Morgunblaðið - 11.03.1990, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
C 13
..
■■■■
y r, ■
■>x % ,.
lÍWliSfiM'ém
ÍÍÉÍSÍ M
æææ <$£
. \ j
HH
MM
W'5, *>.4 .?w,
#f ■ m -
nirt
ill í Mongólíu og í Austur-Evrópu.
Mongólskir fjölmiðlar sögðu frá
mótmælunum og þrír lýðræðis-
sinnar tóku þátt í kappræðum í
sjónvarpi.
Helzti leiðtogi lýðræðisfélagsins
var 27 ára gamalt doktorsefni, Zor-
ig Sanjasuren, sem er nýkominn frá
námi í „kenningu vísindalegs
kommúnisma" í ríkisháskólanumí
Moskvu.„Þjóð okkar er vöknuð,“
sagði hann í janúar. „Við erum
ekki lengur haldnir ástæðulausum
ótta.“ Aðrir helztu ieiðtogar hreyf-
ingarinnar eru um þrítugt og nokkr-
ir þeirra eru blaðamenn. Hreyfíngin
kveðst hafa 70.000 stuðningsmenn
og fiestir þeirra eru 35 ára eða
yngri eins og 70% þjóðarinnar. Fé-
lagar í kommú'nistaflokknum eru
90.000.
mn.
Fögnuður á stofnfundi lýðræðisflokksins: Fyrsti stjórnarandstöðuflokkur
Kaifu forsætisráðherra fagn-
ar forsætisráðherra Mong-
ólíu í Tokyo: Japanskar ijárfest-
ingar.
„Stalín Mongólíu": Líkneski af
Choibalsan.
Aukin samvinna við erlend
ríki: Forsætisráðherra Mongólíu
kynnir sér japanska sjónvarps-
myndatökuvél.
armenn væru hlynntir „róttækum
breytingum í þjóðfélaginu“. En
kvartað hefur verið yfir því innan
flokksins að framfarir í landinu
hafi verið of hægfara. Mongólski
flokkurinn þykir hafa verið of seinn
að hagnýta sér aukið svigrúm, sem
hann hefur fengið til að koma á
breytingum vegna þess að hug-
myndafræði kommúnista er dauð
og Rússar og Kínveijar hafa sætzt.
Lýðræðishreyfíng
Menntamenn og námsmenn
komu lýðræðishreyfingunni á fót í
desember vegna frétta, sem bárust
af atburðunum í Austur-Evrópu.
Margir verkamenn hafa stutt hreyf-
inguna, sem hét Mongólska lýðræð-
isfélagið áður en henni var breytt
í stjórnmálaflokk. Mongólsk blöð
sögðu frá ástandinu í Austur-
Evrópu, sovézka sjónvarpið sýndi
myndir og margir Mongólíumenn
hlusta á BBC og Voice of America.
Lýðræðisfélagið hélt tvo útifundi
í Ulan Bator í desember með leyfi
yfirvalda. Fundarmenn báru borða,
sem á stóð: „Lýðræði er markmið
okkar!" og „Samstaða með mann-
réttindum!" Forsprakkar hreyfing-
arinnar hétu því að vinna „innan
kerfisins” og því var ekki búizt við
eins mikilli ókyrrð og hafði orðið í
Austur-Evrópu. Auk þess er fjand-
skapur í garð Rússa ekki eins mik-
Mótmæli í Ulan Bator:
Fijálslegra andrúmsloft.
A fundum sínum lagði hreyfingin
áherzlu á kröfur um afnám alræðis
og valdaeinokunar kommúnista,
kosningar og flölflokkakerfi. Hún
krafðist þess einnig að kommún-
istaflokkurinn hætti að skipta sér
af stjórn ríkisins, kúgun fortíðarinn-
ar yrði rannsökuð, mikilvæg mál
yrðu borin undir þjóðaratkvæði og
embættismenn yrðu sviptir forrétt-
indum.
„Mongólar!
Á bak!“
Um 5.000 manns mættu á þriðja
útifund lýðræðisfélagsins Tí jan-
úar. í fyrsta skipti voru leiðtogar
stjórnarinnar gagnrýndir með nafni
og þess krafizt að Tsédenbel yrði
leiddur fyrir rétt, en valdi var ekki
beitt gegn mannfjöldanum. Spurt
var hvers vegna Stalín væri enn
heiðraður í Mongólíu, þótt honum
hefði verið hafnað í flestum öðrum
kommúnistaríkjum. Einn fundar-
manna hélt á borða, sem á stóð:
„Mongólskir bræður og systur! Á
bak!“
Eftir fundinn ræddu fulltrúar
kommúnistaflokksins við leiðtoga
lýðræðisfélagsins, bersýnilega til að
koma í veg fyrir árekstra. Hún virð-
ist ekki hafa búizt við því að at-
burðarásin yrði eins hröð og raun
bar vitni. Flokksmálgagnið Unen
gagnrýndi mótmælaaðgerðir stjórn-
arandstæðinga og þegar þeir boð-
uðu nýjan fund varaði blaðið þá við
því að knýja of fast á um breyting-
ar og bað þá að „staldra við“ áður
en þeir héldu baráttunni áfram.
Nýr fundur var bannaður og
hugmyndafræðingurinn D. Tsahilz-
han sakaði stjórnarandstæðinga um
að fara eftir vestrænum og austur-
evrópskum hugmyndum þegar
hann sagði frá banninu í sjónvarpi.
Herinn reif hins vegar niður minnis-
merki af Stalín við herbúðir í Ulan
Bator „til að koma til móts við kröf-
ur íbúanna”. Valdamikill kommún-
Batmunkh: Heldur hann völd-
unum?
um að Mongólíumenn fái að njóta
beztu kjara í viðskiptum við Jap-
ana. Japönum stendur til boða að
nýta málma í Mongólíu, m.a. kop-
ar, zink og mólýbdenít (til að herða
stál), og þeir hyggjast reisa þar
stálver og sjónvarpsverksmiðju.
Mongólíumenn kynna sér einnig
einkaframtak um þessar mundir.
Sænskur gimsteinafræðingur hefur
verið beðinn að rannsaka hvort
demanta sé að finna í landinu, ullar-
verksmiðja hefur tekið upp sam-
vinnu við Japana, kannaðir hafa
verið möguleikar á því að Mac-
Donald-keðjan opni skyndibitastaði
í Ulan Bator og rætt hefur verið
við oiíufélagið BP um olíuleit.
Kommúnistamálgagnið Unen
kallaði árið 1989 ár „leitar að rót-
tækum leiðum til að breyta innra
lífi flokksins". Eftir miðstjórnar-
fund seint á árinu var sagt að fund-
isti sagði að ekki yrði gripið til
kúgunaraðgerða eins og á Torgi
hins himneska friðar í Peking í
fyrra, en leiðtogar Lýðræðisfélags-
ins kváðust hafa fengið símhótanir
og sögðu að hugmyndir þeirra væru
rangfærðar í fjöliniðlum.
Þrátt fyrir bann stjórnarinnar og
20 stiga frost mættu 6.000 manns
á enn einn útifund í Ulan Bator 21.
janúar til að lýsa yfir stuðningi við
lýðræðisfélagið. Krafizt var mann-
réttinda og fleiri tilslakana og hvatt
til þess að vinnuvikan yrði fimm
dagar í stað sex, að forréttindi
embættismanna yrðu afnumin og
velmegun tryggð. Tónninn var ekki
eins herskár og á fundinum viku
áður og Batmunkh var ekki gagn-
rýndur beinlínis, en veitzt að lágt-
settum embættismönnum. Fundur-
inn fór friðsamlega fram og ekki
var reynt að leysa hann upp þrátt
fyrir bannið.
Fríðindi afíiumin
Eftir útifundinn ákvað stjórnar--
nefnd kommúnistaflokksins að sér--
stök fríðindi ráðamanna skyldu af-
numin. Þeir fá því t.d. ekki að nota
opinberar bifreiðar og verzlun og
heilsugæzlustöð, sem þeir einir hafa
haft aðgang að, verður lokað. Jafn-
framt ákvað stjórnin að leyfa stofn-
un Mongólska lýðræðisflokksins.
Þótt flokkurinn krefðist þess á
stofnfundinum að 200 forystumenn
flokksins, þar á meðal miðstjórnin,
segðu af sér og helztu leiðtogarnir
yrðu leiddir fyrir rétt sendi Bat-
munkh fundinum skeyti, sem jafng-
ilti raunverulegri viðurkenningu á
flokknum. í stefnuyfirlýsingu var
hvatt til þess að komið yrði á fjöl-
flokkakerfi til að ijúfa valdaeinokun
kommúnista, með öðrum orðum að
fijálsar kosningar yrðu leyfðar, að
frjálsara markaðskerfi yrði tekið
upp, dregið yrði úr skriffinnsku,
erlend lán yrðu greidd, mannrétt-
indi og trúfrelsi yrðu virt og eignar-
réttur á búpeningi tryggður. Þess
var einnig krafízt að lokað yrði
gullnámu, sem erlend ríki hefðu
haft að féþúfu.
„Lengi lifi Mongólski lýðræðis-
flokkurinn,“ hrópaði Dogmidyn
Sosorbaram, einn af leiðtogum
flokksins, við mikinn fögnuð.
„Lengi lifi réttlát og mannleg
Mongólía."
„Lýðræðisleg bylting“
Gongoijawin Boshigt, annar for-
ystumaður flokksins, sagði á blaða-
mannafundi að flokkurinn hefði
farið fram á að kosningar með þátt-
töku margra flokka yrðu haldnar
fyrir mitt þetta ár, en kvað svar
ekki hafa borizt. „Nýi flokkurinn
ætlar að bjóða fram gegn stuðn-
ingsmönnum núverandi stjórnar,"
sagði hann. Yfii-völd hafa gefið til
kynna að stjórnarskránni verði
breytt á þessu ári til að leyfa starf-
semi andstöðuflokka. Bæjar- og
sveitarstjórnarkosningar hafa verið
fyrirhugaðar í júní og þingkosning-
ar á næsta ári.
Bosight skoraði á ríkisstjórnina
að taka á sig ábyrgðina á „efna-
hagslegri, pólitískri og andiegri
kreppu“ og segja af sér. „Þetta er
bylting án blóðsúthellingar," sagði
hann. „Þetta er lýðræðisleg bylting
gegn kúgun kommúnista.”
Þótt talið sé að lýðræðissinnar
kunni að fara með sigur af hólmi
í kosningum telja sérfræðingar að
þeir liggi að sumu leyti vel við
höggi. Sumir efast um að flokkur
þeirra geti staðið við loforð sín um
aukna hagsæld, einkum vegna þess
að hann hafi ekki enn mótað stefnu
í efnahagsmálum.
Leiðtogar flokksins hafa heitið
að hækka meðallaun úr um 7.000
í um 24.000 kr. á mánuði, lækka
skatta og hækka tryggingabætur.
Um leið á að hætta lántökum í
Sovétríkjunum og öðrum löndum
og dæmið virðist ekki ganga upp.
„Stjórnin stendur fyrír svo örum
breytingum að svo getur farið að
erfitt verði að finna mun á stefnu
nýja flokksins og stjórnarinnar,"
sagði mongólskur bankastarfsmað-
ur nýlega. Stjórnin leggur áherzlu
á reynsluleysi leiðtoga lýðræðis-
| hreyfíngarinnar.