Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
Tannlæknastofa
Hef opnað tannlæknastofu í Snekkjuvogi 17.
Tímapantanir daglega frá kl. 14-18.
Eua Marie Bauer, tannlæknir.
Hcettulegasta vopnið í veski konunnar
er blóðrautt frá Astor
Þú stendur betur
að vígi að loknu
hagnýtu námi
Með námi í skrifstofutækni nærð þú góðum tökum á
tölvum og notkun þeirra. Þú kynnist bókfærslu, stjórnun
og fleiri viðskiptagreinum, rifjar upp ýmislegt í íslensku
og færð góða innsýn í viðskiptaensku.
Námið tekur 3 mánuði og að því loknu útskrifast
þú sem skrifstofutæknir. Þú getur valið um morgun-,
eftirmiðdags- eða kvöldtíma. Við bjóðum upp á afar
nagstæð greiðslukjör. Innritun er þegar hafín.
Hringdu strax í síma 687590
og við sendum þér bækling um hæl.
„Heilagt stríd“
Aldraður írani hughreystir son sinn, sem bíður þess að vera tekinn
af lífi.
Þegar skotdrunurnar og byssu-
geltið á vígvöllum Persaflóa-
stríðsins hljóðnuðu gafst stjórn-
völdum í Iran ráðrúm til að beita
hernum gegn öðrum óvini, hinum
syndum spilltu öflum innanlands,
eiturlyfjasmyglurum, vændis-
konum, mannræningjum og vasa-
þjófúm.
*
Anokkurra daga fresti eru tugir
eiturlyfjasala teknir opinber-
lega af lífi á götuhornum og vænd-
iskonur og þeir, sem gerst hafa
sekir um kynferðisglæpi, eru grýtt
til dauða. Heróínneytendum er
smalað saman og þeir sendir í
vinnubúðir undir því yfirskyni, að
þar skuli þeir endurhæfðir. Hinn
íslamski byltingareldmóður snýst
nú um að uppræta ytri einkenni
þeirra félagslegu og efnahagslegu
erfiðleika, sem þjóðin glímir við.
„Heilaga stríðið" gegn syndinni
beinist aðallega að eiturlyfjasölum
og eiturlyfjaneytendum. Eiturlyfja-
neysla á sér raunar langa sögu í
íran en á 18. og 19. öld, samfara
útþenslu Breska Austur-Indíafé-
lagsins og vaxandi ópíumneyslu í
Kína, varð_ ópíumnotkunin æ al-
gengari í íran líka. Var svo allt
fram á þessa öld og eiturlyfjaneyt-
eridur voru orðnir hluti af samfé-
lagsmyndinni.
Árið 1955 bannaði keisarinn ungi
valmúarækt og ópíumreykingar en
það kallaði á eftirspurn eftir öðrum
fíkniefnum. Þau komu síðan með
heróíninu, sem var fyrst framleitt
á rannsóknastofum í Evrópu. 1969
nam keisarinn bannið við ópíum-
notkun úr gildi, leyfði valmúarækt-
unina og hið opinbera tók að sér
að útvega skráðum ópíumþrælum
sinn daglega skammt. Fyrir bylt-
inguna 1979 voru ópíumreykingar
algengar og komnar í tísku meðal
fína fólksins.
Á þessum tíma voru skráðir
250.000 ópíumneytendur og þar af
var þriðjungurinn kominn yfir sex-
tugt. I raun voru þeir miklu fleiri
og þess utan var heróínneyslan
mjög vaxandi, einkum meðai ungs
fólks í borgunum.
Með byltingunni voru öil vímu-
efni gerð útlæg og valmúarækt
bönnuð og þeir, sem teknir voru
með meira en fimm grömm af her-
óíni og eitt kíló af ópíum, voru
dæmdir til dauða.
Ofgamennimir í Iran vildu sjá
blóðið renna og Khomeini erkiklerk-
ur útnefndi alræmdan grimmdar-
segg, Khalkhaii erkiklerk, sem sér-
stakan dómara í málum stjórnar-
andstæðinga en með þeim voru eit-
urlyfjasalar flokkaðir. Lýsti Kho-
meini því yfir, að heróíndreifingin
væri samsæri, runnið undan riíjum
Bandaríkjamanna, og baráttan var
nú orðin að hugsjón, sem nærðist
á Bandaríkjahatri áhangendanna.
Eiturlyijaneysla er óvíða meiri
en í íran þótt stjórnvöld segist hafa
upprætt valmúaræktunina. Þá er
íran einnig á skrá Bandaríkjastjórn-
ar yfir þau ríki, sem ekki vilja hafa
neitt samstarf í baráttunni við eitur-
lyfin. Mokhtar Kalantari, sem
stjórnar sérsveitum hersins í eitur-
lyijastríðinu, sakar bandarísku
leyniþjónustuna, CIA, um samstarf
Næstu sex vikurnar frá 12/3 - 2/4 verða valin afmælisbörn dagsins á
Bylgjunni. Öll börn fædd 1981 eða síðar geta verið með. Á hverjum
degi verða valin þrjú börn sem fá RC-cola gos og RC-cola bol.
Aðeins þarf að hringja inn nöfn þeirra á Bylgjuna í síma 611111
Á laugardögum verða valin afmælisbörn vikunnar og fá:
þrjú þeirra EGILSGOSBIL með RC-cola gosi
1Ó börn fá RC-cola töskur
20 börn fá RC-cola boli.
Verið með í afmælisleik
Ölgerðarinnar og Bylgjunnar
1® _.aö sjáHsög&i!