Morgunblaðið - 22.03.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.03.1990, Blaðsíða 4
4 B morÖunbÍMð VIÐSttlPn/AIVINmfF mvr 22. MARZ 1990 1 Fyrirtæki Rekstrarafkoma Eimskips batnaði á síðasta ári Hagnaðurinn af reglulegri starfsemi þó tæpast viðunandi að mati forráðamanna félagsins „HAGNAÐURINN af reglulegri starfsemi nam 44 milljónum króna árið 1989 en var 37 milljónir árið áður. A árinu 1989 er þessi liður því einungis 0,8% af rekstrartekjum sem tæpast getur talist viðun- andi,“ sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri í Eimskipafélags Islands i ræðu sinni á aðalfundi félagsins sem haldinn var i siðustu viku. Það kom hins vegar fram hjá Herði að rekstrartekjur félagins án hreinna Qármagnsgjalda jukust umfram rekstrargjöld og varð rekstr- arhagnaður 204 milljónir á árinu 1989, en var 50 milljónir árið 1988. Sem hlutfali af rekstrartekjum var rekstrarhagnaðurinn 3,5% árið 1989 en einungis 1% 1988. Sölirhagnaður eigna hjá Eimskip varð 497 milljónir króna en.hann verður til sem mismunur á söluverði og bókfærðu verði seldra eigna. Að frátöldum áhrifum dótturfélaga sem eru neikvæð um 40 milljónir varð hagnaður Eimskips 501,6 milljónir fyrir skatta. í reikningum félagsins er þeirri aðferð beitt að gjaldfæra reiknaðan tekjuskatt ársins að fullu að flárhæð 259,9 milljónir króna en til greiðslu á árinu 1990 koma 32,4 milljónir vegna ársins 1989. Að frá- dregnum eignarskatti að ijárhæð 53,1 milljón er heildarhagnaðurinn 189,6 milljónir. í skýringum í ársreikningi Eim- skips er gerð nokkur grein fyrir liðn- um reiknaður tekjuskattur sem al- mennt er ekki færður með sama hætti í íslenskum fyrirytækjum. Þessi skattur er tilkominn vegna söluhagnaðar eigna á árinu 1989. Heimilt er að flýtifyma einstaka rekstrarfjármuni í skattauppgjöri á móti þessum söluhagnaði og með því móti fresta greiðslu tekjuskattsins. Hinn reiknaði tekjuskattur ásamt endurmetinni tekjuskattskuldbind- ingu frá fyrra ári er færður til skuld- ar í efnahagsreikningi félagsins og nemur tekjuskattskuldbinding alls 306 milljónum. Rekstrartekjur héldu í við verðbólgu Rekstrartekjur Eimskips þ.e. að frátöldum dótturfélögum, námu 5.844 milljónum króna á síðasta ári sem er 22,4% aukning frá árinu áð- ur. Miðað við hækkun byggingarvísi- tölu sem var 22,2% voru rekstrartekj- umar nánast óbreyttar á föstu verð- lagi. Rekstrargjöld Eimskips á árinu 1989 námu alls 5.641 milljón en þá eru ekki talin með rekstrargjöld dótt- AÐALFlfflDUR r r SJOVA-ALMEfflRA TRYGGINGA HF. VERÐUR HALDIM 6. APRÍ ÍL 1990 AÐ HÓTI 5L SÖGU Fundurinn verður í Súlnasal og hefst kl. 15:30 síðdegis. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 17. grein félagssamþykkta. Stjórnin r * SJOVA-ALMENNAR urfélaga. í ræðu Harðar Sigurgests- sonar kom fram að ferðaútgjöld skip- anna hafí verið 2.335 milljónir en þau voru 1.665 milljónir árið áður. Hér er um 40% hækkun að ræða. Mesta hækkun einstakra liða var á minnkandi. Það stafar einkum af því að .stór hluti af gámaflotanum er fullafskrifaður og 5 skip voru seld á árinu. Greiðslustaðan batnaði á árinu í ræðu Harðar Sigurgestssonar kom fram að greiðslustaða félagsins batnaði á síðasta ári. Veltufjármunir voru í árslok 1989 2.168 milljónir króna og skammtímaskuldir 1,776 milljónir þannig að veltufjárhlutfallið var 1,22. Árið áður var þetta hlut- fall 1,13. Hlutfallið innbyrðis milli áhættufjármuna og langtímakrafna hefur breyst, sem mótast af tvennu. Eimskip seldi þtjú skjp á árinu til dótturfélaga og stofnaði einnig Burð- arás sem yfirtók eignarhluti í öðrum félögum. Þannig jukust eignarhlutir EIGIÐ FE — Eigið fé Eimskips jókst um 33,6% eða um rúm 5% umfram verðlagsþróun á síðastliðnu ári. Að teknu tilliti til hagnað- ar ársins 1989 og þess arðs, sem hluthafar félagsins fengu greiddan á árinu, þá var arðsemi eiginfjár Eimskips tæp 10% árið 1989 borið saman við 1,8% árið áður. brennsluolíu en sá kostnaður jókst um 40%. Rekstrargjöld vöruaf- greiðslu lækkuðu verulega árið 1989 vegna lægri rekstrarkostnaðar véla og tækja, aðhalds í viðhahds- og rekstrarkostnaði mannvirkja og fækkun starfsmanna. Sölu- og stjómunarkostnaður jókst um 10% frá árinu áður og var 618 milljónir króna. Það er 10% raunlækkun á þessum kostnaðarlið. Sem hlutfall af rekstrartekjum Eimskips var þessi liður 10,6% árið 1989 en 11,7% árið . áður. Þessi lækkun stafar aðallega að því að launakostnaður, sem er um 53% af sölu- og stjómunarkostnaði, hefur hækkað minna heldur en al- mennt verðlag. Að öðm leyti var veralegu aðhaldi beitt, svo sem í auglýsinga- og kynningarkostnaði. Afskriftir hjá Eimskip námu 597 milljónum króna sem er 8% hækkun frá árinu áður og kom fram hjá Herði að þessi liður hækkaði ekki í samræmi við verðlag þar sem af- skriftarstofn félagsins hefði farið í dótturfélögum úr 47 milljónum í 430 milljónir. Á móti minnka eignar- hlutir í öðram félögum í 9 milljónir króna en vora 435 milljónir. Skulda- bréfa- og verðbréfaeign félagsins nemur 814 milljónu en var 1988 118 milljónir. Þessi mikla aukning skýrist af sölu skipanna en andvirði þeirra lánaði Eimskip dótturfélögunum en jafnframt af sölu eignarhluta í öðrum félögum yfir til Burðaráss hf. Bókfært verð varanlegra rekstr- arfjármuna nemur 3.388 milljónum króna, en var 3.250 milljónir í árslok 1988. Þetta er raunvirðisrýmun um 18% sem stafar aðallega af því að mun minna var fjárfest en nam af- skrift og sölu varanlegra rekstrar- fjármuna, einkum skipa. í skuldahlið efnahagsreiknings Eimskips kemur fram að langtíma- skuldir námu 2.154 milljónum í árs- lok 1989 og hafa þær staðið í stað í krónutölu frá 1988. Þetta stafar af því að fjárfestingar voru í lág- marki árið 1989 og afborganir langt- FileMaker á Macintosh Gagnlegt 5 daga námskeið um þetta skemmtilega forrit hefst mánudaginn 26. mars. Tími 16-19. Gagnagrunnur - Spjaldskrár - Tölvubókhald. Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi 16 • Sími 68 80 90 Sanngjarnt vetrarverð Hringdu og fáðu námsskrá rsarísaff0 BÉiSsTAL 'Ufea IS^TAL A^a34-P6s«h6W8556 - +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.