Morgunblaðið - 05.05.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990
Samkomulag
um verkefiii
umhverfis-
ráðuneytis
SAMKOMULAG hefur náðst á
Alþingi um afgreiðslu frumvarps
um verkefni umhverfisráðuneyt-
is. Geislavarnir ríkisins og Eitur-
efhanefnd munu ekki færast und-
ir ráðuneytið eins og áður var
gert ráð fyrir og einvörðungu
mengunardeildir Hollustuvernd-
ar og Siglingamálastofhunar.
Akvæði um flutning yfirstjórnar
byggingar- og skipulagsmála
frestast að gildistöku til áramóta.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins segir að
flokkur hans fari ekki í stjórnar-
samstarf að loknum næstu kosn-
ingum öðru vísi en að breyta
þessum lögum.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra lagði í gær fram
breytingartillögur við frumvarpið,
þar sem gert er ráð fyrir að aðeins
þeir hlutar Hollustuvemdar og Sigl-
ingamálastofnunar sem fjalla um
mengunarmál fari undir umhverfis-
ráðuneytið, Geislavarnir og Eitur-
efnanefnd verði ekki innan þess og
tilfærslu yfirstjómar bygginga- og
skipulagsmála yfir í hið nýja ráðu-
neyti verði frestað til áramóta, að
tilmælum Samtaka sveitarfélaga.
Þá setur forsætisráðherra reglu-
gerð um yfirstjóm Hollustuvemdar
og Siglingamálastofnunar.
Síðdegis vom greidd atkvæði um
frumvarpið og hlutu tillögur forsæt-
isráðherra samþykki neðri deildar.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins sagði að miðað
við meðferð málsins á þinginu væri
lýsing sumra stjómarliða rétt, að
málið hefði dröslast í gegnum þing-
ið. Lýsti hann því yfir að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi ekki eiga þátt í
stjómarsamstarfi eftir næstu kosn-
ingar öðru vísi en að breyta þessum
lögum og koma skikki á yfirstjóm
umhverfismála.
í efri deild lýsti Karvei Pálmason
sig andstæðan fmmvarpinu, sem
hann taldi bera einstakan vott um
siðlaus hrossakaup.
Lög um verkefni umhverfismála-
ráðuneytis verða líklega að lögum
í dag, laugardag, og var í gær búist
við því að þingslit yrðu seint í kvöld
eða aðfaranótt sunnudags.
Starfsfólk Stöðvar 2, Sýnar og Bylgjunnar-Stjörnunnar kom saman í gær og létu allir í ljós ánægju með sameininguna.
Stöð 2, Sýn og Bylgjan-Stjarnan sameinast:
Hlutafé rúmar 800 milljónir og
steftit að almenningshlutafélagi
ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið hf., sem rekur Stöð 2, Sýn hf. og ís-
lenska útvarpsfélagið, sem rekur Bylgjuna-Sljörnuna, sameinuðust
í gær í eitt íyrirtæki sem ætlar að reka tvær sjónvarpsrásir og
tvær útvarpsrásir. Hlutafé fyrirtækisins verður rúmar 800 milljón-
ir króna í fyrstu, þar af kemur Stöð 2 með 500 milljónir, Sýn með
250 milljónir og Islenska útvarpsfélagið með 50, en stefiit er að
því að gera fyrirtækið að almenningshlutafélagi og leysa upp eignar-
haldsfélögin sem að því standa.
Viðræður milli Stöðvar 2 og
Sýnar hófust á sunnudag, þá um
möguleg afnot Sýnar af mynd-
lyklakerfi Stöðvar 2, en Sýn stóð
annars frammi fyrir staðfestingu
á pöntun á myndlyklum til að leigja
væntanlegum áskrifendum. Á
þriðjudag fóru viðræðurnar að snú-
ast um sameiningu fyrirtækjanha
og þeim lauk svo aðfaranótt föstu-
dags með því að skrifað var undir
samninga milli sjónvarpsstöðv-
anna.
í lokaþætti viðræðnanna tóku
þátt Orri Vigfússon, Jón Ólafsson,
Haraldur Haraldsson og Bolli
Kristinsson frá íslenska sjónvarps-
félaginu og Ámi Samúelsson, Lýð-
ur Friðjónsson, Halldór Guð-
mundsson og Þorgeir Baldursson
frá Sýn hf. Auk þeirra sat fundinn
Símon Gunnarsson endurskoðandi
Stöðvar 2, og Jóhann J. Ólafsson
stjórnarformaður Stöðvar 2 tók
þátt í viðræðunum símleiðis en
hann var staddur í útlöndum. í gær
komu Sigurður Gísli Pálmason og
Jóhann Öli Guðmundsson frá ís-
lenska útvarpsfélaginu til við-
ræðna og var gengið frá endanlegu
samkomulagi um miðjan dag.
Stjórn Stöðvar 2 hefur þegar
staðfest samkomulagið, en leggja
þarf það fyrir stjórnir hinna félag-
anna og síðan hluthafafundi. Gert
er ráð fyrir að 7, manna stjórn
verði yfir nýja fyrirtækinu. Verður
sérstakur yfirmaður ráðinn yfir
hverja rás og munu núverandi
sjónvarpsstjórar og útvarpsstjórar
halda sínum stöðum. Að öðru leyti
hefur ekki verið gengið frá manna-
haldi.
Jóhann J. Ólafsson stjórnarfor-
maður Stöðvar 2 sagði við Morgun-
blaðið að ástæðurnar fyrir samein-
ingunni væru augljósar. „Það var
ekki sérlega glæsilegt fyrir þessi
fyrirtæki að fara að keppa innbyrð-
is þegar næg samkeppni er á mark-
aðnum, og með sameiningunni
náum við miklu betri nýtingu á
fjármagni, tækjum og starfskröft-
um. Þetta er fyrst og fremst sókn-
arleikur," sagði Jóhann.
Árni Samúelsson stjórnarmaður
í Sýn sagði við Morgunblaðið að
sameining hefði ekki verið á dag-
skrá þegar viðræðurnar hófust við
Stöð 2 um síðustu helgi. „En þeir
Stöðvar 2 menn sóttu sameining-
una stíft og við fórum að hlusta
og þetta varð niðurstaðan," sagði
Árni.
Sigurður Gísli Pálmason stjórn-
arformaður íslenska útvarpsfé-
lagsins sagði að með sameiningu
þessara félaga næðist fram hag-
kvæmni, t.d. við sölu á auglýsing-
um, almennt bókhald og vinnslu
frétta.
Stefnt er að því að gera nýja
félagið að almenningshlutafélagi
og Orri Vigfússon, sem situr í
stjórn Stöðvar 2 og Eignarhaldsfé-
lags Verslunarbankans, sagði við
Morgunblaðið að það hlutafé, sem
Verslunarbankinn á í Stöð 2, yrði
væntanlega selt og eignarhaldsfé-
lögin öll síðan lögð niður.
Jón Óttar Ragnarsson fyrrver-
andi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 hef-
ur oft lýst því yfir að opna eigi
hlutafélagið um Stöð 2 og leita
samninga við Sýn. Hann sagðist í
gær fagna þessari sameiningu og
sagði að þetta væri stór dagur í
þróunarsögu íslenskra ljósvaka-
miðla. „Nú er næsta mál að koma
ríkissjónvarpinu yfir á myndiykl-
ana þannig að fóík hafi raunveru-
lega ftjálst val,“ sagði Jón Óttar.
Stefnt er að því að byija að
senda út á nýrri sjónvarpsrás,
Sýnarrásinni, í ágúst. Hægt verður
að kaupa áskrift að Stöð 2 eða
Sýn eða báðum rásunum í einu og
nota sama myndlykilinn fyrir báð-
ar rásirnar. Undanfarið hafa verið
seldir um 2.000 myndlyklar fyrir
Stöð 2 sem hafa aðeins eina rás,
en hægt er að breyta þeim þannig
að taka megi inn tvær rásir.
Yfírlýsing frjálslyndra hægrimanna:
Framtíð Aburðar-
verksmiðjunnar:
Ganga í þingflokk sjálfstæðismanna
„Hægrimenn sameinast en vinstrimenn sundrast“ segir Þorsteinn Pálsson
ÞINGMENN Fijálslynda hægriflokksins, þeir Ingi Björn Alberts-
son og Hreggviður Jónsson, ásamt varaþingmanninum Kolbrúnu
Jónsdóttur, gengu í gær tií Iiðs við þingflokk Sjálfstæðisflokks-
ins. Mættu þau í gær á þingflokksfúnd sjálfstæðismanna í fyrsta
sinn, þar sem formaður flokksins og þingflokksins buðu þau vel-
komin við lófatak annarra þingmanna.
Morgunblaðið/Sverrir
Hreggviður Jónsson og Ingi Björn Albertsson, nýjustu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í gær.
Á fundi neðri deildar Alþingis,
síðdegis í gær, kvað Ingi Bjöm
Albertsson, formaður þingflokks
fijálslyndra hægrimanna, sér
hljóðs til að koma að tilkynningu.
Tilkynning Inga Bjöms var svo-
hljóðandi: „í þann stutta tíma sem
við háttvirtur þingmaður Hregg-
viður Jónsson höfum starfað sem
þingmenn Fijálslyndra hægri-
manna, höfum við starfað í anda
hægristefnu. Það er sannfæring
okkar, að það er sú eina stefna
sem komið getur þjóðinni út úr
þeim ógöngum sem vinstri villa
núverandi ríkisstjómar hefur leitt
yfir hana. Því teljum við afar
biýnt að fijálslynd hægri öfl sam-
einist í einum flokki; þar af leið-
andi var eftirfarandi samþykkt
gerð á þingflokksfundi Fijáls-
lyndra hægrimanna í dag:
Þingflokkur Fijálslyndra
hægrimanna samþykkir að ganga
til liðs við þingflokk sjálfstæðis-
manna.“
Ingi Bjöm tók það því næst
fram að Kolbrún Jónsdóttir, vara-
þingmaður flokksins á Reykja-
nesi, hefði tekið þá ákvörðun að
fylgja þeim Hreggviði í þingflokk
sjálfstæðismanna.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, tók til máls
eftir að Ingi Bjöm hafði lesið upp
tilkynninguna. Benti Þorsteinn á
að alla jafna væri það svo að liðs-
styrkur þingflokka færi eftir úr-
slitum kosninga og héldist þannig.
„Nú hafa hins vegar þau ánægju-
legu tíðindi og einstöku gerst að
liðsafli hefur bæst í hóp þing-
flokks sjálfstæðismanna." Hefði
innganga þingmanna fijálslyndra
hægrimanna verið samþykkt á
þingflokksfundi sjálfstæðis-
manna. Þorsteinn taldi þetta bera
vott um það að straumar í stjórn-
málum hefðu nú náð inn fyrir
veggi Alþingis. „Fijálslynd öfl em
að sameinast, á meðan vinstri
öflin em að sundrast," sagði Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
■ Þess skal getið að þeir Hregg-
viður og Ingi Björn voru kosnir
til þings fyrir Borgaraflokkinn,
en í fyrravor gengu þeir úr Borg-
araflokknum og stofnuðu þing-
flokk Fijálslyndra hægrimanna.
Borgin tilbú-
in til að ræða
við ríkið
- segir borgarstjóri
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Davíð Oddsson, kynnti á fúndi
borgarstjórnar á fimmtudag bréf
írá Steingrími Hermannssyni, for-
sætisráðherra, um framtíð Áburð-
arverksmiðjunnar í Gufúnesi.
Sagði borgarstjóri, að með bréf-
inu hefði verið opnað fyrir mögu-
leika á samkomulagi um lausn
málsins.
í bréfmu er gerð grein fyrir af-
stöðu ríkisstjórnarinnar til Áburðar-
verksmiðjunnar, boðið upp á viðræð-
ur milli ríkisstjórnarinnar og Al-
mannavarna Reykjavíkur um fram-
tíð verksmiðjunnar og hugsanlegan
flutning hennar og reifaður sá
möguleiki, að borgin kaupi einhveij-
ar eignir hennar.
Borgarstjóri sagði, að hann teldi
bréfið afar þýðingarmikið og gat
þess, að hann teldi ekki óeðlilegt að
borgin keypti eignir á lóð verksmiðj-
unnar, sem hún gæti nýtt, ef til
flutnings verksmiðjunnar k'æmi.
Sjá fleiri fréttir úr borgarsfjórn
á miðopnu.