Morgunblaðið - 22.03.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 22.03.1990, Blaðsíða 7
B 7 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVlNNllLÍF FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1990 Fyrirtæki Ekkert knýr á um breytingu í almenningshlutafélag - segir Agúst Einarsson en hann situr sem utanaðkomandi aðili í forstjórastól flölskyldufyrirtækisins Lýsis MIKIL umræða hefur verið að undanfornu um hlutafélög og hefur athyglin aðallega beinst að almenningshlutafélögunum. Æ fleiri félög eru að opnast meðal annars vegna óska eigenda eftir meira flármagni inn í fyrirtækin og því er oft tekið það ráð að breyta þeim í almenningshlutafé- lög. Til mótvægis er því ekki úr vegi að kynna sér gamalgróin fjölskylduhlutafélög og varð Lýsi fyrir valinu, m.a. vegna Jþess að eigendurnir, Tryggvi Olafsson og fjölskylda hans, hafa ráðið sér stjórnendur, sem stóðu utan Qöl- skyldunnar. Núverandi forstjóri er Agúst Einarsson og stjórnar- formaður er Jón Sigurðsson. Lýsi hf. var stofnað 1938 af Tryggva Ólafssyni í kringum lifrar- bræðslu, sem hann hafði reyndar byijað á áður en fyrirtækið var stofnað formlega. Tryggvi er nú níræður, en situr enn í stjórn fyrir- tækisins og er við fulla heilsu. Hann var forstjóri allt til ársins 1982 og þegar hann lét af störfum voru fengnir þrír utanaðkomandi aðilar til að stjórna fyrirtækinu. í stjórn þess voru kjörnir þeir Jón Sigurðs- son forstjóri Jámblendifélgsins, Jón- as A. Aðalsteinsson hæstaréttarlög- maður. Jafnframt var Steinar Berg Björnsson ráðinn forstjóri. Ágúst segir að Tryggvi hafi verið meira og minna í fyrirtækinu til ársins 1984, en þá hafi hann dregið sig í hlé frá daglegum rekstri. Árið 1985 hætti Steinar Berg og fór til starfa hjá Sameinuðu þjóðunum í Bandaríkjunum og þá var Ágúst Einarsson ráðinn forstjóri Lýsis. Stefna Tryggva var að fá utanað- komandi aðila til þess að stýra dag- legum rekstri ásamt því að tveir utanaðkomandi aðiiar eigi sæti í stjórn samhliða þremur fjölskyldu- meðlimum, þ.e. Tryggva, dóttur hans og tengdasyni. „Ég held að það sé mjög jákvætt að fá utanaðkomandi menn að ein- hveiju leyti inn í stjóm fjölskyldu- fyrirtækis," segir Ágúst. „Ég er ekki að segja að það sé algild regla, en eins og þetta kemur mér fyrir sjónir almennt þá tel ég það rétt. Meðal annars vegna þess að þarna kemur utanaðkomandi aðili til sög- unnar með öðm vísi áherslur og hugsanlega þá menntun, sem til þarf í rekstri fyrirtækja." — Finnst þér það há Lýsi að ein- hveiju leyti að það sé fjölskyldufyr- irtæki eða telur þú það kost? „Sjálfur er ég fylgjandi því að opna fyrirtækin meira heldur en verið hefur. En hvað Lýsi varðar þá hefur ekki verið nein þörf á því. Yfirleitt er verið að opna fyrirtækin til að ná inn nýju hlutafé til þess að fjármagna fyrirtækin í formi hlutafjár frekar en í formi lánsfjár, sem er skynsamleg ákvörðun út af fyrir sig. Við höfum ekki lent í vand- ræðum hvað það varðar, þannig að sú ástæða á ekki við hér. Hinni ástæðunni til að opna fyrir- tækin, þ.e.a.s. að fá nýja menn inn með nýjar hugmyndir og þá með það í huga að setja fyrirtækjunum ný markmið, hefur verið mætt hér með þv! að fá til starfa utanaðkom- andi menn í stjórn. Þetta eru mjög hæfír menn sem taka virkan þátt í stjórn fyrirtækisins. Mjög mismun- andi er hvernig stjórnir vinna og maður heyrir um menn sem eru fengnir til að sitja í stjórnum fyrir- tækja, en skipta sér sama og ekk- ert af rekstri þeirra. Það er ekki raunin hér. Bæði er mikill áhugi hjá þessum aðilum sem og öllum sem sitja í æðstu stjórn Lýsis. Við hðfum gengið í gegnum vaxtatímabil á undanförnum árum með vissum vaxtarverkjum og það hefur heppn- ast mjög vel. Ég skal ekki sjálfur dæma um eigin frammistöðu, en ég tel að Lýsi hf. sé sterkt fyrirtæki í dag, sem kemur til með að vaxa og dafna í framtíðinni." Samhent ijölskylda Aðspurður um hugsanlega hags- munaárekstra milli hans og eigend- anna segir Ágúst að það hafi ekki komið til. Daglegur rekstur sé alfar- ið í hans höndum, en meiriháttar ákvarðanir um stefnumótun séu í höndum stjórnarinnar. Fjölskyldan sé mjög samhent og það sé vilji hennar að hafa daglegan rekstur í höndum utanaðkomandi aðila og hann hafi aldrei heyrt minnst á að annað kæmi til greina. „Ég yrði kannski síðastur til að frétta það,“ segir hann og hlær. — Áttu von á að Lýsi gerist al- menningshlutafélag? „Það hefur engin slík umræða átt sér stað. Við höfum vaxið mjög ört á undanfömum árum eins og ég sagð áður og ég vona að okkur takist að halda áfram að skapa okk- ur sterkari stöðu á markaðnum. Eiginfjárstaðan er mjög góð, þannig að það er ekkert sem knýr á um það. En ég skal ekkert segja hvað gæti gerst í framtíðinni." Ágúst segir að ýmislegt hafi ver- Á síðustu vertíð framleiddu inn- lendu verksmiðjurnar tæp 150 þús- und tonn af loðnumjöli fyrir 4 millj- arða króna og rúmlega 70 þúsund tonn af loðnulýsi fyrir 1,5 milljarða. Búið er að selja um 80 þúsund tonn af þeim 100 þúsund tonnum af mjöli, sem framleidd hafa verið á vertíðinni. Hins vegar hefur verið selt hlutfallslega minna af lýsi á vertíðinni, þar sem vonast er til að lýsisverðið hækki á næstunni. Verð á mjöli og lýsi hefur verið nær ið að gerast frá þeim tíma sem hann tók við forstjórastarfi, ýmsar stórar ákvarðanir verið teknar. Þeir hafi farið í auknum mæli inn á neytenda- markað í Evrópu og séu nú að upp- skera árangur mikillar vinnu hvað varði markaðssetningu á neytenda- vörum erlendis. Hann segir að upp- bygging rannsóknarstofu hafi verið byijuð áður en hann hóf störf. „En ég hef ekki síður lagt á það áherslu og jafnvel meiri en áður hafði verið gert, að byggja upp fullkomna rann- sóknaraðstöðu og gæðaeftirlit með menntuðu starfsfólki, þannig að við verðum sjálfum okkur nægir t.d. hvað varðar mælingar, sem við höf- um fram til þessa í ríkum mæli þurft að fá gerðar annars staðar.“ Var ráðinn til þriggja fyrirtækja Hann segist í raun hafa verið ráðinn til þriggja fyrirtækja í upp- hafi, þ.e. Lýsis hf. og dótturfyrir- tækja þess sem voru Hydrol hf. og Lýsi og mjöl hf. í Hafnarfirði. Á árinu 1988 var Hydrol sameinað Lýsi og eru fyrirtækin nú rekin í nafni Lýsi hf. I september sl. var rekstur Lýsis og mjöls hf. í Hafnar- firði sameinaður rekstri Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar hf. í Reykjavík. Þetta nýja fyrirtæki hef- ur hlotið nafni Faxamjöl hf. „í báð- um framangreindum tilvikum hefur Bandaríkjadalir fást fyrir prótínein- ingiina af mjöli, eða um 29.900 krónur fyrir tonnið, og um 250 dalir fást fyrir tonnið af lýsi, eða um 15.250 krónur. Aflahæstu loðnuskipin síðdegis á þriðjudag voru Hilmir SU með 28.743 tonn, Helga II RE 25.777 tonn, Júptter RE 22.326 tonn, Sig- urður RÉ 20.117 tonn og Höfrung- ur AK 20.071 tonn. Verksmiðjurnar hafa greitt um 3.700 króna meðal- sameining þegar skilað verulegum árangri," segir hann. — Hveijir eru helstu markaðir ykkar erlendis? „Við seljum víða um heim, en helstu kaupendur eru bresk lyfjafyr- irtæki. Við seljum mest af neytenda- vörum okkar undir bresku vöru- merki og því miður kemur okkar eigið nafn hvergi fram á umbúðun- um, sem er súr biti sem við þurftum að kyngja. Við höfum þó látið okkur hafa það, enda höfum við kannski uppskorið á undanförnum tveimur árum að sú stefna að reyna ekki einvörðungu að koma okkar eigin vörumerkjum á framfæri erlendis, heldur ekki síður að bjóðast til að pakka undir vörumerkjum annarra, hafi borið þennan árangur. Við erum á þennan hátt að hasla okkur völl á breska markaðnum, sem er stærsti lýsismarkaður í heimi.“ Innkaupavenjur evrópskra fyrirtækja eru að breytast Lyfjafyrirtækin skipta í auknum mæli við Lýsi og segir Ágúst að farið sé að gera sífellt meiri og meiri kröfur til fyrirtækja í þessum iðnaði, sem nái til gæðaeftirlits, menntunar starfsfólks, fjárhags- stöðu o.fl. Hann bendir á að innkaupavenjur fyrirtækja í Evrópu séu mikið að breytast í tengslum við innri markað verð fyrir tonnið af loðnu á haust- og vetrarvertíðinni, þannig að heild- araflaverðmæti Hilmis er á annað hundrað milljónir króna. Á hádegi á þriðjudag hafði verið tilkynnt um 86.992 tonn af loðnu til Síldarverksmiðja ríkisins á Siglu- firði frá upphafi haustvertíðar, 70.752 til Eskifjarðar, 60.793 til SR á Seyðisfirði, 60.757 til Síldar- vinnslunnar á Neskaupstað, 48.634 til Fiskimjölsverksmiðju Vest- mannaeyja, 43.373 til Raufarhafn- ar, 37.727 til Þórshafnar, 32.512 til Fiskimjölsverksmiðju Einars Sig- urðssonar í Vestmannaeyjum, 30.248 til Hafsíldar á Seyðisfirði, 27.855 til Reyðarfjarðar, 23.882 til Akraness, 21.835 til Grindavíkur, 14.537 til Bolungarvíkur, 14.234 til Hafnar í Hornafirði, 13.407 til Evrópubandalagsins. Einnig hafi það haft áhrif þegar Thatcher hafi komist til valda, þá hafi hún komið af stað gífurlegu gæðaátaki í Bret- landi. Það sé t.d. skilyrði hjá hinu opinbera að fyrirtæki sem eru með vottuð gæðakerfi gangi fyrir í út- boðum. Það hafi valdið því að mjög mikill fjöldi breskra fyrirtækja hafi komið sér upp slíku. Afleiðingin sé sú að þau krefjist þess af birgjum sínum að þeir hafí einnig vottuð gæðakerfi. „Eitt þessara fyrirtækja sem við pökkum fyrir hefur krafist þess af okkur að við verðum komin með vottað gæðakerfi í árslok 1992. Við erum mjög langt komnir með að ná því marki. Við byijuðum á því að koma okkur upp gæðastaðli í árslok 1987 og við væntum þess að við getum fengið — einna fyrstir fyrirtækja hér á íslandi — vottun, sem uppfyllir þessa staðla. Það er þetta átak sem við höfum gert í gæðamálum hjá okkur og sú staðreynd að við höfum menntað starfsfólk, sem getur talað á jafn- réttisgrundvelli við vísinda- og tæknimenn frá öðrum löndum, sem hefur kannski orsakað það, að staða okkar er tiltölulega sterk í dag.“ Undirbúningur fyrir 1992 Talið berst að 1992 og þeim kröf- um sem gerðar verði til Islendinga þegar innri markaðurinn verður kominn á. Og hvort stjórnendur fyr- irtækja séu yfirleitt farnir að búa sig undir samkeppnina. Ágúst segir að það sé að verða veruleg vakning hjá íslenskum fyrirtækjum og sér- staklega þó á síðustu mánuðum. „Þeir bresku aðilar sem við eigum viðskipti við leggja mikla áherslu á það að okkar vottun fari fram hjá breska staðlaráðinu. Það er stað- reynd að íslendingar eiga mjög tak- markaðan fjölda af hæfu fólki sem þekkir kröfur staðlanna og getur komið inn í fyrirtækin og unnið þetta áfram. Það eru þó einstaka aðilar sem hafa lagt þetta fyrir sig en þeir munu vera fullbókaðir langt fram í tímann. Það er nauðsynlegt að mennta upp nýja stétt manna, sem getur séð um uppbyggingu gæðakerfa í fyrirtækjum. Iðnaðar- ráðherra heur nefnt að lagafrum- varp sé í undirbúningi varðandi að koma upp vottunarstofu hér innan- lands, sem gæti orðið á síðari hluta þessa árs eða fyrri hluta þess næsta. Ég hef litla trú á að svo verði. Það þarf mikið að gerast ef það á að standa. Ég geri mér sjálfur grein fyrir því hvað það er mikilvægt að fá þjálfað starfsfólk, sem hefur burði og getu til þess að taka út fyrir- tæki samkvæmt þessum stöðlum. Fyrst þarf það að uppfylla staðlana sjálft og það tekur sinn tíma. Þess- ir staðlar koma í raun í staðinn fyr- ir lög og reglur sem eru nú í gildi innan Evrópubandalagsins. Ég held að þeir sem verða fljótir að tileinka sér og koma sér upp þessum stöðlum komi til með að verða sterkari eftir en áður.“ Reykjavíkur, 7.347 til Ólafsfjarðar, 6.024 til Sandgerðis, 4.625 til Krossaness við Akureyri, 5.910 til Vopnafjarðar, 3.862 til Hafnar- fjarðar og 1.934 til Njarðvíkur. Sjávarútvegur * Utflutningsverðmæti loðnu- afíirða rúmir 4 milljarðar ÍSLENSKU loðnuskipin höfðu veitt um 652 þúsund tonn af loðnu síðdegis á þriðjudag, þannig að þá áttu þau eftir að veiða um 108 þúsund tonn af loðnukvóta sínum. Þau hafa landað 25 þúsund tonn- um af loðnu erlendis á vertíðinni en 10.500 tonnum til frystingar og hrognatöku. Innlendu verksmiðjurnar hafa því fengið um 614.500 tonn af loðnu til bræðslu á vertíðinni og úr þessu magni er hægt að framleiða um 107 þúsund tonn af mjöli og um 60 þúsund tonn af lýsi. Útflutningsverðmætið er nú um 4,1 milljarður króna. óbreytt frá áramótum. Um 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.