Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 1

Morgunblaðið - 22.04.1990, Page 1
104 SIÐUR B/C 89. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 22. APRÍL 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vytautas Landsbergis forseti Litháens: Málamiðlun hugsanleg í deilunni við Sovétmenn Til greina kemur að fresta sjálfstæðisyfirlýsingunni um tvö ár New York, Islamorada í Florida. Reuter. VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, sagði í viðtali er birtist í gær í banda- ríska dagblaðinu New York Times að málamiðlun í deilunni við Sovétstjórnina væri hugsanleg. Til greina kæmi að Litháar frestuðu eiginlegri framkvæmd sjálfstæð- isyfirlýsingarinnar en á hinn bóginn myndu landsmenn ekki á ný viðurkenna sljórn- arskrá sovéska ríkjasambandsins. Páfi sækir Tékka heim Prag. Reuter. JÓHANNES Páll páfi annar kom í tveggja daga opinbera heimsókn til Tékkóslóvakíu í gærmorgun. I ræðu eft- ir komuna fagnaði páfi lýðræðisbreyting- unum í Austur-Evrópu undanfarna mán- uði og sagði að kommúnisminn hefði hrunið sem Babelsturn. Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu og Frantisek Tomasek kardínáli, leiðtogi kaþólsku kirkjunnar, tóku á móti páfa. Perez de Cuell- ar til Albaníu JAVIER Perez de Cuell- ar, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, mun innan tíðar halda í heimsókn til Albaníu. Breska útvarpið BBC skýrði frá þessu í gær- morgun en á undanförn- um vikum hafa harðlínu- kommúnistar þeir er ráða ríkjum í Albaníu látið að því liggja að slakað verði á einangrunarstefnunni sem einkennt hefur stjórn þeirra. A fimmtu- dag greindi albanska fréttastofan frá því að Ramiz Alia, leiðtogi landsins, hefði lýst yfir vilja stjórnvalda til að taka upp á ný síjórnmálasamskipti við Bandarikin og Sovétmenn. Yfirlýsing þessi felur í sér stefnubreytingu því fram til þessa hafa albanskir ráðamenn fordæmt með öllu umbóta- og opnunarstefhu M.S. Gor- batsjovs Sovétleiðtoga. Orðvandur sökudólgur JÚGÓSLAVI nokkur, Hakic Ceku að nafiii, kom fyrir rétt í Malaga á Spáni fyrir skemmstu en yfirheyrslan fékk skjótan endi er í Ijós kom að maðurinn hafði saumað saman á sér varirnar. Ná- lina og tvinnann tók Hakic fram er hann honum var tilkynnt að hann ætti yfir höfði sér allt að 11 ára vist innan fangels- ismúra. Hakic var kærður fyrir að bera byssuhólk auk þess sem sannað þótti að hann tilheyrði hópi vopnaðra skrílmenna. Þegar i ljós kom að hinum ákærða var öldungis um megn að koma upp orði ákvað dómarinn að fresta frek- ari réttarhöldum. Tjáskiptaörðugleik- arnir komu þó ekki í veg fyrir að Hakic tækist að lýsa vanþóknun sinni á verj- anda sínum, því er hann gekk út úr rétt- arsalnum þreif hann gleröskubakka hveijum hann grýtti í þann lögspaka. Málið verður að líkindum tekið fyrir að nýju nú um hclgina. Landsbergis kvað þau boð hafa borist frá ráðamönnum í Moskvu að samningavið- ræður gætu hafist lýstu stjórnvöld í Litháen yfir því að landið teldist ekki sjálfstætt ríki fyrr en að tveimur árum liðnum. Sagðist forsetinn telja að málamiðlun sem þessi gæti reynst grundvöllur fyrir viðræðum við fulltrúa Sovétstjórnarinnar. Orðrómur er á kreiki í Litháen um að sendinefnd er heldur til Moskvu í næstu viku muni leggja tillögu þessa fram er hún gengur á fund undirsáta Míkhaíls S. Goybatsjovs, leiðtoga sovéskra kommúnista. Á móti eru Litháar sagðir krefjast þess að ráðamenn í Kreml skuld- bindi sig til að virða þá ákvörðun lands- manna að segja skilið við sovéska ríkjasam- bandið. í bréfi sem Landsbergis sendi Sovétleið- toganum á föstudag sagðist hann hafa full- an skilning á því að Sovétstjórnin ætti hags- muna að gæta í Litháen og ítrekaði samn- ingsvilja stjórnar sinnar. Ekki er vitað til þess að svar hafi borist frá Moskvu en Gorbatsjov hefur sett það sem skilyrði fyrir viðræðum við Litháa að sjálfstæðisyfirlýs- ingin frá 11. fyrra mánaðar verði dregin til baka. Marlin Fitzwater, talsmaður George Bush Bandaríkjaforseta, sagði á fundi með frétta- mönnum á föstudag að forsetinn hefði látið þau boð út ganga að stóráuka bæri samráð við vestrænar ríkisstjórnir og leiðtoga þing- flokka á Bandaríkjaþingi. Lét talsmaðurinn að því liggja að boðuð yrðu í næstu viku samræmd viðbrögð Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra við efnahagsþvingunum Sovétmanna gagnvart Litháum. VELFERO, VESÖLD &JÖLFRJEÐI Höfum viö þaö gott miöaö viö aörar þjóöirf 10 Alþýóuflokkur þolir ekki núverandi stjórnarsamstarf - segir Birgir Árnason fyrrum aðstoðarmaður Jóns Sigurðs- sonar sem nú hefur hafið störf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.