Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 199
SKIÐAMOTISLANDS
Sigurgeir sterkast-
urí 15kmgöngu
SIGURGEIR Svavarsson frá Ól-
afsfirði vann sinn fyrsta ís-
landsmeistaratitil í karlaf lokki
er hann sigraði í 15 km göngu
á Skíðamóti íslands í Bláfjöllum
á sunnudag.
Sigurgeir tók forystu strax eftir
fyrstu fimm kílómetrana og
var þá 3 sek. á undan Rögnvaldi
Ingþórssyni frá Akureyri og 20 sek.
á undan Hauki Eiríkssyni frá Akur-
eyri. Sigurgeir hélt uppteknum
hætti næstu fimm km og jók enn
forskot sitt og var hálfri mínútu á
undan Hauki, sem var kominn fram
úr Rögnvaldi. Sigurgeir kom síðan
í mark mínútu á undan Hauki.
Frábær enda-
sprettur Hauks
- tryggði Akureyringum sigur
Akureyringar sigruðu í boð-
göngu karla á Skíðamóti Ís-
lands, en gengið var í Bláfjöllum
í gær. Ólafsfjörður varð í öðru
sæti og Siglufjörður í þriðja.
Fyrir síðustu skiptinguna höfðu
Ólafsfirðingar 40 sek. forskot á
Akureyringa. Haukur Eiríksson,
íslandsmeistari í 30 km göngu,
gekk síðasta sprettinn fyrir Akur-
eyri og Sigurgeir Svavarsson fyr-
ir Ólafsfjörð. Haukur átti frábær-
an endasprett og náði Sigurgeiri
og gerði gott betur og kom 15
sek. á undan honum í mark. í
sigursveit Akureyringa voru
Rögnvaldur Ingþórsson, Kristján
Ólafsson og Haukur Eiríksson.
Fyrstu tveir keppendurnir í
hverri sveit gengu með hefð-
bundinni aðferð, en þriðji og
síðasti með fijálsri aðferð. Skíða-
færi og veður var mjög gott í
Bláfjöllum í gær.
Rögnvaldur gaf eftir á síðustu fimm
km og hafnaði í þriðja sæti, 1,30
mín. á eftir Sigurgeiri.
Þessir þrír göngumenn voru í
sérflokki. Ólafur Bjömsson frá Ól-
afsfirði varð fjórði, 4,30 mín. á eft-
ir sigurvegaranum. Alls voru 8
keppendur sem tóku þátt í keppn-
inni og vekur það athygli að aðeins
einn Isfirðingur var meðal kepp-
enda, Elías Sveinsson, sem jafn-
framt var elsti keppandinn í
göngunni.
Spennandi í piltaflokki
Keppnin í 10 km göngu pilta 17
- 19 ára var mjög jöfn og spenn-
andi. Til marks um það munaði
aðeins 17 sek. á fyrsta og fjórða
sæti. Gísli Valsson frá Siglufirði
sigraði var 11 sek. á undan sveit-
ungi sínum, Sigurði Sverrissyni.
Kristján Ólafssson frá Akureyri
varð þriðji og Kristán Hauksson,
Ólafsfírði, fjórði.
Hinn ungi og efnilegi ísfírðingur,
Daníel Jakobsson, hóf gönguna af
miklum krafti og hafði mínútu í
forskot eftir fyrri fímm kílómetr-
ana. Hann sprakk á síðustu kíló-
metrunum, en kláraði hringinn og
kom síðastur í mark.
MorgunblaðiíS/Bjarni Eiríksson
Sigurgeir Svavarsson frá Ólafsfirði sigraði í 15 km göngu karla. Hér er
hann í 30 km göngunni þar sem hann varð í þriðja sæti.
Akureyr-
ingar
unnu
flest
verðlaun
Akureyringar unnu flest verð-
laun á Skíðamóti íslands 1990.
Þeir hiutu sex gullverðlaun, níu silf-
ur og þrenn bronsverðlaun. Ólafs-
fírðingar komu næstir með tvenn
gull, tvenn silfur og þrenn brons-
verðlaun, þá Siglfírðingar með
tvenn gull, tvenn silfur og ein brons-
verðlaun. ísfírðingar hlutu tvenn
gull og þrenn bronsverðlaun og
Reykvíkingar ein gullverðlaun og
þrenn bronsverðláun.
Haukur Eiríksson göngukappi
frá Akureyri vann flest verðlaun
einstaklinga á mótiny, þrenn gull-
verðlaun og ein silfurverðlaun.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði varð tvöfaldur íslandsmeistari. Hún sigraði í svigi og alpatvíkeppni annað árið í röð.
Stökkið
færttil
Ólafs-
fjarðar
Veðrið setti strik í reikninginn á
Skíðamóti íslands, sem lauk
formlega með boðgöngu í Bláfjöll-
um í gær. Ekki var hægt að keppa
í stökki, norrænni tvíkeppni og sam-
hiiðasvigi.
Ráðgert er að stökkkeppnin fari
fram á Ólafsfírði um næstu helgi
þar sem keppendurnir fimm, sem
skráðir voru til leiks, eru allir frá
Ólafsfírði og þar er jú eini stökk-
pallurinn á landinu.
Keppni í samhliðasvigi karla og
kvenna féll niður. Hugsanlegt er
að keppt verði í samhliðasvigi í
Bláfjöllum um næstu helgi ef næg
þátttaka fæst.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Örnólfur Valdimarsson frá Reykjavík náði besta
tírhanurh í báðúm úmferðum "svigsins á sunnudág.
Ásta og Ömólfur endur
tóku leikinn frá í fyrra
ÁSTA Halldórsdóttir frá ísafirði og
Örnólfur Valdimarsson úr Reykjavík
sigruðu í svigi á Skíðamóti íslands á
sunnudag. Ásta vann annað árið í
röð og Örnólfur þriðja árið.
*
Asta hafði ótrúlega mikla yfirburði í
fyrri umferð svigsins og má segja
að hún hafi þá þegar tryggt sér sigur.
Hún hafði þriggja sek. forskot á Guðrúnu
IHam H. Kristjánsdóttur og gat
ZalurB. því tekið lífínu með ró í
Jónatansson síðari umferð.
skrifar
„Það iná segja að þetta hafí verið minn
dagur. Það gekk allt upp hjá mér í fyrri
umferð og í síðari umferð keyrði ég af
öryggi og tók enga áhættu. Ég get ekki
verið annað en ánægð með að vinna tvo
íslandsmeístarátitla á þessu rrióti, svigið-
og alpatvíkeppnina," sagði Ásta Halldórs-
dóttir, sem keppir fyrir ísafjörð.
Ásta, sem er 19 ára Bolvíkingur, stund-
ar námi á skíðabraut MÍ á Isafirði og
verður stúdent í vor. Hún hefur verið
mjög sigursæl í gegnum yngri aldurs-
flokkana. „Ég hef verið mikið á skíðum
í vetur, en hef þó átti í bakmeiðslum. Ég
vil nota tækifærið til að þakka þjálfara
mínum, Hafsteini Sigurðssyni, fyrir að-
stoðina í vetur, sem hefur verið ómetan-
leg.“
Ásta segist ætla að taka sér frí frá
námi eftir stúdentsprófið í vor. „Ég hef
áhuga á að fara erlendis næsta vetur og
æfa. Það er nauðsynlegt að fara erlendis
til að æfa sérstakelga fyrir áramót þegar
veður er verst hér heima, sagði Ásta, sem
byrjaði að æfa skíði sex ára gömul.
Örólfur Valdimarsson frá Reykjavík
vann sinn sjönda íslandsmeistaratitil er
hann sigraði í svigi þriðja árið í röð. Hann
náði besta tímanum í báðum umferðum
svigsins. „Ég keyrði bara þétt án þess að
taka verulega áhættu. Keppnin var mjög
jöfn og það mátti ekkert útaf bregða. Ég
vissi það frá fyrri mótum í vetur að ef
ég kæmist niður ætti ég alla möguleika
á sigri,“ sagið Örnólfur.
Örnólfur fór fyrri ferðina á 53,33 sek
og var 0,13 sek á undan Hauki Arnórs-
syni úr Reykjavík. Valdemar Valdemars-
son, sem sigraði í stórsviginu, kom
skammt á eftir. I síðari umferð náði Örn-
ólfur aftur besta tímanum. Valdemar
skaust þá upp fyrir Hauk og endaði í
öðru sæti og tryggði sér sigur í alpatví-
keppni.