Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
C 5
...og þaö blasti vió okkur skitur alls
staðar. Vió uróum koldrullug á fótun-
um ef vió löbbuóum berfætt. Veg-
girnir voru útsparkaóir og skitugir
og okkur, fimm manna f jölskyldunni,
voru ætluó tvö handklæói
sólarlandaferð síðan Ítalíuferðin var
farin. Ef hún ætti hinsvegar eftir
að panta sér slíka ferð, myndi hún
vilja fá það skriflegt frá hendi ferða-
skrifstofunnar hvernig aðbúnaður-
inn ætti að vera. „Auðvitað hafði
ég það skriflegt í mínum samningi,
en ég myndi vilja hafa það þannig
að ég gæti krafið ferðaskrifstofuna
um það sem ég pantaði. Við margít-
rekuðum að við vildum búa vel. Við
þurftum ekki að búa eins og eitt-
hvert kóngafólk, heldur vildum við
geta notið þess að vera saman í
huggulegheitum í sumarfríinu okk-
ar. Þetta átti að vera svolítið sér-
stök fjölskylduferð. Við vorum svo
heppin að veðrið var gott allan
tímann þannig að við vorum úti
langt fram á kvöld það sem eftir
var. Við þurftum því ekki að dúsa
hjá kóngulónum nema yfir blánótt-
ina. Veðrið bjargaði því sem bjargað
varð. Okkur hafði verið lofað sér-
stakri barnadagskrá, en aldrei ból-
aði á slíku. Eitt sinn hittum við
íslensk hjón, sem buðu okkur á
íbúðahótelið til sín. Þau höfðu farið
í þessa ferð sem hoppferð og borg-
uðu þar af leiðandi helmingi minna
fyrir en við. Þar vantaði ekki lúxus-
inn. Þau gátu hreiðrað um sig í
leðursófasettum og öðrum fínheit-
um.
Þegar heim var komið, reyndi
fjölskyldan oftar en einu sinni að ,
hafa samband við forstjóra viðkom-
andi ferðaskrifstofu, en án árang-
urs. Eiginmaður Margrétar hafði
skrifað upp á tryggingavíxil vegna
ferðalaga innanlands á Ítalíu, til
að hafa í bakhendinni ef ekki yrði
staðið við allt það sem lofað var.
Víxillinn endaði hinsvegar hjá lög-
fræðingi, sem sá um innheimtuna.
DAVÍD SCHEVING
THORSTEINSSON,
idnrekandi
Yið hjónin fórum eitt sinn í pá-
skaleyfi til Flórída með eitthvað
af börnunum. Veðrið var yndis-
legt, en um það leiti sem við fórum
var verð að setja epla-trópí á mark-
aðinn hér heima. Eg var varla kom-
inn inn á hótelið á Flórída þegar
síminn byijaði að hringja. Drykkur-
inn hafði selst upp og það vantaði
meira hráefni. Fríinu eyddi ég sem
sagt í símanum og kom auðvitað
jafn skjannahvítur heim. Ég komst
þó á ströndina einn eða tvö eftirmið-
daga, en þá var fjölskyldan orðin
svo súr út í mig að hún vildi ekk-
ert við mig tala. Til að kóróna þetta
allt saman, keyptum við gasgrill og
ætluðum nú að halda verulega fína
vígsluhátíð. Ég tók að mér elda-
mennskuna, fór út í búð og keypti
feikilega fallegan nautahrygg. Hon-
um var komið fyrir á nýja grillinu
oghófst nú eldamennskan eftir
kúnstarinnar reglum. En, þá
hringdi síminn. Eg var ekki búinn
að tala lengi þegar fólk úr næsta
nágrenni dreif að. Grillið stóð sem
sagt í björtu báli, eldtungurnar
mörg fet upp í loftið og það kom
að því að eitthvað annað varð að
finna í kvöldmatinn. Ég held að ég
hafi bara aldrei komist í annað eins
„frí“ um ævina.“
HERMANN
GDNNARSSON,
skemmtikraftur og fararstjóri
Eftir vinnuferð til Svíþjóðar sem
íþróttafréttamaður árið 1983
fór ég yfir til Danmerkur og
ætlaði að vera þar í fjögurra til
fimm daga fríi. Systir mín býr rétt
fyrir utan Kaupmannahöfn og hjá
henni ætlaði ég að búa. Fyrstu nótt-
ina fékk ég mér þó hótel í Kaup-
mannahöfn og talaðist okkur þann-
ig til að systir mín og hennar mað-
ur kæmu til mín um kvöldið og við
fengjum okkur að borða saman.
Ég fór auðvitað í mitt fínasta „púss“
o g í grænum buxum, skjanna-
hvítum jakka og með klút í vasanum
gekk ég yfir að Ráðhústorginu, þar
sem við höfðum mælt okkur mót.
Ég var kominn þangað um klukkan
átta-, labbaði um og beið eftir syst-
ur minni. Þá komu tveir strákar,
19-20 ára. Þeir gengu alltaf í veg
fyrir mig eins og þeir væru að stríða
mér. Ég lét þetta ekki á mig fá,
en þegar þeir lintu ekki látunum,
tók ég í öxlina á öðrum þeirra og
færði hann til hliðar. Ég labbaði
aftur af stað og heyrði þá fótatak
á eftir mér. Annar þeirra kallaði
allt í einu „hei“ og ég leit við og
það síðasta sem ég man var hællin
á skónum hjá öðrum þeirra. Hann
sparkaði upp undir nefið á mér. Ég
steinrotast í fína gallanum og datt
utan í búðarglugga. Það sem meira
var, það liðu 40 mínútur áður en
sjúkrabíllinn kom og það datt eng-
um í hug að rétta mér hjálparhönd
á meðan ég lá þarna rotaður og
alblóðugur. Ég rankaði við mér á
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn hálf-
tíma eftir miðnætti með þrjá eða
fjóra lækna yfir mér, nefið út á
kinn mölbrotið, sprungna vör, glóð-
arauga á báðum og fíni hvíti jakk-
inn var orðinn „blóð“rauður. Rann-
sóknarlögreglumaður tjáði mér að
lítil von væri í að finna árásarmenn-
ina. Hinsvegar sögðu þeir mér að
ég hefði verið gangandi auglýsinga-
skilti fyrir þessa eiturlyfjaneytend-
ur, vel klæddur, greinilegur túristi
og einn á ferð. A fjórða degi flaug
ég heim til íslands eftir mjög stutt
og nefstórt frí.
Þremur árum seinna var ég
staddur í Þórskaffi þar sem ég var
að skemmta ásamt Ómari Ragnars-
syni og fleiri góðum mönnum. Ég
var á leiðinni út þegar hóað var í
mig og ég rölti í áttina til fólksins,
sem ég þekkti reyndar ekkert. Ein
stelpan í hópnum segir: „Þú hlýtur
að hafa verið nær dauða en lífi
þarna í Kaupmannahöfn um árið.“
Ég varð að vonum hissa og spurði
hvernig hún vissi um það. Þá kom
það upp úr kafinu að bróðir hennar
hafði verið sá sem sparkaði í mig,
en hann er íslenskur og hefur verið
í eiturlyfjum úti í Kaupmannahöfn.
Vonandi gengur þessum unga pilti
betur í dag.“
Sýning
a sumarhusum
um helgina
VERÐ SUMARHUSA:
19 fm
Verð frá kr. 820.600,-
32 fm
Verð frá kr. 1.269.500,-
38 fm
Verð frá kr. 1.326.000,-
44 fm
Verð fra kr. 1.445.800.
50 fm
Verð frákr. 1.611.800,-
49 fm (T-hús)
Verð frá kr. 2.826.500,-
bezR/m\f
Laugavegi 66
101 Reykjavík
símar 623336 og 626265
Póstkröfuþjónusta -
Greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar:
(91)62 33 36 og 62 62 65
MONDIAL
Skartið sem bætir komið aftur!
Pantanir óskast sóttar sem fyrst
Vesturlandsvegur
A athafnasvæði ðkkar við Viðarhöfða höfum við nú tvö fullbúin
sumarhús til sýnis. Við gefum upplýsingar og tökum pantanir
á sumarhúsum til
afgreiðslu næsta sumar. ~
Komið og skoðið húsin
um helgina
frá 12-17. ______________
Vlöarhöfoi
Yfir 2 milljónir Evrópubúa nota
MONDIALdaglega. Fjölmargir
íslendingar hafa notið áhrifa
MONDIALarmbandsins og þeim
fjölgarstöðugt sem hafa sam-
band við okkur og láta vita af
góðum árangri.
MONDIAL er með vandaða
gull- og/eða silfurhúð.
Þú tekur enga áhættu með kaup-
um á MONDIAL gegn póstkröfu,
því við veitum sjö daga skilafrest
fyrir þá, sem kaupa MONDIAL
armþandið óséð.
Varist eftirlíkingar
Fæst aðeins hjá okkur
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT.
Silfur.....kr. 2.590,-
Silfur/gull ...kr. 2.590,-
Gull.......kr. 3.690,-