Alþýðublaðið - 28.10.1920, Blaðsíða 2
2
flLÞYÐUÖLAÐSí)
Æ.fgreiOsssia,
blaðsins er í 'Aiþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgöíu.
Sími Ö88.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í síðasta lagi ki.
XO árdegis, þann dag, sem þær
eiga að koma í blaðið.
Áskriftargjald ein kr. á
mánuði.
Auglýsingaverð kr. 1,50 cm.
eindálkuð.
Útsölumenn beðnir að gera skil
til afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungslega.
götvun Einsteins prófessors verði
án efa víðtækar fyrir eðlisfræði
og stjörnuvísindi og kunni svo að
segja að gerbreyta skilningi manna
á efnisheiminum, þá er ekki næsta
líklegt að þeirra muni gæta mik-
ils í daglegu iífi manna. Öðru
máli er þar að gegna um nokkur
önnur afrek sem vísindin nú virð-
ast vera að inna af hendi, t. d.
rannsókhir Sir Ernest Rutherfords
á deilanleika frumeindanna. Með
þeim rannsóknum má vel vera að
sé að fæðast miklu stórkostlegri
bylting á sviði hagnýtra vísinda
en nokkur maður að svo komnu
getur gert sér í hugarlund. Sama
er að segja um uppgötvanir ann-
ars ensks vísindamanns, F. N.
Maude, ofursta, er nýlega hefir
verið mikið talað um í enskutn
blöðum. En hann þykist hafa koll-
varpað anhari af hingað til gild
andi undirstöðureglum náttúruvís-
indanna, sem sé þeirri, að ekkert
afl verði framleitt fyrir minna en
jafngildi sitt, eða með öðrum orð-
um að þegar eitthvert afl er fram-
leitt þá sé í rauninni ekki um
annað að ræða en að einu aflinu
sé breytt í annað. Gufuaflið, sem
knýr eimskipið áfram, hefir legið
geymt í kolunum; afl það, sem
besturinn eyðir til þess að draga
kerruna, hefir verið falið í fóðri
því er hann er alinn á, o. s frv.
Maude ofursti þykist nú hafa fund-
ið ráð til þess að framleiða meira
afl en til þess var varið að fram-
leiða það. Ef staðhæfing hans
reynist rétt, þá hlýtur hún að
leiða það af sér, að líkamleg vinna
verði er stundir líða fram að miklu
leyti óþörf.
En hvað sem nú verður ofan
á um uppgötvun þá er hér ræðir
um, þá er það nú skoðun margra
merkra vísindamanna, að þess
muni ekki verða langt ‘ að bfða
að líkamleg vinna verði að mestu
óþörf, Að svo muni einhverntíma
verða, efast nú varla nokkur hugs
andi maður um. Svo að segja
daglega leggur mannsandinn und-
ir sig nýjar lendur. Það er geysi
legur munur á því, hve miklu
minna mannlegt erfiði þarf nú en
fyrir 100 árum til þess að fram-
leiða hin sömu auðæfi á einstakl-
ing hvern. Enski lávarðurinn Le-
verhulme heldur því fram að nú
mundi það með öllu óþarft að
nokkur manneskja þar í landi
ynni meira en 4 klt. á sólarhring
— ef rétt og réttlátlega væri að
farið. Að svipaðri niðurstöðu komst
hinn nafnkunni enski hagfræðing-
ur Sir Leo Chiozza Money. Þó
hafa enskir verkamenn ekki kraf-
ist skemri vinnudags en þess sem
nú er búið að iögleiða þar —
sem sé 8 klukkustundir. Það er
því varla hægt að segja að kröf-
ur þeirra um lengd vinnutfmans
fari fram úr því sem sanngjarnt
er.
(Frh)
Rottu-herjerðiti.
Undirbúningur undir rottueyð-
inguna í bænum er nú hafinn, og
var í dag byrjað að brytja brauð
og vökva það í Ratini, og verð-
ur það lagt út næstu daga í þann
hluta bæjarins, sem forstjóri þessa
verks, Knudsen, ákveður, sem að
líkindur verður inst á Laugavegi.
Rottunefndin hefir ákveðið að
halda fund vikulega, en hefir þess
á milli falið þeim Gísla Guðmunds
syni gerlafræðingi og Agústi Jó-
sefssyni heilbrygðisfulltrúa að að-
stoða Knudsen í öllum framkvæmd-
um og ráða menn til þess að
leggja eyðingaefnið í hús bæjar-
ins og á þau svæði sem þurfa
þykir.
Þegar eyðingarefni er lagt í
hús, verða húseigendur beðnir að
skrifa undir viðurkenningu á þvf,
að útleggingarmaður hafi lagt í
hús hans, og síðan verða húsin
skrásett, og svo yfirfarið á eftir
hver árangur hafi orðið af eitr-
uninni.
Nefndin gerir ráð fyrir, að hús-
eigendur og aðrir bæjarmecu
verði henni hjálplegir f öllum
efnum viðvíkjandi þessu máli, svo
að árangur af starfinu verði jafn-
góður hér og hann hefir orðið
hjá öðrum þjóðum.
Framkvæmdarstjórn rottueyð-
ingarinnar hefir bækistöð sfna í
húsi Búnaðarfélags íslands við
Lækjargötu, og þaðan verður
hernaðinum stjórnað.
€rlenð simskeyii.
Khöfn, 27. okt.
Frá Svínm.
Frá Stokkhólmi er símað, a®
ráðuneyti sé nú myndað í Svíþjóð;
de Geer er forsætisráðherra og
Wrangel greifi utanrfkisráðherra.
Frá Griklíjum.
Ráðuneytið hefir kvatt Pauf
konungsson til konungs. Svar frá
honum ófengið. Alexander kóng:
á að grafa á föstudag.
Nýr „sannleiknr" um bolsivíka^
Þýzka blaðið Lokal Anzeiger
segir, að fulltrúar sovjetstjórnar-
innar hafi selt gimsteina fyrir S1/^
miijón marka (884 þús. kr.) til
þess að útbreiða kenningar sínar.
(Ath. f sambandi við þetta
greinina á 1. síðu: „Fregnir af
Rússum.").
Verkamuuril
i Sanmðrku.
Khöfn, 27. okt.
Sambandsfélag verkalýðsins í
Danmörku hefir samþykt tillögur
um fyrirkomulag á verkamanna*
ráðum, og sent það atvinnurek-
endaíélaginu til álits og umsagn-
ar.
(Skv. samkomnlagi við verka*
Iýðinn í vor eiga verkamannaráð
að lögleiðast þar í landi).