaflokksins á fjöl-
mennum útifundum víðs vegar um
Sovétríkin á sunnudag. Þvert á
spádóma yfirvalda fóru aðgerðirn-
ar friðsamlega fram.
Að sögn jReuters-fréttastofunar
tóku um eitt hundrað þúsund manns
þátt í útifundi á sunnudag í Moskvu.
Aðrar heimildir hermdu að allt að
300.000 manns hefðu tekið þátt í
fundinum en skipuleggjendur mót-
mælanna höfðu búist við þátttöku
allt að hálfrar milljónar umbóta-
sinna. Talið er að viðvaranir mið-
stjórnar kommúnistaflokksins og
ýmissa umbótasinnaðra mennta-
mannahópa til fólks um að halda sig
heima, þar sem talið væri að óeirða-
seggir kynnu að reyna að hvetja til
uppþota á fundunum, hefðu dregið
úr þátttöku. A fundinum var fram-
gangur umbótastefnu Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétforseta harðlega gagn-
rýndur og árangur af henni sagður
enginn. Kröfðust fundarmenn af-
sagnar stjórnmálaráðs Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna. Einnig bar á
mótmælaborðum þar sem Gorbatsjov
og Jegor Lígatsjov, sem fer með land-
búnaðarmál í stjómmálaráðinu, voru
hvattir til að segja af sér. Fjölmennt
lögreglulið sem var í viðbragðsstöðu
í 'Moskvu hélt að sér höndum þegar
ljóst varð að fundarmenn hygðust
ekki fara að Kreml.
Mótmæli utan Moskvu
Til fjölmennra mótmæla kom í
tugum borga víðs vegar um Sovétrík-
in. Hvarvetna var skorað á leiðtoga
kommúnista að segja af sér. í höfuð-
borg Georgíu, Tíflis, komu tugþús-
undir manna saman við aðsetur
stjórnar lýðveldisins og kröfðust
sjálfstæðis, en á sunnudag voru liðin
nákvæmlega 69 ár frá því Rauði
herinn réðst inn í Georgíu.
Að minnsta kosti 100.000 tóku
þátt í fundi umbótasinna í Mínsk,
höfuðborgar Hvíta-Rússlands og
50.000 í Kíev í Úkraínu. Hins vegar
komu aðeins um 10.000 manns til
fundar í Leníngrad. Álíka margir
voru á útifundi í Sverdlovsk í Úral-
fjöllum þar sem umbótasinninn Boris
Jeltsín flutti ræðu. Fregnir fóru af
fjölmennum fundum í Jaroslavl og
Gorkíj og ýmsum borgum Síberíu.
Reuter
Lögregla og hersveitir KGB og sovéska innanríkisráðuneytisins höfðu
mikinn viðbúnað vegna mótmæla umbótasinna í Moskvu í fyrradag.