Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 8
ítffrmR FOLX < f ♦ ' Reuter Diego Maradona í miðjunni, Ciro Ferrara til vinstri og Ricardo Alemao fagna sigri Napólí um helgina. KNATTSPYRNA / ENGLAND Fjórir hjá AC Mílanó sáu rautt Napólí með pálmann í höndunum Öruggt hjá Liverpool - segir Graham Taylor hjá Villa. 18. Englandstitill Liverpool í sjónmáli LIVERPOOL færðist nær settu marki um helgina —18. Eng- landsmeistaratitill félagsins blasir við. „Þetta virðist öruggt hjá Liverpool, en við getum 4 hugsanlega haldið spennunni út keppnina," sagði Graham Taylor hjá Aston Villa eftir leiki helgarinnar. „Ég tala ekki um titil fyrr en eftir mót,“ sagði Kenny Dalglish, en fjögur stig úr þremur leikjum tryggja hon- um og félögum í Liverpool enn eina rósina. Ronny Rosenthal kom Liverpool á bragðið í 4:1 sigri gegn Chelsea og lagið upp mark ians Rush, sem irmsiglaði sigurinn. „Ronny lék vel og Frá markið var mjög Bob gott. Hann vantar Hennessy hins vegar meiri leikæfingu," sagði Dalglish um lánsmanninn frá Standard Liege, sem hefur gert fimm mörk í fjórum leikjum með Liverpool. Steve Nicol gerði tvö % mörk og var valinn maður leiksins. Ken Bates, formaður Chelsea, sagði að Chelsea hefði gert sitt, „en mun- urinn á liðunum fólst í sendingun- um. Eiga leikmenn Liverpool aldrei misheppnaða sendingu?,“ spurði hann. David Platt skoraði fyrir Aston Villa í 1:0 sigri gegn fallliði Mill- wall og liðið á enn möguleika á efsta sætinu. Villa á eftir Norwich heima og Everton úti, en Liverpool á QPR og Derby heima, en Co- ventry úti. Vítaspyrna á Guðna Tottenham hélt áfram á sigur- braut, vann Manchester United 2:1 og er í þriðja sæti. Þetta er í fyrsta sinn í 16 ár, sem Spurs vinnu Un- ited í báðum innbyrðis leikjunum. Guðni Bergsson fékk 6 í einkunn, en átti sök á marki gestanna — handlék boltann innan teigs og dæmd vítaspyrna. „Þú leikur aldrei fyrir England" sungu stuðnings- menn United og beindu orðum sínum til Pauls Gascoignes, en hann svaraði með frábærum leik og gerði fyrra mark Spurs. „,,Gazza“ sýndi AC MÍLANÓ tapaði óvænt 2:1 fyrir Verona um helgina í sögu- legum leik, en Napólf vann Bologna 4:2 og nægir jafntefli gegn Lazio i' síðustu umferð til að tryggja sér ítalska meistara- titilinn íannað sinn á þremur árum. remur leikmönnum AC Mílanó, Marco van Basten, Frank Rij- kaard og Alessandro Costacurta, var vikið af velli og Arrigo Sacchi, þjálfari, fékk einnig að sjá rauða spjaldið áður en yfir lauk í Verona og þótti frekar strangt tekið á málum. „Við höfum gleymt þessum leik og hugsum aðeins um úrslitin í bikarnum," sagði Adriano Gall- iani, framkvæmdastjóri félagsins. Hann bætti við föstum skotum og orðin hittu í mark. „Við lofuðum hver öðrum að tala hvorki um leik- inn né titilinn, því síður um Lo Bello dómara og alls ekki um 100 líru smápening." Napólí gerði ný- lega markalaust jafntefli við Atal- anta, en var dæmdur 2:0 sigur á þeirri forsendu að smápeningi hefði verið kastað í einn leikmann liðsins undir lok leiksins og hann farið af velli þess vegna. Ruud Gullit, sem ekki hefur leik- ið í 11 mánuði vegna meiðsla, var með síðasta hálftímann, en endur- koma hans féll í skuggann vegna brottvísanna. Strax var brotið á Gullit, þjálfarinn mótmælti og fékk að hann er í hópi þeirra bestu,“ sagði Terry Venables. Þorvaldur Orlygsson var ekki í leikmannahópi Nottingham Forest, sem tapaði 2:0 í Southampton. Gestirnir áttu ekki skot að marki. Arsenal varð að sætta sig við 2:0 tap á Kenilworth Road, heimavelli Luton, en meistararnir hafa ekki unnið þar á gervigrasinu s.l. fimm ár. „Þetta var jafnt þar til þeir skor- uðu, en eftir það var aðeins eitt lið á veliinum." sagði George Graham hjá Arsenal. „Luton hefur ekki leik- ið betur síðan ég tók við fyrir þrem- ur mánuðum," sagði Jim Ryan, en liðið er enn í fallsæti. Eigendur Crystal Palace létu leigjendur Charlton ekki komast upp með neit múður á Selhurst Park og unnu fallliðið 2:0. „Við eig- um ekki einu sinni framherja, sem ei'u nógu góðir til að leika í 2. deild," sagði Lennie Lawrence, stjóri Charlton. rauða spjaldið. Á næstu mínútu jöfnuðu heimamenn, Rijkaard var vikið af velli á 83. mínútu, van Basten á 88. mínútu, sigurmarkið kom skömmu síðar og eftir það fékk Costacurta að fjúka. „Þetta er búið“ I Hollandi snerist dæmið einnig við, þegar PSV, meistari undanfarin fjögur ár, tapaði 4:1 gegn Fortuna Sittard. „Þetta er búið. Við gáfum meistaratitilinn frá okkur og getum engum kennt um nema okkur sjálf- um,“ sagði Kees Ploegsma, þjálfari PSV. Ajax gerði jafntefli og eru liðin með jafnmörg stig, en Ajax á leik inni. Sömu sögu er að segja frá Frakklandi. Marseille tapaði fyrir PSG og lét þar með efsta sætið frá sér til Bordeaux, en meistaramir eiga leik til góða. Real Madrid setti markamet í spænsku deildinni. Liðið hefur gert 97 mörk, marki meira en Barcelona 1950-51, og hefur sett stefnuna á að fara yfír 100 mörk, en þijár umferðir eru eftir. Hugo Sanchez bætti tveimur mörkum í safnið, er með 35 mörk, og ætlar að bæta met Telmos Zarras, sem gerði 36 mörk fyrir Bilbao 1950-51. Eyjóifur Sverrisson kom inná hjá Stuttgart, er liðið vann Werder Bremen 3:1. Stuttgart er í 6. sæti, en Bayern er nær öruggt með að veija titilinn. SKOTLAND Heimsmet hjá Rangers Trevor Steven tryggði Rangers 1:0 sigur gegn Dundee United og þar með var þriðji meistaratitill Rangers á fjórum árum í höfn. Þetta er 40. Skotlandsmeistaratitill fé- lagsins og hefur ekkert lið í heiminum sigrað svo oft í lands- móti — Penarol hefur 39 sinnum orðið meistari í Uruguay. Graeme Souness sagði fyrir fjórum árum, er hann tók við liðinu, að hann ætlaði að gera það að stórveldi í Skotlandi og Evrópu. Hann hefur greitt um 900 millj. kr. fyrir leikmenn og náð takmarkinu í Skotlandi, en glæstur frami í Evrópu hefur látið á sér standa. Hann var samt ánægður. „Mínir menn sýndu hvað þeir eru miklir at- vinnumenn. Við byijuðum illa i vetur og á tímabili var ég farinn að efast. Eftir að við náðum góðu forskoti í febrúar vorum við orðnir meistarar í fjölmiðlum og það hafði slæm áhrif á suma leikmennina. Hins vegar hafa þeir sýnt sitt rétta andlit í síðustu fjórum leikjum og við höfum sigrað með glæsibrag.“ ■ BRUCE Rioch stjórnaði Mill- wall í fyrsta sinn, er liðið tapaði fyrir Aston Villa. Fallliðið hefur þar með leikið 18 deildarleiki í rpð án sigurs, sem er Frá m_et hjá félaginu. Bob „Ég sá leikmennina þá ekki einu sinni með nafni,“ sagði stjórinn. ■ BOBBY Gould hjá Wimbledon ætlaði að taka þátt í London- maraþoninu á sunnudag, en varð að hætta við. „Ég get ekki verið með, því ég verð að stjórna mönnum mínum á æfingu á sama tíma,“ sagði hann eftir markalaust jafn- tefli gegn Coventry. „Ég þoli ekki svona frammistöðu — þetta var ömurlegt,“ bætti hann við. Leikur- inn var sá slakasti í manna minnum og áhorfendur bjuggust við því — aðeins 4.086 létu sjá sig og hafa aðeins einu sinni verið færri á leik í 1. deild síðan eftir seinni heims- styijöld. 3.496 voru á leik Wimble- don og Luton fyrr í vetur. ■ RONNY Rosenthal er hátt skrifaður hjá stuðningsmönnum Liverpool þessa dagana, en Liverpooi verður að ákveða fyrir 15. maí hvort af kaupum verður. Standard Liege setti 500.000 pund á kappann, en fimm mörk í fjórum leikjum hafa hækkað verðið, sem er nú 750.000 pund. ■ KENNY Dalglish hefur verið gagnrýndur fyrir að hleypa fimm mönnum sínum ekki í landsleiki á morgun, en Dalglish segir að mennirnir séu meiddir. John Barnes fór meiddur af velli á laug- ardag og verður ekki með Eng- landi gegn Tékkóslóvakíu. Ian Rush er meiddur í baki og verður ekki með Wales gegn Svíþjóð. Ronnie Whelan og Ray Houghton voru ekki með Liverpool gegn Chelsea og leika ekki með Irlandi gegn Sovétríkjunum. Steve Nichol leikur ekki með Skotum gegn Austur-Þjóðverjum. ■ RON Atkinson var óánægður með tap Sheffield Wednesday gegn QPR enda liðið enn í fall- hættu. Hann leyfði mönnum sínum ekki að fara inn í veitingsal leik- manna eftir leikinn heldur skipaði þeim beint upp í rútu eftir sturtu. ■ MARK Crossley lék í marki Nottingham Forest gegn Sout- hampton, en ekki Steve Sutton, sem er aðalmarkvörður liðsins, og vakti þetta mikla athygli. ■ GARY Bowyer jafnaði 3:3 á síðustu mínútu fyrir Hereford gegn Scunthorpe í 4. deildinni. Skömmu áður kom Ian Bowyer, faðir hans og þjálfari Hereford inná. Er þetta í 2. sinn í ensku deildinni, sem feðg- ar leika með sama liði — áður k m það fyrir hjá Stockport United árið 1950. ■ HOWARD Wilkinson hefur verið að gera góða hluti hjá Leeds, sem er efst í 2. deild. Liðið ætlar upp og fari svo, er gert ráð fyrir að seldir verði ársmiðar í forsölu fyrir næsta tímabil fyrir um 200 milljónir kr. Kynningarskrá félags- ins vegna 1. deildar í haust er tilbú- in í prentsmiðju! Urslit / B6 Staðan / B6 síðustu höfum GETRAUNIR: 121 111 X X 1 X X 1 LOTTO: 4 8 16 21 24 + 10

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.